Morgunblaðið - 16.12.1982, Page 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
Hvað getum við gert til
að fækka umferðarslysum?
- eftir Þóró Jónsson,
Látrum
Það sem af er þessum vetri,
hafa umferðarslysin verið óhugn-
anlega mörg. A það sér að sjálf-
sögðu margar ástæður, sem hægt
væri að fækka ef allir tækju hönd-
um saman um það, og það ættum
við að gera, hvar í stétt eða stöðu
sem við erum, ungir eða aldnir,
akandi eða gangandi. Það stingur
mann að lesa fyrirsagnir í blöðun-
um, eins og þá sem var á baksíðu
DV 8. nóvember síðastliðinn og
hljóðaði svo: „Á fjórða tug öku-
manna grunaðir um ölvunarakst-
ur.“ Og undirfyrirsögn: „Lögregl-
an herðir aðgerðir." Og þetta var
um eina helgi.
Svo manni verður á að hugsa,
hvað á ölvun við akstur mikinn
þátt í umferðarslysum. Mér finnst
að það mætti koma betur fram í
fjölmiðlum, og einnig það, að ef
maður sest undir stýri undir
áhrifum áfengis, eða annarra
vímugjafa, þá vita það allir ís-
lendingar, sem komnir eru til vits
og ára, að það er lögbrot af verstu
tegund, lögbrot, sem við því miður
höfum ekki öll lært að virða sem
lögbrot, en verður þess valdandi
að alltof margir verða fyrir þvi
óláni að skerða lífshamingju og
lífsmöguleika sjálfra sin og ann-
arra ævilangt. Gerum það að fram-
lagi okkar, ti) fegrunar lífsins, að
forðast þessi lögbrot, það er svo auð-
velt að gera það fyrir hvern sem er,
látum það vera jólagjöf okkar hvers
til annars um næstu jól.
Ómar Ragnarsson sá fjölhæfi
útvarps- og sjónvarpsmaður,
margdáður af öllum landslýð,
sýndi okkur í sjónvarpinu muninn
á því að stöðva bíl á 30 km hraða
og 50 km hraða. Þúsundir bíl-
stjóra hafa ekki gert sér fulla
grein fyrir þessu fyrr. Sjónvarpið,
okkar alsterkasti fjölmiðill,
sterkari en við höfum enn áttað
okkur á, ætti að gera meira af því
að sýna okkur fleiri og fleiri stað-
reyndir úr umferðinni og varðandi
hana.
„Lögreglan herðir aðgerðir," var
undirfyrirsögnin.
En hvað gerir lögreglan í um-
ferðinni? Að mínu mati vinnur
hún mikið og gott starf, en hún
hefir menn og lög yfir sér, og það
vald segir fyrir um stefnuna.
Nokkrum sinnum að undan-
förnu, hefir átt sér stað æðisgeng-
inn eltingarleikur lögreglu og öku-
manns, sem ekki vildi hlýða stöðv-
unarbeiðni lögreglunnar. Ég tel
það mjög alvarlegt brot, sem ætti
að taka þannig á, að menn gerðu
sér ekki leik að því að fremja það.
DV segir frá því 27. sept., þegar
slysaalda vetrarins var að byrja,
að kona hefði ekið ljóslaus kl.
04.00 um nótt á 130 km hraða á
flótta undan lögreglunni. Bíllinn,
sem eltur var, kastaðist útaf veg-
inum og endaði þar sína ferð, en
konan, sem var ein í bílnum, slapp
óslösuð líkamlega. Um andlegu
slysin, sem verða við slík óhöpp, er
aldrei talað, en afleiðingar þeirra
vara lengi. Því miður, fer það ekki
alltaf svo vel sem þarna í útaf-
akstri á slíkum hraða, og þótt
minni sé, að enginn slasist eða láti
lífið.
Sunnudaginn 7. nóv., segir
Morgunblaðið frá umferðarslysi,
sem vakti mikla athygli og um-
ræðu manna á meðal, ég held um
allt land, og þess vegna sting ég
niður penna að þessu sinni.
