Morgunblaðið - 11.12.1982, Side 2

Morgunblaðið - 11.12.1982, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 Ljóðasafn eftir Guð- rúnu P. Helgadóttur BÓKAÚTGÁFAN Ujóðsaga hefur gefið út bókina Ilratt flýgur stund, Ijóðasafn eftir (íuðrúnu P. Helga- dóttur fyrrv. skólastjóra. Bókin er J05 bls. að stærð. Myndskreytingar , eru eftir Hafstein Guðmundsson og hönnuð bókarinnar. í umsögn Þjóð- sögu um bókina segir: „I þessari bók er ljóðunum skipt í sex kafla. I fjórum þeirra eru ljóð ort á ferðalögum, hin fyrstu þeirra samin árið 1976 og hin síð- ustu ort núna í sumar. Einnig er kafli, sem höfundur nefnir Mínir nánustu og lokakaflinn nefnist Hugdettur, en flest þeirra ljóða eru ort í sumar og í haust. Ekkert þessara kvæða hefur birst áður, en höfundur er kunnur fyrir ritstörf sín á öðrum sviðum bókmennta." Guðrún P. Helgadóttir Bókin er prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Odda. Eldhús Framkvæmdastofnunar opnað á fimmtudag: Hafréttarsáttmálinn undirritaður: Rækjukokkteill, lamba- steik og kaffi á 33 kr. „Mikil hamingju- stund og langþráð“ segir Hans G. Andersen, sendiherra ELDHÚS Framkvæmdastofnunar var formlega tekið i notkun i há- deginu á fimmtudag, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Sigurjóni Gunnarssyni yfirmat- sveini. Þegar eldhúsið var tekið í notkun var boðið upp á rækju- kokkteil í forrétt, lambasteik í aðalrétt og kaffi á eftir, en Sig- urjón sagði að þá hefði verið um „opnunarmatseðir að ræða. Síð- an yrði eftirleiðis boðið upp á venjulegan mat eins og tíðkaðist í mötuneytum. í mötuneyti Framkvæmda- stofnunar eru seldir sérstakir matarmiðar og kostar 60 miða kort 500 krónur. Þannig kostar hver miði 8 krónur og 33 aura, en „opnunarmáltíðin“ kostaði 4 miða, sem jafngildir 33 krónum og 33 aurum. Að sögn Sigurjóns geta menn tekið með sér gesti, en þá verða gestirnir að greiða hliðstætt verð og tíðkast á veit- ingastöðum. Sigurjón sagði einn- ig að það verð sem krafist væri, væri hliðstætt því sem gerðist í öðrum mötuneytum, en þó ívíð hærra. „UNDIRSKRIFT hafréttarsáttmálans var mikil hamingjustund og langþráó og ríkti mikil ánægja meðal fulltrúa þeirra 120 þjóða sem undirrituðu sáttmálann," sagði Hans G. Andersen sendiherra en hann undirritaði sátt- málann sem formaður íslenzku sendinefndarinnar og síðan undirritaði Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra sáttmálann á lokafundi þriðju hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á Jamaica. Hans G. Andersen sendiherra ávarpaði allsherjarfund hafrétt- arráðstefnunnar á Jamaica. Hann sagði m.a.: „Hér á sér stað sögu- legur viðburður, þegar við komum saman á Jamaica til þess að undir- rita lokasamþykkt hafréttarráð- stefnunnar og hinn langþráða haf- réttarsáttmála. Hér er um að ræða hápunkt þróunar sem hófst fyrir nærri 35 árum. Upphaf hennar má rekja til fundar alls- herjarþings Sameinuðu þjóðanna árið 1949. Þá hafði alþjóðalaga- nefndin nýlega verið stofnuð og sú nefnd hafði lagt til að þrjú verk- efni yrðu á forgangslista hennar: alþjóðasamningur, gerðardóms- ákvæði og réttarreglur á úthafinu. Ég var þá fulltrúi íslands í sjöttu nefnd allsherjarþingsins, sem fjallaði um lögfræðileg atriði og bar fram tillögu um að hafrétt- armál í heild sinni skyldu vera á forgangslistanum — en eigi aðeins reglurnar á úthafinu. Rökin voru þau, að ekki væri hægt að segja til um hvar úthafið byrjaði, nema vitað væri hver víðátta lögsögu strandríkisins skyldi vera Þessari Ellefu ára stúlka fyrir bíl ELLEFU ára gömul stúlka hljóp fyrir bifreið á Nesvegi laust fyrir klukkan fjögur á fimmtudag. Stúlkan var að koma úr strætó og hljóp fram fyrir vagninn og fyrir bifreiðina, sem var VW-sendibif- reið. Stúlkan var flutt í slysadeild. Meiðsli hennar reyndust ekki al- varleg. tillögu var mótmælt af þeim, sem héldu því fram að mörk landhelgi væru auðvitað 3 sjómílur og að strandríkið hefði ekki lögsögu yfir lífrænum auðlindum sjávar utan þeirra marka. íslenzka tillagan var samþykkt og á árunum þar á eftir mælti ís- land ávallt fyrir þeirri stefnu að greina yrði glöggt milli landhelgi og fiskveiðimarka og að hinir ýmsu þættir hafréttarmála væru svo nátengdir að fjalla yrði um þá í heild. Svo sem okkur er kunnugt náði alþjóðalaganefndin aldrei sam- komulagi um víðáttu landhelgi eða fiskveiðimörk og lagði hún því til að alþjóðaráðstefna yrði kvödd saman. Þess vegna voru hafrétt- arráðstefnurnar þrjár kvaddar saman. Hin fyrsta 