Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982 21 fKwBtmÞlitfrifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakið. Nýtt málgagn Framsóknar? Morgunblaðið hefur í tvö ár haldið uppi harðri gagnrýni á málsmeðferð iðn- aðarráðherra á deiluefnum og viðræðum við Alusuisse. Meg- inkrafa okkar, að ná fram hækkuðu raforkuverði, leið- réttingu á skattareglum og stækkun álversins væri löngu í höfn, ef ráðherrann hefði ekki klúðrað málinu, og deilur um súrálsverð og fleira mátti leggja í gerð, samkvæmt samningum milli aðila. Hið lága rafmagnsverð síðustu misseri hlýtur því að skrifast fyrst og fremst á reikning iðnaðarráðherra. Þegar á árinu 1979 var ljóst að forsendur samningsins frá 1975 höfðu breytzt verulega þar sem orkuverð í heiminum hafði stórhækkað. Af hálfu iðnaðarráðherra var þó látið undir höfuð leggjast að hefja endurskoðun samninga. Samningsákvæði um endur- skoðun á ársreikningum ISAL vóru ekki nýtt frá árinu 1975 til 1981, er ráðherra birti að hluta til endurskoðun fyrir árið 1980. Þegar í desember 1980 bauð þingflokkur sjálfstæð- ismanna samstarf við iðnað- arráðherra um athugun á viðskiptum Alusuisse og ís- lendinga. Því boði var þá í engu sinnt. Það var ekki fyrr en í júlí 1981 að ráðherra skipar „nefnd til að eiga við- ræður við Alusuisse um skoð- anaágreining... Síðan hefur iðnaðarráð- herra haldið þann veg á mál- um, að ástæða er til að draga í efa, að hann hafi nokkru sinni stefnt að samkomulagi. Þess vegna fluttu tíu þing- menn Sjálfstæðisflokksins tillögu til þingsályktunar þegar í haust, þess efnis, að Alþingi kysi 7 manna nefnd til viðræðna við Alusuisse, þar sem fjallað yrði um eftir- talin meginatriði: að ná fram hækkuðu raforkuverði, að endurskoða gildandi samn- ingsákvæði um framleiðslu- gjald, möguleika á stækkun verksmiðjunnar, hugsanlega framleiðslu rafskauta hér- lendis og síðast en ekki sízt að ieiða til lykta skoðanaágrein- ing varðandi samning um ál- bræðsluna í Straumsvík. Framsóknarflokkurinn, sem lengst af þessu tímabili stóð að baki iðnaðarráðherra, treystir sér ekki lengur til að bera ábyrgð á axarsköftum hans. Guðmundur G. Þórar- insson alþingismaður, fulltrúi flokksins í álviðræðunefnd, segir sig úr henni, lýsir ábyrgð á hendur ráðherra og ægir hann annað hvort ekki vilja semja eða ekki geta sam- ið um þessi íslenzku hags- munamál, nema hvort tveggja sé. Látið er að því liggja að ráðherrannn hafi allan tím- ann stefnt að því sem hann kallar „einhliða aðgerðir". Þegar Guðmundur G. Þór- arinsson og þingflokkur Framsóknarflokksins taka seint og um síðir undir öll meginatriði í gagnrýni Morg- unblaðsins og þingflokks sjálfstæðismanna og „maga- lenda" á málflutningi og niðurstöðum þeirra, telur Dagblaðið og Vísir tilefni til að skáskjóta „framsóknar- leiðara" inn í umræðuna. Blaðið segir orðrétt í forystu- grein í fyrradag: „Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra hefur misst tökin á viðræðunum við for- stjóra Svissneska álfélagsins um fjármál íslenzka álfélags- ins. Fulltrúi Framsóknar- flokksins, Guðmundur G. Þórarinsson, hefur sagt sig úr álviðræðunefnd. Hjörleifur gat látið sér andóf í léttu rúmi liggja, meðan það birtist á síðum Morgunblaðsins og í stefnu þingflokks sjálfstæð- ismanna. Það andóf fól í sér í sumum myndum óbeinan stuðning við hið erlenda fjöl- þjóðafyrirtæki." Þegar Framsóknarflokkur- inn gerir afstöðu sjálfstæð- ismanna að sinni