Alvarlegast við þetta slys var,
að 15 ára stúlka beið bana, önnur
stúlka fór á sjúkrahús, en þrennt
úr bílnum slapp með skrámur,
segir blaðið, samtals fimm ung-
menni. Lokaorð blaðsins með
fréttinni voru: „Ökumaður er
grunaður um ölvun við akstur, en
hann er 16 ára, og því ökurétt-
indalaus. Hálka var þegar slysið
varð.“
Verri gátu aðstæður varla verið.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
óskaði sérstaklega eftir skýrslu
lögreglan var á eftir þessum bíl.
Ég vil leyfa mér, að taka hér upp
það sem blaðið DV hefir eftir
Hjalta Zophaníassyni deildar-
stjóra í viðkomandi ráðuneyti, því
þar finnst mér mjög skynsamlega
mælt. Deildarstjórinn segir, eftir
því sem blaðið hermir: „Við viljum
vita hvernig staðið var að eftirför
lögreglunnar, við viljum sjá hvað
þarna gerðist, hver þáttur lögregl-
unnar var. Það er fyrst og fremst
eftirförin sem við viljum fá upp-
lýsingar um.“ Og deildarstjórinn
segir ennfremur, að því er DV
hermir: „Það er stundum ekki
réttlætanlegt að fara svona að.
Það getur verið nóg að ná bílnúm-
erinu, og sækja svo ökumanninn
næsta morgun. Það þarf ekki allt-
af að elta menn. Ef þetta er
eitthvað lítilfjörlegt er alveg fár-
ánlegt að elta menn og spana
þannig upp hraðann." Ég er alveg
sammála því sem hér er haft eftir
Hjalta Zophaníassyni, deildar-
stjóra í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, og geri mér vonir um, að
það megi taka það sem grænt ljós
um að lögreglan verði látin leggja
niður þessa æðisgengnu kapp-
akstra sína á eftir ökumönnum
sem ekki virða stöðvunarbeiðni
hennar. Látum þá heyra fortíðinni
til.
„Lögreglan fór að með fyllstu
gát,“ er fyrirsögn í DV 13. nóv.,
yfir fréttatilkynningu frá dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu varð-
andi banaslysið í Kópavoginum.
Ég ætla mér ekki að gagnrýna
þessa fréttatilkynningu, sleppi
því, en mér fellur hún ekki, frá
þessum stað.
Það er eitt og annað sem ég tel
að gæti orðið til bóta varðandi
umferðarslysin, sem allir vilja
forðast, og eiga að leggja mann-
dóm sinn í að reyna að forðast.
Borgarráð:
Lóðaút-
hlutunin
samþykkt
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær tillögu borgarstjóra,
Davíðs Oddssonar, um að á næsta
ári verði úthlutað í Reykjavík rúm-
lega 1.600 byggingarlóðum. Sjálf-
stæðismenn greiddu atkvæði með
tillögunni, en fulltrúar vinstri flokk-
anna sátu hjá.
Þá var og samþykkt samhljóða
að leggja niður Veiði- og fiski-
rælftarráð Reykjavíkurborgar og
að sameina Þjóðhátíðarnefnd
Æskulýðsráði, en sú tillaga var
samþykkt með fjórum samhljóða
atkvæðum.
Þórður Jónsson
Eitt af því er að taka hart á al-
varlegum umferðarbrotum, til
dæmis eins og þeim, að sinna ekki
stöðvunarbeiðni lögreglu, sem oft
er upphafið að þessum æðis-
gengnu eltingarleikjum lögregl-
unnar við ökumenn bifreiða
stundum fullra af fólki. En það er
ekki víst og jafnvel ólíklegt að
lögreglan viti nokkuð um ástand
ökumannsins í bifreiðinni, sem
hún er að elta, og engar líkur til,
að ökumaðurinn sjálfur geri sér
grein fyrir því, hversu óhæfur
hann er orðinn til aksturs, tauga-
spenntur, illa fyrirkallaður, bál-
reiður, og kannske undir áhrifum
vímugjafa. Eitt af þessu slævir
ökuhæfnina, en allt saman gerir
hvern sem er óhæfan til aksturs.
