Morgunblaðið - 11.12.1982, Side 15

Morgunblaðið - 11.12.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 15 Mál H og menning David Attenborough LÍFIÐ Á JÖRÐINNI Náttúrusöguþættir þeir sem David Atten- borough gerði á vegum BBC undir nafninu Lífið á jörðinni eru meðal metnaðarfyllstu og vinsælustu sjón- varpsþátta allra tíma. Úr efniviði þessara þátta hefur nú verið tekin saman stórfróðleg bók, aðgengileg ungum sem gömlum, prýdd 500 litmyndum sem gera hana hreint augnayndi. Þýðandi er Óskar Ingimarsson. Faith McNulty RÚMIÐ BRENNUR Ekki skáldsaga í venjulegum skilningi heldur heimildasaga, umskrifuð frásögn konu sem grípur til örþrifa- ráða eftir langvarandi þjáningar í hjónabandi. Elísabet Gunnarsdóttir þýddi. Knut Hamsun VIKTORÍA Viktoría hefur lengi verið ein þekktasta og vinsælasta skáldsaga Knuts Hamsun. Hún kom fyrst út á íslensku árið 1912 og var fyrsta skáldsagan sem birtist í snilldarþýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi. Sagan sýnir ást og auðmýk- ingu, ástríður og sárs- auka sem engum hafði dottið í hug áður að mætti lýsa með orðum. P. C. Jersild BARNAEYJAN Mögnuð skáldsaga um 11 ára dreng sem leggst út í stórborginni Stokk- hólmi í stað þess að fara í sumarbúðir eins og ætlast var til. Sagan er stórskemmtileg og fyndin, en lýsir líka vel sársaukanum sem fylgir því að verða fullorðinn og hæfir því ekki síður þroskuðum unglingum en fullorðnum. Guðrún Bachmann þýddi. James Joyce í DYFLINNI James Joyce hefur lítið verið kynntur íslend- ingum enda ekki auð- þýddur. Nú birtist sagnasafnið Dubliners í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar sem einnig ritar formála. Þetta eru listilega gerðar smásögur um fólk í hinni fornfrægu höfuðborg írlands og trúlega aðgengilegasta bók höfundar. Maj Sjöwall og Per Wahlöö LUKTAR DYR Áttunda bókin í safninu Skáldsaga um glæp tekur fyrir sígilt og heillandi verkefni lög- reglusagna: morð fyrir luktum dyrum. Til hliðar fæst sagan við fjölmörg bankarán og allt um kring iðar hið fjöl- skrúðuga mannlíf sem gerir bækur þessar svo sérstæðar meðal lög- reglusagna. Ólafur Jónsson þýddi. William Heinesen í SVÖRTU- KÖTLUM Sjötta bókin í safni þessa mikla sagna- meistara á íslensku er sagan af nornakötlum stríðsgróða og Englandssiglinga í Færeyjum og á íslandi. Saga sem við eigum enn eftir að skrá fyrir okkar leyti. Eins og aðrar sögur Heinesens í þessu ritsafni er hún í frábærri þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Edward Kennedy, Mark Hatfield STÖÐVUN KJARNORKU- VÍGBÚNAÐAR Víðlesnasta bók hinnar nýju friðarbaráttu. Tómas Einarsson, Jón Guðni Kristjánsson og Þröstur Haraldsson þýddu. Bókarauki eftir Garðar Mýrdal sem tengir bókarefnið ís- lenskum aðstæðum. Thomas Mann FELIX KRULL Játningar glæframanns Síðasta bók hins þýska Nóbelshöfundar og að margra dómi kórónan á ritferli hans. Hann bregður sér hér í líki ungs ónytjungs sem tekst afbragðsvel að villa á sér heimildir meðal borgaranna, vegna þess hve hann er fríður og aðlaðandi. Kristján Árnason þýddi og ritaði eftirmála um höfundinn og verk hans. Helgi Hálfdanarson ERLEND LJÓÐ FRÁ LIÐNUM TÍMUM Einstæð bók með öllum ljóðaþýðingum þessa frábæra þýðanda, að undanskildum japönsk- um og kínverskum ljóðum sem nýlega komu út á bók. Sum ljóðanna hafa aldrei birst á prenti áður. Gabríel García Marquez HUNDRAÐ ÁRA EINSEMD Meistaraverk Nóbels- verðlaunahöfundarins 1982 — nú komin í nýrri útgáfu í snjallri þýðingu Guðbergs Bergssonar. Ættarsaga Buendía- fjölskyldunnar í heila öld, „hugsjónir fjöl- skyldunnar, afrek og spaugilegir hættir, litrík fíflalæti og sárgrætileg flónska þeytist um spjöld bókarinnar í sögulegum harmleik byltinga, bjargráða kanans á bananavöllum og syndaflóði ástarinnar."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.