Morgunblaðið - 26.11.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
11
Neytendasamtökin:
Sölufyrirkomuiag
kartaflna þarfn-
ast endurskoðunar
Á FUNDI stjórnar Neytendasam-
takanna, 13. nóvember 1982, var
samþykkt eftirfarandi ályktun, og
skyldi hún send iandbúnadarráö-
herra, forstjóra Grænmetisverslunar
landbúnaðarins, yfirmatsmanni
garöávaxta, dagblöðum, útvarpi og
sjónvarpi:
„í mörgum tilfellum eru neyt-
endum seldar kartöflur, sem eru
algjörlega óætar. Stjórn Neyt-
endasamtakanna krefst þess, að
nú þegar verði gerðar ráðstafanir
til þess að koma í veg fyrir þetta
ófremdarástand. Þykir sýnt að
sölufyrirkomulag kartaflna þarfn-
ast endurskoðunar og breytinga.
Kartöflur eru holl og góð mat-
vara, ef þær eru rétt meðhöndlað-
ar. Neytendur eiga því kröfu á að
framleiðendur og söluaðilar tryggi
það, að varan komist óskemmd í
hendur neytenda. Hvað eftir ann-
að hefur þeirri kröfu ekki verið
fullnægt, m.a. nú í haust, þegar
sumaruppskeran var nýkomin á
markaðinn.
Stjórn Neytendasamtakanna
fer fram á að skipuð verði nefnd
til þess að kanna í hverju það ligg-
ur, að ekki er hægt að koma kart-
öflum óskemmdum á borð neyt-
enda. Þykir skjóta skökku við, að í
útsölu Grænmetisverslunarinnar
er hægt að fá óskemmdar kartöfl-
ur að öllu jöfnu.
Þá leggur stjórn Neytendasam-
takanna til, að kannað verði hvort
ekki sé möguleiki á að taka upp
úrvalsflokk kartaflna. Stjórnin
leggur áherslu á að könnun þess-
ari verði hraðað eftir megni, og
niðurstöður kynntar almenningi
um leið og þær liggja fyrir. Benda
má á, að stjórn Neytendasamtak-
anna hefur fullan hug á því að
beita sér fyrir því, að góðar kart-
öflur verði jafnan á boðstólum hér
á landi, helst innlendar en sé þess
ekki kostur, þá innfluttar."
Sylvía, ný skáldsaga
Áslaugar Ragnars
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örly <r
hf. hefur gefiö _ út skáldsögu \
„Sylvía" eftir Áslaugu Ragna í
blaöamann. Er þetta önnur bók höf-
undar, fyrri bókin, skáldsagan
Haustvika, kom út fyrir tveimur ár-
um og seldist þá upp á skömmum
tíma.
í sögunni „Sylvía" lýsir Áslaug
Ragnars þroska og baráttu ungrar
konu, sem öðlast nýjan skilning á
lífinu og gerist eigin gæfu smiður.
Líkt og í ævintýrum, sem segja frá
því hvernig fátæklingi tekst að
vinna til einnar óskar á nýjársn-
ótt, fær Sylvía kost á einni ósk, en
spurningin er hvort það verður
henni til gæfu. Inn í sögu Sylvíu
fléttast ýmsar ágengar og sígildar
spurningar um verðmætamat og
leitina að hamingjunni í fjársjóð-
um sem mölur og ryð fá grandað.
Sögusvið bókarinnar er fyrst og
fremst Reykjavík, en sagan hefst
þó í Vestmannaeyjum og kemur
Heimaeyjargosið þar við sögu. Þar
verður söguhetjan Sylvía fyrir
reynslu sem veldur því að hún tek-
ur örlögin í eigin hendur og freist-
ar að sveigja þau undir vilja sinn.
Bókin „Sylvía" er sett, umbrot-
in, filmuunnin og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar en
bundin hjá Arnarfelli hf. Kápu-
mynd er eftir Hring Jóhannesson.
WK* ' f'i: «*»■* *tfc!PPjSc
II 1111
\ : 1 flt i ■Ijj
\.
i 4j ,1
FWt*
Keflavík:
Þrekþjálfunartæki í íþróttahúsinu
í anddyri íþróttahússins í Keflavík hefur verið komið upp
þrekþjálfunartækjum, sem eru eign íþróttabandalags Keflavíkur. Tækin
eru ekki eingöngu ætluð íþróttafólki heldur einnig almenningi. Á mynd-
inni er Jón Jóhannsson við tækin. (Ljósm. Einar Falur.)
Prófkjör sjálfstceðismanna í Reykjavík
vinnum að________________
stefnufestu í
stjórnmálum
kjósum __________________
Ragnhildi
á þing!
Atb. að til pess að
kjörseðill sé gildur
Stuðningsmenn
Nú má engu
gleyma
í jólabaksturinn
ALLT
á Vörumarkaðsverði
□ súkkulaóispænir
□ konfektmarsipan
□ marsipan hreint
0 marsipan litað
□ nougat
□ sulta
□ marmelaói
□ kokteilber
□ hunang
□ ................
0 hveiti □ sítrónudropar
□ strásykur □ matarsódi
□ fiórsykur G vanillusykur
□ púðursykur □ kanell
□ perlusykur G negull
□ kakó G hjartasalt
□ haframjöl G
□ egg □
□ smjörlíki G valhnetukjarnar
□ salt G hezlihnetukjarnar
□ kókosmjöl G rúsínur
□ lyftiduft G kúrenur
□ þurrger Q möndlur heilar
□ perluger G möndlur hakkaðar
□ pressuger G möndlur afhýddar
□
□
□
□ G súkkat
□ G
□ G
□ G
□ vanilludropar G síróp
□ kardimommudropar G suðusúkkulaði
□ möndludropar □ hjúpsúkkulaði
□ álform
□ smjörpappír
□ bökunarpappír
□ .............
OPIÐ TIL KL. 8 í KVÖLD OG
TIL HÁDEGIS Á MORGUN
Vörumarkaðurinn hf.
Sími 86111
„Þeear
piparkökur
bakar,
kökugerðarmaður tekur...