Morgunblaðið - 16.12.1982, Page 29

Morgunblaðið - 16.12.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 33 Á hraðri leið upp úr öldudal Hljóm otur e 9 Finnbogi Marinósson DEVO Oh, no, it’s DEVO. Virgin V 2241. í Morgunblaðinu fyrst á þessu ári birtust plötudómar undir fyrirsögninni „Ágætt í dag, en verður vonandi betra." Þar var fjallað um nýlegar plötur frá Ultravox og DEVO. Núna tæpu ári seinna hafa báðar þessar hljómsveitir sent frá sér nýja plötu. Plata Ultravox er sögð betri en sú sem fjallað var um fyrr og stóð hljómsveitin við þær vonir sem þá voru bundnar við hana. Það sama er upp á ten- ingnum þegar bornar eru saman plötur DEVO. Fyrstu þrjár plöt- urnar eru allar mjög góðar og sú fyrsta þeirra best. Fjórða platan „New Traditionalists" (sú sem fjallað var um í áðurnefndri grein) er ekki eins góð og virtist vera sem þeir piltar væru ekki eins frjóir og áður. Hvað sem því líður þá er komin frá þeim ný plata sem þeir kalla því ein- kennilega og skemmtilega nafni „Oh, no, it’s DEVO“ og eftir nafninu að dæma þá virðast þeir ekki hafa farið varhluta af at- hygli fólks á tónlist þeirra. Hvort sem þeir hafa skellt þessu nafni á plötuna í glensi og ákveðið svo í alvöru að hysja upp um sig buxurnar er ekki gott að segja en eitt er víst að þetta nýja afkvæmi þeirra er mun betra en það á undan. Frískleikinn er í fyrirrúmi og í raun er alveg ótrúlegt hvað þeim helst vel á þessari tónlistarstefnu sem þeir eru á, eins og hún vill verða leið- inleg hjá öðrum. Á plötunni eru ellefu lög. Eins og venjulega eru öll lögin eftir þá sjálfa, og eru þau góð, sum þeirra meira að segja hreint af- bragð. En mikið væri það nú gaman að heyra svona eina út- setningu á gömlu lagi eins og er að finna á fyrstu plötunni. Þar tóku þeir gamla góða Rolling Stones-slagarann „Satisfaction" og útsettu hann á ógleymanleg- an hátt, vélrænan og ópersónu- legan. En því er ekki að heilsa svo taka verður því sem býðst með fegins hendi. Á plötunni er hljómborðið mjög áberandi og leiðir það mjög vel flest lögin. Melódíurnar eru skemmtilegar og textinn fylgir þeim stundum bráðsmellinn eins og í laginu „Speed Racer“ en síðasta versið lítur svona út á blaði: l’m your doctor and here’s the bill, he’s your doctor and here’s your bill. Doctor stcals and here's your pills, he likes to steal so here’s the bill. I þessum fáu orðum er meira sagt en í heilli sögu. Eftir nokkra hlustun er ekki annað hægt en að óska DEVO til hamingju. Þeir eru á hraðri leið upp úr öldudal sem varð á leið þeirra og ef rétt reynist þá mun næsta plata verða skrefinu betri. En þangað til er um að gera að láta „Oh, no, it’s DEVO“ nægja. FM/AM. sem engulíkist Lifandi ljós í ekta kristal varpar hlýjum Ijóma á umhverfiö. • Lkta kristall er annaö en gler — en verðiö þó lægra en þig grunar Snjóboltinn ..... verð frá kr. 133 Solros .......... veró frá kr. 140 l’olar .......... verö frá kr. 198 Þaö er ókleift aö líkja eftir Ijósgliti frá þessum kristalsstjókum. Bankastræti 10, Sími 13122 Metsölubók John Gardners um^ames Bond, Sérleyhö endur yi^ns Jónssonar, hjá útgáhJfélaginu Fjölni. % Jámes. B°snýr afturf baö er he dur engin tiwili- S james Bond ekut nú á Saab 900 Tutbo. Saab-umboöiö Töggur hf. Bíldshöfða 16, Reykjavík. Sími: 81530. kxí£ir Barónsstíg 18, 101 Reykjavík. Sími: 18830.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.