Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
Fundur um
efnahagsmál
WjLshington, oklóber. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
hefur boðið ieiðtogum helztu iðn-
ríkja heims til fundar um efna-
hagsmál í Williamsburg í Virginíu
næsta vor.
Skýrði Pete Russel, aðstoðar-
blaðafulltrúi forsetans frá þessu i
dag. Enginn ákveðinn tími hefur
verið tiltekinn til þessa fundar,
sem standa mun í tvo daga en slík-
ir fundir eru haldnir árlega með
þátttöku Bandaríkjanna, Bret-
lands, Frakklands, Vestur-Þýzka-
lands, Ítalíu, Kanada og Japans. í
Bandaríkjunum var slikur fundur
haldinn síðast 1976 og þá í Puerto
Rico.
Hengdir
fyrir morð
liarare, Zimbabwe, 6. október. AP.
TVEIR liðhlaupar úr her Zimbabw-
es, sem fundnir höfðu verið sekir um
morð, nauðgun og rán voru hengdir í
dag.
Þetta voru fyrstu aftökur, sem
fram hafa farið þar í landi með
samþykki Roberts Mugabes for-
sætisráðherra, frá því að landið
hlaut sjálfstæði 18. apríl 1980.
Mennirnir tveir voru á meðal 200
liðhlaupa, sem sakaðir eru um að
hafa staðið að þeirri afbrotaöldu,
sem gengið hefur yfir landið að
undanförnu.
Afganistan:
Hershöföingi finnst
látinn af skotsárum
Hér sést hvar lík Francesco Dellacha, eins yfirmanns Ambrosio-
bankans á ítaliu sem hefur verið í sviðsljósinu undanfarið vegna gífur-
legs fjármálahneykslis, er borið á brott eftir að hann hafði kastað sér
fram af svölum á fjórðu hæð bankans. Lögreglan hefur tilkynnt að hér
hafi augljóslega verið um sjálfsmorð að ræða.
Islamabad, 5. október, AP.
ABDIIL Wodud, háttsettur hershöfð-
ingi í afganska stjórnarhernum,
fannst látinn af skotsárum á skrif-
stofu sinni fyrir nokkrum dögum að
því haft er eftir vestrænum sendi-
mönnum í Pakistan.
Wodud var gerður að hershöfð-
ingja fyrr á þessu ári og eru menn
ekki á eitt sáttir um hvernig
dauða hans bar að höndum. Sumir
hallast að sjálfsmorði en aðrir
rekja hann til átakanna innan
afganska kommúnistaflokksins.
Wodud var einn af leiðtogum
Khalq-armsins og lítill vinur
Babrak Karmals, forseta og leið-
toga Parcham-armsins, sem á allt
sitt undir Sovétmönnum.
Eftir heimildum er haft, að afg-
anskir frelsissveitamenn hafi í
síðustu viku fellt 72 afganska ör-
yggislögreglumenn skammt fyrir
vestan Jalalabad, nálægt pakist-
önsku landamærunum. Sagt er, að
einn leiðtogi frelsissveitamann-
anna hafi „flúið" á náðir stjórn-
arhersins og flutt þau tíðindi, að
margir manna hans vildu gefast
upp gegn því, að þeir fengju að
ganga í stjórnarherinn og fá í
hendur Kalashnikov-riffla og pen-
inga. Á þetta agn var bitið og 72
öryggislögreglumenn sendir með
vopn og peninga til Khogiani en
þegar þangað kom tóku frelsis-
sveitamenn á móti þeim og drápu
alla.
Fimmtán afganskir lögreglu-
menn voru felldir skammt frá sov-
éska sendiráðinu í Kabúl í síðustu
viku en að undanförnu hefur
sendiráðið margoft orðið fyrir
árásum skæruliða. Til að koma í
veg fyrir þessar árásir var sett
upp varðstöð skammt frá sendi-
ráðinu en þegar skæruliðar réðust
enn einu sinni á sendiráðið í lið-
inni viku létu Rússarnir skothríð-
ina dynja á varðstöðinni, sem þeir
héldu, að væri í höndum skæru-
liða. Þegar dagaði lágu lögreglu-
mennirnir í valnum og höfðu
augljóslega fallið fyrir skothríð
Rússanna.
Everest klifinn
af Kanadamanni
Katmandu, Nepal, 5. október. AP.
KANADÍSKT fjallgöngulið komst á tind Everest í dag, mánuði eftir að
fjórir fjallgöngugarpar létust í snjóskriðu í fyrri tilraun liðsins til að ná
þessum langþráða árangri.
Laurie Skreslet, 34 ára gamall,
frá Calgary komst fyrstur leið-
angursmanna á toppinn og einn-
ig fyrstur Kandamanna. I fylgd
með honum voru tveir leiðsögu-
menn, sherparnir Sundare og
Lhakpa Dorje.
Eftir að hafa staldrað við á
toppnum í hálfa klukkustund
héldu þeir af stað niður og kom-
ust örugglega til fyrstu búða
sem eru í 7.987 metra hæð, en
tindurinn sjálfur er í 8.848
metra hæð.
