Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 Fyrstu efnahagsaðgerðir Kohls: Ráðherralaun lækkuð um 5% Bonn, 5. október AF. FYRSTU adgerðir hinnar nýju ríkisstjórnar Helmut Kohls í Vestur- Þýskalandi voru að lækka sín eigin laun en ekki er talið að það eitt sér muni breyta miklu um efnahagsástandið, sem nú er verra en það hefur nokkru sinni verið frá stríðslokum. Vestur-Þjóðverjar búa sig nú undir erfiða tíma og er gert ráð fyrir að niðurskurðartillögur stjórnarinnar muni brátt verða lagðar fram. Ef fjárlög stjórnarinnar fyrir 1983 verða samþykkt verða eftirlaun, námslán og mæðralaun skert og almenn- ingi verður gert að taka meiri þátt í lækniskostnaði en nú er. Einnig er gert ráð fyrir, að söluskattur verði aukinn um 1%, upp í 14%. Undir síðustu stjórn var það leitt í lög, að ríkið skyldi kosta mánaðar- dvöl launþega á heilsurækt- arstöðvum fyrir utan þeirra árlega sumarfrí en þessi hlunnindi verða nú afnumin. Tilkynnt hefur verið að pöntunum hjá vestur-þýskum iðnfyrirtækjum hafi fækkað mjög á þessu ári og þykja það mikil ótíðindi hjá þjóð, sem er jafn háð útflutningi og Vest- ur-Þjóðverjar. Kohl tók þeim á þann hátt að hann ákvað 5% launalækkun fyrir sig og ráð- herra sína. Hann kvaðst ætla að krefjast „fórna af þjóðinni" og því væri eðlilegt að byrja á stjórnendunum sjálfum. Með launalækkuninni sparast um 160.000 ísl. kr. Á það hefur hins vegar verið bent, að í stjórn Kohl eru ráðherrarnir fjórum fleiri en hjá Schmidt og eru laun þeirra samtals um 280.000 ísl. kr. Franz Josef Strauss, for- maður Kristilega sósíalsam- bandsins í Bæjaralandi, sem er aðili að stjórninni, sagði á blaðamannafundi í dag, að leiðtogar Frjálsa demókrata- flokksins hefðu fallist á að fella Schmidt gegn því að ekki yrði reynt að koma í veg fyrir ofbeldisfull mótmæli í landinu með lögum. Hann sagði, að þeim hefði ekki tekist að *• Helmut Kohl sver embættíseið sinn sem kanslari Vestur-Þýskalands. Myndin var tekin sl. fóstudag. Við eiðstafnum tekur Richard Stiicklen, forseti þingsins. ap. fryggja stuðning tveggja þriðju þingmanna flokksins við Kohl og að þeir, sem „nú tala um hollustu, ættu ekki að taka meira upp í sig en þeir eru menn til“. Þar var hann að svara Josef Ertl, fyrrverandi og núverandi landbúnaðar- ráðherra úr flokki frjálsra demókrata, sem hefur sakað Strauss um litla hollustu við nýju stjórnina. Landsfundur breska íhaldsflokksins: Thatcher innilega tekið á flokksþingi Brighton, 5. október AP. LANDSFUNDUR breska íhaldsflokksins hófst í Brighton á Eng- landi í dag og var Margaret Thatcher forsætisráðherra vel fagnað af fundarmönnum. Var henni lýst sem „heimsins mesta stjórnskör- ungi“ og að hún hefði blásið breskum hermönnum baráttuanda í brjóst í Falklandseyjastnðinu. Margaret Thatcher tók ekki til máls á þinginu í dag en sagt er, að hún hafi átt daginn engu síður. John Nott varnar- málaráðherra sagði um Falk- landseyjastríðið, að tvennt hefði ráðið mestu um sigur Breta. Ekki vopnabúnaðurinn, heldur hermennirnir sjálfir og konan, sem „situr við hlið mér“. Risu þá fulltrúarnir 7.500 úr sætum og fögnuðu Thatcher innilega. Cecil Parkinson, formaður flokksins, flutti ræðu í dag þar sem hann eggjaði flokksmenn sína lögeggjan og hvatti þá til að fara að huga að næstu kosningum, sem almennt er talið að verði á næsta ári. Hann fór hörðum orðum um Verkamannaflokkinn og þær samþykktir hans að gangast fyrir úrsögn Breta úr EBE og einhliða afvopnun, en mestu hættuna sagði hann stafa af kosningabandalagi jafnaðar- manna og frjálslyndra. Kvað hann atkvæðaskiptingu milli flokkanna vera með þeim hætti, að Verkamannaflokkur- inn gæti hugsanlega komist til valda með þriðjung kjósenda á bak við sig. Parkinson sagði, að menn yrðu að horfast í augu við at- vinnuleysið, 14%, 3,3 milljónir manna, en hann sagði, að það yrði ekki leyst með einu pennastriki. íhaldsflokkurinn þyrfti á tveimur kjörtímabil- um að halda til að koma á þeim umbótum í efnahagslíf- inu, sem að væri stefnt. Þó hefði margt áunnist, sagði Parkinson. „Samkeppnishæfni breskra fyrirtækja hefur auk- ist meira en í nokkru öðru landi, verðbólgan hefur hjaðn- að í 8% og minnkar enn, vextir hafa lækkað og framleiðni stóraukist. Næstu 18 mánuðir munu skipta sköpum fyrir þessa þjóð,“ sagði Cecil Park- inson. en 100 foringjar samsærismanna Spann: Meira meðal Madrid, 5. október. AP. SPÁNSKA dagblaðiö E! Pais hefur það í dag eftir „áreiöanlegum