Morgunblaðið - 26.11.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
5
IÐNAÐARBANKINN opnar nýtt
útibú í Garðabæ föstudaginn 26.
nóvember og er það á mótum Víf-
ilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Hér er um að ræða sjálfstætt
útibú sem veitir alla almenna
bankaþjónustu, þar með talin inn-
og útlán, sparisjóðsviðskipti sem
og ávísana- og hlaupareikningsvið-
skipti. Afgreiðslustjóri þessa nýja
útibús Iðnaðarbankans er Sigríður
Sigurðardóttir, en hún hefur gengt
fulltrúastörfum í útibúi bankans í
Hafnarfirði undanfarin ár.
Fimm ár eru liðin síðan Iðnað-
arbankinn opnaði útibú, en það
var haustið 1977 á Selfossi.
Fyrirtæki og einstaklingar í
Garðabæ hafa átt mikil og sívax-
andi viðskipti við útibú Iðnaðar-
bankans í Hafnarfirði. Til að
sinna þörfum þeirra enn betur var
INNLENT
Austrapistlar eft-
ir Magnús Kjart-
ansson komnir út
Sólheimasalan á sunnudag
SOLIIEIMAR í Grímsnesi halda
sína árlegu sölusýningu, kökubasar
og kaffisölu i Templarahöllinni við
Eiríksgötu, sunnudaginn 5. desem-
ber 1982, klukkan 2.00 eftir hádegi.
Seldir verða handunnir munir
gerðir af vistmönnum Sólheima,
svo sem ofnar gólfmottur, prjón-
aðar dúkkur, tréleikföng og
margskonar trémunir. Einnig hin
vinsælu bývaxkerti. Foreldra- og
vinafélag Sólheima verður með
kökubasar og kaffisölu.
KOMIN er út bókin Frá degi
til dags, Austrapistlar
1959—1971. Á þeim árum,
tímum „viðreisnarstjórnar-
innar“, skrifaði Magnús
Kjartansson nær daglega
pistla í Þjóðviljann sem hann
kallaði Frá degi til dags og
undirritaði Austri. Bókin er
úrval af þessum pistlum
Magnúsar Kjartanssonar og
hefur Vésteinn Lúðvíksson
rithöfundur valið efnið og rit-
ar formála.
Greinasafnið Elds er þörf
eftir Magnús Kjartansson birt-
ist árið 1979, en í því safni. voru
engir Austrapistlar birtir því
margar þessara dægurgreina
þóttu hafa varanlegt gildi og
ættu að bíða heillar bókar. A
bókarkápu segir m.a.: „Sumir
þessara pistla eru svo hnitmið-
aðir að ætla mætti að höfundur
þeirra hefði ekki þurft að gera
neitt annað en að slípa þá og
fægja þar til hvergi sást
hnökri. Því fer þó fjarri ...
Austragreinarnar eru að öllu
jöfnu ígrip önnum kafins blaða-
og stjórnmálamanns ... Þessir
pistlar sýna ýmsar skoplegar
Starfsfólk, útibússtjóri og skrifstofustjóri, talið frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, afgreiðslustjóri, Jóhann Egilsson,
útibússtjóri, Albert Sveinsson, skrifstofustjóri, Katrín Linda Oskarsdóttir, afgreiðslumaður og Margrét Þórðardóttir,
afgreiðslumaður.
og undarlegar hliðar landsmál-
anna á viðreisnarárunum — og
um leið birtist höfundur þeirra
ljóslifandi, hugðarefni hans og
hugsjónir, skörp hugsun, næmt
skopskyn, að ógleymdu frábæru
valdi hans á íslenskri tungu."
Frá degi til dags er 247 bls.
að stærð og fylgir nafnaskrá
bókinni. Hún er prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Odda
hf. Þröstur Magnússon sá um
hönnun kápu.
ákveðið að sækja um leyfi til að
opna útibú í Garðabæ.
í Garðabæ er vaxandi atvinnu-
líf, einkum iðnaður, og er það
stefna bankans að styðja þann
rekstur sem mestur vöxtur er í, og
efla með þeim hætti bæjarfélagið í
heild.
Útibúið er vel staðsett við vænt-
anlegan miðbæ í Garðabæ og er
það í leiguhúsnæði hjá Pharmaco
hf.
Sá hluti hússins sem Iðnaðar-
bankinn tók á leigu er með léttum
innréttingum og voru þarfir fatl-
aðra hafðar í huga við hönnun
þeirra. Aðgangur er greiður fyrir
fólk í hjólastólum jafnt innan
dyra sem utan.
Starfsmenn útibúsins verða þrír
til fjórir og mun opnun þess létta
nokkuð á útibúi Iðnaðarbankans í
Hafnarfirði. Yfirstjórn þessara
útibúa er sameiginleg. Útibús-
stjóri er Jóhann Egilsson og
skrifstofustjóri Albert Sveinsson.
I tengslum við opnun þessa nýja
útibús hefur verið efnt til mynda-
samkeppni meðal nemenda Garða-
skóla og Flataskóla, sem á 25 ára
afmæli um þessar mundir. Veitt
verða verðlaun fyrir bestu mynd-
irnar og verða verðlaunamyndirn-
ar til sýnis í húsakynnum bank-
ans.
Útibú Iðnaðarbankans í Garða-
bæ er opið á virkum dögum kl.
9.15—16.00 og auk þess á fimmtu-
dögum milli kl. 17 og 19. Á opnun-
ardaginn verða kaffiveitingar
fyrir alla Garðbæinga.
(Kréttatilkynning)
Iðnaðarbankinn opn-
ar útibú í Garðabæ