Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 37

Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 37 Haraldur Ciuðnason VIÐ ÆGISDYR Saga Vestmannaevjabæjar í 60 ár I Saga Vest- mannaeyja- kaupstaðar í sextíu ár ÚT ER komið fyrra bindið af sögu Vestmannaeyjakaupstaöar og nefnist Við Ægisdyr — Saga Vestmanna- eyjakaupstaðar í 60 ár. Höfundur ritsins er Haraldur Guðnason skjala- vörður og fyrrum bókavörður í Vest- mannaeyjum. Rit þetta er tekið saman að frumkvæði bæjarstjórnar Vest- mannaeyja, en hún samþykkti á hátíðarfundi í febrúar 1979, þegar 60 ár voru liðin frá fyrsta fundi hennar, að láta skrá sögu Vest- mannaeyjakaupstaðar, og fékk til þess verks Harald Guðnason sem er gagnkunnugur sögu Vest- mannaeyja. I þessu fyrra bindi er sagt frá aðdraganda þess að Vestamanna- eyjasýsla varð kaupstaður með lögum frá 1918; dregin er upp mynd af bæjarlífinu á þeim tíma og sagt frá fyrstu bæjarstjórnar- kosningunni. Rakinn er annáll Vestmannaeyja 1919—1979 og get- ið þess helsta er við bar á hverju ári. Þá er í riti þessu gerð rækileg grein fyrir heilbrigðisþjónustu í Eyjum og rakinn viðburðarrík byggingarsaga sjúkrahúsanna. Örn Bjarnason, forstjóri Hollustu- verndar ríkisins, og fyrrum hér- aðslæknir í Eyjum, er meðhöfund- ur þess kafla. Loks eru svo þættir af þingmönnum Vestmannaeyja frá endurreisn alþingis. í síðara bindi verður fjallað um hafnargerð, rafveitu, samgöngur, skipulag, bæjarútgerð, hitaveitu og fleiri stofnanir auk bæjar- fulitrúatals 1919—1979. Við Ægisdyr er 340 bls. Bókina prýða fjölmargar myndir frá því tímabili sem um er fjallað. Sigur- geir Jónasson hefur séð um þann þátt. Ástmar Ólafsson auglýs- ingateiknari hefur séð um útlit bókarinnar. Útgefandi er Vest- mannaeyjabær, en dreifingu ann- ast Setberg. Getty-safnið sló um sig ÍAindon, 9. des. Al\ GETTY-LISTASAFNIÐ í Malibu í Kaliforniu festi í gær kaup á tveimur meiriháttar listaverkum á list- munauppboði Christie’s í Lundún- um. Hér var um teikningar að ræða. Önnur er af Jesú Kristi eftir Raphael, en hann var uppi frá 1483—1520 og í hópi frægari lista- manna allan tíma. Hin myndin er eftir Rubens og er teiknuð í rauð- um og svörtum litum, myndefnið: Nakin kona og kvennahöfuð. Jesúteikningin kostaði safnið 332.424 dollara, en konan fá- klædda fór hins vegar á 194.760 dollara. Teikningarnar voru í hópi 84 listaverka sem seld voru úr áð- ur óþekktu einkasafni. Barnaskíöagallar Gerö: St. Anton. Stæröir: 140-176. Litir: blátt/rautt, blátt/ljósblátt. Verö 1.090.- Póstsendum. ■'S: Kvenskíöagallar Gerö: Bernina. Stæröir: 36—46. Litir: blátt/gult, grátt/vínrautt. Verö 1.630.- Póatsendum. BERNINA Sportborg Hamraborg 6, Kópavogi. Sími 44577 Laugardag opið til kl. 6. kynnir í dag frá kl. 3—6 örbylgjuofna í dag kynnir Gunnar Bollason, matreiöslumaöur, Sharp örbylgjuofna í versluninni. Geriö svo vel aö líta inn — kynnist möguleikum örbylgjuofna og hve sáraeinfaldir þeir eru í allri notkun. Munið okkar hagstæöa vöruval. Reykjavíkurvegi 72 — Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.