Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 Minning: Jón Björnsson Sauðárkróki Fæddur 17. nóvember 1891 Iláinn 17. september 1982 Jón Björnsson fyrrverandi deildarstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 17. sept. sl. tæplega 91 árs að aldri. Með honum er genginn mikill mannkostamaður, sem átti að baki langan og giftu- saman starfsferil, sem öðru frem- ur einkenndist af frábærum dugn- aði og óbrigðulli trúmennsku. Jón var fæddur í Hringsdal á Látraströnd í Suður-Þingeyjar- sýslu. Foreldrar hans voru hjónin Björn Björnsson, ættaður úr Svarfaðardal og Guðbjörg Guð- jónsdóttir frá Hólmavaði í Aðal- dal. Afi Jóns í föðurætt var Björn Jónsson í Syðra-Garðshorni í Svarfaðardal, annálaður dugnað- arforkur til sjós og lands. Jón fluttist með foreldrum sín- um til Skagafjarðar árið 1903, er þau fengu jörðina Hrappsstaði (nú Hlíð) í Hjaltadal til ábúðar. Hann settist í Hólaskóla 1910 og útskrif- aðist þaðan 1912. Hugur hans stóð til búskapar, en hann var fátækur og taldi ekki giftusamlegt að hefja búskap með tvær hendur tómar. Alla ævi var hann því marki brenndur að ráðast aldrei í neitt, sem hann áður var ekki öruggur um að geta staðið undir. Hann mat áræði, var sjálfur kjarkmað- ur, en að standa við skuldbind- ingar sínar var grundvallaratriði í lífi hans. Árið 1915 réðst hann til Krist- jáns P. Briem, kaupmanns á Sauð- árkróki og starfaði við verslun hans samfleytt í 23 ár, eða til árs- ins 1938 er hann hóf störf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Um þau vistaskipti fórust Jóni sjálfum svo orð í viðtali í „Glóðafeyki", félags- tíðindum K.S., 1971: „Ég átti alltaf dálítið erfitt með að losa mig til fulls við þá hug- mynd að vera bóndi, og þó að ég væri orðinn meira en hálf- fimmtugur þegar ég hætti störf- um hjá Briem, þá var það mjög ofarlega í mér að fara að búa. En Sigurður kaupfélagsstjóri lagði mjög fast að mér að koma til sín, sagði að karlarnir heimtuðu það af sér að hann réði mig, ef ég færi frá Briem." Þetta segir nokkuð um það orð, sem af Jóni fór, sem verslunar- manni.'Hjá kaupfélaginu starfaði hann síðan allt til ársins 1970 eða í 32 ár, ætíð sem deildarstjóri í „Gránu", sem var stærsta og um- svifamesta verslun félagsins. Um veru hans hjá kaupfélaginu segir Magnús H. Gíslason svo í áður- nefndu viðtali í „Glóðafeyki": „Þar hefur hann verið vakinn og sofinn öll þessi ár, ávallt jafn traustur og samviskusamur, ávallt + Móöir okkar, SIGRÍÐUR KRISTÓFERSDÓTTIR, frá Breiöavaöi í Langadal, andaðist á St. Franciscu-spítalanum í Stykkishólmi 9. desember. Kristjana Haraldsdóttir, Einar Haraldsson. Móðir okkar, LAUFEY GfSLADÓTTIR, Heiöargeröi 25, andaðist að kvöldi fimmtudagsins 9. desember. Ástrós Þorsteinsdóttir, Guörún Þorsteinsdóttir, Gunnar Þorsteinsson, Gísli Freyr Þorsteinsson. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, MAGNÚS BJÖRNSSON, skipstjóri, Sólvallagötu 6, lést í Landspítalanum 10. desember. Guörún Markúsdóttir, Markús ívar Magnússon, Svanhíldur Siguröardóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Trausti Júlíusson, og barnabörn. t Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, SKÚLI H. SKÚLASON, trésmíöameistari, Tjarnargötu 30, Kellavík, verður jarösunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 11. des. kl. 2. Blóm vinsamlega afþökkuö en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Sjúkrahús Keflavíkur. Ragnheiöur G. Sigurgísladóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ÞORGEROAR GRÓU PÁLSDÓTTUR, frá Sigldfirói. Ásgrímur Sigurösson, María Ásgrímsdóttir, Kristinn Finnsson, Halldóra Ásgrímsdóttir, Karl-Erik Rocksén, Eiríksína Ásgrímsdóttir, Ange Mancini, og barnabörn. jafn hlýr og háttvís, ætíð reiðubú- inn að leysa hvers manns vanda, eftir því sem unnt var. Þess vegna sagði líka Magnús skáld áVöglum eitt sinn þessi orð, sem menn hafa ekki síðan gleymt: „Ytri-búðin“, en svo var Grána oft nefnd af því að hún stóð norðar af tveimur búðum kaupfélagsins, en