Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 25 Ljósmynd Mbl. Kristján Einarsson. f Volvo 760 GLE. „Flaggskip" Volvo-flotans 760 GLE kynntur hérlendis — Litlar breytingar á 240-línunni — 360 GLT nýr bíll í 3-línunni Bílar Sighvatur Blöndahl VELTIR HF umboðsmaður Volvo á íslandi kynnti á dögun- um 1983-árgerðirnar frá Volvo. Litlar breytingar verða á 240-línunni, en hins vegar verður nú boðið upp á nýjan bíl í 3-lín- unni, Volvo 360 GLT, eins og við sögðum frá hér í blaðinu í Iiðinni viku. Til viðbótar þessu var kynntur hér á landi í fyrsta sinn „Flaggskip" Volvoflotans Volvo 760 GLE, sem var kynntur í Evr- ópu s.l. vor. VOLVO 760 GLE Volvo 760 GLE er mjög vand- aður lúxusbíll, sem ekkert hefur verið til sparað. Hann er knúinn 2.8 lítra vél, sem virkar alveg Mdaborðid I nýja bilnum. ágætlega. Hins vegar bíður mað- ur óneitanlega eftir Turbo-út- færslunni, sem væntanleg er á næsta ári. Bíllinn býður upp á tvo valkosti í gírskiptingu: l)Beinskipting með hraðagír. Hraðagírinn minnkar eldsneyt- isnotkun bifreiðarinnar um allt að 10% á venjulegum þjóðvega- akstri, að sögn þeirra Volvo- manna. 2)Fjögurra gíra sjálf- skiptingu, þar sem fjórði gírinn virkar sem hraðagír. Þessi hönn- un sjálfskiptingarinnar minnkar snúningshraða vélarinnar um allt að 30% á venjulegum þjóð- vegaakstri, og það minnkar svo aftur eldsneytisnotkun um allt að 20%, að sögn Volvo-manna. Ökumaður getur tekið hraða- gírinn úr sambandi þegar hon- um hentar, t.d. þegar bifreiðinni er ekið innanbæjar. Það er gert með því að styðja á hnapp í íkiptingunni. Ég tók aðeins í sjálfskiptan 760 GLE bíl á dögunum og kom það mjög skemmtilega út. Var tiltölulega lipur í snúningum og svaraði ágætlega í akstri. Sæti bílsins voru leðurklædd og það fór ágætlega um mann, bæði frammi í og aftur í. Hins vegar er þess að geta, að hægt er að velja um plussáklæði eða leður- áklæði á sætin. Volvo 760 GLE kostar á götuna liðlega 467 þús- und krónur. VOLVO 240 Ekki hafa verið gerðar miklar útlitsbreyingar á 1983-ágerðinni miðað við 1982-árgerðina. Bíl- arnir heita nú 240, en ekki 242 eða 244 eins og áður. Þeir sem í boði eru heita því 240 DL, 240 GL, 240 GLE, GLT, Turbo og Turbo dísel. Það kom fram hjá þeim Volvo-mönnum, að nú verður boðið upp á meira úrval í litavali, en nokkru sinni fyrr. Síðan verður að sjálfsögðu boðið upp á stationútfærslu af öllum framangreindum gerðum og má í því sambandi geta þess, að Volvo Turbo Station er fyrsti fjöldaframleiddi Turbobíllinn á markaðinum. VOLVO 340—360 Útliti bílsins hefur lítillega verið breytt á þann veg, að hann er lægri að framan en áður og allar tegundir bílsins eru með vindskeiðum. Þetta hefur orðið til þess að minnka loftmótstöðu bílsins og er hún nú minna en 0,41 cw, sem er um 10% minna en á eldri árgerðum af Volvo 340. Þá hafa verið gerðar breytingar á innréttingu bílsins, sem bæði gera bílinn rúmbetri og þægi- legri. I bílinn hefur verið hannað nýtt mælaborð. Eins og við skýrðum frá í blaðinu á dögun- um kynntu Volvoverksmiðjurnar nýjan bíl í þessum stærðar- flokki, Volvo 360 GLT, en hann er knúinn mun kraftmeiri vél, en áður, eða 2ja lítra vél í stað 1,4 lítra í 340 bílnum. Nýr mjög sport- legur Mazda 626 á markaðinn — Vindstuðullinn aðeins 0,34—0,36 — Sparneytnari en forveri hans Mazda-verksmiðjurnar jap- önsku kynntu fyrir skömmu nýjan Mazda 626-bíl, sem ætlað er að lcysa þann gamla af hólmi. Ef marka má af myndum er hér á ferðinni mjög sportlegur og skemmtilega hannaður bíll, sem er mjög ólíkur forvera sínum, sem hefur verið lítt breyttur í 3—4 ár. ÞRENNRA, FERNRA OG FIMM DYRA Boðið verður upp á þennan nýja 626-bíl tvennra, fernra og fimm dyra í svokallaðri „Hatch- back-útfærslu“. Verkfræðingar Mazda hafa lagt sig mjög í líma við, að koma loftmótstöðu bílsins niður. Má í því sambandi nefna, að tvennra dyra bíllinn er með vindstuðulinn 0,34, sem er óneit- anlega mjög gott. Fernra dyra bíllinn er með vindstuðulinn 0,36 og fimm dyra bíllinn með stuðul- inn 0,35. Sem dæmi um hversu vindstuðullinn er lár, þá er RX-7-sportbíllinn frá Mazda með vindstuðulinn 0,36. VÉLIN Tvær vélar verða í boði, 1,6 lítra, 4ra strokka 81 DIN hest- afla vél og síðan 2,0 lítra, 4ra strokka 102 DIN hestafla vél. Vélarnar .hafa verið léttar lít- ilsháttar og samkvæmt upplýs- ingum Mazda-verksmiðjanna eyða þær 5—10% minna benzíni. INNRÉTTING Innrétting bílsins hefur verið hönnuð frá grunni. Meira er nú lagt upp úr gæðum sætanna en áður, um fleiri stillingar er að Vönduð sæti. ræða og að sögn verksmiðjanna er mun slitsterkara áklæði á þeim. Mælaborðið hefur verið hannað mun bogadregnara en áður, þannig að stjórntæki bíls- ins séu betur inna seilingar en áður, sem er mikil framför. í bílnum er ný 4ra hraða miðstöð, sem er 30% öflugri en miðstöðin í eldri gerðum, sem færist bíln- um óneitanlega til tekna. Þá má geta þess, að farangursrými bíls- ins hefur verið stækkað nokkuð frá því sem áður var, m.a. með því að færa benzíngeymi bílsins. AKSTURS- EIGINLEIKAR Til að bæta aksturseiginleika bílsins, er fjöðrun hans gjör- breytt, en byggt er á sama kerfi og er undir 323-bílnum, sem kom á markaðinn fyrir tveimur ár- um, en það kerfi hefur hlotið lof flestra sérfræðinga. Með tilkomu þessa nýja Mazda 626-bíls má segja, að lokið sé endurnýjun alls flotans hjá Mazda, sem byrjað var á með til- komu nýja 323-bílsins, sem er einn mest seldi bíll í heiminum í dag. Síðan kom 929-bíllinn sl. vetur og nú 626. Mazda 626 tvennra dyra. URVALS mníhurðir Allar hurðir enn á gamla verðinu ef pantað er strax. LÆGSTA VERÐ Á LANDINU. Útsölustaöir í Reykjavík og Kópavogi: lönverk, Nóatúni 17, sími: 25945 Axel Eyjólfsson, Smiðjuvegi 9, sími: 43577 TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.