Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983
Iðnaðarráðherr-
ann rangtúlkar
niðurstöðurnar
— segir Geir H. Haarde, stjórn-
armaður í Kísilmálmvinnslunni
„ÞAÐ ER furðuleg bíræfni hjá iðnað-
arráðhcrra áður en skýrsla stjórnar
Kísílmálmvinnslunnar hf. er kynnt al-
þingistnönnum og almenningi, að
reyna að koma því inn hjá landsmönn-
um, að niðurstöður stjórnarinnar séu
aðrar en þær raunverulega eru,“ sagði
Geir H. Haarde, hagfræðingur í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi, en hann á
sæti í stjórn Kísilmálmvinnslunnar.
„í frétt sem iðnaðarráðneytið var
Japanir skoða
Járnblendi-
verksmiðjuna
NÚ ERU staddir hér á landi fulltrúar
frá japönsku fyrirtæki og Elkem, ann-
ars eiganda Járnblendiverksmiðjunnar
á Grundartanga. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins eru japönsku full-
trúarnir hér til að kynna sér verksmiðj-
una með hugsanleg kaup á kísiljárni og
jafnvel kaup á hluta verksmiðjunnar í
huga.
Kannanir þessar eru á frumstigi
og í fyrradag skoðuðu Japanarnir
verksmiðjuna á Grundartanga og
sátu síðan fundi með fulltrúm iðnað-
arráðuneytis og Elkem í Noregi í
gær. Japönsku fulltrúarnir fara utan
í dag.
Fari svo, að japanska fyrirtækið
kaupi hlut í verksmiðjunni, mun það
verða Elkem, sem selja mun af hlut
sínum, eða til kemur aukning hluta-
fjár. Elkem á nú 45% í verksmiðj-
unni, en íslenzka ríkið 55%.
borið fyrir og lesin var í kvöld-
fréttatíma útvarpsins í gær sagði,
að stjórnin legði til að framleiðsla í
fyrirhugaðri Kísilmálmverksmiðju
á Reyðarfirði skyldi hefjast árið
1986. Þetta er ekki rétt. Hins vegar
telur stjórnin að gangsetning 1986
geti komið til greina ef þróun mark-
aðar fyrir kísilmálm verður hag-
stæð. Meirihluti stjórnarinnar bók-
aði þó sérstaklega, að ótímabært sé
að ákveða nú þegar byggingar-
framkvæmdir og gangsetningar-
tíma verksmiðjunnar. Meginniður-
staða stjórnarinnar er að kísil-
málmverksmiðja á Reyðarfirði geti
átt rétt á sér ef markaðsspár rætast
og að það beri að stefna að gang-
setningu á árabilinu 1986—88. En
stjórnin telur jafnframt að fylgjast
verði náið með þróun markaðar
fyrir kísilmálm á næstunni og al-
mennri þróun efnahagsmála í heim-
inum áður en ákvörðun um tíma-
setningu er tekin. Jafnframt beri að
vinna markvisst að því að fá til
samstarfs aðra eignaraðila en ís-
lenzka ríkið og að til greina komi að
hverfa frá lagaákvæði um að ríkið
skuli eiga 51% af fyrritækinu undir
öllum kringumstæðum," sagði Geir.
Geir sagðist gera ráð fyrir því að
skýrsla stjórnar Kísilmálmvinnsl-
unnar verði gerð opinber fljótlega
og rædd á Alþingi innan tíðar. „Eg
furða mig hins vegar á því, að iðnað-
arráðuneytið skuli ganga þannig frá
frétt um skýrsluna, að niðurstöður
séu rangtúlkaðar," sagði Geir H.
Haarde að lokum.
Sjá fréttatilkynningu iAnaðarráöu-
neytisins i miAopnu.
Guðmundur Vig-
fússon er látinn
GUÐMUNDUR Vigfússon fyrrver-
andi borgarfulltrúi í Reykjavík varð
bráðkvaddur i fyrrdag 67 ára að al-
dri. Hann var fæddur að Hrísnesi í
Barðastrandarhreppi 14. september
1915, sonur Vigfúsar Vigfússonar
bónda og konu hans Guðbjargar
Guðmundsdóttur.
Guðmundur var borgarfulltrúi í
Reykjavík í 20 ár, eða frá 1950 til
1970, fyrst fyrir Sósíalistaflokkinn
en síðan Alþýðubandalagið. Þá
gegndi hann fjölmörgum trúnað-
arstöðum. Hann stundaði verka-
mannavinnu og verslunarstörf
1933-1943, var erindreki ASÍ
1943-48. Þá var hann skrifstofu-
stjóri fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík um tíma og
blaðamaður við Þjóðviljann. Hann
varð deildarstjóri við Húsnæðis-
málastofnun ríkisins frá 1970 til
1972 og aftur frá 1974 til dauða-
dags.
