Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
Félag íslenskra sérkennara,
Félag þroskaþjálfa,
Fóstrufélag íslands,
Hin íslenska þjóökirkja,
Hjúkrunarfélag íslands,
Kennarasamband íslands,
Menningar- og friöarsamtök
íslenskra kvenna,
Stéttarfélag íslenskra félags-
ráðgjafa.
INNLENT
Aldrei verið
— segir Guðmundur
Olafsson
í Video-Sport
„VIÐ HÖFUM keypt allt okkar
efni frá réttum aðilum, hjá okkur
er ekkert ólöglegt, og því finnst
okkur hart að þurfa að sitja undir
áburði um ólöglegt athæfi,“ sagði
Guðmundur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri myndbandaleigunn-
ar Video-sports, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins fyrir
skömmu. — Tilefnið var yfirlýsing,
sem Samtök rétthafa á myndbönd-
um á íslandi létu frá sér fara ný-
lega, en þar sagði meðal annars, að
áætlað væri að um tíu þúsund
smygluð myndbönd væru í notkun
hérlendis.
með ólögleg
Guðmundur Ólafsson kvaðst í
samtali við Mbl. gjarnan vilja fá
að vita hvernig þessi tala, 10
þúsund, væri fundin. — Gæti
ekki verið að myndböndin væru
að hluta í einkaeign? „Það er
myndbönd
sanngirniskrafa okkar í Vid-
eosport, að Samtök rétthafa lýsi
því yfir, að aldrei hafi neitt
ólöglegt myndband verið í leigu
hjá okkur, þrátt fyrir eftirlit,"
sagði Guðmundur.
Samtök rétthafa myndbanda á fslandi:
Hlutur ríkisins 1.681 króna
hverju innfluttu myndbandil
hafl trri* mrfW HUrfaraaSI M
, trmm ká> Uatíalb
■laiafa. a« aýaa |Htf
hfr.-b.l06r
I frftutilkynninifunni aefir
--------------- -------------Jlfrá
28 oktðbar il A það lagxit 10«
flutninfafjald, aða 80 krðnur, þann
if að var« Ul útrnkninf. tðtli er 878
krónur A þetU leffat alðaa 75%
tnllur, þannif a» »er*i« er orðið
1 315 krónur Uur en kemur lU út-
reikninfi vftrufjaid. t>að ar 40% of
þafmr þvi hefur varíð beett við. f—at
innkaupavrrðiA, kr 1 841 Þé leffat á
það 15% áJafning innfluUingaaAila.
eða kr 276. avo að áður en kemur til
útreikninfa adluakatta, ar vtrð
leffat 23.6% aðluakattur á verðtð.
aða kr 498, avo að haildaðluvarð
dmfiofaraðila er orðéð kr 2.615, of
hefur n—rrí þvt f)ðrfaldaat SauUla
rr þvt klutar ríklaajðða I 681 krðna
af hvarju iaafluttu aiyadbandi. en
tao ra*na alli beaaa meinu ðtflfief.
n tíl
of aOluakatUbroU k
„Snargeggjað“ í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýn-
ingar amerísku gamanmyndina
„Snargeggjað“ (Stir Crazy). Gene
Wilder og Richard Pryor fara með
aðalhlutvcrk í myndinni. Leikstjóri
myndarinnar er Sidney Poitier.
Tveir félagar hafa fengið sig
fullsadda af heimsborginni New
York og halda í vesturátt til hins
ljúfa lífs. Á leiðinni lenda þeir í
ýmsum erfiðleikum, mörgum
þeirra óvæntum svo ekki sé meira
sagt. Þeir lenda í fangelsi, en neita
að gefast upp og ævintýraleg
flóttatilraun þeirra kemur örugg-
lega mörgum til að brosa — og
jafnvel skellihlæja.
Patreksfjörður:
Gosdrykkjaverksmiðjan Vífilfell:
Veitir 15% kynningarafslátt
á nýjum drykkjum í desember
VERKSMIÐJAN Vífilfell hf. hefur
nú hafið kynningu á nýjum drykkj-
um á eins lítraflöskum og veitir í því
tilfelli 15% afslátt á viðkomandi
drykkjum í desembermánuði. Þessir
nýju drykkir i nýjum umbúðum eru
sykurlaust Tab, sykurlaust Fresca,
Fanta-appelsín og Sprite.
Að sögn Péturs Björnssonar,
forstjóra Vífilfells, er lögð áherzla
á það, að kynningin sé sett fram á
breiðum grundvelli, þannig að af-
slátturinn komi öllum til góða.
Áður en hafi verið lagt út í þennan
kynningarafslátt hafi verið haft
samband við Verðlagsstofnun og
ráðgazt um þetta einstaka tilfelli
um afslátt til neytenda á vörum í
þessum iðnaði, en afsláttur á svo
breiðum grundvelli hafi áður verið
óþekktur vegna þess, að iðnaður-
inn hafí alltaf verið háður ströng-
um verðlagsákvæðum. Það væri
ætlunin með þessari tilraun, að
með henni væri stigið spor í átt til
þess, að komið yrði á samkeppnis-
verðlagi í framtíðinni, þannig að
undir ákveðnu verðþaki væri
svigrúm til verðlagningar.