Leiðangursmennirnir fylgdu
hefðbundinni leið upp tindinn,
þá slóð fór Sir Edward Hillary
frá Nýja Sjálandi, sem varð
fyrstur allra til að klífa tindinn
árið 1953 ásamt leiðsögumanni
sínum.
Everest-tindurinn hefur áður
verið klifinn af 118 karlmönnum
og 4 konum, en sex karlmann-
anna, þ.á m. leiðsögumaðurinn
Sundare, er kleif tindinn í morg-
un, hafa klifið hann tvisvar.
Sundare varð því í dag fyrsti
maðurinn til að klífa tindinn
þrisvar, en hann kleif hann fyrst
árið 1979 með vestur-þýskum
leiðangri og á síðastliðnu ári
með Bandaríkjamönnum.
Kirkjuhópur á
Filippseyjum:
Kvartar und-
an yfirgangi
stjórnvalda
Manila, KllippM'vjum, 4. október. AP.
HOPUR kaþólskra mótmælti í dag
tilraunum stjórnvalda til að tengja
kirkjuna við hrcyfingu skæruliða og
hvöttu ríkisstjórnina til þess að
hætta að angra kirkjunnar menn og
láta þá er i haldi eru lausa.
Mótmæli þessi í dag komu í
kjölfar þess að stjórnvöld gerðu í
siðastliðnum mánuði aðsúg að
tveimur kirkjum og handtóku
nokkra starfsmenn þeirra. Einnig
hafa trúboðar fengið að sitja fyrir
svörum hjá þeim svo klukkustund-
um skiptir.
Kristjanía:
Fimm ára
stúlka fannst
látin í ísskáp
SÁ óhuggulegi atburður átti sér
stað í síðustu viku að fimm ára
gamalt stúlkubarn fannst látið
inni í ísskáp sem var fyrir utan
hús foreldra þess í Kristjaníu.
Banameinið var köfnun, en eng-
inn mun hafa orðið barnsins var
þar sem það var í isskápnum,
þrátt fyrir að hann stóð við fjöl-
farna umferðargötu.
Lögreglan segir að ekki sé
álitið að um sakamál sé að
ræða, heldur liggi ljóst fyrir að
stúlkan litla hafi stungið sér
inn í ísskápinn í leik sínum, en
síðan ekki getað opnað hann
að innan og látist vegna súr-
efnisskorts.
Hún fannst síðan er hundur
nokkur, er var á gangi ásamt
eiganda sínum, sýndi ísskápn-
um óvenjulega mikla athygli
og eigandinn opnaði hann fyrir
sakir forvitni.
Swaziland:
Ellefu ára
drengur
eftirmaður
Sobhuza?
IMbabane, Swaziland, 4. oklóber. AP.
ÁREIÐANLEGAR heimildir hermdu
í dag að ellefu ára gamall drengur,
Makhosimevelo prins, hefði að því
er virðist, verið valinn eftirmaður
Sobhuza II, sem ríkti í konungdæmi
sínu í 61 ár þangað til hann lést
þann 21. ágúst síðastliðinn.
Ekki hefur verið gefin út nein
opinber tilkynning um val eftir-
mannsins og ekki er talið að það
verði gert í nánustu framtíð, en
Sobhuza lét eftir sig 400 syni og er
því hugsanlegt að valið hafi verið
vandasamt.
15
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Amarfell ......... 7/10
Arnarfell ....... 25/10
Arnarfell ........ 8/11
Arnarfell ....... 22/11
ROTTERDAM:
Arnarfell ....... 11/10
Arnarfell ....... 27/10
Arnarfell........ 10/11
Arnarfell ....... 24/11
ANTWERPEN:
Arnarfell ........ 9/10
Arnarfell ....... 28/10
Arnarfell ....... 11/11
Arnarfell ....... 25/11
HAMBORG:
Helgafell ....... 22/10
Helgafell ....... 12/11
Helgafell ........ 3/12
HELSINKI:
Mælifell ........ 11/10
Dísarfell ....... 15/11
Dísarfell ....... 14/12
LARVIK:
Hvassafell ....... 6/10
Hvassafell ...... 18/10
Hvassafell ....... 1/11
Hvassafell ...... 15/11
Hvassafell ...... 29/11
GAUTABORG:
Hvassafell ..... 7/10
Hvassafell ...... 19/10
Hvassafell ....... 2/11
Hvassafell ...... 16/11
Hvassafell ...... 30/11
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ...... 20/10
Hvassafell ....... 3/11
Hvassafell ...... 17/11
Hvassafell ..... 1/12
SVENDBORG:
Helgafell ........ 6/10
Dísarfell ....... 21/10
Helgafell ....... 26/10
Hvassafell ....... 4/11
Helgafell ....... 16/10
Dísarfell ....... 19/11
AARHUS:
Helgafell ....... 7/10
Helgafell ....... 27/10
Helgafell ....... 17/11
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ....... 1/11
Skaftafell ....... 2/12
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ....... 3/11
Skaftafell ....... 4/12
m.
SKIPADEILJD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Líkamsræktin,
Kjörgarði
sími 16400
Gerum
líkamsrækt
að lífsvenju