Eftirlifandi kona hans er Marta
Kristmundsdóttir. Þess má geta
að í Þjóðviljanum í gær er sagt, frá
andláti Guðmundar og í sama
blaði er birt afmælisgrein eftir
hann um Hannibal Valdimarsson
áttræðan.
Fanney Gunnarsdóttir ásamt syni sín-
um, Birni Levi. „Ég vaknaði þegar rútan
var alveg komin á hliðina og meiddi mig
ekkert," sagði hann. Á leiðinni til
Reykjavíkur valt jeppi, sem Björn litli
Var með. Mynd Mbl. KOE.
Fólk aðstoðað úr
rútunni en það
þurfti að fara upp
um dyr hægra meg-
in til þess að kom-
ast Út. Mynd Kmnney
Fjórir í slysadeild er rúta valt í Kjós:
„Sá hvernig fólkið hrundi úr
sætum sínum er rútan valt“
„VIÐ Útskálahamar, skammt frá
Kiðafelli í Kjós, skall geysiöflug
vindhviða á rútunni. Hún rann í
hálkunni, lenti siðan utan vegar,
skall yfir girðingu og valt. Ég sat
fremst hjá bílstjóranum. f þann
mund sem rútan var að velta, snéri
ég mér við til þess að huga aö syni
mínum, Birni Levi, og þá sá ég fólk-
ið bókstaflega hrynja úr sætum sin-
um og kastast niður þegar rútan fór
á hliðina,“ sagði Fanney Gunnars-
dóttir úr GrundarHrði í samtali við
Mbl., en hún var ásamt Birni Levi
Gunnarssyni, 6 ára gömlum syni
sinum, meöal farþega þegar lang-
ferðabifreið frá Helga Péturssyni
valt í Kjós á ellefta tímanum í
gærmorgun.
Farþegar í bifreiðinni voru 20
og voru fjórir þeirra fluttir í
slysadeild. Meiðsli þeirra reynd-
ust ekki alvarleg, þó brotnuðu
tennur í einum farþega og óttast
var að ungur maður hefði brákast
á fæti.
„Við lögðum upp frá Reykjavík
laust eftir klukkan níu. Þá var
veður skaplegt. í Kollafirði gerði
hins vegar blindbyl og þegar kom
að Tíðaskarði var mikið hvass-
viðri og blindbylur. Það hafði
hlýnað nokkuð og vegurinn því
glerháll. Bílstjórinn ók löturhægt
en þegar að Útskálahamri kom
skall geysiöflug vindhviða á bíln-
um með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Fólk var furðu rólegt eftir
óhappið. Lítið barn var skelkað
og grét hástöfum en það róaðist
fljótlega. Bílstjórinn fór til næsta
bæjar eftir hjálp en fljótlega bar
að mjólkurbíl og bifreiðarstjóri
hans gat gert viðvart um slysið.
Við urðum að bíða í 1 'h klukku-
stund í bílnum þar til hjálp loks
barst. Rúta kom að sækja okkur
farþegana en sjúkrabíll komst
ekki lengra en að Tíðaskarði til
þess að sækja slasaða farþega,"
sagði Fanney Gunnarsdóttir.
Björn litli stóð sig eins og hetja
og var ekkert hræddur. „Ég vakn-
aði þegar rútan var alveg komin á
hliðina og meiddi mig ekkert,"
sagði hann í samtali við blaða-
mann. Björn litli hefur mátt
ganga í gegn um ýmislegt til þess
að komast með móður sinni til
Grundarfjarðar. Hann lagði upp
frá Blesastöðum á Skeiðum,
heimili föður síns, til Reykjavík-
ur. Sú ferð gekk ekki þrautalaust
fyrir sig í ófærðinni — jeppinn
valt á leiðinni til Reykjavíkur,
auk þess sem hann festist illa tví-
vegis. En það sem er fyrir mestu,
Björn litla hefur ekki sakað, og
engan bilbug eða ótta var að
finna hjá honum þrátt fyrir
óhöppin.
Afurðalánin með um 24% neikvæða vexti á síðasta ári:
Verðbólgugróði lántakenda
hátt í 500 milljónir króna
VERÐBÓLGUGRÓÐI lántakenda af
endurkaupakcrfinu nam 430 milljón-
um króna á siðasta ári. Er þá ekki
tekið tillit til neikvæðra vaxta af við-
bótarlánunum svonefndu, sem
viðskiptabankarnir veita sjálfir í
ákveðnum hlutföllum við endurkaupa-
lánin, sagði Ragnar Önundarson,
aðstoðarbankastjóri Iðnaðarbanka ís-
lands, i erindi sem hann flutti á ráð-
stefu Verzlunarráðs íslands um iána-
markaðinn og þjónustu lánastofnana
við atvinnulifið í gærdag.