þá fyrst fær hún gildi í augum Dagblaðs- ritstjórans. Það er máske ástæða til að óska Framsókn- arflokknum til hamingju með nýtt málgagn? Lög á Kópavog Svavar Gestsson, félags- málaráðherra, hefur mælt fyrir stjórnarfrumvarpi sem felur í sér, að fasteigna- .skattur á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skuli að- eins lagður á 92,7% fasteigna- mats. Nú lá það fyrir, áður en þetta frumvarp var flutt, að Reykjavík og öll önnur sveit- arfélög á höfuðborgar- svæðinu, utan Kópavogur einn, þar sem er vinstri meiri- hluti, hugðust ekki fullnýta álagningarheimildir fast- eignagjalda. Þetta frumvarp sýnist því flutt til höfuðs vinstri meirihlutanum í Kópavogi. Það mun einsdæmi að ráð- herra setji ofan í við sam- flokksmenn sína í sveitar- stjórnarmálum með þessum íætti. En svo lengi má brýna deigt járn að bíti! eftir Matthías Johannessen I Við Magnús Kjartansson eltum stund- um grátt silfur, en vorum þó miklir mát- ar og ræddumst einatt vinsamlega við, þegar fundum okkar bar saman. En við vorum ósammála í grundvallaratriðum stjórnmála, eins og kunnugt er. Hann sagði, að ég væri pragmatisti og má það vel vera. Ég tel að þetta hugtak eigi við þá sem taka afstöðu eftir aðstæðum hverju sinni, en merki ekki það sama og tækifærissinni. Sjálfur varð Magnús Kjartansson því meiri pragmatisti, sem hann varð eldri og reyndari stjórnmála- maður. Hann lét ekki kenningar marx- ismans móta afstöðu sína alfarið, heldur túlkaði hann þær eftir eigin höfði. Það kom fram eftir að hann varð ráðherra og síðar þegar hann skrifaði helzt ekki í önnur blöð en málgagn flokkseigenda, Morgunblaðið. Þegar bók hans Elds er þörf var gefin út, m.a. með pækilsöltuð- um alþingisræðum, varð ég heldur undr- andi að sjá, að hann hafði fjallað um mig í þingræðum án þess ég vissi og gat því ekki borið hönd fyrir höfuð mér — og alls ekki á Alþingi, þótt Guðmundur Sæmundsson hafi talið, að ég sæti á þingi og var kannski ekki einn um það! Þegar ég las rit Magnúsar Kjartansson- ar, rak ég upp stór augu. Kalda stríðið var enn einu sinni komið inn á gafl; skot grafahernaður. En nú hef ég sett saman rit um afstöðu mína til margvíslegra mála, þ.á m. stjórnmála, og þarf því eng- inn að fara í ritsafn Magnúsar eða ann- arra til að fá hugmyndir um skoðanir mínar. Þessi bók mín er að koma út hjá forlagi Hafsteins Guðmundssonar og heitir Félagi orð. Ég skrifaði formála fyrir henni meðan Magnús Kjartansson lifði, en tók hann af tillitssemi við minn- ingu hans út úr bókinni, þegar hann lézt í fyrra. En nú hefur enn verið vegið í sama knérunn með „klassísku" persónu- ati, sem félagar Magnúsar hafa sótt í sópdyngju hans, Frá degi til dags; hvöss- um og stundum miskunnarlausum dag- pistlum, sem voru harla skemmtilegir á sínum tíma, þótt þeim væri ætlað að vega okkur andstæðinga hans með orð- um. Persónuat er réttnefni og fengið að láni úr formála Vésteins Lúðvíkssonar fyrir riti Magnúsar, en hann er e.k. út- legging á guðspjalli. Ég hef ekki lagt í vana minn að skrif- ast á við látna menn og vona að í þessu greinarkorni sé full virðing fyrir minn- ingu Magnúsar Kjartanssonar. Ef ein- hverjum þeirra, sem ábyrgð bera á út- gáfu þessara tveggja bóka Magnúsar, finnst það gagnrýnis- eða ámælisvert að birta grein eins og þessa, verða þeir að sakast um það við sjálfa sig. Þeir eru upphafsmenn þessarar greinar minnar og verða að rífast um hana hver við ann- an. Auk