Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
21
Athugasemd
vegna opins bréfs Inga R. Helgasonar í Mbl.
14. desember til Guðmundar G. Þórarinssonar
Þar sem ég er nú staddur er-
lendis, hef ég því miður ekki tök á
að svara um hæl opnu bréfi full-
trúa iðnaðarráðherra í álviðræðu-
nefnd, sem birtist í Mbl. í gær og
stílað var til undirritaðs. Það mun
ég hins vegar gera í byrjun næstu
viku, enda ærin ástæða til.
Vegna bréfs þessa get ég þó ekki
látið hjá líða að óska eftir birtingu
á eftirfarandi nú þegar.
I) Hjörleifur Guttormsson iðn-
aðarráðherra hefur hvorki viljað
né getað, nema hvorutveggja sé,
náð samningum við Alusuisse um
hækkun raforkuverðs. Ástæðan er
flokkspólitískir hagsmunir Al-
þýðubandalagsins sem Ingi R.
Helgason hefur fengið sérstakt
hlutverk að verja í álviðræðu-
nefnd.
Öll orka ráðherrans og flokks-
pólitískra ráðgjafa hans hefur
farið í lítt dulbúið áróðursstríð
vegna deilumála liðinna ára sem
eru mun þýðingarminni en þeir
miklu hagsmunir sem fólgnir eru í
hækkun raforkuverðs og sem
hefðu getað fengist fram fyrir
löngu ef rétt hefði verið haldið á
málum.
II) Til að koma málinu út úr
sjálfskaparvíti Alþýðubandalags-
ins og til að koma í veg fyrir
áframhaldandi stórfellt tekjutap
Staðnir að
verki með
útvarps-
bylgjum
Osló, 15. desember. AP.
Krá Jan Krik Lauré, Tréttaritara Morgun-
blaðsins í Osló.
MEI) ÞVÍ að nota útvarpsbylgjur
tókst norsku lögreglunni fyrir
nokkrum dögum að koma upp
um tvo menn, sem stundað höfðu
ólöglegar fuglaveiðar.
Um langt skeið hafa verið
festir útvarpssendar við
nokkra þiðra — sem er fugl
skyldur rjúpunni — til þess að
kanna lífshætti fuglsins. Fyrir
skömmu hvarf þiður, sem hafði
útvarpssendi festan við hrygg-
inn. Lögreglan þurfti aðeins að
fylgja merkjunum frá sendin-
um og handtók síðan tvo menn,
sem sátu við eldhúsborð í húsi
einu og voru þar í óða önn að
hamfletta fuglinn. Veiði-
þjófarnir höfðu ekki uppgötvað
útvarpssendinn á hrygg fulgs-
ins og þegar lögreglan bankaði
að dyrum, var því ekki annað
fyrir mennina að gera en að
játa á sig veiðiþjófnaðinn.
íslensku þjóðarinnar vegna út-
söluverðs á raforku, lagði ég fram
tillögu í álviðræðunefnd, í aðalat-
riðum eftirfarandi:
1. Áfangahækkun raforkuverðs
um 20% taki gildi frá 1. febrúar
nk.
2. Teknir verði þegar upp samn-
ingar um frekari hækkun raf-
orkuverðs og endurskoðun
skattaákvæða samningsins við
ÍSAL.
3. Ríkisstjórnin fallist á í „prins-
ippinu" að heimiluð verði ein-
hver stækkun álversins, enda
náist viðunandi samningar um
þá stækkun, þ.á m. stærð henn-
ar, raforkuverð, skatta o.fl.
4. Samningum um öll ágrein-
ingsmál verði lokið fyrir 1.
apríl nk., þ.á m. um frekari
hækkun orkuverðs.
Þessi tillaga hafði ótvíræðan
stuðning meirihluta nefndarinnar,
enda tryggði hún fullkomlega ís-
lenska hagsmuni, jafnframt því
sem hún opnaði leið fyrir aðila að
setjast í fyrsta skipti að samn-
ingaborði í þessari erfiðu deilu.
Dag eftir dag hefur iðnaðar-
ráðherra, Þjóðviljinn og nú síðast
Ingi R. Helgason reynt að gera til-
lögur þessar tortryggilegar með
rangtúlkunum í ýmsum myndum,
þ.á m. fölsuðu línuriti á forsíðu
Þjóðviljans.
Þessar starfsaðferðir minna
óneitanlega á málatilbúnað sömu
afla þegar Oslóarsamningarnir
vegna loka landhelgismálsins voru
gerðir á sínum tíma, sem voru
upphafið að endanlegum sigri
okkar í landhelgismálinu. í því
máli sýndi sig að inn á við gat
Alþýðubandalagið haldið uppi
áróðri en út á við voru þeir ófærir
um að halda á hagsmunum þjóð-
arinnar vegna öfgaafla innan
flokksins.
Samsæriskenningar af hálfu
talsmanna Alþýðubandalagsins
eru ekki nýtt brauð í íslenskri
stjórnmálaumræðu. í raun hafa
slíkar kenningar verið pólitískt
lifibrauð þess stjórnmálaflokks
öðrum þræði frá upphafi og þá
aldrei frekar en þegar öll rök eru
þrotin.
Ég leggst ekki svo lágt að svara
persónulegum dylgjum Inga R.
Helgasonar í minn garð. Ég vona
hins vegar að þær tvær eggjar
blekkingarinnar sem Ingi R.
Helgason gerir að umræðuefni í
grein sinni, snúist ekki í hendi
hans að honum sjálfum og hans
flokki þegar upp verður staðið.
Með þökk fyrir birtinguna.
Guömundur G. Þórarinsson
alþingismaöur
Skipaður í láv-
arðadeildina
en vill leggja hana niður
liondon, 15. descmber. Al\
MARGARET Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands útnefndi i dag 9
menn sem fulltrúa í efri deild (láv-
aröadeild) brezka þingsins. Einn
þeirra, Andrew Mclntosh, sem er úr
flokki jafnaðarmanna, lýsti því yfir
eftir útnefninguna að hann myndi
vinna að því að lávarðadeildin yrði
lögð niður. Af þeim, sem útnefningu
hlutu í dag, voru fimm úr flokki
ihaldsmanna en fjórir úr röðum jafn-
aðarmanna.
í lávarðadeild brezka þingsins
eiga sæti 1.182 fulltrúar og af
þeim hafa 765 erft sæti sín þar. í
þeirra hópi eru 28 hertogar. Frá
árinu 1965 hafa í þessa deild ekki
verið útnefndir nýir fulltrúar með
titil, sem ganga skal að erfðum,
heldur hafa þeir aðeins verið skip-
aðir til lífstíðar.
koma blessuð jélin
Sagan af
Dimmalimm
Sagan af
Dimmalimm
Nú er þessi sígilda perla
íslenskra barnabóka kom-
in aftur í nýrri útgáfu.
Bókaútgáfan
(jetgofell
Veghúsastíg 5
sími16837
Þetta er aðeins
örlítið brot
af okkar geysi-
góða úrvali.
QB Bláskógar
ÁRMLI.I 8
SIMi: SW'80
Nú er það gott húsgagna-
úrvalið hjá okkur.