Morgunblaðið - 06.10.1982, Side 22

Morgunblaðið - 06.10.1982, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 Konur og samtök kvenna taki fyrir friðarmál llluti af hópi kvcnna, scm skrifaói undir ávarpió um frióarmál. Áskorun frá 27 forystukonum í félögum og flokkum í sumar og haust hefur hópur kvcnna á höfuóhorgarsvæAinu komió saman í allmörg skipti og rætt samstarf íslenskra kvenna aó frióar- og afvopnunarmálum, segir í frétt frá hópnum. í hópn- um eru konur sem starfa í Banda- lagi kvenna í Reyjavík, Kvenfélagasambandi íslands, Kvennaframboóinu, Kvenrétt- indafélagi Islands, Menningar- og frióarsamtökum íslenskra kvenna, l'restafélagi íslands, Samvinnuhreyfingunni, skáta- hreyfingunni, stjórnmála- flokkunum fjórum og verkalýós- hreyfingunni. Konurnar hafa þó tekió þátt í starfinu sem einstakl- ingar en ekki fulltrúar félaga eóa flokka. Hópurinn hefur komið sér saman um ávarp sem hér fyltíir ofi er undirritað af 27 konum. Hefur það verið sent stjórnum kvenfélajía ok kvennasamtaka um land allt ásamt bréfi þar sem leitað er liðsinnis félag- anna við starf á þeim grund- velli sem í ávarpinu felst. Óskað er eftir því að félögin haldi fund um friðarmál og ræði hvernig konur geti beitt samtakamætti sínum til að vinna að þessu brýnasta hags- munamáli mannkynsins. Verði undirtektir góðar er áformað að boða til ráðstefnu á fyrri hluta næsta árs með fulltrúum sem flestra félagasamtaka og einstaklinga. Þar yrði tekin ákvörðun um stofnun friðar- hreyfingar íslenskra kvenna og þau verkefni sem slík hreyfing skuli vinna að. Utanáskrift hópsins er: Frið- arhópur kvenna, Hallveigar- stöðum við Túngötu, Reykjavík. Einnig er hægt að hafa sam- band við konurnar sem undir- rita ávarpið. Við viljum frið Avarp kvennanna: Við viljum frið. Við viljum að framleiðsla kjarnorkuvopna verði stöðvuð og bann verði lagt á framleiðslu efnavopna og sýklahernað. Við viljum að öll kjarnorkuvopn verði eyðilögð. Við viljum afvopnun. Við viljum að konur beiti samtakamætti sínum til að vinna að friði og stuðli að samstarfi allra þeirra hópa og einstaklinga sem vilja taka upp baráttu fyrir friði og afvopnun. Öll erum við ábyrg fyrir því hvort þjóðfélagið sem við tökum þátt í að móta stefnir að stríði eða friði. Við lýsum eindregnum stuðningi við ályktun Prestastefnu ís- lands 1982 um friðarmál og hvetjum landsmenn til að taka þátt í þeim aðgerðum sem þar eru boðaðar. Við tökum undir þau sjónarmið evrópskra og bandarískra frið- arhreyfinga að þjóðir heimsins marki sér stefnu óháð hagsmunum risaveldanna. Við óskum samstarfs við alla sem vilja vinna að friði og tryggja að mannréttindi séu í heiðri höfð. Gífurlegum fjármunum er varið til vígbúnaðar meðan stór hluti mannkyns sveltur. Bilið milli ríkra og fátækra þjóða eykst stöðugt. Vígbúnaðarkapphlaupið magnast þó að þau vopn sem þegar eru til nægi margfaldlega til að útrýma mannkyninu. Þúsundir vísinda- manna nota hugvit sitt og krafta til að fullkomna vopn sem geta eytt öllu lífi á þessari jörð. Þetta er mesta ógnun sem mannkynið hefur nokkru sinni staðið andspænis og hún er verk okkar mannanna sjálfra. Við verðum því sjálf að snúa þessari þróun við. Við verðum að taka höndum saman, konur sem karlar, og vinna markvisst að því að ókomnar kynslóðir fái að byggja þessa jörð. Okkur er ljós sá styrkur sem felst í samtökum kvenna og því skorum við á allar konur á íslandi að þær hugleiði þessi mál og taki þau til umræðu og umfjöllunar hvar sem því verður við komið. Sigríður Thorlacius, llnnur S. Ág- ústsdóttir, María Pétursdóttir, Klin Pálmadóttir, Ksther Guó- mundsdóttir, Guórún Gisladóttir, Guðlaug Pálsdóttir, Margrét Sig- rún Björnsdóttir, Helga Jó- hannsdóttir, Margrét Einarsdótt- ir, Kristín Ástgeirsdóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Guðrún Helga- dóttir, Guóríóur Þorsteinsdóttir, Björg Kinarsdóttir, Bessí Jó- hannsdóttir, Kristín Guó- mundsdóttir, Auður Eir Vil- hjálmsdóttir, Hrefna Arnalds, Ólöf P. Ilraunfjörð, María Jó- hanna Lárusdóttir, Ragna Bergmann, Helga Kristín Möll- er, Sigrún Sturludóttir, Álfheiður Ingadóttir, Svanlaug