Ragnar Önundarson sagði, að að
meðaltali hafi endurkaupalánin, eða
forréttindalánin, eins og hann
nefndi þau, numið um 1.800 milljón-
um króna á árinu 1982. „Aðeins voru
reiknaðir 29% vextir af þessum lán-
um á árinu. Vegna verðbólgunnar
má ætla, að neikvæðir raunvextir af
þessum lánum hafi verið u.þ.b. 24%
á árinu," sagði Ragnar önundarson.
„Það er sannfæring mín, að af-
urðalánakerfið sé orðið að alvarlegu
vandamáli, það sé hemill á efna-
hagsþróun landsins," sagði Ragnar
önundarson, aðstoðarbankastjóri
Iðnaðarbanka íslands ennfremur.
Athuganir styrkja tilvist Valla víðförla
ALLAR kannanir á uppruna rost-
ungsins á Rifi hafa styrkt þá kenn-
ingu að þarna sé Valli víöforli á
ferðinni. Sólmundur Einarsson
riskifræðingur kannaði i gær mögu-
leikana á þvi að rostungurinn væri
sá hinn sami og kom á fjörur Norö-
manna í lok septembermánaðar sl.
og skotið var á vegna deilna
norskra visindamanna um ásig-
komulag hans. Sá rostungur forðaði
sér eftir að skotið var á hann og
ekkert er vitað um afdrif hans.
Samkvæmt upplýsingum frá
Noregi hafði hann stórt og ljótt
ör á hausnum, sem náði frá ofan
við vinstra auga og niður á nasir,
en rostungurinn á Rifi er með
sléttan og felldan haus. Það eina
sem hrjáir hann er tannleysið
hægra megin, eins og Valla víð-
förla.
Upplýsingar hafa streymt inn
um rostunga sem sézt hafa við
landið allt frá því fyrir aldamót.
Er tala þeirra orðin allt upp í 15
til 20, en flestra hefur orðið vart
á Vestfjörðum, Norðurlandi,
Austurlandi og eitthvað á Suður-
landi, en talið er að þeir sem
sáust þar hafi komið austan meg-
in að. Engar ábendingar hafa
borist um rostunga á Breiðafirði
eða við Rif. Síðast varð vart við
rostung í Steingrímsfirði kulda-
árið 1971. Sá rostungur var dauð-
ur þegar hann fannst.
Sólmundur sagði í gær, að
hann styrktist í þeirri trú að
rostungurinn væri kominn frá
Eins og ijá má er ekkert gtórt og Ijótt ör
i þemim eine og vsr i þeim norska.
Tannleysið hægra megin virAist vera
það eina sem háir honura eins og Valla
viðförla. Ljósm. Mbl. RAX.
Grænlandshöfum. Hann sagði
einnig að þar sem Valli hefði ver-
ið við Bretland, þegar hann var
tekinn á land til flutnings norður
á bóginn, væri alls ekki ólíklegt
að hann leitaði á ný í suður. Þá
væri einn hlekkurinn enn til
styrktar, en það væri hræðslu-
leysi hans gagnvart nærveru
manna.
Sæmundur Kristjánsson vigt-
armaður á Rifi sagði í viðtali við
Mbl. í gærkvöldi að vegna mikils
óveðurs hefði hann ekki séð sér
fært að lita til rostungsins í gær,
en hann myndi láta verða af því í
dag, ef veður leyfði. Hann kvað
litla hættu á því að rostungurinn
færi úr höfninni, þar hefði hann
ákjósanlegt skjól og næga fæðu.
Árni Árnason, framkvæmdastjóri
Verzlunarráðs íslands, fjallaði
ennfremur um verðbólgugróða lán-
takenda afurðalána og sagði: „Á ár-
inu 1982 nam verðbólguhagnaður
lántakenda afurðalána samtals 488
milljónum króna, miðað við láns-
kjaravísitölu, og skiptist þannig, að
105.2 milljónir fóru til landbúnaðar,
299.2 milljónir til sjávarútvegs, 80,0
milljónir til iðnaðar og 3,5 milljónir
til annarra. Þótt hér kunni að
skakka nokkru, er ljóst að afurða-
lánin fela í sér gífurlega millifærslu
fjár í bankakerfinu".
Þá fjallaði Tryggvi Pálsson, hag-
fræðingur Landsbanka íslands, lítil-
lega um afurðalánakerfið og sagði
verðbólgugróðann eflaust vera mun
meiri en beinar tölur gæfu til kynna,
ef miðað væri við að afurðirnar
hefðu selzt, þar sem dollarinn hefði
hækkað um 103% í verði á síðasta
ári, sem væri mun meira en vísi-
töluhækkanir.