þess mætti þá hafa í huga það sem er endurprentað úr Austra-greinum um Björn Olafsson og Vilhjálm Þór látna. Einkennilegt er að skoða þessi skrif Magnúsar Kjartanssonar nú, svo löngu eftir að þau birtust í Þjóðviljanum í hita baráttunnar, og rifja upp kuldalegt við^ mót hans í garð pólitískra andstæðinga, svo að ekki sé talað um virðingarleysið fyrir skoðunum þeirra. Sumt í skrifum þeirra slítur Magnús Kjartansson úr samhengi og endursegir með sínu lagi eins og praktískra pólitíkusa er siður, til að mynda þegar hann ræðir um sárasak- lausa grein, sem ég ritaði um sjón- varpsmálið á öndverðum sjöunda ára- tugnum. Þá ætlaði allt um koll að keyra vegna Keflavíkursjónvarpsins, en samt er þessi greinargarmur minn ekki óspá- mannlegri en svo, að þar standa m.a. þessi orð: „eina lausnin á þessu máli ... er sú, að íslenzka sjónvarpið taki við af því bandariska — og það sem fyrst." Þegar ég nú les Austra-pistlana aftur spyr ég sjálfan mig: getur verið að maður hafi sóað hluta ævi sinnar í þetta einsk- isverða rutl? Ó — já, ekki ber nú á öðru. En kannski var þetta karp ekki alveg einskis virði, þegar öllu er á botninn hvolft. Ég læt eldræðurnar um verk mín liggja milli hluta, til að mynda háreyst- ina um Fjaðrafok, þegar ganga átti end- anlega frá mér sem rithöfundi. Það má vel vera að þetta brambolt hafi sprottið úr háleitum hugsjónum, en það skiptir nú engu máli. Það er hvort eð er löngu gleymt, hvað sem líður tilraunum til að endurvekja það. Ég mundi satt að segja ekki eftir, að ég hefði verið jafn að- sópsmikill andstæðingur marxista eins og fram kemur í bókum Magnúsar Kjart- anssonar og ritsafni Sverris Kristjáns- sonar. Af nafnaskrá Frá degi til dags má sjá, að Magnús hefur lengst af einkum haft þrjá menn að skotspæni, Bjarna Benediktsson, Gylfa Þ. Gíslason og mig. Ég er upp með mér af þessum félagsskap. Það er ekki amalegt að vera í hópi slíkra forystumanna lýðræðissinna á íslandi. Og það er í slíkum eldi' sem ungir menn herðast. En mér hafði gleymzt að mestu að ég hefði verið sá þyrnir í augum fé- laga Napóleons, sem nú er verið að rifja upp. Ég hef aldrei gert persónuat að sér- grein minni og leiðist slík blaðamennska. Það er rétt hjá Vésteini Lúðvíkssyni, að engir stjórnmálamenn sjöunda áratugar- ins stóðust Magnúsi Kjartanssyni snún- ing í þessari grein stjórnmála. Hann var arftaki Hannesar Þorsteinssonar og Jón- asar Jónssonar frá Hriflu. En Magnús skaut oft yfir markið, t.a.m. þegar hann kallaði mig hr. Johannessen í Austra- pistlum. Ég sagði eitt sinn við hann að mér fyndist þetta lágkúrulegt, að geta ekki nefnt mig réttu nafni. Þið eigið þetta skilið, sagði hann þá, með þessi hégómlegu ættarnöfn sem hafa verið þýdd uppá dönsku. Ég sagði hann ætti að kynna sér málin, áður en hann skrifaði. Nú, sagði hann, er þetta ekki rétt? Nei, sagði ég. Þetta er norskt ættarnafn, en ekki danskt-íslenzkt. Matthías afi minn kom frá Björgvin. Hann dó á bezta aldri. Og faðir minn vildi varðveita minningu hans, m.a. með því að halda ættarnafn- inu norska. Magnús horfði þegjandi á mig. Eftir þetta sást hr. Johannessen aldrei í Austra-pistlum, þótt oft kæmi hann þar við sögu! II Það er að vísu óhyggilegt að taka af- stöðu nú á tímum. Én ég hef ekki haft geð til að sitja hjá og kaupa mér falskan frið, enda þótt það sé orðin skásta leiðin til vinsælda hér á landi sem annars stað- ar að vera einhvers konar persónugerður