A. Árna- dóttir og Valborg Bentsdóttir. Könnun Neytendasam- takanna ekki marktæk Eftir Ilauk Hjaltason Sú könnun sem Neytenda- samtökin gerðu nýlega á kjöt- kökum frá 9 veitingastöðum í Reykjavík á ekkert skylt við gæðaprófun á hamborgurum né verðsamanburð. Þessi könnun er í raun ekki marktæk nema að einu leyti og því miður kom það ekki fram nema að litlu leyti, þ.e. með tilliti til næringargild- is. Athugasemdir voru gerðar við prófun áður en hún hófst og var þá bent á að notkun geisla- ofns við endurhitun kjötköku væri vægast sagt vafasöm, en upplýst var af fulltrúa Neyt- endasamtakanna að kanna ætti bragðgæði kökunnar og nær- ingargildi fyrst og fremst til upplýsinga, leiðbeininga og að- halds fyrir veitingamenn. Þar sem nú hefir verið birt opinberlega niðurstaða þessarar könnunar er nauðsynlegt að al- menningur fái upplýst eftirfar- andi: 1. Könnunin er ekki marktæk með tilliti til gæða vegna endur- hitunar í geislaofni, en áður en það gerist hefir brauðið drukkið í sig mikinn safa úr kjötinu. 2. Könnunin er ekki marktæk með tilliti til kjötgæða þar sem ekki kemur fram hvers konar kjöt er um að ræða, en stað- reynd er, að a.m.k. nokkrir stað- anna nota í hamborgarana ein- göngu besta fáanlegt nautakjöt. 3. F’itumæling er ekki marktæk þar sem kökurnar eru mismun- andi steiktar og er því nauðsyn- legt að fitumæla kjötið hrátt. 4. Upphitun í geislaofni veldur seigju í þvi efni sem hitað er og stórskaðar upphafleg gæði. 5 Könnunin er ekki marktæk með tilliti til kryddunar þar sem eingöngu er bragðprófuð kjöt- kakan en sem kunnugt er sam- setja veitingahúsin hamborgara úr mörgum efnum, brauð, sósa, laukur, tómatsneið, gúrkusneið, salatblöð og e.t.v. fleira. 6. Kjötgæði í hamborgara njóta sín fyrst og fremst nýsteikt. Neytendasamtökin þjóna ekki almenningi með því að varpa fram könnunum sem þessum án þess að gera fulla grein fyrir vanköntum sem á þeim kunna að vera. Nær væri að könnunarnefnd settist inn á veitingastaöina fyrirvaralaust og fengi af- greidda þá vöru sem prófa á ná- kvæmlega eins og viðkomandi veitingamenn vilja framreiða. Það er eflaust áhugi hjá veit- ingamönnum fyrir því að fá að- hald og nauðsynlegt að vita að ekki er hægt að bjóða hvað sem er á hvaða verði sem er. Þetta vita veitingamenn og það er lít- ill greiði við matsöluhúsin að varpa fram handahófskenndum könnunum sem ekki standast sjálfar gagnrýni. Þess konar vinnubrögð auka aðeins á vanda viðkvæms at- vinnureksturs á erfiðum tímum. Hollur er heimafenginn baggi Borgarfirdi. NÚ ÞESSA dagana eru margar húsfreyjurnar að gera slátur fyrir veturinn og helzt það mikið, að dugi fram á næsta haust. Kn þeim fer þvi miður fækkandi, sem gera slátur á haustin, því nú snæða menn á morgnana erlent innflutt kjarnfóður, svo sem „kornfleks, seríos eða kókapufs“ í stað hafra- grauts og sláturs. Þessi mynd er af tveimur húsfreyjum í Reykholtsdalnum, sem voru að gera slátur um siðustu helgi. — pþ. Óska nú eftir 75.000 körlum MATES International, sem er stærsta hjónahandsmiðlun í Norð- ur-Ameríku, auglýsir í Morgunblað- inu í gær, að stofnuoin sé með yfir 75.000 karlmenn á skrá, sem óska eftir „að kynnast réttu konunni". í auglýsingunni segir, að menn- irnir muni skrifa upp á 90 daga vegabréfsábyrgð til Bandaríkj- anna eða Kanada, borga flugfar og útvega viðkomandi konum húsnæði. „Allt það sem þú þarft að gera er að senda okkur góða mynd af þér, litmynd eða svart/hvíta mynd og skrifa stutt bréf þar sem þú segir frá sjálfri þér, aldri, þyngd, áhugamálum, menntun og starfsgrein og öllum þeim upplýsingum sem þú vilt koma á framfæri. Óllum umsókn- um frá einhleypum konum á aldr- inum 18—55 ára verður veitt móttaka, verða að geta talað ein- hverja ensku. (Fráskildar — börn OK), verða að hafa áhuga á að giftast og setjast að í Bandaríkj- unum eða Kanada," segir orðrétt í auglýsingu Mates International. í auglýsingunni segir, að fyrir- tækið gefi út bækling eftir 6 vik- ur og verði það því að fá myndir og upplýsingar strax, ef skráning eigi að fara fram í bæklinginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.