Morgunblaðið - 26.11.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
Skarð höggvið
í flokk frjálsra
demókrata
Bonn, 25. nóvember. AP.
EINN AF forystumönnum frjálsra demókrata í V-Iýskalandi, Giinther
Verheugen, sagöi í dag skilið við flokkinn og gekk til liðs við Sósíaldemó-
krataflokk Helmut Schmidt vegna óánægju sinnar með þá ákvörðun leiðtog-
ans, Hans-Dietrich Genscher, að snúa baki við ríkisstjórn Helmut Schmidt
og verða þess valdandi að hann féll úr kanslaraembætti.
Verheugen sagði í dag, að hann ið til þess, að fréttaskýrendur ef-
hygðist bjóða sig fram fyrir sósí-
aldemókrata í næstu kosningum
og gerði hann sér vonir uft að
vinna þingsæti í Bæjaralandi.
Ákvörðun Verheugen hefur orð-
ast nú mjög um að sá ágreiningur,
sem verið hefur i flokki frjálsra
demókrata að undanförnu, nái
nokkru sinni að jafna sig.
Norðmenn skipta
afla með Rússum
Oslo, frá frétUriUra Mbl.
NORÐMENN fengu flest sitt fram á fundi norsk-sovésku fisk
veiðinefndarinnar, sem saman kom í Ósló til að ræða um afla-
kvóta í Barentshafi og veiðar Sovétmanna í norskri efnahagslög-
sögu. Norðmenn fá í sinn hlut mestan þorsk-, loðnu- og ýsukvót-
ann en Rússar fá hins vegar að veiða allan sinn þorskkvóta
innan fiskveiðilögsögunnar norsku.
Samningurinn er svipaður
þeim frá í fyrra og Rússar
fengust ekki til þess nú
fremur en þá að auka
möskvastærðina upp í 135
mm eins og Norðmenn hafa
ákveðið fyrir sig frá 1. janú-
ar nk.
Þorskkvótinn verður sá
sami og í fyrra, 340.000 tonn,
sem er algert hámark að því
er fiskifræðingar segja. Af
honum fá Norðmenn 225.000
tonn. Á þessu ári hafa Norð-
menn farið langt fram úr
leyfilegum kvóta og stafar
það af því, að þeir mega
halda áfram veiðum með
Noregsströndum eftir að
kvótinn er fullur. Sovétmenn
gagnrýndu þetta mjög en
féllust þó á að fresta um-
ræðu um það fram á næsta
ár. Þess vegna þykir ljóst að
sama sagan verði með
ofveiði Norðmanna á næsta
ári.
Loðnukvótinn var aukinn
úr 1,7 milljónum tonna í 2,3
milljónir og þar af fá Norð-
menn 60% í sinn hlut. Norð-
menn hafa heimilað Sov-
étmönnum að veiða 485.000
tonn af kolmunna á norsku
hafsvæði á næsta ári.
Spánska þingið kom saman í gær og var þeasi mynd tekin þegar Juan Carlos,
konungur, setti það með ræðu. Þetta er f fyrsta sinn í sögn þingsins sem
jafnaðarmenn hafa þar meirihluta. AP.
Spænska þingið
var sett í gær
Madrid, 25. nóvember. AP.
JUAN CARLOS, Spánarkonungur,
setti spænska þingið í dag, og beindi
við það tækifæri þeim orðum til
þingmanna, að spænska þjóðin, sem
liðið hefði þjáningar um langt skeið,
ætti betra skilið en hún hefði mátt
sætta sig við af hálfu stjórnenda
sinna til þessa. I>á óskaði konungur-
inn þess, að stjórnmálamenn sýndu
kjósendum nærgætni.
Sósíalistar ráða nú í fyrsta sinni
ferðinni í neðri deild spænska
þingsins. Undir stjórn Felipe
Gonzalez unnu þeir yfirburðasigur
í nýafstöðnum kosningum. Hafa
sósíalistar 202 þingsæti af 350 í
neðri deildinni.
TÍMINN STÖÐVAÐUR. Þessa ögurstund úr mannlífinu á fjórða áratug aldarinnar getur að líta á járnbrautar-
stöðinni í Galveston í Texas og er hún hluti af safni 39 mynda, sem bera heitið „Andartakið stöðvað í tíma“.
Höfundarnir eru tveir New York-búar, Elliot og Ivan Schwartz, og hér má m.a. sjá stöðvarstjórann fylgjast með
klukkunni, kaupsýslumenn að bíða eftir næstu lest, Ijósmyndara, sem er að búa sig undir komu fegurðardrottn-
ingar, og stjórnmálamann frá Texas, sem leggur áherslu á orð sín með virðulegri handarhreyfingu. Gestir í
stöðinni geta brugðið upp heyrnartækjum og fylgst þannig með „samræðum“ fólksins.
Toppfundur Einingar-
samtakanna í óvissu
Trípólí, Líbýu. 25. nóvember. AP.
TOPPFUNDUR Einingarsamtaka
Afríkuríkja var í dag í nokkurri
óvissu í kjölfar þeirrar neitunar rík-
isstjórnar Chad, að draga fulltrúa
sína sjálfviljug til baka af toppfundi
samtakanna, sem fram á að fara i
Trípóli.
