Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 42
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
Þor
til Vard?
VIÐ rákumst á lítla klausu (
norsku dagblaði á dögunum,
þar sem því er haldiö fram
að Óli Þór Magnússon frá
Keflavík muni að öllum lík-
indum ganga til liðs viö
norska félagið Vard frá
Haugasundi næsta sumar.
Sagt er frá því að Óli sé
staddur í Haugasundi, þar
sem hann æfi meö liðinu og
skoði aðstæður.
VARD fár trolig islandsk inn
slag pá laget neste ár. I disse
dager er den 19 ár gamle 1. divi
sjonsspilleren Ole Tor Magnus
son fra Keflavik i Haugesund
for á trene og se pá forholdene i
Vard. Magnusson er spiss og
spiller pá det islandske ung
.domslandslaget melder Hauge
jndsAvia(NTB)^^^^^»^
Leikið gegn
Svíum í dag
í DAG kl. 15.00 leika íslend-
ingar annan landsleik sinn í
handknattleiksmótinu f
A-Þýskalandi. Leikiö veröur
gegn Svíum. Á morgun verö-
ur svo þriöji leikur liösins og
þá verður leikið gegn B-liði
A-Þjóðverja. Mótinu lýkur
ekki fyrr en á sunnudags-
kvöld.
Stein
meiddur
BRIAN Stein sem leikið hef-
ur síöustu 146 leiki fyrir lið
sitt Luton veröur nú frá
keppni í rúman mánuð
vegna meiösla. Stein sem
hefur skorað 15 mörk fyrir
félag sitt á keppnistímabil-
inu meiddist í leik gegn Man.
City síðasta laugardag.
Selfosshlaup
á laugardag
SELFOSSHLAUP HSK verð-
ur háð á Selfossi og ná-
grenni næstkomandi laugar-
dag, en hér er um aö ræöa
eitt hlaupanna í vetrarhlaup-
um víðavangshlaupara, þótt
öllum sé heimil þátttaka,
skokkurum jafnt sem gall-
hörðum keppnismönnum.
Selfosshlaupíö hefst
klukkan 14 á íþróttavellinum
og eru væntanlegir þátttak-
endur beðnir að mæta tím-
anlega til skráningar. í karla-
flokki verða hlaupnir 10 km
og 4 km i kvennaflokki.
Engin mörk
í Albaníu
NORÐUR-írar gerðu marka-
laust jafntefli við Albani á
útivelli í Evrópukeppni
landsliða í sjötta riöli í gær.
Við þessi úrslit minnkuöu
möguleikar á því aö komast
í úrslitakeppnina í Frakk-
landi 1984 verulega, en að-
eins efsta liðið í hverjum
rióli kemst þangað. írar léku
aldrei neitt nálægt því eins
vel og gegn Vestur-Þjóðverj-
um á dögunum, en þá sigr-
uðu þeir 1—0 á heimavelli
sínum.
Staðan í 6. riöli
EFTIR leik Albaníu og
Noröur-írlands í sjötta riðli
Evrópukeppni landsliöa (
gær er staðan í riðlinum
þessi:
Austurríki 3 3 0 0 11—0 6
N-írland 3 111 1—1 3
Tyrkland 2 10 1 1—4 2
Albam'a 3 0 1 2 0—6 1
V-Þýskal. 10 0 1 0—1 0
• Kristján Arason FH var markahæstur gegn A-Þjóðverjum, skoraði sex
mörk og átti góðan leik.
Landsliðið dæmt í
tveggja ára bann
Leikmenn börðu dómarann
Knattspyrnulandslið N-Kóreu
hefur verið dæmt í tveggja ára
leikbann frá öllum landsleikjum
og alþjóðlegum vináttuleikjum í
knattspyrnu. Ástæðan er sú, að
leikmenn landsliðs N-Kóreu
gerðu aðsúg að dómara og lögðu
á hann hendur þegar liðið var aö
leika landsleik við Kuwait. Kuwait
sigraði í leiknum, 3—2, og skor-
uðu sigurmark sitt úr vítaspyrnu.
