Morgunblaðið - 28.11.1982, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982
Aðventuhátíð
í Arbæjarsókn
Frá og með sunnudeginum 28.
nóvember hefst aðventutímabil
kirkjuársins; öðru nafni jólafast-
an. Aðventan er undirbúningstími
okkar kristinna manna fyrir jólin,
trúarhátíðina æðstu, sem kemur
til okkar eins og vermandi bjartur
geisli í svartasta skammdeginu
með birtu og yl, fögnuð og frið.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að mikil eru umsvif okkar
og annir á aðventunni, því að
mörgu þarf að hyggja fyrir jólin.
Um það verður ekki deilt, að hinn
ytri jólaundirbúningur okkar er
svo sannarlega fyrirferðarmikill
og tímafrekur.
Hitt orkar meira tvímælis,
hvort við erum þar með á réttri
leið, eða hvort við getum ekki með
öðrum og áhrifaríkari hætti búið
okkur betur undir fæðingarhátíð
frelsarans en með skefjalausu
kaupæði og kappáti í koti og höllu.
Góðu heilli gera æ fleiri sér það
ljóst, að sá undirbúningur jólanna,
er að hjartanu snýr er vænlegast-
ur til þess að menn eignist varan-
lega og sanna jólagleði. Og það er
ánægjuleg staðreynd, að þeim
fjölgar stöðugt, er leita til kirkna
sinna á aðventunni til undirbún-
ings fyrir jólahátíðina, að Ijósið af
hæðum megi helga hugi og hjörtu.
Aðventukvöldin í söfnuðum lands-
ins eru fyrst og fremst í þeim til-
gangi haldin að hjálpa okkur við
að sinna þeim jólaundirbúningi, er
að himninum snýr.
A fyrsta sunnudegi í aðventu,
nýársdegi kirkjuársins, verður að-
ventuhátíð í Safnaðarheimili Ár-
bæjarsóknar og hefst hún kl.
20.30. Dagskrá aðventukvöldsins
verður á þessa leið:
Kristyna Cortes, organleikari
Árbæjarsafnaðar, leikur einleik á
orgel, Rannveig Guðmundsdóttir,
varaformaður sóknarnefndar,
flytur ávarp, Sigrún Eðvaldsdóttir
Ieikur á fiðlu, Félagar úr Karla-
kórnum Fóstbræðrum syngja und-
ir stjórn Jónasar Ingimundarson-
ar, Albert Guðmundsson alþingis-
maður flytur ræðu, Barnakór Ár-
bæjarskóla syngur undir stjórn
Áslaugar Bergsteinsdóttur. Loks
verður helgistund í umsjá sókn-
arprests og aðventuljósin tendruð.
Kynnir á samkomunni verður
María Guðmundsdóttir, formaður
sóknarnefndar. Góðir safnaðar-
menn. Fjölmennum á aðventuhá-
tíð Árbæjarsafnaðar annað kvöld.
Eignumst helga stund í aðventu-
byrjun í húsi Drottins. Hefjum
þegar hinn eina raunsanna undir-
búning, svo að við getum fagnað
hátíð hæstri og eignast jólaljósið í
hug og hjarta. Verið öll velkomin.
Guðmundur Þorsteinsson
Stjórn ÍAH — Sambands hljómplötuútgefenda, f.T. Svavar Gests, SG-hljóm-
plötur, Steinar Berg ísleifsson, Steinum, og Ólafur Haraldsson, Fálkanum,
sem er formaður samtakanna.
Samband hljómplötuútgefenda:
Vekur athygli á hljóm-
plötum sem gjafavöru
PROFKJOR SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
SPŒIFSTOFA
STUÐNINGSMANNA
GUÐMIJ^DAR H.
(iAKf)AKSS(h\AK
er að Stigahlíð 87 Símar: 30217 og 25966
Opið alla daga eftir kl. 16.00 og um helgar.
Að undanförnu hafa birst í fjöl-
miðlum hvatningarorð til almenn-
ings um kaup á tónlist til gjafa. Ber
þar helst á slagorðunum „Gefið tón-
listargjöf" sem birst hafa af og til í
dagblöðum. Hvatningarorð þessi eru
liður í starfsemi sambands hljóm-
plötuútgefenda, sem í samstarfi við
ýmsa hagsmunaaðila í hljómplötu-
iðnaðinum hafa einsett sér að kynna
innlcndan hljómplötuiðnað á ýmsan
hátt.
Tilgangur þessarar kynn-
ingarstarfsemi er að vekja athygli
á tónlist almennt, en þó sérstak-
lega á hljóðritaðri tónlist sem
gjafavöru. „Góð hljómplata er án
nokkurs vafa bæði varanleg gjöf
og ánægjuleg. Þar að auki eru
hljómplötur alls ekki dýrar miðað
við ýmsar hefðbundnar gjafavör-
ur.“
Svipuð kynningarstarfsemi hef-
ur farið fram bæði í Evrópu og
Ameríku, en þar hefur verið bent
á þá staðreynd að þar sem
hljómflutningstæki séu til á
hverju heimili sé hljómplata jafn
eðlileg tækifærisgjöf og til dæmis
bækur, blóm og konfekt.