frígír. Elds er þörf kom út 1979, Magnús Kjartansson gat tekið afstöðu án þess eldur brynni á honum sem rithöfundi, því að engin áhætta er að ryðjast fram á ritvöllinn og láta að sér kveða, þegar menn gefa ekki höggstað á sér í skáld- skap. En pólitíkusar nærast á karpi og rifrildi. Við hin köllum á ófrið í kringum verk okkar, sem þola sjaldnast mikið hnjask. Það er í senn hvimleitt og óskyn- samlegt að kalla yfir sig slíkan ófrið. En það er að mínu viti mannborulegra að taka afstöðu en eyða ævinni í að príla upp í einhvern fílabeinsturn, þar sem bíða stórkrossar og stjörnudýrkun. I bókum Magnúsar Kjartanssonar er talað um mig sem einhvern holdtekinn fulltrúa „hernáms hugarfarsins" — og jafnvel í grein, sem sótt er í þingræðu! Eitt er að rífast í dagblöðum, en annað að gefa pólitískum andstæðingi, sem þekkir ekki Alþingi nema af afspurn, einkunnir í þingsölum og binda svo inn í bækur, sem tróna í gullslegnum útgáfum í bókaskápum sanntrúaðra, rétt eins og manni hafi verið reist níðstöng með hrosshaus. Félagi orð er andóf gegn þessu. Þar er fjallað um menntir og mannlíf og stjórnmál ekki undan skilin. Þar geta þeir, sem vilja, kynnzt skoðun- um mínum og samherja minna, án þess þær séu slitnar úr samhengi og rangtúlk- aðar. Slík bók á nú meiri rétt á sér en áður. I Félagi orð má finna skýringar á póli- tískum skoðunum mínum og m.a. for- sendur fyrir því, af hverju ég hef talið mér skylt að fylgja markaðri varnar- og öryggisstefnu Islands. Magnús Kjartans- son og fleiri alþýðubandalagsmenn hafa orðið ráðherrar án þess að gera það að skilyrði, að henni væri breytt. Slíkur gerviráðherra hefði ég ekki viljað vera: að standa ekki einu sinni við grundvall- aratriði lífsskoðunar sinnar — í verki. En látum það vera. Það hvarflar ekki að mér að endurvekja gamlar væringar eða pexið um það, að ég hefði orðið föður- landssvikari, ef ég hefði verið ritstjóri í Ríga eða heimtað, að Rússar réðust inn í Tékkóslóvakíu ef ég hefði verið ritstjóri í Prag, en Magnús leggur að jöfnu að stuðla að vörnum og öryggi Islands í samfélagi vestrænna lýðræðisþjóða og vera sovézkur leigupenni landráðamanna í Prag. Ég hef ekki andlegt þrek til að ræða um þennan fíflaskap. Auk þess skiptir mín auma persóna engu máli í þeim kyngimagnaða hildarleik, sem fer fram allt í kringum okkur. Það er langt frá því að ég telji mig hafa „réttar" skoð- anir, þótt það sé gefið í skyn í Elds er þörf. En ég hef skoðanir, ekki síður en Magnús Kjartansson og félagar hans. Þess vegna þykir mér ástæða til að sýna svart á hvítu, úr hvaða jarðvegi stjórn- málaskoðanir mínar hafa vaxið. Ég er ekki fulltrúi neins og ekki heldur „her- náms hugarfarsins", heldur hef ég ein- ungis skipað mér þar í sveit, sem unnið er að því að hefta heimsvaldastefnu sov- ézku kommúnistanna og koma í veg fyrir, að ísland verði innlimað í Sovétrík- in eins og t.a.m. Afganistan. Ef Afganir hefðu haft okkar stefnu í öryggismálum hefði ráðstjórn Sovétríkjanna ekki tekið þá áhættu að gleypa landið. Allir þeir andófsmenn sovézkir, sem ég hef talað við, hafa haft svipaðar skoðanir — og þó ákveðnari en ég, ef eitthvað er. Ég er í góðum félagsskap og hefði talið mig í sporum skoðanafanga, ef ég hefði ekki látið til mín heyra — kannski af ótta við viðbrögðin. Fangi óttans vildi ég sízt af öllu vera. Það jafngildir uppgjöf. „Þú verður drepinn," sagði afkastamikill marxisti við mig býsnaveturinn mikla. Ég