fleiri voru þær ekki um langt skeið, — „Ytri-búðin, það er besta búð í heimi". Á Sauðárkróki kynntist Jón konuefni sínu, Unni Magnúsdótt- ur. Þau gengu í hjónaband 16. maí 1919. Heimili þeirra stóð ætíð að Aðalgötu 17, nema fyrsta hjúskap- arárið er þau bjuggu í húsi nokkru norðar við sömu götu. Þau eignuð- ust fimm börn, sem öll eru á lífi. Afkomendur Jóns og Unnar eru um 60 talsins. Unnur, sem lifir mann sinn, dvelur nú á ellideild sjúkrahússins á Sauðárkróki. Ég, sem þessar línur rita, er tengdadóttir Jóns og Unnar, og ég get ekki látið hjá líða að minnast tengdaföður míns látins með nokkrum orðum. í nær 15 ár hefi ég dvalið í fjarlægu landi, en hug- ur minn æði oft verið heima. Margar af mínum bestu minning- um eru tengdar Jóni og Unni. Eins og fyrr segir, var Jón frá- bær atorkumaður, áhugasamur og trúr í öllum sínum störfum. Ég fékk senda hljóðupptöku af ræðu séra Gunnars Gíslasonar í Glaumbæ, sem hann flutti yfir moldum Jóns. Hann hóf hana með þessum orðum: „Hann var trúr allt til dauða." Þessi setning er sönn, og lýsti Jóni Björnssyni mætavel. Hann var líka ávallt orðvar og prúður í framkomu við alla. Kurteisi var honum eðlisgróin. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt hann tala ljótt orð til nokkurs manns í þau 21 ár, sem ég var honum samtíða, fyrst eitt ár á hemili tengdaforeldra minna, og síðan 20 ár í næsta húsi, sem vitanlega leiddi til náinna samskipta milli heimilanna. Hjá þeim var ég daglega, og átti því mikla láni að fagna, að eignast einlæga vináttu og trúnað tengda- foreldra minna. Þau voru mér frábærlega góð og umhyggjusöm, hefðu ekki getað reynst mér betur þótt ég hefði verið þeirra eigin dóttir. Aldrei mun ég gleyma, hve vel þau fögnuðu mér er Magnús sonur þeirra kynnti mig fyrir þeim, sem væntanlega eiginkonu á jólum 1946. Ég var þá 19 ára, óþroskuð og eignalaus sveitastúlka, en það virtist ekki skipta neinu máli. Mér var tekið af óumræðanlegri hlýju og rausn, sem ávallt einkenndi þau hjón og heimili þeirra. Allir, sem þekktu Jón Björnsson og voru honum samtíða, vita hve trúr og áreiðanlegur hann var í öllum sínum störfum, bæði hjá Kristni Briem og Kaupfélagi Skagfirðinga. Það var ekki verið að hugsa um kaup eða klukku öllum stundum; en kappkostað að ljúka því, sem fyrir lá hverju sinni. Hann var vanur að koma heim með allar mánaðarnótur við- skiptavinanna í Ytri-búð K.S., en á þeim árum létu flestir skrifa hjá sér, og gerðu svo upp um mánaða- mót. Jón kom heim með þessar nótur á kvöldin, yfirfór þær og reiknaði út, allt í sínum eigin hvíldartíma. Eitt sinn spurði ég hann í gamni, hvort hann skrifaði yfirvinnutíma á þessa heima- vinnu. Hann brást snöggur við og sagði: „Því læturðu svona manneskja, þetta tekur mig enga stund.“ Auk þessa vann hann allar helgar, og sumarleyfi tók hann aldrei á starfsferli sínum. Nútímamenn skilja e.t.v. ekki svona lífsmáta, en væri um þetta rætt, svaraði hann því einu til að þetta væri „sín að- ferð“. Vinnan var lífsnautn hans. En þrátt fyrir annríkið vanrækti Jón ekki skyldur sínar, sem fjöl- skyldufaðir. Á því sviði var hann hinn trausti og árvaki maður, sem fylgdist vel með öllu, og sá til þess að enginn væri vanræktur. Ékki síst gaf hann sér tíma til að sinna barnabörnum sínum, þau voru öll hans yndi og eftirlæti. Hann virt- ist aldrei of þreyttur til að taka þau upp og hampa þeim, leika við þau, og tala það mál er þau skildu. Þegar þau uxu úr grasi var hann óþreytandi að kenna þeim að lesa og draga til stafs. Hann fylgdist vel með þroska þeirra, áhugamál- um og framtíðardraumum, og hvatti þau til starfa og menntun- ar. Hann var góður afi. Ég veit að mín börn eiga um hann ljúfar minningar, og eru þakklát fyrir að hafa átt slíkan mann að afa. Jón var bókhneigður og las mik- ið. Oft sá ég ljós hjá honum um miðjar nætur, er ég vaknaði til að sinna börnum mínum. Hann var áhugamaður um alla framþróun °g fylgdist vel með gangi mála, Fædd 29. júlí 1928 Dáin 30. nóvember 1982 í dag er