Morgunblaðið - 26.11.1982, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
Öruggur sigur Vals
Valur vann nokkuð öruggan
aigur á Fram í úrvalsdeildinni í
körfu í g»r. Leikurinn var býsna
tíðindalítill, á köflum hrein leik-
leysa, leikmenn hittu illa og
gerðu alls kyns mistök, en inn á
milli sáust ágætis kaflar. Valur
sigraði 103:93. Staðan í hálfleik
var 53:40 fyrir þá. Eins og á tölun-
City steinlá
í Southampton
Þrír leikir fóru fram í ensku
mjólkurbíkarkeppninni í fyrra-
kvöld. Manchester United sigraði
Bradford auðveldlega 4:1, South-
ampton burstaði Man. City 4:0 og
Norwich vann Sunderland 3:1.
Fyrr í vikunni léku einnig Arsenal
og Everton í keppninni og vann
Arsenal 3:0. Þá léku einnig Cov-
entry og Ipswich í 1. deild. Liðin
skildu jöfn, skoruðu eitt mark
hvort.
um sést var ekki mikiö um varnir
í leiknum.
Valur haföi forystu alveg frá
upphafi og sigurinn virtist aldrei í
hættu. Þeir komust mest i tæplega
20 stiga forystu i fyrri hálfleiknum,
en í þeim síðari saxaöi Fram all
verulega á þaö forskot og aöeins
munaöi fimm stigum er skammt
var til leiksloka. En Valsmenn gáf-
ust ekki upp og tryggöu sér sigur.
Framarar misstu nokkra menn
út af í síöari hálfleik. Þorvaldur
fékk sína 5. villu á 6. mínútu Símon
á 11. mínútu og Viöar um svipaö
leyti. Ríkharöur Valsari fékk svo 5.
villu sína á 12. mínútu en þaö skipti
ekki máli. Hann haföi ekki verið
atkvæöamikill, og þaö sama má
reyndar segja um Viöar og Þor-
vald.
Val Brazy bar aö venju höfuö og
heröar yfir aöra leikmenn Fram og
geröi laglega hluti en hitti ekki
nógu vel þrátt fyrir aö skora mikiö.
Hann spilaði samherja sína oft vel
uppi en þeir voru bara oft ekki
meö á nótunum. Jóhannes Magn-
usson átti góðan leik, sérstaklega í
sókninni, og þá kom Guömundur
Hallgrimsson skemmtilega á óvart
hjá Fram.
Tim Dwyer var mjög drjúgur aö
venju hjá Val og stigahæstur. Þá
átti Jón Steingrímsson góöan dag.
Stigin skiptust þannig:
Valur: Tim Dwyer 34, Jón
Steingrímsson 19, Torfi Magnús-
son 17, Kristján Ágústsson 15,
Leifur Gústavsson 10, Ríkharöur
Hrafnkelsson 8.
Fram: Val Brazy 38, Jóhannes
Magnússon 16, Guðmundur Hall-
grímsson 11, Símon Ólafsson 10,
Viöar Þorkelsson 6, Jóhann
Bjarnason 4.
— SH.
Guðmundur Hallgrímason, Torfi Mognúsaon, Símon Ólafsson og Tim
Dwyer viröast hafa komið auga á einhvern torkennilegan hlut fyrir ofan
sig á þessari skemmtilegu mynd Kristjáns Einarsson frá leiknum í
gærkvöldi. Bros virðist vera að færast yfir andlit Valsmannanna þann-
ig aö líkur eru á að boltinn sé á leiöinni í Fram-körfuna.
"Eitt það mikilsverðasta, sem ég hefi nokkurn
tíma gert fyrir húðina var að velja Lux."
Allt frá því Ali MacGraw hóf leikferil sinn í
kvikmyndum taldist hún til fámenns úrvalsliðs
alþjóðlegra kvikmyndast jarna. Og innan þess hóps
hefur hún jafnan haldið eigin útliti,einstaklings-
bundnum fegurðarstíl.
Útlitið er mjög eðlilegt og Lux á þátt í að skapa það.
Pað er vegna þess að hið ágæta löður Lux fer
betur með húö hennár en nokkur önnur sápa, mýkir
hana og sléttir á hinn fegursta hátt.
Umönnun sést á andlitinu. Þess vegna velur Ali
MacGrawLux.
JVI r |
Luxgerirhúðina
mjúka ogslétta LUX ER FEGRUNARSÁPA KVIKMYNDASTJARNA HEIMSINS.
Fylkir efst
í 3. deild
I KVÖLD fara fram nokkrir leikir í
íslandsmótinu í handknattleik. f
1. deíld karla leika ÍR og Þróttur í
Laugardalshöllinni kl. 20.00.
Strax á eftir leika í 3. deild ÍA og
Týr. Þrír leikir eru í 2. deild í
kvöld. Á Akureyri leika KA —
UBK, á Seltjarnarnesi leika
Grótta og Ármann, og að Varmá
leika UMFA — Þór Ve. Þá leika á
Akranesi í 3. deild ÍA og Týr.
Síöasti leikur í 3. deildinni var á
milli Reynis S og ÍBK. Reynir sigr-
aöi örugglega 25—16. í hálfleik var
staöan 9—8, fyrir Reyni. Besti
maöur Reynis var markvöröurinn
Olgeir Andrésson sem varöi 20
skot í leiknum. Markahæstur í liöi
Reynis var Freyr Sverrisson meö 7
mörk og í liöi ÍBK Jón Olsen meö
5. Staðan í 3. deild er núna þessi:
Fylkir 5 5 0 0 122—77 10
ReynirS. 6 4 1 1 135—117 9
ÞórAk. 6 3 2 1 145—111 8
Keflavík 7 3 1 3 147—133 7
TýrVe. 6 2 1 3 122—105 5
Dalvík 6 2 0 4 134—132 4
Akranes 3 1 1 1 72—76 3
Skallagr. 4 1 0 3 85—112 2
Ögri 5 0 0 5 59—158 0
Bikarkeppnin
í sundi 1. deild
hefst í dag
BIKARKEPPNI íslands í sundi, 1.
deild, verður haldin í Sundhöll
Reykjavíkur helgina 26.—28. nóv-
ember 1982.
f 1. deild keppa liö HSK, ÍA,
ÍBV, UMFN og a-liö Ægis. Keppt
veröur í 26 greinum og meöal
keppenda er allt besta sundfólk
landsins. Hvert liö sendir tvo
keppendur í hverja grein og er
búist við mjög haröri keppni á
mótinu.
Dagskrá:
Föstudagur 26.11. ’82. Upphitun
kl. 19.00. Mót hefst kl. 20.00.
Laugardagur 27. 11. ’82. Upp-
hitun kl. 15.00. Mótssetning kl.
16.00.
Sunnudagur 28.11. ’82. Upphit-
un kl. 14. Mót hefst kl. 15.00.
Aðalfundur
Keilis
ADALFUNDUR Golfklúbbsins
Keilis verður haldinn á laugar-
daginn kl. 14.00 í Gaflínum við
Reykjavíkurveg. Tekin verða fyrir
venjuleg aðalfundarstörf og önn-
ur mál, og eru allir félagar hvattir
til aö mæta.
XPLTS20-D