1958, önnur 1960 og hin þriðja 1973. Hér er því um óslitna þróun að ræða í nærri því 35 ár. Loksins liggur nú fyrir árangurinn af samningi þeim sem við höfum nú í höndum. Fyrir land eins og ísland, sem byggir afkomu sína á auðlindum hafsins undan ströndum sínum, eru ákvæði samnings þessa stór- kostlegur árangur, þar sem þau staðfesta fullveldisrétt strandrík- isins yfir auðlindum innan efna- hagslögsögunnar allt að 200 sjó- mílur frá ströndum og auðlindum landgrunnsins jafnvel utan 200 mílna. Innan efnahagslögsögunn- ar tekur strandríkið allar ákvarð- anir varðandi leyfilegan hámarks- afla og möguleika sína til að hag- nýta hann svo og ráðstöfun um- framafla. Þessar ákvarðanir strandríkisins verða ekki bornar undir úrskurð þriðja aðila," sagði Hans G. Andersen. í gær var boðið upp á rósen- kálsúpu og soðna smálúðu í há- deginu og kostaði máltíðin 3 miða, sem jafngildir 25 krónum, en það sagði Sigurjón hliðstætt því sem gerðist annars staðar. I kaffinu er boðið upp á kaffi, brauð og köku og kostar það einn miða, sem jafngildir 8' krónum og 33 aurum. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk í mötuneytinu í Arn- arhváli kostar venjuleg máltíð í hádegi um 25 krónur, en það væri jafnaðarverð. Þar er yfir- leitt á boðstólum súpa og aðal- réttur, en ef um væri að ræða heila kjötmáltíð væri súpunni oft sleppt. I kaffinu er boðið upp á kaffi, sem kostar 4 krónur og einnig brauð og þ.h., sem kostar 4—5 krónur. Frá ráóstefnu Félags ísl. iðnrekenda í gær um „iðnróbóta" og framtíðina. Víglundur Þorsteinsson, formaður FÍI.: „Iðnróbótar“ geta tryggt okkur raunhæfa 40 stunda vinnuviku VÍGLUNDUR Þorsteinsson, formaður Félags ísl. iðnrekenda, sagði í ræðu við setningu ráðstefnu félagsins um „iðnróbóta" og framtíðina í gær, að íslendingum lægi beinlínis á að hefja hagnýtingu „iðnróbóta" í stónim stíl, þar sem þeir mundu geta fært okkur raunhæfa 40 stunda vinnuviku á komandi árum og áratugum og stórbætt lífsskilyröi hér á landi. Ráðstefna þessi var haldin á vegum íslenzkra iðnrekenda í samvinnu við samtök í Bretlandi og Danmörku, sem fjaiia um „rób- óta“ eða vélmenni, eins og þessi tæki hafa verið nefnd á íslenzku, Ráðstefnan var skipulögð af Jóni H. Magnússyni, verkfræðingi, en ráðstefnustjóri var dr. Ingjaldur Hannibalsson. Erindi fluttu á ráðstefnunni T.E. Brock frá Brit- ish Robot Association og H. Knud- sen og J. Nielsen frá Dansk Rob- otforening. Ennfremur fluttu er- indi Jón H. Magnússon verkfræð- ingur og Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ. Víglundur Þorsteinsson sagði í ræðu sinni, að með þessari ráð- stefnu vildi Félag ísl. iðnrekenda reyna að hefja jákvæða umræðu um þennan þátt í iðnþróun fram- tíðarinnar. Hann benti á að „rób- ótum“ fjölgaði jafnt og þétt í þróuðum iðnríkjum og myndi fjölga enn hraðar á næstu árum. Víglundur sagði, að nokkurs ótta hefði gætt við þessa þróun vegna atvinnuástands og sagði af því til- efni: „Því verður ekki haldið fram með nokkrum rökum, að „iðnrób- ótar“ hafi hingað til svipt fólk at- vinnu sinni. Miklu fremur er hægt með rökum að halda því fram, að þeir hafi treyst atvinnu í þeim há- þróuðu iðnaðarríkjum, sem hafa fært sér tæknina í nyt.“ Einar A. Jónsson látinn EINAR Angantýr Jónsson, aðalfé- hirðir Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis, er látinn, 62 ára að aldri. Einar starfaði í um 40 ár í Sparisjóðnum. Hann var fram- kvæmdastjóri skemmtigarðsins Tf- volí á árunum 1955—59. Fram- kvæmdastjóri Fegurðarsamkeppni íslands um langt skeið og dæmdi oft í alþjóðlegum fegurðarsamkeppnum á erlendri grund. Einar fæddist þann 26. maí 1920 í Kaupmannahöfn, sonur hjón- anna Jóns Axels Péturssonar, bankastjóra og Guðrúnar Ágústu Jóhannsdóttur. Hann brautskráð- ist frá Verzlunarskóla íslands 1938 og lauk námi í niðursuðu ári síðar. Hann var framkvæmda- stjóri Niðursuðuverksmiðju Akra- ness um tveggja ára skeið. Þá snéri hann aftur til Reykjavíkur og hóf störf við Sparisjóð Reykja- víkur og nágrennis og starfaði þar í um 40 ár. Einar Jónsson var aðalhvata- maður að stofnun Kiwanis-hreyf- ingarinnar á Islandi og var fyrsti forseti fyrsta Kiwanisklúbbsins á íslandi — Kiwanisklúbbsins Heklu. Auk starfs síns í Kiwanis- hreyfingunni vann Einar að margs konar félágsmálum. Þann 14. júní 1941 kvæntist hann Herdísi Alvilde, sem lifir mann sinn. Þeim varð þriggja barna auðið og eru tvær dætur þeirra á lífi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.