Morgunblaðið - 16.12.1982, Side 44
munirt trúlofunarhringa
litmvndalistann
#ull Sc ^ilfur
Laugavegi 35
lOrUíimM'Utniíi
./Ápglýsinga-
síminn er 2 24 80
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
Eldborgin seldi í Bretlandi:
Fékk 3,3 millj. fyr-
ir kolmunnaflökin
ELDBORGIN frá Hafnarrirði
seldi í gær 217,8 tonn af frystum
kolmunnaflökum í Bretlandi fyrir
rúmar 3,3 milljónir króna, eða 575
Heimsfrum-
sýning í Bíó-
höllinni
NÝ handarísk kvikmynd, Kon-
ungur grínsins eða King of
('omedy, eins og hún nefnist á
frummálinu, verður frumsýnd í
Bíóhöllinni nú um jólin, og er
það sérstætt við frumsýninguna,
að hér er um heimsfrumsýningu
að ræða og verður myndin ekki
sýnd í Bandaríkjunum fyrr en i
febrúar. í myndinni leika margir
kunnir leikarar, og eru þeir
frægastir Kobert De Niro og
Jerry Lewis, en leikstjóri er
Martin Scorcese, sem meðal
annars gerði hinar heimskunnu
myndir Taxi Driver, Mean
Street og Raging Bull.
Árni Samúelsson sagði í
samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins í gærkveldi, að
ástæða þess að myndin væri
fyrst sýnd hér á landi væri sú,
að dreifing hjá 20th Century
Fox vestan hafs hefði tafist af
tæknilegum ástæðum. Áhersla
hefði hins vegar verið lögð á að
hún yrði frumsýnd einhvers
staðar í heiminum fyrir árslok.
Hér á landi væri auðveldara að
koma myndum inn með stutt-
um fyrirvara en annars staðar
og því hefði Island orðið fyrir
valinu. „Þetta er mikil mynd,“
sagði Árni, „þar sem bæði er
um að ræða drama og grín.
Myndin kostaði um 3 milljónir
dollara í framleiðslu og sex
milljónum dollara verður varið
í auglýsingaherferð í Banda-
ríkjunum, áður en hún verður
sýnd þar í febrúar á næsta
ári.“ Árni kvaðst að lokum
ekki vita betur, en þetta væri í
fyrsta skipti sem bandarísk
mynd væri frumsýnd á Norð-
urlöndunum áður en til sýn-
inga í Bandaríkjunum kæmi.
pund á tonnið. Líkaði Bretum vel
við kolmunnann að sögn Þórðar
Helgasonar, eins af eigendum
Eldborgarinnar, og ekki komu
neinir gallar fram í farminum.
Sagði Þórður að þeir væru
ánægðir með verðið, þeir hefðu
reiknað með um 550 pundum á
tonnið. Þórður sagði einnig að
þetta skilaði ekki miklum hagn-
aði vegna þess að tekið hefði
rúmar 6 vikur að ná þessum
afla, aðallega vegna slæmra veð-
urskilyrða. Þessum veiðum yrði
þó haldið áfram, enda væru þeir
bjartsýnir á framtíðina og ef
veður helst skaplegt væri vænt-
anlega hægt að ná sama afla-
magni á mun skemri tíma. Það
væri mest um vert, að svo vel
hefði tekizt til í fyrstu veiðiferð,
að engar kvartanir hefðu komið
fram.
Símamynd — Al*.
íslenskt knattspyrnudómaratríó dæmdi í fyrsta skipti knattspyrnulandsleik á hinum fræga Wembley-leikvangi í
Lundúnum í gærkvöldi er landslið Englands lék gegn Luxemborg. Á myndinni má sjá hvar fyrirlidar landanna,
Bryan Robson fyrirliði Englands, til vinstri, heilsar fyrirliða Luxemborgar, Jeannot Moes, áöur en leikur hefst.
Fyrir miðri mynd má sjá démara leiksins, Hreiðar Jónsson, og línuverðina, Eystein Guðmundsson, til vinstri, og
Guðmund Haraldsson, til hægri. Sjá nánar á íþróttasíðu.
Staða fískvinnslunnar nei-
kvæð um rúmar 700 millj.
Stefnt að fiskverðsákvörðun fyrir áramót
VELTUFJÁRSTAÐA fiskvinnslufyrirtækja í landinu um síðustu áramót var
neikvæð um rúmar 700 milljónir og lítið hefur rætzt úr þeirri stöðu á þessu
ári, samkvæmt þeim heimildum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær.
Það er því ljóst að fiskvinnslan
hefur varla bolmagn til að bera
fiskverðshækkun svo nokkru
nemi. Staða útgerðarinnar miðað
við miðjan þennan mánuð er
neikvæð um 564 milljónir sam-
kvæmt útreikningi Þjóðhagsstofn-
unar, svo ljóst er að mikið ber
þarna á milli. Yfirnefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins kemur
saman til fundar í dag og verða
þar útreikningar á stöðu fisk-
vinnslunnar lagðir fram. Fiskverð
skal ákveða eigi síðar en um ára-
mót, en ljóst er, að sú ákvörðun
getur dregizt vegna þess hve
margt er enn óákveðið hvað
rekstrarstöðu útgerðarinnar varð-
ar.
