Morgunblaðið - 26.11.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
13
Stundarfriður sýndur víða
Föstudaginn 26. nóvember verður
20. sýning á Garðveislu eftir Guð-
mund Steinsson í Þjóðleikhúsinu og
er þá ráðgert að bjóða upp á umræð-
ur eftir sýningu. Miklar umræður og
jafnvel deilur urðu manna á meðal
og í fjölmiðlum áður en verkið
komst á fjalirnar og í kringum frum-
sýninguna, en nú þegar búið er að
sýna verkið í allt haust við ágæta
aðsókn og nokkuð langt er liðið frá
því að frumsýnt var, hyggst Þjóð-
leikhúsið bjóða leikhúsgestum færi
á að ræða verkið og uppfærsluna við
aðstandendur, höfundinn, leikstjór-
ann og leikmyndateiknara.
í fréttatilkynningu frá Þjóð-
leikhúsinu segir m.a.:
„Annars er það nýjast að frétta
af Guðmundi Steinssyni, að hann
er nýkominn heim frá Bandaríkj-
unum þar sem hann var m.a. við-
staddur leiklestur á Stundarfriði i
því fræga leikhúsi Intiman Theat-
er í Seattle í Washington-fylki í
tengslum við Scandinavia Today.
Intiman Theater valdi fimm
norræn leikrit til þess að kynna
með leiklestri og bauð öllum höf-
undunum að vera viðstaddir. Það
var leikhússtjórinn Margaret
Booker sem valdi verkin úr 200
norrænum leikritum og voru þar á
Mynd af Guðmundi Steinssyni, sem
birt var í Seattle Times 22. október.
Dregið verði úr
misvægi atkvæða
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi ályktun frá Sambandi sveit-
arfélaga á Suðurnesjum:
„Aðalfundur SSS haldinn 30.
október 1982 í Keflavík skorar á
Alþingi það, er nú situr, að sam-
þykkja nauðsynlegar breytingar á
stjórnarskrá og kosningalögum,
svo dregið verði úr því gífurlega
misvægi atkvæða, sem nú er orðið
milli kjördæma.
Aðalfundurinn telur nokkra
fjölgun þingsæta á engan hátt úti-
lokaða, náist samkomulag ekki um
aðrar leiðir að því marki.
Aðalfundurinn vekur athygli á
hinni sérstæðu þróun þessara
mála í Reykjaneskjördæmi frá
1959, svo og ítrekar hann enn sér-
stöðu Suðurnesja."
meðal 15 íslensk leikrit. önnur
leikrit sem þannig voru kynnt í
Seattle voru Astarsaga aldarinnar
eftir Márte Tikkanen, verk sem
Þjóðleikhúsið sýndi á litla sviðinu
í fyrra, Ballerina, eftir norska
leikskáldið Arne Skouen, en það
verk fengum við að sjá hér í sjón-
varpi í norskri uppfærslu í fyrra,
Úr lífi regnormanna, eftir sænska
leikskáldið Per Olov Enquist, verk
sem sýnt verður hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í vetur og danska út-
varpsleikritið Og fuglarnir syngja
aftur, eftir Ulla Ryum.
Hvert verk var flutt tvisvar og
var nokkuð borið í leiklesturinn,
þannig var ráðinn leikstjóri fyrir
hvert þeirra og verkin að nokkru
sviðsett og í flutningnum á Stund-
arfriði voru jafnframt notuð hin
ómissandi leikhljóð, síminn, sjón-
varpið, dyrabjalla o.s.frv. Nú þeg-
ar hafa nokkur leikhús vestanhafs
sýnt áhuga á að taka Stundarfrið
til sýninga, en svo sem kunnugt er
þá verður Stundarfriður leikinn á
Dramaten í Stokkhólmi, í Kon-
unglega leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn og í Borgarleikhúsinu í
Braunsweig í Vestur-Þýskalandi
nú í vetur. Þá mun einnig fyrir-
hugað að Stundarfriður verði jóla-
leikrit sjónvarpsins íslenska í ár.“
4
A/mWM
sm
/rmmm
59000
PÓS7GÍRÓ
Aöeins þaö besta
er nógu gott fyrir
okkar gesti
Leikhúsgestir
athugið framreiö-
um mat fyrir og eft-
ir sýningar ef pant-
aö er í tíma
VELKOMINN
aftur í baráttuna
Fyrir síðustu alþingis-
kosningar vék Ellert B.
Schram úr öruggu sæti. Það
gerði hann til að sameina
sjálfstæðismenn og koma í
veg fyrir sundraðan flokk í
Reykjavík. Með þessu móti
sýndi Ellert drengskap og
þor sem fátítt er meðal
stjórnmálamanna.
STUÐNINGSMENN
Ellert hefur nú aftur boðið
fram liðveislu sína og sækist
eftir þingsæti. Við stuðn-
ingsmenn hans hvetjum alla
sjálfstæðismenn til að
greiða honum atkvæði í
prófkjörinu og bjóða hann
þannig velkominn aftur.