Hann hugsar um það eitt að kom-
ast undan á þeim hraða sem hann
getur náð, án þess að líta til að-
stæðna eða öryggis. Slíkur kapp-
akstur endar því miður oft illa, og
með honum hefir raunar ekkert
áunnist, nema undirstrikun fár-
ánleika slíkra athafna, en það tap-
ast oft mikið, jafnvel það dýrmæt-
asta sem við eigum, mannslíf.
Ég tel að svo ætti að taka á
óhlýðnisbroti við lögregluna um
stöðvun, að ökumaðurinn missti
réttindi um árabil, auk sektar og
gæti ökumaður ekki greitt sektina,
þá væri heimilt að fastsetja bif-
reiðina sem hann ók, þótt annar
væri eigandinn, þar til sektin væri
greidd. Varast væri að elta söku-
dólginn, nema til að ná númerinu,
og ef hægt væri að ná mynd.
Skráður eigandi bifreiðarinnar
væri svo kallaður fyrir, eða beðinn
um að gefa sig fram, og væri tillit
tekið til þess í dómi, ef hann gerði
það af fúsum og frjálsum vilja.
Annað — ökuhraði þarf að
minnka þar sem hættan er mest.
Þriðja — gangandi og hjólandi
fólk getur einnig valdið umferð-
arslysum á sjálfum sér og öðrum,
ef það fer ekki eftir settum regl-
um, og fyrirmælum lögreglu. Gott
samstarf við hana er því mjög
mikilvægt fyrir þessa aðila, því
lögreglan forðar frá mörgu slysi í
umferðinni, semsagt framkvæmir
sem við köllum fyrirbyggjandi
umferðarslysavarnir. Engar tölur
eru yfir hversu miklu er bjargað
með því frekar en með öðrum
fyrirbyggjandi slysavörnum, en
það eru einmitt þær, sem við eig-
um að leggja mesta áherslu á, eins
í umferðinni sem annars staðar.
Látrum, 1. des. 1982.
Kveðjuorð
til sóknarbarna í Mosfellsprestakalli: Mosfells-,
Miðfells-. Stóru-Borgar-, BúrfeUs- og Ulfljótsvatns-
sóknum.
Kæru söfnuðir! Við þökkum ykkur öllum
heiðurskveðjur við húsfylli að Borg á skilnaðarstund —
og veglegt samkvæmi. — Þökkum fagran söng, upp-
lestur og tónlist, ávörp, ræður og frumort Ijóð. — Þökk-
um dýrgrip til minja og aðra mikla gjöf — einnig gjafir
og blóm heimamanna og gesta Þökkum sér í lagi þeim
konum, sem báru hita og þunga dagsins.
Við þökkum trygga vináttu sóknarbarna. Minnumst
þakklátum huga hinna mörgu helgistunda, sem okkur
hafa gefist með ykkur, bæði í kirkju og á heimilum.
Guð btessi ykkur öll. heimili ykkar og samfélag.
Ingólfur Astmarsson. sóknarprestur,
Rósa B. Blöndals.
Hólmavfk.
um þetta slys, sjálfsagt af því að
1930 .
Þegar amma
var ung
1940
Þegar mamma
var ung
1950
Þegar margir
fæddust
1960
Framhlaðin
1982
Topphlaðin
thomsoimO
ÞVOTTAVÉL OG ÞURRKARI '
Fullkomió
Topp
hlaóin
Af hverju
topphlaðin?
Thomson
er stærsfi
framleiðandi
þvotfavéla
í Evrópu
• Topphlaönar þvottavélar endast betur þar sem þvotta-
belgurinn er á legum báöum megin.
• Vinnuaðstaða er betri þar sem ekki þarf §ð bogra fyrir
framan vélina heldur fer þvotturinn ofaní vélina.
• Vélin verður hljóðlátari
og titringur minni.
T-5981
Þvottavél og þurrkari
°s
5 kg af þurrum þvotti.
900 snúninga vinduhraöi.
12 þvottakerfi og sparnaöarkerfi
Heimilistækjadeild
Skipholti 19, sími 29800.
I BÚÐIN