Nefnd skipuð af forsætisráð-
herra hefur að undanförnu unnið
að útreikningum á stöðu fisk-
vinnslunnar og óskað vegna þess
gagna frá viðkomandi fyrirtækj-
um. Nefndinni bárust aðeins
vinnsluhæf gögn frá um 60 fyrir-
tækjum, en tekjur þeirra nema um
þriðjungi tekna útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækja í landinu.
Könnun nefndarinnar leiddi í ljós,
að veltufjárstaða þessara fyrir-
tækja var neikvæð um síðustu
áramót um 230 til 250 milljónir og
ljóst er að staðan hefur ekki batn-
að á þessu ári. Sé tekið mið af
þessum fyrirtækjum má reikna
með að heifdar veltufjárstaðan sé
neikvæð um rúmar 700 milljónir.
Morgunblaðið hafði vegna þessa
samband við sjávarútvegsráð-
herra, Steingrím Hermannsson.
Sagði hann, að verið væri að vinna
að lausn á vanda útgerðarinnar,
en hann gæti ekki tjáð sig um það
nú á hvern hátt það yrði “gert.
Hann yrði að kynna hagsmunaað-
ilum þær hugmyndir fyrst. Stein-
grímur sagðist ekki hafa fengið
lokatölur um stöðu fiskvinnslunn-
ar, en hún væri nokkuð góð.
Skreiðarverkunin yrði látin bíða,
því vegna erfiðleika í sölumálum
væri erfitt að gera sér grein fyrir
stöðu hennar. Þá sagði hann, að
stefnt yrði að því að ákveða fisk-
verð fyrir áramót. Ákveða þyrfti
hverjar aðgerðir vegna útgerðar-
innar yrðu og ganga frá þeim áður
en hægt væri að ákveða fiskverð
og yrði reynt að hraða þeim
ákvörðununj.
Steingrímur sagði, að myndin af
stöðu útgerðarinnar væri vissu-
lega dökk, en þó ekki dekkri en
hann hefði búizt við. Menn yrðu að
gera sér ljóst að aðgerðirnar frá 1.
desember hefðu skert tekjur út-
gerðarinnar. Vandamál yrði
áfram í útgerðinni meðan við
kæmumst ekki út úr verðbólgunni
eins og hún væri nú, en reynt yrði
að koma þessu á viðeigandi
grundvöll fyrir áramót.
Útlán vegna íbúðabygginga
og kaupa hafa aukizt um 45%
Heildarútlán innlánsstofnana hafa aukizt um tæplega 64% í ar:
— Aukning útlána til olíuverzlunar er liðlega
HEILDARÚTLÁN innlánsstofnana
fyrstu tíu mánuði ársins námu 9.987
milljónum króna og höfðu aukizt um
tæplega 64% milli ára, en þau námu
6.095 milljónum króna á sama tíma í
fyrra.
Útlán til fyrirtækja hafa aukizt
um 71,5% milli ára, en fyrstu tíu
mánuðina námu þau 7.309 milljón-
um króna, samanborið við 4.263
milljónir króna á sama tíma í
fyrra.
Útlán til sjávarútvegs hafa auk-
izt um 100% milli ára, en fyrstu
tíu mánuðina námu þau 1.924
milljónum króna á móti 962 millj-
ónum króna á sama tíma í fyrra.
Aukning útlána til landbúnaðar
er hins vegar ekki nema 5,4% á
milli ára, en þau námu 842 millj-
ónum króna fyrstu tíu mánuðina,
samanborið við 800 milljónir
króna á sama tíma í fyrra.
Útlán til verzlunar hafa aukizt
um 88,5% á milli ára, en þau
námu 2.679 milljónum króna á
fyrstu tíu mánuðunum í ár, sam-
anborið við 1.421 milljón króna á
sama tíma í fyrra.
Aukning útlána til olíuverzlun-
ar milli ára er liðlega 213%, en
fyrstu tíu mánuði þessa árs námu
þau 523 milljónum króna, sam-
anborið við 167 milljónir króna á
sama tíma í fyrra, en aukning
þeirra stafar fyrst og fremst af
miklum vanskilaskuldum útgerð-
arinnar, sem olíufélögin verða að
fjármagna.
Útlán til einstaklinga hafa auk-
izt, mun minna en til annarra
þátta, eða um tæplega 52%, en
þau námu um 2.035 milljónum
króna fyrstu tíu mánuði ársins,
samanborið við 1.341 milljón
króna á sama tíma í fyrra. Það
vekur ennfremur athygli, að útlán
til einstaklinga vegna íbúðabygg-
inga, eða kaupa, hafa aðeins auk-
izt um 45,5% milli ára, en þau lán
námu 1.136 milljónum króna
fyrstu tíu mánuði ársins, saman-
borið við 781 milljón króna á sama
tíma í fyrra.