til moldar borin frá Hvalsneskirkju elskuleg tengda- móðir okkar, Ástrún Jónasdóttir, Vallargötu 24, Sandgerði. Adda, eins og hún var ávallt kölluð, var fædd að Tröð í Súðavík þann 29. júlí 1928, dóttir hjónanna Karitasar Elísabetar Kristjáns- dóttur og Jónasar Sigurðssonar. Það er ætíð erfið stund þegar ein- hver ástvinur er tekinn svo snöggt frá okkur. Okkur langaði aðeins að minnast hennar með nokkrum orðum. Árið 1949 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Þórhalli Gisla- syni frá Setbergi, Miðneshreppi. Þau eignuðust sex börn en misstu eitt í fæðingu. Þau eru: Þóra, gift og búsett í Keflavík, Benóný, kvæntur og búsettur í Grindavík, Sigríður, gift og búsett í Sand- gerði, Jónas, kvæntur og búsettur í Grindavík og Gísli, trúlofaður og búsettur í Sandgerði. Strax í upphafi var okkur tekið opnum örmum. Alltaf var jafngott að koma til Öddu, hún var ætíð bæði heima og erlendis. Hann skrifaði okkur hjónum fram á síð- ustu ár skýr og fróðleg bréf um stjórnmál og þjóðarhag. Áhugi og kapp Jóns við verk var einstakt. Eitt atvik vil ég nefna, sem mér kemur í hug. Eitt sinn vorum við Magnús við heyskap að raka í garða hálfþurrt hey, því rigningarlegt var. Jón kom okkur til hjálpar, hvatstígur að vanda og lenti á móti mér, fór hratt og létt með heyið. Ég hamaðist af öllum kröftum, en hafði ekki við honum og bað hann í öllum bænum að hægja á sér og hamast ekki svona. „Hamast," sagði Jón stuttara- lega, „þú hefðir átt að sjá mig þeg- ar ég gat unnið." Þetta var, held ég, í eina skiptið sem ég heyrði hann láta orð falla um afköst sín. Hann var hógvær maður og ekki sýnt um að segja frægðarsögur af sjálfum sér. I þessu sambandi koma mér í hug orð Jóns Jónsson- ar, bónda í Steinholti, er hann sagði eitt sinn er hann horfði á Magnús mann minn við slátt, þá lítt vanan heyskap: „Já, hann er þá ekki líkur föður sínum, ef hann getur ekki borið ljá í gras, því slíkan afburðamann hef ég sjaldan séð, það var unun að horfa á Jón við slátt." Jón í Steinholti var sjálfur af- burða verkmaður og þess vegna vel dómbær á vinnubrögð nafna síns. Já, það er sannarlega margs að minnast. Skarð manns á borð við Jón Björnsson verður vandfyllt. Ég veit að það var von og ósk tengdaföður míns, að afkomendur hans yrðu heiðarlegt og duglegt fólk, sem hefði yndi af að vinna störf sín vel og af trúmennsku. Ég þykist þess einnig fullviss, að það taki sér hann til fyrir- myndar á flestum sviðum. Þá mun gæfa þess og farsæld í lífi og starfi verða tryggð. Að leiðarlokum kveð ég kæran tengdaföður og bið honum guðs blessunar með þökk fyrir allt og allt. Vinum og vandamönnum sendi ég samúðarkveðjur. Kristín Helgadóttir, Vestur-Ástralíu. létt og kát, alltaf til í að hlæja og gerði gott úr öllu, sama hvað gekk á. Má segja, að hún hafi verið hrókur alls fagnaðar hvar sem hún kom og var gott að vera í ná- vist hennar. Hún var mikil hús- móðir, hugsaði vel um heimili sitt, eiginmann sinn, börn og fjölskyld- ur þeirra. Ekki var hún ánægð fyrr en allir voru búnir að fá að borða, sama á hvað tíma við kom- um. Heimili hennar stóð ávallt opið vinum barna hennar, sem nutu þess að koma þangað og mörgum þótti brúna tertan henn- ar góð. Barnabörn hennar eru 12 og alltaf var pláss fyrir þau, jafnt stuttan tíma sem langan. Söknuð- ur þeirra er mikill. Að lokum vilj- um við þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni og allt sem hún gerði fyrir okkur. Við biðjum Guð að styrkja eiginmann hennar, börn, tengdabörn, barnabörn og aðra ástvini á þessari sorgar- stundu. Hvíli hún í friði. Svava, Dröfn og Helga + Innilegt þakklæti sendum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför sona okkar og bræöra, FRÍMANNS KONRÁDSSONAR og NÝVARDS Ó. KONRAOSSONAR, Burstabrekku, Ólafsfiröi. Guö blessi ykkur öll. Svaya Frjöþjóf.dóttirf Konráó Gottlíebsson, Jón Konréösson, Gottlieb Konráösson, Sigrún Konráósdóttir. JT Astrún Jónasdótt- ir - Minningarorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.