Morgunblaðið - 31.12.1982, Blaðsíða 4
36
INWLEND
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
1.
Formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar lét af formennsku eftir
liðlega 21 ár í ársbyrjun. Hvað heitir
hann?
a) Eðvarð Sigurðsson
b) Gunnar Thoroddsen
c) Kristján Thorlacius
d) Jóhann Hjálmarsson
2.
I'úsundir verkamanna og sjómanna
voru frá vinnu í ársbyrjun vegna
óákveðins fiskverðs. Hversu margir
voru það?
a) 100
b) 13.000
c) 10.000
d) 1.500
3.
I*au „hörmungartíðindi" bárust út á
landinu i ársbyrjun, að súkkulaði-
kexið fræga, Prince Polo, væri upp-
selt. Hvers vegna?
a) Forstjóri verksmiðjunnar fór í
fótabað
b) Vegna verkfalla starfsfólks í
verksmiðjunni
c) Vegna óvissuástandsins í Pól-
landi
d) Innflytjandinn hafði ekki efni
á að leysa sendingu út
4.
Geysir gaus einu stærsta gosi í
marga áratugi í janúarmánuði sl.
Hvers vegna tók sá „gamli" upp á
því aö gjósa svo kröftuglega eftir
langt hlé?
a) Hann var fylltur af grjóti
b) Dínamítsprengja var sett í
hverinn
c) Dýpkuð var rauf í hvernum,
sem hefur verið í honum frá
1935
d) Sápugerðin Frigg sendi vöru-
bílsfarm af grænsápu austur
5.
KK-sextettinn kunni var endurvak-
inn fyrr á árinu. Af hvaða tilefni var
það gert?
a) Vegna 10 ára afmælis Sinfón-
íuhljómsveitar íslands
b) Til að leika fyrir dansi hjá rík-
isstjórninni
c) Vegna 50 ára afmælis FÍH, Fé-
lags íslenzkra hljómlistarmanna
d) Kristján Kristjánsson, stjórn-
andi KK, hélt upp á 30 ára af-
mæli sitt
6.
í febrúarmánuði bárust þær fréttir,
að heimsþekkt fjölskylda hygðist
heimsækja ísland síðar á árinu.
Hvaða fjölskylda var það?
a) Jimmy Carter, fv. forseti
Bandaríkjanna, og fjölskylda
b) Fleksnes og fjölskylda
c) Englandsdrottning og fjöl-
skylda
d) Furstafjölskyldan af Mónakó
7.
Nýr hagsýslustjóri tók við fyrr á ár-
inu af Gísla Blöndal. Sá heitir?
a) Magnús Pétursson
b) Ragnar Arnalds
c) Mikki mús
d) Höskuldur Jónsson
8.
íslenzkur stóll vakti óskipta athygli
á sýningu erlendis fyrr á árinu og
var þegar samið um sölu á miklu
magni. Hvað heitir gripurinn?
a) Bakhjarl
b) Stacco
c) Litla gula hænan
d) Trjámaur
9.
í ár voru liðin 70 ár frá því að merk
hreyfing var stofnuð á íslandi.
a) Kattavinafélagið
b) Samband íslenzkra samvinnu-
félaga
c) Skátahreyfingin
d) Bandalag íslenzkra spörfugla-
vina
10.
A árinu var samþykkt frumvarp á
Alþingi um byggingu kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði. Hversu stór á
verksmiðjan að vera?
a) 200 tonn
b) 10.000 tonn
c) 25.000 tonn
d) 36.000 kíló
11.
Arnarflug keypti fyrr á árinu annað
íslenzkt flugfélag. Hvaða félag var
það?
a) Flugleiðir
b) Iscargó
c) Flugfélag Austurlands
d) Flugfélag Árneshrepps
12.
Slysavarnadeildin Ingólfur átti
merkisafmæli á árinu. Hversu langt
er frá stofnun deildarinnar?
a) 40 ár
b) 3 ár
c) 60 ár
d) 3 mánuðir
13.
Nýtt vistheimili fyrir aldraða við
Snorrabraut var tekið í notkun fyrr á
árinu, en þar er rými fyrir 36 manns.
Hversu margar voru umsóknirnar?
a) 9
b) Á fjórða hundrað
c) 150
d) 3.000
14.
í aprílmánuði birtist frétt um hækk-
un benzins frá ársbyrjun 1978 til
aprílloka. Hver var hækkunin?
a) 35%
b) 13%
c) 916%
d) 1.458%
41.
Óvenjulegt björgunarafrek var unn-
ið við höfnina á Rifi í sumar. Þar var
bjargað:
a) Sjómanni sem féll útbyrðis og
lenti í hákarlatorfu
b) 300 grindhvölum
c) 200 háhyrningum
d) Björgunarsveitinni á staðnum
42.
