Morgunblaðið - 26.11.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
7
Innilegar þakkir til aUra sem glöddu mig á 90 ára
afmœli mínu 8. nóvember meö blómum, skeytum, sím-
tölum og gjöfum. Guð blessi ykkur öU.
Amfríður Guðmundsdóttir
frá Súgandafirði.
r
Arshátíð félagsins
veröur haldin í Fóstbræðraheimilinu Langholtsvegi
109—111 laugardaginn 27. nóvember. Húsiö opnaö kl.
19.00.
Miöapantanir í síma 40406 og 43610 milli kl. 18—20
miövikudag til föstudags.
Fjölmennum. Skemmtinefndin.
Chevy Van 20.1981
Vínrauöur, ekinn 5 þús. 6 cyl.
Sjálfskiptur. Aflstýri. Verö 260 þús.
Mazda 323 1982
Rauöur, ekinn 13. þús. Snjó- og
surrardekk. Verö 135 þús. Elnnig
1931.
Ford Bronco 1973
Oökk grasnn, ekinn 160 þús. 6 cyl.,
beinsklptur, útvarp. Verö 80 þús.
Datsun Pick-Up 1961
Gulur, ekinn 52 þúsund, diesel,
útvarp. Verð 125 þús.
Scout H 1973
Ljósblár, ekinn 99 þúsund, 8 cyl.,
sjálfskiptur, aflstýri, útvarp og seg-
ulband. Verö 85 þús.
Austin Prinsass 1979
Blár, ekinn 26 þúsund, útvarp. Verö
120 þús. Sklpti ath.
Chevrolet Concors 1977
Grár, ekinn 75 þús., sjálfskiptur,
aflstýrl, útvarp, segulband. Verö
125 þús. 20 þús. út og reat á ári
meö verðtryggöabréfi.
Votvo 244 DL 1978
Ljósgrenn, ekinn 72 þúsund,
sjálfskiptur, aflstýri, útvarp, segul-
band. Veró 128 þús.
Citroén QSA 1982
Blásanz, ekinn 19 þús. C-matic, út-
varp. Verö 155 þús.
3
Skrifstofa stuöningsmanna Geirs H. Haarde er að Túngötu 6. Símar 27227 og 19999. Skrifstofan er opin frá 14—22. Stuöningsmenn velkomnir. Stuðnmgsmenn
Má treýsta
ráðherra-
boðskapnum?
Framsóknarflokkurinn,
sem er opinn í báða enda,
að eigin sögn, hefur gjarn-
an tvær gagnstæðar skoð-
anir í hverju máli. Tómas
Árnason, viðskiptaráó-
herra, er og jækktari fyrir
annað en að standa við
pólitískar yfirlýsingar. I'að
er því von að menn velti
þvi fyrir sér, hvað megi sín
meir hjá framsóknar-
mönnum í framvindu mála
á næstu tíð: samþykktir
flokksþingsins um inn-
fiutningshöft, boð og bönn,
— eða boðskapur við-
skiptaráðherrans, ritara
Framsóknarflokksins, er
hann las þjóðinni á öldum
Ijósvakans frá GATT-þingi,
þar sem áréttaðir voru
söluhagsmunir þjóðarbús
okkar á gundvelli fríverzl-
unar og gildi hennar til að
koma á heilbrigðum við-
skipta- og samskiptahátt-
um og vinna bug á heims-
kreppunni.
Verður ráðherrrann
ómerkur orða sinna, sem
ekki er nýtt, eða urðar
hann fiokksþingssam-
þykktir framsóknar-
manna?
Yglibrún
Þjóðviljans
Þjóðviljinn hefur ekki
hátt um framboðsmál Al-
þýðubandalagsins. Hann
læðist satt að segja með
veggjum, hvað þau varðar.
Hinsvegar er hann marg-
máll um prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins, einkum í
Reykjavík, og hefur þá allt
á hornum sér. Engu er lík-
ara ef marka má fyrirferð
skrifa hans um þetta efni
en Þjóðviljinn telji prófkjör
„íhaldsins" þann möndul
sem heimurinn snúizt um
þessa dagana, en hinsvegar
skipti nánast engu, hvernig
„litla Ijóta kommaklikan",
sem svo var nefnd, stilli
upp framboðslista Alþýðu-
bandalagsins, eftir að hafa
Það rekst hvaðeina á annars horn
Flokksþing Framsóknarflokksins ályktaöi um innflutn-
ingshöft, boö og bönn, enda pólitísk skömmtun hvers
konar gamalkært hugðarefni framsóknarmanna. Þaö kom
þvi eins og þruma úr heiöskíru lofti þegar Tómas Árnson,
viöskiptaráöherra, talaði til þjóðarinnar um ríkisútvarpiö,
frá GATT-ráðstefnu í Genf, og haföi þann boöskap aö
flytja, að innflutningshöft, tollmúrar og niöurgreiöslur séu
hættuboöar í viöskiptum ríkja á milli, heimskreppuhvatar.
Þjóö sem þarf aö selja svo stóran hluta framleiöslu
sinnar á mörkuöum annarra þjóöa og viö íslendingar ætti
aö vera þessi staöreynd fríverzlunar Ijós, svo mikilvæg
sem hún er söluhagsmunum hennar. En ekki er nú sam-
ræmi í flokksþingssamþykkt og ráðherraboðskap!
mokað öllum, som tengd-
ust verkalýðshreyfingu, út
úr flokksráði.
Það er út af fyrir sig
góðs viti, að hin breiða
þátttaka í framboðsröðum
Sjálfstæðisflokksins skuli
fara svo í finar taugar
Þjóðviljans sem raun er á.
Þeim mun stærri sem ygli-
brúnin verður á félaga rit-
stjóra, Kjartani Ólafssyni,
þeim mun betra. Hann ætti
annars að snúa sér að
samningu „fréttaskýr-
ingar", hvern veg verði
staðið að framboðsmálum
Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum!
„Hlutur verka-
lýðshreyfíngar
anzi lítill“
Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Landssambands
iðnverkafólks og fyrrv.
borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalags, segir í viðtali
við Alþýðublaðið í gær:
„Eg neita því ekki að mér
finnst hlutur okkar, sem
innan verkalýðshreyfingar-
innar starfa, anzi lítill, en
þó vil ég taka fram, að ég
er alls ekki sár sjálfs mín
vegna. En vegna prinsipp-
atriða er full ástæða til að
vera óánægður með að
ekki hefur verið tekið
meira tillit til jx'irra sem
innan verkalýðshreyfingar-
innar starfa. Það er ekki
ástæða til að vera ánægður
þegar forystumenn úr
verkalýðshreyfingunni eru
felldir á þennan hátt úr
miðstjórn af ástæðum sem
ég kann ekki að skil-
greina...“
Þess má geta sér til að
hér sé komið „viðbitið"
sem Guðmundur J. Guð-
mundsson taldi sig þurfa
til að sporðrenna bráða-
birgðalögum ríkisstjórnar-
innar með 10% verðbóta-
skerðingu launa.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28. og 29. nóvember
Við kynnum
Sólrúnu B.
Jensdóttur
sagnfræðing
Hefur magisterspróf í sagnfræöi frá
Lundúnaháskóla. Var blaöamaöur viö
Morgunblaöiö í sex ár.
Hefur kennt viö menntaskóla
og Háskóla íslands. Hefur
samiö ritverk um nútímasagnfræöi, t.d.
ísland í fyrri heimsstyrjöld og lýöveld-
isstofnunina.
Kjósum unga, áhugasama og
vel menntaða konu á þing.
Stuðningsmenn.