Sambandið bendir á að gæði
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28. og 29. nóvember
Við kynnum
Sólrúnu B. Jensdóttur
sagnfræðing
Hún mun berjast fyrir:
• Endurreisn atvinnulífsins með eflingu
iðnaðar og aukinni orkunýtingu.
• Afnámi hafta og skattaáþjánar.
• Jöfnun kosningaréttar án fjölgunar
þingmanna.
• Sveigjanlegum vinnutíma og samfelld-
um skóladegi.
• Einstaklingsfrelsi á öllum sviöum þjóð-
lífsins.
Kjósum unga, áhugasama og
vel menntaða konu á þing.
Stuðningsmenn.
innlendrar tónlistar- og hljóm-
plötuframleiðslu hafa sennilega
aldrei verið meiri, en um leið hef-
ur verð á hljómplötum aldrei verið
hagstæðara. Hljómplötur sem
framleiddar eru hérlendis kosta
frá rúmlega 200 krónum til tæp-
lega 300 króna. Aftur á móti eru
plötur framleiddar erlendis all-
miklu dýrari.
ÍAH var stofnsett árið 1966.
Sambandið hefur frá upphafi
starfað að hagsmunum þeirra sem
tengdir eru hljómplötuiðnaði hér-
lendis. Núverandi félagar eru
Fálkinn, Steinar, SG, Geimsteinn,
Skífan og Tónaútgáfan. Fram^
kvæmdastjóri IAH er Gunnar
Guðmundsson hdl. (Frétutilkjnning.)
Hátíðarguðsþjónusta í
Fríkirkjunni á sunnudag:
Séra Gunnar
Björnsson settur
inn í embætti
f DAG, sunnudaginn 28. nóvember
kl. 14.00, verdur hátíðarguðsþjón-
usta í Fríkirkjunni. Séra Kristján
Róbertsson, fyrrum Fríkirkjuprest-
ur, setur nýkjörinn Fríkirkjuprest í
Reykjavík, séra Gunnar Björnsson,
inn í embætti. Kór Frikirkjunnar
syngur, söngstjóri og organisti er
Sigurður ísólfsson.
I Fríkirkjusöfnuðinum í Reykja-
vík eru nú rúmlega 6.000 manns.
Við prestskosningar, er fram fóru
í söfnuðinum helgina 20. og 21.
nóvember siðastliðinn, gengu um
200 nýir meðlimir í söfnuðinn. Á
kjörskrá voru um 4.500 manns.
1.059 greiddu séra Gunnari
Björnssyni atkvæði sitt og er hann
því réttkjörinn Fríkirkjuprestur í
Reykjavík.
Að lokinni guðsþjónustu í Frí-
kirkjunni verður kaffisamsæti á
Hótel Esju, um kl. 15.30. Þar verða
ávörp og skemmtiatriði.
Víðistaðasókn, Hafnarfirði:
Fimm ár liðin frá vígslu
kapellunnar í Hrafnistu
FYRSTA sunnudag í aðventu eru
fímm ár frá vígslu kapellu sóknar-
innar í Hrafnistu. Þann tíma hefur
sá sunnudagur verið sérstakur hátíð-
ardagur í sókninni. Svo verður enn
nú. Barnaguðsþjónusta verður að
venju kl. 11 og kl. 14 verður hátíða-
guðsþjónusta.
Um kvöldið kl. 20.30 verður að
venju aðventukvöld. Þar verður
fjölbreytt dagskrá. Kór Víðistaða-
sóknar mun syngja undir stjórn
Kristínar Jóhannesdóttur, en Pav-
el Smíd mun aðstoða með undir-
leik. Ingveldur Hjaltested söng-
kona mun syngja einsöng og tón-
listarmenn flytja aðventu- og jóla-
lög. Börn munu flytja helgileik og
Luciur koma í heimsókn. Ræðu-
maður kvöldsins verður Hörður
Zophaníasson.
Eins og undanfarin ár mun
Systrafélag Víðistaðasóknar sjá
um að aðventukaffi verði á boð-
stólum. Það er orðin föst venja
fjölmargra fjölskyldna í Hafnar-
firði að koma saman og fá sér
hressingu þennan fyrsta aðventu-
sunnudag. Aðventukaffi fyrir alla
fjölskylduna verður á boðstólum í
Víðistaðaskóla bæði eftir hátíð-
arguðsþjónustuna og aðventu-
kvöldið eða milli kl. 15—17 og
21.30-23.
Aðventan hefur í æ ríkara mæli
fengið á sig sérstakan blæ meðal
fjölmargra og orðið gleðitími allr-
ar fjölskyldunnar og sannur und-
irbúningur jólahátíðarinnar sem
framundan er. Það er von mín að
sem flestir geti notið hátíðar og
gleðilegrar samveru þennan fyrsta
aðvéntusunnudag.
Siguróur Helgi Guðmundsson
Prófkjör Sjálfstæöismanna
í Reykjavík
28. og 29. nóvember 1982
Stuðningsmenn mínir
veita upplýsingar og
akstursþjónustu
prófkjörsdagana
sunnudag og mánudag,
Sími 38770
— 84069
— 16121
Esther
Guömundsdóttir