Leikmenn N-Kóreu töldu víta-
spyrnudóminn vera rangan og
geröu aðsúg að dómaranum.
Varð aö kalla út herlögreglu til
þess að skakka leikinn, en dóm-
arinn slapp viö minniháttar
meiðsli. Á myndinni hér aö neðan
má sjá hvar leikmenn N-Kóreu
eru að byrja aö leggja hendur á
dómarann, sem var frá Thailandi.
'yy
wm'm
- •; •.
I
' ''V/AyV
magz.
■ ...
Handknattleikslandsliðið:
Tólf marka tap
í fyrsta leiknum
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik lék sinn fyrsta leik á
hinu sterka alþjóðlega móti í
Austur-Þýskalandi í gær og var
þá leikið gegn heimamönnum.
Þjóðverjarnir sigruðu í leiknum
32—20.
Aö sögn Hilmars Björnssonar,
landsliðsþjálfara, var staöan í hálf-
leik 14—9 fyrir Þjóöverjana, en í
síöari hálfleiknum stungu þeir ís-
lenska liöiö svo af.
„Sóknarnýtingin hjá okkur var
ekki nógu góð — aöeins 37%“
sagöi Hilmar, „og í seinni hálfleikn-
um skoruöu þeir mikiö úr hraöa-
upphlaupum." Hann sagöi aö þetta
austur-þýska liö væri mjög gott og
alltaf erfitt viö aö eiga á heimavelli.
„Undanfarin ár hafa þeir leikiö 53
leiki á þessu móti, sem er árlegur
viöburöur, og unniö 50 af þeim
leikjum," sagði Hilmar.
Aöspuröur sagöi Hilmar, aö
Þjóöverjarn, Ungverjar og Rúmen-
ar kæmu til meö aö berjast um
sigur í mótinu, en allt væru þetta
mjög sterk liö. „Okkar mestu
möguleikar á sigri eru gegn Svíum
og B-liði Austur-Þýskalands. Þaö
eru hvort tveggja B-þjóöir, hitt eru
allt liö í A-flokki."
jslenska liöiö var frekar jafnt í
leiknum og enginn sem skaraöi
fram úr. Kristján Arason skoraði 6
mörk, Bjarni Guðmundsson 4,
Þorgils Óttar Mathiesen 3, Jó-
hannes Stefánsson og Alfreö
Gíslason 2 hvor og Sigurður
Sveinsson, Gunnar Gíslason og
Ólafur Jónsson eitt mark hver.
Kristján Sigmundsson byrjaöi í
markinu en síöan kom Einar Þor-
varöarson inn á og náöi hvorugur
sér verulega á strik. „Þaö var þó
ekki þeim aö kenna aö viö fengum
svo mörg mörk á okkur, því Þjóö-
verjarnir fengu yfirleitt aö komast
óáreittir í gegn,“ sagöi Hilmar.
Rúmenar sigruðu B-liö A-Þýska-
lands 28—21 í gær og Ungverjar
voru aö vinna Svía 16—10 er blm.
spjallaöi viö Hilmar. Voru þá tíu
mínútur liðnar af síöari hálfleik.
Sænski markvöröurinn haföi þá
variö 15 skot og hélt liðinu alger-
lega á floti.
— SH.
England sigraði 9—0
WATFORD-leikmaðurinn Luther
Blissett gerði sér lítiö fyrir og
skoraði þrennu í sínum fyrsta
landsleik fyrir England, er liðið
vann stórsigur á Luxemborg
9—0. Leikur liðanna fór fram á
Wembley-leikvanginum og dóm-
aratríóið (leiknum var íslenskt.
35.000 áhorfendur voru á
Wembley í gær og horfðu á stór-
sigur enska liösins sem var ekki í
vandræðum með að yfirspila
slakt lið Luxemborgara. Mörk
Englands ( gærkvöldi skoruðu
Luther Blissett 3, Glen Hoddle 1,
Phil Neal 1, Butcher 1, Cham-
berlain 1, Woodcock 1 og Mabb-
utt 1.