vissi hvað hann var að fara. En ég vildi heldur vera „drepinn" vegna skoð- ana minna en lifa við vinsældir og virð- ingu vegna skoðanaleysis. Svo mega allir hafa þær skoðanir fyrir mér, sem þeim hentar. Ég vona, að það blað, sem ég hef ritstýrt um nær aldarfjórðungs skeið, beri þess einhver merki, að ég hef fremur ýtt undir, að mér öndverðar skoðanir séu birtar þar, en reynt að leggjast á þær. Stundum hef ég ekki verið sammála neinni skoðun, sem birzt hefur í Morgun- blaðinu — nema í forystugreininni (!) En ég ber litla virðingu fyrir sleggjudómum og meinyrðum, þótt ég virði pólitíska andstæðinga að öðru leyti. Margt af því, sem Magnús Kjartansson hefur skrifað, hef ég talið útópískan leikaraskap og gálgahúmor. En vafalaust hef ég sjálfur gert mig sekan um slík tilhlaup oftar en sumum þykir góðu hófi gegna. En ég hef haft lítinn áhuga á pólitískri þrá- hyggju. Merkasti blaðamaður nú um stundir, Bernard Levin, segir á einum stað: frelsi er aðeins til fyrir og í ein- staklingnum, en ekki ríki eða þjóðfélagi — og hann minnir á þau ummæli, sem eiga rætur að rekja til Evelyn Waugh: maðurinn á götunni er ekki til, ein- ungis karlar og konur, sem hver um sig á eigin, ódauðlega sál — og slíkt fólk þarf stundum á götum að halda. Það er þetta fólk, sem á hug minn og hjarta, en ekki það fyrirbrigði, sem Magnús Kjartans- son tönnlaðist á: alþingi götunnar. Þó að menn gætu stokkið eins og kengúra, gætu þeir ekki hlaupið frá hjarta sínu, hefur G.B. Shaw sagt. III Mér hefur stundum fundizt við land- varnamenn vera eins og síldin og ávext- irnir sem Kirkegaard talar um og eru yzt í tunnum eða kössum og verða því fyrir hnjaskinu. En þeir sem eru í miðjum um- búðunum njóta góðs af og losna við hnjaskið. Fátt skil ég betur en andstöðu við herstöðvar í landi fámennrar og vopn- lausrar þjóðar. Og helzt vildi ég geta trú- að því, að við lifðum í höggormslausum heimi. En því miður stöndum við enn í sporum Adams og Evu. A voveiflegum tímum er það öðru fremur nauðsynlegt að láta raunhyggju ráða ferðinni. Óskhyggjan er góð, ef hún kostar okkur ekki lífið. Það er ekki einasta raunhæft mat, að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi Islands í samstarfi við vestrænar lýð- ræðisþjóðir og þá með aðild að NATO og nú sem stendur — og af illri nauðsyn — með dvöl varnarliðs í landinu, heldur er það að mínu viti í senn áminning og að- vörun til þeirra sem bættu Afganistan í eggjakörfuna sína. Stefna íslenzkra for- ystumanna 1949 og 1951 hefur reynzt kórrétt, margsönnuð af atburðarás heimsmála á undanförnum þremur ára- tugum. ísland er frjálst land og í góðum félagsskap. Hitt er svo annað mál, að við höfum ekki leyft kjarnorkuvopn í land- inu eða önnur þau vopn, sem nota má til árása eða útrýmingar og skulum við fylgja þeirri stefnu. Gagnkvæm afvopn- un er takmarkið. En ég treysti ekki Andrópof einum fyrir kjarnorkusprengj- um. Og ekki hernámsandstæðingum fyr- ir fjöreggi íslenzku þjóðarinnar. Þeir sigla undir fána óskhyggjunnar. Og bar átta þeirra er sovésku hernaðarmaskín- unni þóknanleg. Það eru ekki meðmæli. IV Ég fór ungur til Sovétríkjanna, þá var ég sjóari. Það var 1946. Bjarni frá Hof- teigi hafði eftir það séð mig á Lands- bókasafninu og þá oftast lesandi marxísk rit. Þá hafði ég vonir um Matthías, sagði hann síðar. En reynslan er bezti kennar- inn. Ég tók hana fram yfir það, sem ég las í Landsbókasafninu. Ekki sízt 