Morgunblaðið - 06.10.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982
75 ára:
Stefán íslandi
óperusöngvari
Heyrt hef ég stórmerka og
vandaða Skagfirðinga halda því
fram með brosi á vör og nokkru
stolti að sönnum Skagfirðingi sé
þannig bezt lýst: Hann er hesta-
maður, kvennamaður og vondur
með vini. Nú, eins og ævinlega
sannar undantekningin regluna,
því hvað sem öðru líður, þá held ég
að vinur minn Stefán Islandi hafi
um ævina verið heldur lítill hesta-
maður. Þó held ég að engum dytti
í hug að efast um að Stefán sé
sannur Skagfirðingur, og í
fremstu röð þeirra fjölmörgu
hæfileikamanna sem þar slitu
barnsskónum, og lögðu síðan á
brattann í leit að því ævintýri,
sem átti að rætast.
Stefán íslandi er fæddur að
Krossanesi í Seyluhreppi í Skaga-
firði 6. október 1907, og er því 75
ára í dag. Dálítið er nú erfitt að
trúa því að svo sé, þegar maður
sér hann á gangi, reistan og „reffi-
legan", hallandi eilítið undir flatt
eins og til að sjá betur undan hatt-
barðinu. Ekki er heldur að sjá að
þar sé á ferð maður, sem hefur átt
við nokkurt heilsuleysi að stríða
hin síðari ár.
Það er eins og gerzt hafi í gær
— ef ég má orða það svo — að ég
kynntist Stefáni. Við vorum í
slagtogi með Karlakór Reykjavík-
ur í Ameríkuferð kórsins 1946.
Ferðin stóð í rúma tvo mánuði og
á þeim tíma voru sungnir 56 tón-
leikar. Hinn þroskaði og frægi
söngvari tók óreyndum unglingn-
um mæta vel, og leiddu þau kynni
til vináttu, sem aldrei hefur borið
skugga á. I samskiptum okkar hef
ég jafnan verið þiggjandinn, slík
hefur hjálpsemi hans og um-
hyggja verið. Fyrir það allt þakka
ég í dag.
Astæðulaust er að rekja ævi
Stefáns og frægðarsögu á þessum
stað, allt það má lesa í ágætri bók
Indriða G. Þorsteinssonar,
„Áfram veginn", auk þess sem áð-
ur hefur birzt í blaðaskrifum og
viðtölum.
Eitt er víst, að ekki eru þeir
margir, ef þá nokkrir, úr hópi ís-
lenzkra listamanna, sem hlotið
hafa jafn almennar vinsældir með
þjóðinni og drengurinn sem forð-
um söng „fjósóperuna" í Syðra-
Vallholti. Síðan lagði hann á
brattann með draum í brjósti, og
með aðstoð góðra manna, auk
frábærra hæfileika og mikillar at-
orku, tókst honum að láta draum-
inn rætast. Nú voru það ekki kýrn-
ar í Syðra-Vallholti sem dæmdu
söng Stefáns, heldur vandlátir
áheyrendur óperuhúsa og kon-
sertsala víða um lönd. Þá sögu
þarf heldur ekki að rekja hér.
Hvar sem hann fór jók hann við
frægð sína, og varpaði um leið
bjarma á þá þjóð sem hafði alið
hann.
Ég er Stefáni einlæglega þakk-
látur fyrir að gefa kost á því að
syngja hertogann í „Rígoletto",
þegar sú ópera Verdis var í fyrra
sinnið flutt í Þjóðleikhúsinu 1951.
Það var okkur byrjendunum ómet-
anlegur styrkur, og það gleymist
aldrei. Þessi fáu orð eru hripuð í
mikilli tímaþröng, og vona ég að
vinur minn taki viljann fyrir
verkið.
Að lokum þetta: Ég þykist vita
að þjóðin öll óski þess og biðji, að
Stefán megi enn um langa hrið
Margrét Jóns-
dóttir níræð
Lygnt er á landi og sjó
lognaldan hnígur og rís.
Ljúft vermir lækkandi sól
landió, nem kennt er vió ís.
I dag er Jónína Margrét Jóns-
dóttir Barmahlið 52 níutíu ára.
Hún er vel ern og hress og hugsar
um heimili sitt og Jóns Vilbergs
sonar síns, af einstakri prýði enn í
dag.
Það má segja um Jóninu Mar-
gréti að hún man tvenna tímana.
Minnið er trútt og tuttugasta öld-
in hefur verið viðburðarík með
meiri verkmenningu og framför-
um á Islandi en á öllum öðrum
öldum. Þéttbýliskjarninn við
Faxaflóa verður að stórri borg,
með hitaveitu og rafmagni, síma
og sjónvarpi, bílastraum og stór-
hýsum. Og vissulega tók Jónina
Margrét þátt í þessu öllu af lífi og
sál ásamt sínum ágæta eigin-
manni Jóni Hannessyni múrara,
sem nú er látinn.