Ekki hefur verið skýrt frá hvaða
lagalegar ástæður eru fyrir þeirri
beiðni að fulltrúar Chad sitji ekki
Veður
víða um heim
Amsterdam
Aþena
Berlin
BrUssel
Buenos Airea
Caracas
Chicago
Dyflinni
Genf
Helsínki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Mexikóborg
Miami
Montreal
Moskva
Hýja Dehlí
New York
Ósló
París
Rio de Janeiro
Róm
San Prancisco
Stokkhólmur
Tókýó
Vancouver
Vfn
10 skýjað
19 heiöskírt
13 heiðskírt
10 rigning
32 heiðskirt
26 skýjað
28 heiðskírt
9 heiðskfrt
13 rigning
13 rigning
22 skýjað
10 heiðskírt
29 heiöskfrt
19 heiðskfrt
13 rigning
15 heiðskfrt
10 rfgning
22 heiðskírt
13 skýjað
21 heiðskfrt
26 heiðskírt
5 heiðskfrt
4 skýjað
24 heiðskfrt
14 heiðskírt
6 skýjað
12 skýjað
31 heiðskirt
18 rfgning
17 heiðskírt
9 rigning
13 heiðskírt
5 skýjað
4 skýjað
fundinn. Fulltrúi úr sendinefnd
Líbýu hefur skýrt svo frá að
Líbýumenn hafi ekki getað
ábyrgst öryggi fulltrúanna frá
Chad. Líbýumenn skárust í leikinn
í borgarastyrjöldinni, sem geisaði
í Chad í fyrra, og börðust hat-
rammlega gegn Habre og hans
mönnum. Þeir drógu sig út úr
landinu fyrr á þessu ári vegna
þrýstings frá Einingarsamtökun-
um og við það náði Habre stjórn-
artaumunum.
Toppfundurinn hefur enn ekki
getað hafist vegna mótmæla 17
Afríkuríkja, sem standa með Chad
í deilunni. Nægir þessi fjöldi til að
gera fundinn óstarfhæfan sam-
kvæmt reglum samtakanna. Þarf
minnst helming aðildarþjóðanna
svo hægt sé að funda.
Fulltrúar Sierra Leone, Maur-
itius, Zaire og Kongó sögðu frétta-
mönnum, að sú ákvörðun Hissene
Habre, forseta Chad, að draga
ekjci sendinefnd sína til baka,
hefði í raun gert út um þennan
fyrirhugaða fund í Trípóli.
„Spurningin er bara sú hvað verð-
ur um Einingarsamtökin nú?“,
sagði einn fulltrúa Chad, sem
óskaði nafnleyndar.
Fregnir hafa á hinn bóginn bor-
ist af því að forseti Nígeríu, Shehu
Shagari, ætlaði að reyna að beita
sér fyrir því að Habre skipti um
skoðun og hægt væri að hefja
toppfundinn. Þá hafa ennfremur
borist fregnir af fyrirhuguðum
skyndifundi, sem Khadafy, Líbýu-
leiðtogi hefur í hyggju að koma á.
Fulltrúar annarra þjóða í Trípóli
eru ekki bjartsýnir á þá ráðagerð.
\V/
ERLENT .
30 ára sviðsafmæli
Músagildru Agötu
Christie í gær
Lundúnum, 25. nóvember. AP.
MÚSAGILDRAN, hið heimsþekkta leikrit Agötu Christie, verður í kvöld sýnt
í 12.483. sinn. Leikritið hefur nú verið sýnt samfleytt í 30 ár. Ekki þarf að
taka það fram að ekkert leikrit hefur notið jafn mikilla vinsælda. Talið er að
um 5 milljónir manna hafi séð það.
Leikstjórinn, Sir Peter Saund-
ers, hefur engu að síður ekki neina
skýringu á þessum ótrúlegu vin-
sældum leikritsins. „Ég veit ekki
hvað orsakar þessar vinsældir,"
segir hann. „Leikritið er að vísu
fyrsta flokks skemmtun, en það er
ekkert á við leikrit Chekovs eða
Ibsen."
Allt frá því leikritið hefst í
myrkrinu og þar til morðinginn er
afhjúpaður á meðal snjóbarinna
gesta á enskri sveitakrá fer ekki á
milli mála, að þetta er leikrit í
anda Agötu Christie. „Mér fannst
þetta ósköp vinalegt leikrit þegar
það hóf göngu sina“, sagði höfund-
urinn sjálfur þegar leikritið var
fyrst sett upp. „En ég bjóst ekki
við að það gengi meira en í 4—5
mánuði."
Þótt leikritið hafi gengið allan
þennan tíma hefur Agata sjálf
aldrei séð krónu af uppsetningu
þess. Hún ákvað að gefa 9 ára
frænda sínum öll sýningarréttindi
á leikritinu, en hann seldi Saund-
ers þau síðar. Enn hefur ekki verið
gerð kvikmynd eftir þessu hand-
riti af þeirri einföldu ástæðu að
höfundur kvað á um að svo yrði
ekki gert fyrr en 6 mánuðum eftir
að sýningum á leikritinu lyki.
Þeim er ekki lokið enn.