19. ald- ar rit skeggjaða karlsins. Ég var eindreginn stuðningsmaður þess á sínum tíma, að við Islendingar byðum Solzhenitsyn að dveljast hér á landi eftir að hann var sendur í útlegð. Ashkenazy sem kemur við sögu í Félagi orð sagði, að það sýndi betur en allt ann- að ást Islendinga á frelsi og mannrétt- indum. Málið kom fyrir Alþingi, en var drepið. Af hverju? Vegna þess þar sátu of margir með hugarfar sovézkra „frið- arsinna". Þessi ræfildómur og undir- lægjuháttur er einn ljótasti bletturinn á löggjafarsamkomunni. Á hún þó um sárt að binda, þar sem orðstír er annars veg- ar. Eitt er vist: ég treysti þeim ekki fyrir íslandi sem stóðu gegn málstað Solzhen- itsyns á Alþingi íslendinga. Og ég hef því miður ekki þá trú að róttæklingar láti í bráð af skotgrafahernaði og fari að skiptast á skoðunum við okkur land- varnamenn um öryggismál íslands án brigzlyrða, svo að vitnað sé til tíma- bærrar ræðu Magnúsar Torfa Ólafssonar nýlega. En vonandi kemur þó að því fyrr en síðar. Þá munu áhrif þeirra aukast. Það er kominn tími til að menn hætti að svara í austur. Ég á ekki heitari ósk en þá, að þróun heimsmála verði með þeim hætti, að við þurfum ekki að hafa varnarlið í landinu. En hver á ekki þá ósk? Það er undir Sovétríkjunum komið hvenær hún ræt- ist, en hvorki okkur né Bandaríkja- mönnum eða öðrum NATO-þjóðum. Starf mitt og reynsla hafa eflt með mér nægilegt raunsæi til að horfast í augu við hætturnar, enda þótt skáldi sé eigin- legt að hugsa með hjartanu. Drengur upplifði ég hernumið ísland í landi sem hafði lýst yfir „ævarandi hlut- leysi“. Það er ekki uppörvandi. Nú gæti slíkt hlutleysi leitt til ævarandi ófrelsis. Ég greini að sjálfsögðu á milli þjóðar og stjórnarfars. Rússar eru stórmerkileg þjóð með stjórnarfar, sem þeir eiga ekki skilið og er þeim raunar ósamboðið. Ég vona mér verði ekki legið á hálsi fyrir að rugla þessu tvennu saman. Ég hef jafn mikinn áhuga á nánum tengslum okkar við rússnesku þjóðina og aðrar þjóðir austan tjalds eins og ég óska þess heitt, að við hljótum ekki stjórnskipulag þeirra og pólitísk örlög. Af þeirri ástæðu einnig er Félagi orð saman sett. Hún er e.k. stefnuskrá ritstjóra, sem hefur marga fjöruna sopið. Óg hún varar við sömu meinsemd og fyrirferðarlítil bók sem er eitt merkasta ritið á bókamarkaði fyrir þessi jól, Árin dásamlegu eftir landflótta- skáldið austur-þýzka Reiner Kunze. Það er eftirminnilegt kver sem allir ættu að lesa; byggt á mikilvægri og dýrkeyptri reynslu. Þar standa þessi orð: „Maður gerir ekki byltingu með því að atyrðast; maður gerir byltingu með því að bjóða fram lausn". Sem sagt: persónuat leysir engan vanda. Það er einungis hjakk í „hug- myndafræðilegum skotgröfum". Við þurfum að geta talazt við. Án brigzlyrða. Eins og við Magnús Kjartansson gerðum á góðum stundum. Þingfréttir í stuttu máli: Bætt hafnarstaða í Þorlákshöfn Hafnarstaöa í Þorlákshöfn Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks, Stein- þór Gestsson, Guðmundur Karlsson og Egg- ert Haukdal, hafa lagt fram á Alþingi til- lögu um að „fram fari ítarleg rannsókn á þvi með hverjum hætti hagkvæmast muni að bæta hafnarstöðuna í Þorlákshöfn. Sú könn- un beinist einkum að: „1. stækkun hafnarinnar til þess að vera stórskipahöfn sem þyldi efnisflutninga að og frá landi í tengslum við stóriðju, - 2. dýpkun hafnarinnar og byggingu varn- argarða eða annarri vörn er komi í veg fyrir sandrek inn í