Wales-búar nú efstir
WALES-búar eru nú efstir í fjóröa
riðli Evrópukeppni landsliöa eftir
að hafa gert jafntefli við Júgó-
slavíu í Titograd í gær. Hvort lið
skoraöi fjögur mörk. Wales náöi
forystu með marki Burnley-leik-
mannsins, Brina Flynn, eftir fimm
mínútur. Síðan komst heimaliöið
tvívegis tvö mörk yfir, en Wales
náöi að tryggja sér annað stigiö
engu aö síöur.
Varnarmaöurinn Zvezdan Cvet-
kovic jafnaöi metin á 14. mín. og
síðan skoruöu Zivkovic (á 17. mín.)
og Kranjcar (á 36. mín.) fyrir
heimamenn. lan Rush, marka-
maskínan frá ensku meisturunum
Liverpool, skoraöi annaö mark
Wales skömmu fyrir leikhlé og
staöan var því 3—2 í hálfleik.
Jesic jók forystu Júkkanna á 66.
mín., en bakvöröurinn, Joey Jon-
es, fyrrum leikmaöur Liverpool og
Wrexham, nú leikmaöur Chelsea,
geröi þriöja mark Wales fjórum
min. síöar. Lokakaflann voru
Wales-búar mun betra liöið og var
þaö fyllilega sanngjarnt er Robbie
James frá Swansea geröi fjóröa
mark liösins tíu mín. fyrir leikslok.
Hann fékk síöan möguleika á því
aö bæta enn einu marki liösins viö,
aðeins einni mín. fyrir leikslok er
þrumuskot hans small í þverslá
júgóslavneska marksins. Wales
þótti leika mjög vel og hefði jafnvel
átt sigur skilinn í leiknum. Þeir eru
nú á toppi riöilsins ásamt Norö-
mönnum, en hafa leikiö einum leik
færra.
Staöan er þannig í fjóröa riöli:
H'ales 2 110 5—4 3
Noregur 3 111 5—4 3
Júgóslavía 3 111 6—7 3
Kúlgaría 2 0 11 2-3 1
Þór vann ÍS:
Sóknarleikurinn
ekki nógu góður
— segir Gylfi Kristjánsson
ÉG er nokkuð ánægður meö
vörnina, en sóknarleikurinn er
ekki nógu góöur. Þaö koma kaflar
í hann þar sem ekki er glóra í
honum, sagði Gylfi Kristjánsson
liðsstjóri Þórsara í körfubolta eft-
ir aö Þór hafði unniö stúdenta í 1.
deild í skemmunni á Akureyri um
helgina 76—72. Staðan í hálfleik
var jöfn 34—34. Leikurinn hafði
ekki staöiö nema í eina mínútu er
Guðmundur Jóhannsson ÍS lenti í
samstuði og fékk höfuðhögg og
var fluttur í sjúkrahús.
Lítiö var skorað fyrstu minúturn-
ar og var hittni leikmanna mjög lé-
leg. Liðin skiptust á aö hafa eins til
þriggja stiga forystu allan fyrri hálf-
leikinn, og var staöan í hálfleik
34—34 eins og áöur sagöi.
j síöari hálfleik var sama sagan,
mikiö jafnræöi meö liöunum og
mátti sjá tölur eins og 46—46,
57—57 og þegar ein mínúta var
eftir af leiknum var staöan,
70—70. Eirikur og McField innsigl-
uöu síöan sigur Þórs á síöustu
sekúndunum, 76 gegn 72 stigum
stúdenta.
Slig l»órs: McKifld 39, Jón llóóins I3, Kiríkur
Sig. 9, Jóhann Sig. 5, Konráó Oskarsson l>, Kjórn
Svoinssíin 5.
S(ig ÍS: l'al Ktx k 28, Kiríkur Jóhannsson I5,
Árni OuAmundsson I0, Karl Olafsson 8, Árni
SigurlaugsHon 8, Árni Jónsson I.
Dómarar voru llóróur Tuliníus og Kafn Kont*-
dikLsson og dvmdu mjög vel.
A.S.