Morgunblaðið - 06.10.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
Tuttugu Og
tveir sækja
um fjór-
ar frétta-
mannsstöður
TlTTllGU og tvcir sóttu um eina
stöóu fastráöins frcttamanns og
þrjár stööur lausráðinna frétta-
manna hjá hljóövarpi, en umsóknir
þcssar voru lagóar fram í lltvarps-
ráói í gær. Samþykkti Útvarpsráð að
mæla mcð C.unnari Kvaran i stöðu
fastráðins frcttamanns, en ekki var
tekin afstaða til umsókna um stöður
lausráðinna frcttamanna.
Eftirtaldir sóttu um stöður
þessar: Atli Steinarsson, Birna
Þórðardóttir, Borgþór Kjærne-
sted, Einar Sigurðsson, Elísabet
Guðbjörnsdóttir, Friðrik As-
mundsson Brekkan, Gunnar Kvar-
an, Hörður Ólafsson, Katrín
Pálsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir,
Olafur F. Stephensen, Samúel Örn
Erlingsson, Sigurður Þór Salv-
arsson, Stefán Jóhann Stefánsson,
Steinþór Ólafsson, Tryggvi Krist-
inn Jakohsson, Þórarinn Björns-
son og Þórný Perrot.
Fjórir umsækjendur óskuðu
nafnleyndar.
Ekið á sex
ára dreng
EKIÐ var á sex ára dreng á hjóli í
Kópavogi laust eftir klukkan 19.00
í gær OK handle«gsbrotnaði hann
og hlaut skurð á höfði, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
Drengurinn hjólaði fyrir bíl á
gatnamótum Álfhólsvegar og
Skálaheiðar og tók bílstjórinn
ekki eftir drengnum vegna þess að
reiðhjólið var Ijóslaust.
Borgarráð:
Húsnæði fyrir
þroskahefta
SAMÞYKKT var í borgarráði í gær
að kaupa hús til skammtímavistar
fyrir þroskahefta, samkvæmt upplýs-
ingum scm Mbl. fékk hjá Davíð
Oddssyni borgarstjóra í gær.
Tillaga um þetta efni hefur ver-
ið til umfjöllunar í borgarkerfinu
um tíma, en samþykkt var á síð-
asta ári að athuga með kaup á
húsnæði sem þessu.
Ráðstefnugestir.
Sjálfstæðiskonur
þinga um sveitar-
stjórnamál
Bændur fá afurðatjóns-
eða skattmatsbætur
BÆNDUR sem skera verða fé sitt vegna riðuveiki fá bætur samkvæmt
tvenns konar reglum, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Inga
Tryggvasyni formanni Stéttasambands bænda í gær.
LANDSSAMBAND sjálfstæðis-
kvenna, sem eru samtök 17 sjálf-
stæðiskvcnfélaga víðs vegar um
landið, efndu sl. laugardag til dags
ráðstefnu að afloknum formanna-
fundi. Voru þar mættir formenn all-
ra félaganna, stjórn landssam-
bandsins og margar sjálfstæðiskon-
ur, scm starfa í sveitarstjórnum
o.fl., en tckin voru fyrir ýmis mál,
scm sveitarstjórnamcnn eru að fást
við. Sóttu ráðstcfnuna um 60—70
konur, auk þcss sem varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, Friðrik
Sophusson var gestur ráðstefnunn-
ar í hádcgisvcrði og flutti ræðu um
stjómmál.
Margrét S. Einarsdóttir, for-
maður Landssambandsins setti
ráðstefnuna. Elín Pálmadóttir
flutti framsöguerindi um skóla-
skyldu og kennslu sex ára barna,
Katrín Fjeldsted, borgarfulltrúi í
Reykjavík, um heilbrigðismál,
Ólína Ragnarsdóttir, bæjar-
fulltrúi í Grindavík, ræddi
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
stjórna, Dögg Pálsdóttir, formað-
ur Barnaverndarnefndar Reykja-
víkur, um barnaverndarmál, og
Salome Þorkelsdóttir, alþingis-
maður, um samstarf sveitar-
stjórna. Fram að hádegi voru svo
frjálsar umræður, sem margir
tóku þátt í.
Að hádegisverði loknum í boði
Landssambandsins hófust pall-
borðsumræður undir stjórn
Bessíar Jóhannsdóttur, formanns
Hvatar, þar sem teknir voru til
umræðu ýmsir þættir er fram
höfðu komið í framsöguerindum.
Við pallborðið sátu Birna Guð-
jónsdóttir frá Sauðárkróki, sem á
sæti í stjórn Landssambandsins,
Katrín Eymundsdóttir, bæjar-
fulltrúi á Húsavík, Ingibjörg
Rafnar, borgarfulltrúi í Reykja-
vik, Ragnheiður Ólafsdóttir, bæj-
arfulltrúi á Akranesi, og Svan-
hildur Björgvinsdóttir frá Dalvík
og formaður kjördæmaráðs
sjálfstæðismanna, Jóna Gróa
Sigurðardóttir, varaborgar-
fulltrúi í Rvík. Urðu fróðlegar
umræður, sem skotið var inn í
spurningum eða athugasemdum
úr sal.