Eins og aldamótakynslóðin ólst
Jónina upp í sveit, æskuheimili
hennar á Hlemmiskeiði á Skeiðum
var menningarheimili, en ekki
mun hafa verið þar auður í búi, á
veraldarvísu. En því meiri andans
auður og allt kapp lagt á að afla
sér menntunar, og þroska þær
gáfur sem guð hafði gefið hverjum
og einum. Ekki var um það að
ræða að fara í langskólanám, en
tónmennt og verkmennt og fagurt
íslenskt mál hefur verið yndi
áfram veginn í vagninum aka, um-
vafinn elsku og hlýju allra þeirra,
sem kunna að meta fagran söng.
Megi vaxándi kvöldskuggaþröngin
hverfa fyrir dýrlegu sólarlagi.
Guðmundur Jónsson
Afmæliskveðja frá
Karlakór Reykjavíkur
I árdögum Karlakórs Reykja-
víkur bættist honum óvæntur liðs-
auki norðan úr Skagafirði. Þetta
var Stefán Guðmundsson, tenór,
sem átti eftir að starfa lengi með
kórnum; fara með honum um lönd
og álfur sem einsöngvari og vekja
eftirminnilega athygli á landi og
þjóð með sinni gullnu rödd.
Flestum Islendingum er kunn
ævi Stefáns, sem tók sér lista-
mannsnafnið íslandi eftir að hann
varð óperusöngvari. Það er því
óþarfi að tíunda þá merkilegu
sögu hér.
Ennþá yljar rödd hans af
hljómplötum okkur um hjartaræt-
ur, og ennþá tekur Stefán lagið í
hópi kórfélaga á góðum stundum.
Á 75 ára afmælisdeginum vill
Karlakór Reykjavíkur nota tæki-
færið og þakka Stefáni Íslandi
fyrir ógleymanlegar samveru-
stundir um leið og honum er árnað
heilla á þessum merkisdegi.
R.I.
þessa fólks, enda listrænt og söng-
elskt.
Minningarnar streyma að er
stöndum við nú hér. Stöðugt vaxa
minninganna sjóðir. Og nú á
ævikvöldi ég vil óska þér allra
heilla, kæra tengdamóðir.
Olafur Jónsson
23
Bandarískur
dansari sýnir
hérlendis
STEVE Fant, bandarískur dans-
ari, kemur hingað á vegum Sól-
eyjar Jóhannsdóttur danskenn-
ara og skemmtistaðarins Broad-
way.
Hér heldur hann sex vikna
námskeið fyrir byrjendur,
lengra komna og vel þjálfaða.
Námskeiðin verða haldin í
Dansstúdíói Sóleyjar og hefj-
ast laugardaginn 9. október.
Kennt verður tvisvar í viku,
laugardaga og sunnudaga e.h.
Steve Fant hefur dansað í 6
ár hjá Mörthu Graham og Al-
vin Áiley og starfað hjá Amer-
ican Dance Workshop Comp-
any. Hann hfur einnig dansað í
sumar í Helsinki, Stokkhólmi
og Kaupmannahöfn.
Morfíni
stolið
SEX morfínhylkjum var stolið að-
faranótt fimmtudagsins úr
gúmmíbjörgunarbáti í Sandfellinu
GK 82 þar sem skipið liggur í
Hafnarfjarðarhöfn. Rist var á
gúmmíbjörgunarbátinn, sem var í
kortaklefa skipsins. Málið er í
rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu
rikisins.
WtlBJUDAGUK 2». SEWXMBER 1*2
.,mm
„ meðalverð þeirra um 33 krónur
Neytendasamtökin gera könnun a gæöum
hamborgara:
borp..
SVARTA PANNAN MED ■
BESTU HAMBORGARANA '
— Allt upp r 90% munur á
(meðalverð á 100 grömmum af kjöti því Irvarðann á það hvað neytendur fá fyrir ýmsum ástxðum og þá ekki eingöngu
61 króna). Meðalsamsetning reyndist peningana. Hxsta verð var 86 kr. fyrir vegnaþessaðhráefnivxrimismunandi.
••tn, 28% hvfta, 14% fita og 100 gr. af kjöti en Ixgsta verð 45 kr. fyrir Saltinnihaldid var heldur ekki rei1-
r -m 1,5% matarsalt. 100 grömmin, sem er um 9(l'v * " '-,-->ink..nnum e'
* -•‘v tóku munur, sem fyn segir. Sö^
•*r ár*<%' "*«*nnf £
Þaö gleöur okkur aö fólk er ánægt meö ham
borgarana okkar, en allir vita aö
KJÚKLINGAR
eru sérgrein okkar, nammi, namm.
Vertu velkomin, við reynum betur.
HraÓrétta veitingastaður
í hjarta borgarinnar
. —O
* áhorni
Tryggvagötu og Pósthússtrætis
Sími 16480