Morgunblaðið - 11.12.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
31
Athugasemd frá
Margréti Thoroddsen
Ég hef hingað til ekki skipt mér
af stjórnmálum opinberlega, en
þegar ég las Reykjavíkurbréf
Morgunblaðsins sl. sunnudag,
blöskraði mér svo, að ég sá mig
tilneydda til að taka mér penna í
hönd.
Það er auðvitað mikill hnekkir
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að for-
maður hans skyldi hafna í 7. sæti í
nýafstöðnu prófkjöri í Reykjavík.
En höfundur Reykjavíkurbréfs,
hver sem hann er, vjr ekki lengi að
finna sökudólginn, sem er að hans
mati fyrst og fremst Gunnar
Thoroddsen.
Gunnar hefur, eins og allir vita,
fengið það óþvegið hjá Morgun-
blaðsklíkunni í sambandi við
stjórnarmyndunina. Þeim ásökun-
um hefur verið margsinnis svarað
af honum sjálfum og stuðnings-
mönnum hans. Við skulum því láta
það liggja milli hluta.
En nú fara þeir allt aftur til árs-
ins 1973, þar sem þeir segja að
Gunnar hafi „haft uppi hótanir"
um að bjóða sig fram til for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum
gegn Jóhanni heitnum Hafstein.
I augum greinarhöfundar er
þetta hræðilegt athæfi. Ég held að
það tíðkist hvergi í lýðræðisríki hjá
flokki, sem telur sig víðsýnan og
frjálslyndan, eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn ætti að vera, að amast
sé við því, þó tveir eða fleiri menn
bjóði sig fram til formennsku 1 ein-
um og sama flokki.
Gunnar hafði verið þingmaður
Sjálfstæðisflokksins lengst af frá
23 ára aldri og auk þess varafor-
maður hans í 3 ár þar til hann var
skipaður sendiherra í Danmörku.
Var því ekki óeðlilegt að stuðn-
ingsmenn hans hvettu hann til að
bjóða sig fram til formennsku árið
1973. Er mér kunnugt um, að hann
fékk eindregin tilmæli í þá átt
hvaðanæva af landinu.
En hvað skeður? Vegna þess hve
sáttfús drengskaparmaður Gunnar
er, tók hann þá ákvörðun að bjóða
sig ekki fram af tillitsemi við Jó-
hann Hafstein, sem þá var orðinn
heilsutæpur. Urðu þetta sár von-
brigði fyrir marga stuðningsmenn
Gunnars. Jóhann Hafstein veiktist
síðan nokkrum vikum eftir lands-
fund og sagði af sér formennsku á
flokksráðsfundi haustið 1973.
Þá tók Geir Hallgrímsson við,
sem gegnt hafði störfum varafor-
manns, án þess að kosning færi
fram. Síðan fordæmir Morgunblað-
ið hvern þann sem dirfist að bjóða
sig fram gegn honum, sbr. ummæli
greinarhöfundar um framboð Al-
berts Guðmundssonar á landsfundi
1979: „Var það í fyrsta sinn, sem
það gerðist í sögu Sjálfstæðis-
flokksins, að mótframboð kom á
landsfundi gegn formanni, sem gaf
kost á sér til endurkjörs." Hvílíkt
hneyksli!
Höfundur Reykjavíkurbréfs vík-
ur einnig að prófkjörum og virðist
harma að „flokksvélin" ráði ekki
eins og áður. Honum er tíðrætt um
prófkjör Sjálfstæðismanna í Húna-
vatnssýslu og reynir að gera kjör
Pálma Jónssonar tortryggilegt
vegna mikillar kosningaþátttöku
en jafnframt er fagnað mikilli
kosningaþátttöku í Reykjavík. Það
er ekki sama hvaðan vindurinn
blæs.
Prófkjörsreglurnar má sjálfsagt
endurskoða, en prófkjörin eru þó
liður í lýðræðisátt, þar sem hinn
almenni kjósandi á kost á að láta
álit sitt í ljós í stað þess að láta
„flokksvélina" ráða.
Mér finnst, að Morgunblaðið,
sem er þó aðalmálgagn Sjálfstæð-
isflokksins, ætti að fara hægt í sak-
irnar með að skapa úlfúð innan
flokksins, einmitt á þessum við-
kvæmu tímamótum, þegar kosn-
ingar eru í nánd og þörf á samstöðu
alira sjálfstæðismanna, bæði
þeirra sem vilja láta stjórna ofan
frá og hinna, sem berjast fyrir því,
að flokkurinn sé víðsýnn og frjáls-
lyndur framfaraflokkur.
Reykjavík, 7. des. 1982,
Margrét Thoroddsen,
viðskiptafræðingur
Engin______
venjuleg
btéf
hddurbréf
ftá fdibergi
í þessari bók eru einstæð bréf,
sem Þórbergur Þórðarson
sendi þeim Lillu Heggu og
Biddu systur, sem kunnar eru
úr bók hans „Sálminum um
blómið“. Bréfin eru skrifuð á
árunum 1952 til 1971 og
koma nú í fyrsta sinn fyrir al-
menningssjónir. Hjörtur Páls-
son hefur tekið saman skýring-
ar með bréfunum og skráð
minningabrot aðalpersónanna
um Sobbeggi afa og fleira fólk.
Þá er í bókinni mikill fjöldi
skemmtilegra mynda.
JOLABOKIN I AR.
SÍÐUMULA 29 Simar 32800 og 32302
plirrfiwiMabib
Áskriftarsíminn er 83033
ROMANS sófasett
VANDAÐ, FALLEGT OG Á GÓÐU VERÐI OG
HAGSTÆÐUM GREIÐSLUSKILMÁLUM.
SOFABORO
GOTT ÚRVAL AF SÓFA-
BORÐUM Á HAGSTÆÐ-
UM KJÖRUM.
Ulferts
HÚSGAGNA-
HEIMURINN
KRISTjAfl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEGl 13 REVKJAVIK SIMI 25870
85 40