Morgunblaðið - 16.12.1982, Side 25
Norðursöngv-
ar á snældum
NORÐURSÖNGVARNIR sem út-
varpsstöðvarnar á Norðurlöndum
ásamt Nomenu félögunum hafa
staðið að útgáfu og dreifingu á, eru
nú fáahlegir á snældum á skrifstofu
Norræna félagsins í Norræna hús-
inu.
A hverri snældu eru lög tveggja
þjóða og eru snældurnar alls fjór-
ar. Islensku söngvarnir eru ekki
með. Kynning á lögunum er sú
sama og þegar söngvarnir voru
fluttir í Ríkisútvarpinu á önd-
verðu þessu ári. Snældurnar má
kaupa eina og eina og svo allar
fjórar í einu og eru þær þá við
lægra verði.
Lesid úr þýdd-
um bókum í
Nýja kökuhúsinu
Á BÓKAKYNNINGU í Nýja
kökuhúsinu við Austurvöll í kvöld
verður lesið úr nýútkomnum þýdd-
um bókum. Jórunn Sigurðardóttir
leikkona les úr þýðingu sinni á
bókinni Mómó eftir þýzka rithöf-
undinn Michael Ende.
Aðalsteinn Bergdal les úr
þýðingu Sverris Páls Erlends-
sonar á bókinni „Kæri herra
Guð, þetta er hún Anna“. Þá
kynnir bókaútgáfan Já bókina
Innra landslag eftir argentínska
hugsuðinn Silo. Þau Ingibjörg
Guðmundsdóttir, Júlíus K.
Valdemarsson og Metusalem
Þórisson lesa úr bók Silos. Upp-
lesturinn hefst klukkan 20.30.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
29
Sýnir bað- og
lyftitæki á
Loftleiðum
f GÆR og dag stendur yfir á Hótel
Loftleiðum sýning á vegum AK, um-
boðs- og heildverzlunar.
Á sýningunni eru sýnd bað- og
lyftitæki frá sænska fyrirtækinu
ARJO, þjálfunar- og æfingabekkir
frá Masolet og tölvustýrð þrek-
þjálfunarhjól frá Dynavit.
Lyklar fundust
STARFSMAÐUR Morgunblaðsins
fann í vikunni lykla að Daihatsu-
bifreið á Laugavegi. Eigandinn
getur vitjað lykl'anna til síma-
stúlkna blaðsins.
Hvaða leiðir
eru færar fyr-
ir vinstri menn?
FÉLAG vinstri manna í Háskóla ís-
lands efnir til fundar í Félagsstofn-
un stúdenta í kvöld klukkan 20.30.
Rætt verður um hvaða leiðir eru
færar fyrir vinstri menn í þremur
málaflokkum: Jafnréttismálum,
her- og friðarmálum og umhverf-
ismálum. Málshefjendur verða
Kristín Ástgeirsdóttir, Garðar
Mýrdal og Sigrún Helgadóttir.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
sængurverasett, hand-
klæöi, sjöl og margt fleira
til aö vera í.
tískuverslunin
Laugavegi 118
105 Reykjavík
sími 28980
pósthólf 5226
Bækur Halldórs Laxness
fást í öllum bókabúðum
BÆKIJR HALLDÓRS LAXNESS ERU ÁVALLT KÆRKOMNAR GJAFIR
1. Vefarinn mikli frá Kasmir 321,10 17. Gjörníngabók 321,10 .32. Kristnihald undir Jökli 321,10
2. Alþýðubókin 284,05 18. Paradísarheimt 345,80 33. Vínlandspúnktar 271,70
3. Kvæðakver 259,35 19. Strompleikur 234,65 34. Innansveitarkrónika 321,10
4. Reisubókarkorn 321,10 20. Atómstöðin 321,10 35. Úa 234,65
5. Snæfríður Islandssól 234,65 21. Vettvángur dagsins 321,10 36. Yfirskygðir staðir 321,10
6. Salka Valka 419,20 22. Dagleið á fjöllum 321,10 37. Norðanstúlkan 234,65
7. Sjálfstætt fólk 395,20 23. Sjálfsagðir hlutir 321,10 38. Guðsgjafaþula 321,10
8. Heiman eg fór 234,65 24. Prjónastofan Sólin 234,65 39. Þjóðhátíðarrolla 321,10
9. Gerpla 419,20 25. Skáldatími 321,10 40. I túninu heima 321,10
10. Þættir 321,10 26. Barn náttúrunnar 321,10 41. Ungur eg var 321,10
11. Silfurtúnglið 259,35 27. Sjöstafakverið 271,70 42. Straumrof 234,65
12. Dagur í senn 321,10 28. Upphaf mannúðarstefnu 321,10 43. Seiseijú, mikil ósköp 271,70
13. —14. Heimsljós 419,20 29. Dúfnaveislan 259,35 44. Sjömeistarasagan 321,10
15. Brekkukotsannáll 358,15 30. Íslendíngaspjall 259,35 45. Grikklandsárið 321,10
16. Islandsklukkan 419,20 31. Undir Helgahnúk 321,10 46. Við heygarðshornið 278,00
Pöntunarlisti:
Nafn:
Heimilisfang:
Póatnúmer: — — — —
Bókaútgáfan
(jdgafeU
Veghúsastíg 5.
Sími 16837.