höfnina. Rannsókn þessari skal hraða svo sem kostur er. Flest orkuver landsmanna eru innan Suð- urlands, þ.e. þrjár stórvirkjanir sem fram- leiða meginhluta þeirrar raforku sem til ráðstöfunar er um þessar mundir. Eigi að síður er ekkert fyrirtæki, sem kallast getur orkufrekt, sett niður á Suðurlandi. Upp- bygging í atvinnulífi þar tengist ekki raf- orku svo teljandi sé þótt stórvirkjanir séu þar innanhéraðs og línulagnir til stórnot- enda væru þar skemmri og áfallaminni en þegar fara verður um fjalllendi til fjarlæg- ari byggða. Það má því ætla, að það væri í senn hag- stætt fyrir framleiðanda raforkunnar og héraðsbúa, skoðað frá sjónarhorni atvinnu- uppbyggingar, að fyrirtæki í orkufrekum iðnaði væri reist á Suðurlandi. Það hefur ekki verið gert enn og telja menn hafnleysi suðurstrandarinnar valda þar mestu um. Rétt er það, að stórskipahöfn er ekki til við strandlengjuna endilanga, en það þykir flutningsmönnum þessarar tillögu ekki full- reynt, hvort ekki megi ráða á því bót, fyrr en gerð er á því sérstök rannsókn, hverjir möguleikar séu fyrir hendi í Þorlákshöfn til byggingar stórskipahafnar. Rétt þykir að kanna það, hvort sandvarn- armannvirki geti ekki fallið að byggingu slíkrar hafnar." 92,7% fasteignaskatts Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra, hefur mælt fyrir stjórnarfrumvarpi þar sem m.a. segir: „Á árinu 1983 skal þrátt fyrir ákvæði í 2. mgr. 3. greinar laga 73/1980 um tekju- stofna sveitarfélaga miða fasteignaskatt af íbúðarhúsnæði í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Bessastaðahreppi, Seltjarnarnesi og Mosféllshreppi við 92,7% fasteignamats þessara eigna.“ Sérstakur útlánaflokkur Magnús H. Magnússon og fleiri þingmenn Alþýðuflokks hafa lagt fram frumvarp til laga um sérstakan útlánaflokk hjá inn- lánsstofnunum. Lán þessi skuli veitt til 20 ára og nema 300.000 krónum miðað við verð- lag í desember 1982, fullverðtryggð með 2% ársvöxtum, jafngreiðslulán (annuitet). Lán- in skuli veitt gegn fasteignaveði. Skipulag fólks- og vöruflutninga Davíð Aðalsteinsson og fleiri þingmenn Framsóknarflokks hafa flutt tillögu um skipulag fólks- og vöruflutninga. Skal ríkis- stjórnin gera áætlun um þetta skipulag í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri og bæta þjónustu. Áætlunin nái til landsins alls, en fjalli um flutningakerfi hvers lands- hluta sérstaklega. Öryggiskröfur hjólbarða Eiður Guðnason og fleiri þingmenn Al- þýðuflokks flytja tillögu um öryggiskröfur hjólbarða og innflutningsgjöld af hjólbörð- um. Tillagan felur ríkisstjórninni „að láta setja gæða- og öryggisreglur um innflutning hjólbarða með hliðsjón af því, sem tíðkast í grannlöndum okkar, og gera jafnframt ráðstafanir til að lækka verulega innflutn- ingsgjöld af hjólbörðum". Fyrirspurn um Árneshrepp í Strandasýslu Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) hefur lagt fram fyrirspurn til samgönguráðherra varðandi hafnargerð og byggðaþróun. í Ár- nessýslu í samræmi við þingsályktun frá í maí 19é£2, svohljóðandi: • 1. Hvað hefur ríkisstjórnin látið fram- kvæma við undirbúning og hönnun að hafnarframkvæmdum í Árneshreppi í Strandasýslu? • 2. Hefur verið gerð kostnaðaráætlun um þessar framkvæmdir og hefur verið gerð tillaga til fjáröflunar til að standa undir þeim? • 3. Er nú stefnt að því að vinna við fram- kvæmdir þessar geti hafist vorið 1983?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.