Morgunblaðið - 26.11.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
Sauðárkróks-
kirkja 90 ára
Sauðárkrókskirkja.
Sauðárkróki, 25. nóvember.
NÆSTKOMANDI sunnudag,
28. nóvember, veróur þess
minnst hér á Sauðárkróki, að
um þessar myndir eru 90 ár
liðín frá vígslu Sauðárkróks-
kirkju. Við hátíðarmessu í
kirkjunni þann dag predikar
vígslubiskup Hólastiftis, Sig-
urður Guðmundsson. Fyrir alt-
ari þjóna tveir fyrrverandi
sóknarprestar hér, þeir séra
Tómas Sveinsson og séra Þórir
Stephensen auk núverandi
sóknarprests, séra Hjálmars
Jónssonar.
Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Jóns Björnssonar organ-
ista. Að guðsþjónustu lokinni
verður almenningshóf í félags-
heimilinu Bifröst og hefst það
klukkan 16. Þar mun séra Þórir
Stephensen segja sögu Sauð-
árkrókskirkju og séra Tómas
Sveinsson flytja ræðu er hann
nefnir Kirkjulíf undir Nöfum.
Friðbjörn G. Jónsson syngur við
undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar og kirkjukórinn syngur
undir stjórn Jóns Björnssonar.
Ávörp flytja Sveinn Friðvins-
son, formaður sóknarnefndar og
séra Hjálmar Jónsson. Allt
safnaðarfólk er velkomið til
þátttöku í hátíðahöldum dags-
Hvolsvöllur:
11 rangæsk ung-
menni sýna myndir
SUNNUDAGINN 14. nóvember var
opnuð sýning 11 ungra rangæskra
myndlistarmanna í Héraðsbókasafn-
inu á Hvolsvelli.
Þeir sem þarna sýna eru Anna
María Grétarsdóttir, Ingigerður
Magnúsdóttir, Erling Magnússon
og Hans G. Magnússon frá Kirkju-
lækjarkoti, Katrín og Þórhildur
Jónsdætur frá Lambey, Guðrún
Jóhannsdóttir og Kalman Jó-
hannsson frá Utgörðum, Dóra
Kristín Halldórsdóttir á Snjall-
steinshöfða, Kristrún Ágústsdótt-
ir, Stóra-Moshvoli og Örn Guðna-
son á Hvolsvelli.
Á sýningunni eru 30 myndverk;
blýantsteikningar, olíu- og vatns-
litamyndir, tauþrykk, textilsam-
klippur, leir- og gipslágmyndir.
Sýningin mun opin á afgreiðslu-
tímum safnsins á mánudögum og
fimmtudögum frá 15—19 og
standa fram undir jól.
Fella- og Hólasókn:
Tíund gef-
in til kirkju-
byggingar
VERZLUNIN Straumnes, Vestur-
bergi 76, efnir fostudaginn 26.
nóvember til sérstaks „Markaðs-
dags fjölskyldunnar" og mun láta
tíund af öllum viðskiptum dagsins
renna til kirkjubyggingarsjóðs
Fella- og Hólasóknar
Er þetta þriðji föstudagurinn
í röð, sem matvöruverzlanir í
Efra Breiðholti láta hluta af
veltu sinni ganga til sóknar-
kirkju hverfisins, sem hafin var
smíði á í vor og er nú langt
komin í að verða fokheld.
Sl. föstudag var það verzlunin
Hólagarður og þar á undan
verzlunin Kjöt og fiskur, sem
reiddu sína tíund af höndum.
Sýningum á
„Okkar manni“
að ljúka
NÚ EK lokið 11 sýningum á
söngvafarsa Jónasar Arnasonar
„Okkar maður“ hjá Leikfélagi
Akraness og hafa sýningar verið
mjög vel sóttar.
Sl. sunnudag var t.d. fullt
hús á sýningu í Kópavogsleik-
húsinu. Alls eru nú um 2000
manns búnir að sjá sýninguna
og hafa hópar komið víða að.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs-
dóttir. Allra síðasta sýning
verður í Bíóhöllinni Iaugar-
daginn 27. nóv. kl. 17 og hefst
miðasala kl. 15.
Sýnir í Há-
skólabíói
SIGRÚN Jónsdóttir, batiklista-
kona sýnir verk sín í anddyri
lláskólabíós.
Sýningin er opin daglega frá
klukkan 16 til 22 og stendur
hún til mánaðamóta.
Jólastjaman
er komin 1 blómaverzlanir um land allt
BLÓMAMIÐSTÖÐIN
Upplýsingar
og umhirða;
Jólastjarnan er ættuð frá
Mexíkó. Hún er framúrskar-
andi vinsælt haust og jóla-
blóm, ræktuð vegna áber-
andi litríkra háblaöa. sem
ýmist eru skærrauð, bleik
eða hvítleit. Litur þeirra
kemur i Ijós er hausta tekur
og daglengd verður
skemmri en 12 timar. Jóla-
stjarnan þarf að vera í góöri
birtu og hóflegum hita, en
þannig endast háblaða-
stjörnurnar lengst. Drag-
súgur og kuldi er stórhættu-
legt. Plantan má aldrei vera
of þurr, en samt ber aö var-
ast aö láta vatn staöna í
þottinum. Notið ylvolgt
vökvunarvatn og daufa
áburðarvökvun á 14 daga
fresti.
Óli Valur Hansson.