Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982
45
Þessar stöllur efndu til hhiUveltu til ágóöa fyrir Sjálfsbjörg, Fél. fatlaöra í
Reykjavík og nágrenni. Þer söfnuöu ner 160 krónum. Telpurnar heita
Guðrún Lind Halldórsdóttir, Guóný Gísladóttir og Lovísa Leifsdóttir. — Á
myndina vantar fjóröu telpuna úr híuUveltukompaniinu, en hún beitir Þuríö-
ur Anna Pálsdóttir.
Þau heita Hrólfur
HreiÖarsson, Alda
Þórunn Jónsdóttir
og María KrisU
Hreiöarsdóttir. —
Þau efndu til hluU-
veltu á Langeyrar-
vegi 12 í Hafnarfiröi
til ágóöa fyrir „Þjóö-
arátak gegn krabba-
meini“. Krakkarnir
söfnuöu alls rúm-
lega 1.600 krónum.
Þessar ungu dömur
efndu til hluUveltu
til ágóöa fyrir aldr-
aöa og afhentu í
Kirkjuhúsinu ágóö-
ann sem var rúm-
lega 1.100 krónur. —
Þer heita Steinunn,
Sædís, Gunnur,
Vilborg og Oddný.
Jólakort Barnahjálpar
SÞ komin á markaðinn
'’;,%SS6aéi
ÞESSA daga eru jólakort Barnahjálpar
Sameinuöu þjóðanna (UNICEF) að
koma á markaðinn. Eins og fyrr hafa
listamenn frá mörgum löndum gefið
verk sín til Barnahjálparinnar.
Kortin í ár eru mjög jólaleg og
með mikilli litadýrð. Ágóðinn af
sölu kortanna fer í að skapa mann-
sæmandi uppvaxtarskilyrði fyrir
börnin í þróunarlöndunum. Verk-
efni sem bæta möguleika barnanna
á að fá betri fæðu, heilsugæslu,
menntun og betra drykkjarvatn
eru fjármögnuð á þennan hátt. Þeir
fara líka til að hjálpa stríðshrjáð-
um börnum eins og t.d. í Líbanon
og börnum, sem verða fyrir barð-
inu á náttúruhamförum eins og t.d.
miklum þurrkum í Austur-Afríku.
Núna á síðustu mánuðum hefur
UNICEF unnið mikið starf meðal
barna í Líbanon eftir bardagana
þar, einnig í Chad eftir borgara-
styrjöldina þar. Það er m.a. álitið
að Chad-búar geti ekki brauðfætt
sig að fullu fyrr en með haustinu
1983, þannig að þangað til munu
hjálparstofnanir eins og UNICEF
hlaupa undir bagga með hinni
hungruðu þjóð.
Núna nýverið veitti UNICEF um
700.000 krónur í endurbyggingu
eftir að hvirfilvindurinn Ólivía
gerði mikinn usla í Guatemala.
Þeir peningar fara til kaupa á þak-
efni og varahlutum til að hægt sé
að gera við vatnsveitur, sem
skemmdust. Auk þessa er UNICEF
með langtímaverkefni í þágu barna
í Guatemala.
Jólakortin eru til sölu í helstu
bókaverslunum landsins en auk
þess eru þau seld á skrifstofu
Kvenstúdentafélags íslands að
Hallveigarstöðum. Á skrifstofunni
eru einnig til sölu gjafakort,
heilsárskort, dagbók, púsluspil og
bréfsefni. (Kréiuiilkynning)
Páfi boðar heilagt ár 1983
YatikaniA. AP.
PÁLL páfi II tilkynnti í gær, aö árið
1983 yrði sérstakt „heilagt ár“, til
minningar um að 1950 ár eru þá liðin
frá þvi að Jesús Kristur lét lífið á
krossinum. Slík heilög ár fela i sér
enn meiri guðrækni og bænahald en
gengur og gerist og pílagrímar fjöl-
menna til Rómar í leit að lyrirgefn-
ingu synda sinna.
Heilög ár hafa verið öðru hvoru
síðan á 14. öld, en þó aðeins 25 tals-
ins. Síðast var heilagt ár árið 1975
og venjulega eru þau haldin á 25
ára fresti. Samkvæmt því hefði
næsta ár af þessu tagi ekki átt að
verða fyrr en árið 2000. Páll páfi
hefur tjáð kardinálum sínum að
heilaga árið 1983 verði notað til
undirbúnings fyrir heilaga árið
2000.
MetsöluNad á hverjum degi!
, Nú er
rétti tíminn
Fátt mun falla vinum og viöskiptamönnum erlendis betur en gjafaáskrift aö
lceland Review 1983. Þú losnar við allt umstangiö. Útgáfan sendir fyrir þig
jólakveðjuna (gjafakort) og hvert nýtt hefti á næsta ári veröur sem kveðja frá
þér (auk þess aö flytja heilmikinn fróðleik um land og þjóð).
Fyrirhafnarlítiö, hagkvæmt — og vel þegiö af vinum
í fjarlægö. Láttu nú veröa af því.
Þeim fjölgar stöðugt, sem láta lceland Review flytja kveöju sína
til vina um víöa veröld.
★ Nýrri áskrift 1983 fylgir
árgangur 1982 í kaup-
bæti, ef óskaö er. Gef-
andi greiðir aðeins
sendingarkostnað.
★ Útgáfan sendir viðtak-
anda jólakveöju í nafni
gefanda, honum að
kostnaðarlausu.
□ Urdirritaöur kaupir ... gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1983
og greiöir áskriftargjald kr. 335 pr. áskrift aö viöbættum send-
ingarkostnaöi kr. 60 pr. áskrift. Samt. kr. 395.
□ Árgangur 1982 veröi sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn
greiöslu sendingarkostnaöar, kr. 100 pr. áskrift.
Ofangreind gjöld eru í gildi til ársloka 1983. Áskrift öölast gildi
þegar greiösla berst.
Nafn áskrifanda
Simi Heimilisfang
Nafn mottakanda
★ Hvert nýtt hefti af lce-
land Review styrkir
tengslin við vini í fjar-
lægö.
Heimilisfang
Nöfn annarra móttakenda fylgja meö é öóru blaöi. Sendiö til
lceland Review PóethóM 93, 121 Reykjevé, eöa hringiö í síma
27622.