heimildum“, að skjol með nöfnum meira en 100 foringja í hernum hafi fundist í fórum foringjanna þriggja, sem i síðustu viku voru teknir fastir og ákærðir um að hafa ætlað að ræna völdum 27. október nk., daginn áður en kosningar fara fram á Spáni. Stjórnvöld hafa verið mjög fátöluð um rannsóknina á valdaráninu fyrirhugaða og engin nöfn hafa verið nefnd nema þeirra þriggja, sem fyrst voru teknir. í fréttinni í E1 Pais segir, að samsærismenn- irnir hafi haft yfir digrum sjóðum að ráða en útskýrir það ekki nánar. Valdaránið átti sem fyrr segir að fara fram daginn áður en kosn- ingar verða á Spáni, 28. okt. nk., en allar spár hníga að því, að sósíalistar undir forystu Felipe Gonzalez muni sigra í þeim. Ef þeir mynda stjórn verður það fyrsta vinstri- stjórnin á Spáni frá 1936, þeg- ar Francisco Franco komst til valda. Foringjarnir þrír, sem handteknir voru í síðustu viku, eru sagðir hafa staðið í sambandi við foringja, sem í febrúar í fyrra gerðu árang- urslausa tilraun til að ræna völdunum á Spáni. Fullyrt er t.d., að Milan del Bosch, hers- höfðingi, sem nú situr í fang- elsi fyrir samsærið í fyrra, hafi átt að verða yfirmaður herstjórnarsvæðisins í Madrid ef allt hefði farið eftir áætlun. Felipe Gonzalez, formaður Sósíalistaflokksins, sagði á útifundi í dag með stuðnings- mönnum sínum, að það væri enginn jarðvegur fyrir her- byltingu á Spáni. Að vísu væru nokkrir menn óðfúsir að „bjarga" Spáni en það vildu þeir án tillits til þeirra 38 milljóna Spánverja, sem land- ið byggðu. „Ég er viss um, að lýðræðið stendur fastari fót- um en fyrr eftir þessa raun," sagði hann. Kjarnorkuvopna- viðræðurnar í Genf: Reagan stefnir að skjótum samningi Wa.shington, 5. október. Al*. EDWARD L. Rowny, samningamaður Bandaríkjastjórnar í kjarnorkuvopna- viðræðunum í Genf, sagði í dag, að hann hefði um það fyrirmæli frá Ron- ald Reagan að komast sem fyrst að samkomulagi við Sovétmenn ef mögu- legt er. Kvaðst hann vera viss um, að tillögur Reagans gætu dregið úr hætt- unni á kjarnorkustyrjöld gagnstætt þvi, sem væri með ýmsar aðrar tillög- ur, sem beinlínis ykju á hana. Rowny sagði, að með því að hætta einungis að fjölga kjarnorkuvopn- um frá því, sem nú er, eins og Brezhnev hefur lagt til, eða fækka þeim lítillega, væri verið að auka hættuna á kjarnorkustríði. Til þyrfti að koma meiriháttar niður- skurður eins og fælist í tillögum Reagans. Kvað hann styrkleika- hlutföllin nú vera 5 á móti 2 Sovét- mönnum í hag og sagði, að þessi munur einn sér væri e.t.v. alvarleg- asta ógnunin við heimsfriðinn nú. Röksemdirnar eru þær, að Sov- étmenn kynnu að freistast til að nýta sér yfirburðina og verða fyrri til að ráðast á Bandaríkjamenn eða að þeir siðarnefndu byrjuðu af ótta við hernaðarmátt hinna. Edward L. Rowny átti í dag fund með sendiherrum NATO-ríkjanna í Washington og skýrði þeim frá við- ræðunum við Sovétmenn, sem hefj- ast aftur á morgun, miðvikudag, í Genf. Fagan sætir geðrannsókn London, 5. október. AP. MICHAEL Fagan, maðurinn er braust inn í Buckingham- höll og komst á rúmstokk drottningar í júlímánuði síð- astliðnum, hefur nú verið úr- skurðaður í geðrannsókn, og kemur þessi úrskurður í kjöl- far aðvarana frá sálfræðingum er telja að Fagan eigi að vera á geðsjúkrahúsi, þar sem hann setji drottninguna í hættu með ranghugmyndum sínum. Fagan hefur sem kunnugt er tilkynnt að ástæðan fyrir inn- broti hans í höllina hafi aðal- lega verið sú að hann elski drottninguna. Irakar segjast hafa grandað 2500 Irönum Nicosia, Kýpur, 5. október. AP. ÍRAKAR hafa tilkynnt að þeir hafi skotið á stöðvar írana á aðalbardaga- svæðum þjóðanna, en íranir höfðu áð- ur tilkynnt að þeir hefðu unnið þarna umtalsverða sigra. Tilkynning frá írökum segir að herafli þeirra hafi skotið viðstöðu- laust á mikilvægar stöðvar írana og hafi flugvélar þeirra allar snúið heil- ar til baka og hafi þeir grandað um 2.500 írönskum hermönnum á und- anförnum fjórum dögum. íranir hafa ekki staðfest þessa fregn, en segja að þeir hafi gert harðar árásir í dögun í morgun og hafi þeir þá unnið umtalsverða sigra. Mannfall hafi orðið nokkuð hjá írökum. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem kom saman að kröfu íraka í gær samþykkti einróma ályktun þess eðl- is að vopnahléi verði komið á í lönd- unum og báðir aðilar dragi herlið sitt til baka frá þeim svæðum er ekki tilheyra þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.