Eitt sérkennilegra sýningaratriða á
sýningunni Heimilið ’82 var:
a) Maður sem taldi sig vera Súp-
ermann flaug um loftin blá
b) Öldungur sem henti sér logandi
ofan úr mastri og niður í
vatnsker
c) Gunnar Thoroddsen sveif um í
loftbelg
d) Kjarkmennið Eddi þvengur
gekk um á símalínu í 20 metra
hæð
15.
í maímánuði var nýr forseti Slysa-
varnafélags Islands kosinn í stað
Gunnars Friðrikssonar. Hann heit-
ir?
a) Hannes Þ. Hafstein
b) Gunnar Bergsteinsson
c) Vilmundur Gylfason
d) Haraldur Henrýsson
16.
Á árinu var gengið frá uppsetningu
nýs hreinsibúnaðar í álverinu í
Straumsvík. Kostnaður við uppsetn-
inguna var gríðarlega mikill, hversu
mikill?
a) 100 milljónir króna
b) 50 þúsund krónur
c) 3.000 milljónir króna
d) 430 milljónir króna
17.
„Stærstu mistök í skipulagsmálum á
þessari öld.“ Þessi orð hafði Ólafur
B. Thors, fyrrverandi borgarfulltrúi,
um byggð á ákveðnu svæði í Reykja-
vík. Hvaða svæði var það?
a) Laugardalurinn
b) Rauðavatnssvæðið
c) Svæðið við Hestinn
d) Austurvöllur
18.
„Styð auðvitað minn gamla flokk,"
sagði stjórnmálaforingi einn fyrir
síðustu borgarstjórnarkosningar i
Reykjavík. Hver var það?
a) Geir Gunnarsson
b) Gunnar Thoroddsen
c) Ragnar S. Halldórsson
d) Jóhannes Nordal
19.
í maímánuði urðu alþingismenn og
aðrir þeir sem í Alþingishúsinu voru
vitni að hávaðarifrildi á milli nokk-
urra alþýðubandalagsmanna.
Ástæða rimmunnar var:
a) Afgreiðsla máls Steinullar-
verksmiðjunnar í Þorlákshöfn
b) Meðferð Hjörleifs Guttorms-
sonar á álmálinu
c) Grunsemdir um að ólafur
Ragnar hafi afhent Morgun-
blaðinu símanúmer Guðmund-
ar jaka í Luxemborg
d) Hvort nafn Gunnars Thor-
oddsen væri skrifað með tveim-
ur þ-um
20.
Síðla árs varð nokkur hvellur
vegna úrslita í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra. Að prófkjörinu
loknu sagðist Ragnar Arnalds
telja að:
a) Hann hefði kosið í prófkjör-
inu
b) Að ýmsir menn úr öðrum
flokkum en Sjálfstæðisflokkn-
um hefðu kosið í prófkjörinu
c) Páll Pétursson ætti að taka
sæti á listanum
d) Að sauðkindin hefði sigrað í
prófkjörinu
21.
Á miðju sumri undirrituðu fslend-
ingar og Sovétmenn umdeildan
samning um efnahagssamvinnu.
Samningurinn olli miklu fjaðrafoki,
en helsta afleiðing samningsundir-
ritunarinnar var að:
a) Leonid Breznev gaf upp öndina
b) Hætt var við byggingu flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli
c) Eggert Haukdal hætti
stuðningi við ríkisstjórnina
d) Gunnar Thoroddsen gat sof-
ið rólegur
22.
Allar líkur benda til að frægur far-
kostur sé fundinn sandorpinn á
Skeiðarársandi í Vestur-Skafta-
fellssýslu. Hér er um að ræða:
a) Bismarck, hið fræga orrustu-
skip Þjóðverja
b) Hollenska „gullskipið", Het
Wapen Van Ámsterdam
c) Sænska herskipið „Gústaf
Adolf“, sem bar 150 koparfall-
byssur
d) Aflaskipið „Gunnar á Hlíðar-
enda“, sem fórst hér um árið.
23.
Stærsti lax sem veiddist á stöng í
sumar fékkst í Laxá í Aðaldal. Hann
vó:
a) 27 pund
b) 25 pund
c) 13 pund
d) 38 Vfe pund
24.
Mikill titringur varð í sumar vegna
nýstárlegrar útsetningar á íslenska
þjóðsöngnum. Þessi útsetning var
leikin í kvikmyndinni „Okkar á
milli í hita og þunga dagsins" og
þótti ýmsum að þjóðsöngnum væri
ekki sýnd tilhlýðileg virðing. Þjóð-
söngurinn var leikinn á eftirfarandi
hátt:
a) í pönk-útsetningu, leikinn af
Tappa tíkarrassi
b) í jass-útsetningu Guðmundar
Ingólfssonar, spilaður á píanó
c) Hin staðlaða útsetning leikin
afturábak af Sinfóníuhljóm-
sveitinni
d) Leikinn á greiðu, kókflösku og
sög
J