Riðuveikin:
Annarsvegar fá menn svokall-
aðar afurðatjónsbætur, sem eru
65% af verðlagsgrundvallar-
verði, en hins vegar svokallaðar
skattmatsbætur, sem greiddar
eru samkvæmt skattmati næstu
áramóta á eftir. Afurðatjóns-
bætur eru greiddar þeim sem
slátra verða fé sínu að fyrirmæl-
um yfirvalda, en einn bóndi á
landinu verður að skera fé sitt í
ár af þeim sökum, en hann er
búsettur í Mýrdal og eru um 200
fjár á þeim bæ. Samkvæmt af-
urðatjónsbótum fá menn bættan
skaða sinn þannig, að þeir fá
greitt verð samkvæmt verðlags-
grundvelli fyrir hverja kind
næsta ár á eftir, en síðan 65% af
því verði næstu tvö árin. Ef um
er að ræða niðurskurð á áður
ósýktu svæði geta sauðfjárveiki-
varnir ákveðið bætur á þriðja
ári, en þær nema 45% af fyrr-
greindu verði.
Þá hefur verið samþykkt í rík-
isstjórn að greiða þeim bændum
bætur samkvæmt ákveðnum
reglum sem ákveðið hafa að
fækka fé sínu vegna riðu, en þeir
fá greiddar hálfar skattmats-
bætur. Samkvæmt þeim bótum
fá bændur greiddar hálfar skatt-
matsbætur, auk venjulegs verðs
fyrir kind á blóðvelli. Er þetta
gert til að hjálpa bændum til að
fara yfir í aðrar búgreinar. Búist
er við að háifar skattmatsbætur
nemi um 400—500 krónum á
hverja kind í ár, en þær greiðast
í tvennu lagi.
Hræjum af riðuveikum kind-
um er eytt, en afurðir kinda sem
slátrað er vegna riðuveikitilfellis
á viðkomandi bæ eru fluttar á
markað eins og afurðir annars
ósýkts fjár.
„Mín skoðun er sú að hálfar
skattmatsbætur muni duga
mönnum skammt til að breyta
um búskaparhætti, enda óvíst
hversu margir muni ganga að
þessum kjörum," sagði Ingi
Tryggvason.
Frá ráðstefnu sjálfstæóiskvenna. Elín Pálmadóttir í ræðustól. Vid borðið
Margrét S. Einarsdóttir, formaður Landssambandsins, Hildur Einarsdóttir
úr Boiungarvík, en þær skiptu með sér fundarstjórn og rilarar ráðstefnunnar
Soffía Karls úr Keflavík og Svava Gunnlaugsdóttir úr Borgarnesi.
Dýrbítur
laus í
Hafnarfirði
DÝKBÍTUR drap lamb skammt
fyrir sunnan Hafnarfjörð i fyrra-
dag og beit önnur þrjú svo illa, að
þcim varð að lóga í gær. Fimmta
lambið lenti einnig í klónum á
skcpnunni, en því tókst að
bjarga. í liðinni viku fannst lamb
dautt á sama stað og þykir ein-
sýnt, að sami dýrbíturinn hafi
verið að verki. Tveir hundar sáust
á vappi í fyrradag við fjárhúsin,
sem eru við Krísuvíkurveginn.
í sumar gekk dýrbítur laus við
Krísuvík og fundust 12 lömb
dauð eftir að hafa lent í klóm
hans. Ljóst þykir, að mun fleiri
lömb hafi lent í klóm skepnunn-
ari, því 31 lambs er saknað.
Grunur beindist að labrador-
hundi og var hann settur í ein-
angrun og honum síðan lógað,
þar sem einsýnt þótti að hann
hefði verið að verki.
Mynd Mbl. KÖE
Sigurður Arnórsson bóndi við hræið sem fannst illa útleikið og lágu iðrin úti. í gær varð að lóga þrcmur
lömbum.
íslenska hljómsveitin:
Á þriðja hundr-
að áskriftarkort
hafa selst
„Á ÞRIÐJA hundrað áskrift-
arkort hafa selst frá því að sala
þeirra hófst fyrir fjórum dög-
um,“ sagði Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, starfsmaður Is-
lensku hljómsveitarinnar, við
Mbl. er hún var spurð hvernig
gengi að selja áskriftarkort á
tónleika íslensku hljómsveitar-
innar í vetur. „Nú höfum við
selt kort 6. hverja mínútu að
meðaltali, en ætlunin er að
reyna að selja alls 475 kort,“
sagði Anna. Hún tók það enn-
fremur fram að ekki væri víst
hvort lausamiðar verði seldir
fyrir tónleika hljómsveitarinn-
ar. Loks má geta þess að fyrstu
tónleikarnir verða 30. október
nk.