Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 32
^^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
^^^skriftar-
síminn er83033
MIÐVIKITDAGUR 6. OKTÓBER 1982
Yfirborgar-
stjóri Kaup-
mannahafnar
í heimsókn
Yfirimrgarstjóri Kaupmannahafn-
ar mun koma í heimsókn til íslands
nk. laugardag, < n hér er ekki um
opinhera heimsókn að ræða, sam-
kvæml upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá l)avíð Oddssyni borgarstjóra í
Itcykjavík í gær.
Yfirborgarstjóri Kaupmanna-
hafnar mun koma hingað í fylgd
15 danskra blaðamanna, en hann
ferðast með danska blaðamenn
árlega, en borgaryfirvöld í
Reykjavík skipuleggja ferð hans
hingað.
Alþingi kem-
ur saman á
mánudaginn
ALHNGI, 105. löggjafarþing verður
sett með hefðbundnum hætti nk.
mánudag, 11. október, og hefur for-
seti íslands sent út forsetabréf þess
efnis að fenginni tillögu forsætis-
ráðherra.
Að venju hefst athöfnin með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl.
13.30, séra Ólafur Skúlason
dómprófastur prédikar að þessu
sinni. Að lokinni guðsþjónustunni
verður gengið fylktu liði til Al-
þingishússins þar sem foseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, flyt-
ur ræðu í sameinuðu þingi og segir
síðan 105. löggjafarþingið sett. Þá
tekur aldursforseti þingsins, sem
er Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra, við fundarstjórn þar til
forseti sameinaðs þings hefur ver-
ið kjörinn.
Rýrnun kaupmáttar er 15,5%
hjá opinberum starfsmönnum
Rýrnunin hjá launþegum almennt er um 12,1%
KAUPMATTUR kauptaxta, miðað
við vísitölu framfærslukostnaðar
hinna ýmsu stétta, hefur rýrnað
verulega á undanförnum árum, eða
frá í lok árs 1978, þegar hann var
mestur, þar til í aprilmánuði sl., sam-
kvæmt upplýsingum, sem fram
koma í ágústhefti Kjararannsóknar-
nefndar. Mest er rýrnunin hjá
opinberum starfsmönnum, en
minnst hjá verzlunar- og skrifstofu-
fólki af þeim úrtakshópum, sem til-
greindir eru.
Kaupmáttur kauptaxta opin-
berra starfsmanna rýrnaði á
framangreindu tímabili um
15,5%, eða úr 125,9 stigum í 106,4
íslenzk matvæli:
Ferskur
hörpudiskur
til Banda-
ríkjanna
ÍSLENZK matvæli hafa nú hafið
útflutning á ferskum hörpudiski til
Kandaríkjanna. Hörpudiskurinn er
fluttur flugleiðis út tvívegis í viku
og fara nálægt 5 lestum utan í viku
hverri. Hörpudiskurinn er seldur í
gegnum sölukerfi SH.
Að sögn framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, Sigurðar Björns-
sonar, stunda tveir bátar veið-
arnar á hörpudisksmiðum í
Hvalfirði. Landa þeir daglega
um 10 til 12 lestum af skel, en
það samsvarar um einni lest af
unnum fiski. Aflinn er unninn
þegar næsta dag og honum
pakkað í 25 punda kassa.
Þá sagði Sigurður, að vinnslan
gengi vel og verðið fyrir hörpu-
diskinn væri þokkalegt. Sagði
hann, að þetta væri í fyrsta
skipti, sem jafn skipulega væri
unnið að útflutningi fersks
hörpudisks. Auk hörpudisks-
vinnslunnar væru lax og síld
Hörpudiski landað í Reykjavík.
unnin hjá fyrirtækinu, en hvort
tveggja gengi fremur erfiðlega.
Síldarvinnslan ætti erfitt upp-
dráttar vegna samkeppni við
innflutta danska síld og laxinn
fengist aðeins á sumrin. Það
Ljósmynd Mbl. Emilía.
væri einkennileg ráðstöfun yfir-
valda að neita fyrirtækinu um
innflutning á ferskum laxi. Sótt
hefði verið um innflutningsleyfi
á laxi frá Færeyjum, en það ekki
fengizt.
stig. Síðan hefur kaupmátturinn
haldið áfram að rýrna, m.a. vegna
gengisfellinga og vísitöluskerð-
inga.
Kaupmáttur kauptaxta verka-
manna rýrnaði um 10,7% á um-
ræddu tímabili, en vísitalan hefur
farið úr 118,8 stigum í 106,1 stig.
Kaupmáttur verkakvenna rýrn-
aði á umræddu tímabili um 11,7%,
en vísitalan fór úr 124,7 stigum í
110,1 stig.
Hjá iðnaðarmönnum er rýrnun-
in á umræddu tímabili um 10,4%,
en vísitalan hefur farið úr 107,1
stigi í 95,9 stig.
Kaupmáttur kauptaxta verzlun-
ar- og skrifstofufólks hefur rýrnað
á umræddu tímabili um 10,2%, en
þar hefur vísitalan farið úr 115,5
stigum í 103,7 stig.
Kaupmáttur kauptaxta land-
verkafólks hjá ASÍ hefur rýrnað
um 10,7% á framangreindu tíma-
bili, en þar hefur vísitalan farið úr
115,8 stigum í 103,4 stig.
Kaupmáttur kauptaxta „allra
launþega", þ.e. framangreindir
hópar vegnir saman, hefur rýrnað
um 12,1% á umræddu tímabili.
Vísitalan hefur farið úr 118,7 stig-
um í 104,3 stig.
Fiskiðjusamlag Húsavlkur:
Fiskborgarar
til útflutnings
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur hf. er nú að hefja framleiðslu á fiskborgur-
um til útflutnings. Tilraunum vegna framlciðslunnar er nú að Ijúka og á
næstunni verða nokkur þúsund pund send til Bandaríkjanna, en áður hafa
nokkrar prufusendingar farið vestur um haf. Fiskborgararnir fara í gegnum
sölukerfi Iceland Seafood.
Að sögn Tryggva Finnssonar,
framkvæmdastjóra Fiskiðjusam-
lagsins, hafa tilraunir vegna
framleiðslunnar staðið yfir und-
anfarna mánuði og eru nú á loka-
stigi. Sagði hann, að ýmislegt
hefði orðið að taka með í reikning-
inn og breyta meðan á tilraunum
stóð, meðal annars vél þeirri, sem
notuð er til framleiðslunnar, en
hún var gerð fyrir aðra vinnslu í
upphafi. Þá sagði hann, að hráefn-
ið væri aðallega fengið úr þorsk-
flökum og afkastageta afmarkað-
ist eins og er aðallega af frysti-
getu, en fiskborgararnir eru laus-
frystir og afkastagetan í laus-
frystingu er nú um 500 kíló á
klukkustund.
Tryggvi sagði einnig, að ætlunin
með þessu væri að ná fram frekari
virðisaukningu framleiðslunnar.
Byggjust menn við því, að viðun-
andi verð fengist fyrir þessa fram-
leiðslu og því væri mikið unnið
með því, að auka vinnslu hráefnis-
ins hér heima og fá þannig auknar
tekjur fyrir það í gjaldeyri. „Það
er alltaf gaman að giima við nýjar
hugmyndir. Þær takast að vísu
ekki alltaf, en þegar svo er, eins og
virðist með fiskborgarana, veitir
það manni mikla uppörvun," sagði
Tryggvi.