Þá sagði Pétur, að með þessum
kynningarafslætti væri ekki verið
að hrinda af stað verðstríði í gos-
drykkjaiðnaðinum enda væri ekki
grundvöllur fyrir því. Verksmiðj-
an teldi það hins vegar koma sér
bezt fyrir neytendur að kynningin
með afslættinum kæmi fram í
jólamánuðinum þegar innkaup
fólks væru þyngst. Það væri því
ekki verið að vega að neinum enda
væri þetta gert að undangengnu
samráði við Verðlagsstofnun, sem
teldi þetta vera spor í þá átt, sem
koma skyldi.
Jens Pálsson við mynd sína Að leiðarlokum.
Mæðgin og frændi með málverkasýningu
Opið bréf til
barnavina
Friðþjófur Þorsteinsson við mynd sína Við Alpafjöll.
PatrekHfirdi, 9. desember.
MÁLVERKASÝNING áhugamál-
aranna Jónínu H. Jónsdóttur,
sonar hennar, Jens Pálssonar, og
systursonar, Friðþjófs Þorsteins-
sonar, var í Grunnskóla Patreks-
fjarðar laugardaginn 4. og sunnu-
daginn 5. desember, þau eru öll
Patreksfirðingar.
Auk olíuverka Jónínu var hún
með myndir unnar með gosösku
frá Vestmannaeyjum, gamlar
teikningar frá ’42—’48. Flos úr
lopa og íslensku garni. Tau-
þrykk, þar sem hún notar mikið
náttúruleg laufblöð til að
þrykkja með, auk þessa eru
tvær mynda hennar unnar með
hobbytex. Alls voru myndir
hennar 36 og sú elsta frá 1937.
Jens sýndi 17 myndir er hann
hafði málað á tímabilinu frá ’75
af nágrenni Patreksfjarðar,
ýmsum erlendum stöðum og
eigin hugarsmíðum.
Friðþjófur var með 14 myndir
málaðar á árunum ’73—’82
flestar andlits og landslags-
myndir þar á meðal frá svissn-
esku Ölpunum.
Aðstandendur sýningarinnar
eru mjög ánægðir með hvað að-
sókn bæjarbúa var góð, og
þakkar þeim veittan stuðning.
G.Þ./—
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi til birtingar frá
starfshópi um leikföng fyrir börn:
Það er ánægjuleg sjón að sjá
barn að heilbrigðum leik. Það
gleður auga okkar og ekki síður
huga okkar vegna þess að við
vitum að í leik barnsins felst
undirbúningnr undir þá framtíð
sem bíður þess — að taka við af
hinni fullorðnu kynslóð.
Á sama hátt er það dapurleg
sjón að sjá saklaust barn fást
við iðju sem er í mótsögn við
lífið sjálft. Það er dapurlegt að
sjá barn handfjalla leikfang í
vopnalíki. Með vopnum eru
menn vegnir. Það er dapurlegt
að sjá börn líkja eftir þeirri iðju
vegna þess að þau hvorki skynja
né skilja það sem þar býr að
baki.
Hér á landi eru ekki borin
vopn og hér er ekki herskylda.
Samt sem áður kynnast börn
vopnum og stríði af myndum í
sjónvarpi, á myndböndum, í
kvikmyndahúsum og í mynda-
blöðum. Getum við spornað
gegn þeim neikvæðu áhrifum
sem barn verður fyrir frá þess-
um fjölmiðlum? Já — en aðeins
með því að gera okkur ljósa
grein fyrir þeim voða sem felst í
notkun vopna. Það er skylda
okkar, hinna fullorðnu, vegna
þess að við erum fyrirmynd
barnsins í leik þess og starfi.
Viljum við að börn okkar líki
eftir stríði í daglegum leikjum
sínum?
Viljum við að börn okkar líti á
vopn og dráp sem sjálfsagðan
hlut?
Viljum við að börn okkar beri
vopn?
Stríðsleikföng eru eftirlíking
af raunverulegum vopnum.
Kennum börnum þetta! Innræt-
um þeim andúð á drápstækjum!
Foreldrar og aðrir uppalendur!
Hernaðarleikföng eru ekki sam-
boðin börnum okkar. SÝNUM
ÁBYRGÐ.
Sigurður Hallmarsson
með málverkasýningu
Húsavík, 6. de.sember.
SIGURÐUR llallmarsson skóla-
stjóri hélt málverkasýningu í Safna-
húsinu á Húsavík um síðustu helgi
og er þetta þriðja einkasýning hans
en hann hefur nokkrum sinnum tek-
ið þátt í samsýningum.
Margt er Sigurði tij lista lagt og
þekktari er hann sem leikari en
málari, en nú hefur hann lagt
meiri áherslu á málaralistina og
er árangurinn góður. Hann sýndi
37 myndir og seldi 30 þeirra en
sýninguna sóttu um 500 manns.
Fréttaritari
Jónína H. Jónsdóttir við mynd sína Blakknes. Myndina i veggmm
málaði hún 1980, en myndina, sem hún heldur i, málaði hún 12 ira
gömul árið 1937. Ljósmyndir: Morgunblaðið/Jón P.
wm m
MorgunblaAid/AGA
Sigurður Hallmarsson við verk i sýningunni.
Húsavík: