Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 I STUTTU MALI: Ákærðir fyrir stórþjófnað New York, 13. janúar. AF. I>RÍR yfirmenn flutningafyrir- Uekisins þar sem rænt var 11 milljónum dollara í síðastliðnum mánuði, voru í dag ákærðir fyrir 100.000 dollara þjófnað hver, samkvæmt upplýsingum lög manns fyrirtækisins. Þeir eru ekki grunaðir um aðild að ráninu mikla, en eins og lögmaðurinn sagði: „Það er ekki hægt að útiloka neinn fyrr en hinar ellefu milljónir doll ara eru fundnar." Rannsókn á málum þessum stendur yfir. Tveggja mánaða fangelsi fyrir að berja Best Lundúnum, 13. janúar. AP. MAÐUR nokkur var i dag fund- inn sekur ura aö hafa slegið fót boltakappann George Best í höf- uðið með bjórglasi og var hann dæmdur í tveggja mánaða fang elsi fyrir vikið. Sean Murphy, sem er 49 ára gamall, viðurkenndi fyrir rétti að hafa veitt Best höggið, en kvaðst ætla að áfrýja dómi þessum til æðri yfirvalda. Best hlaut tvö sár við höggið og þurfti að eyða nótt í slysa- varðstofunni þar sem gert var að sárum hans. Bólivía: Fimmtíu bændur létust í bílslysi La Paz, Kólivíu, 13. janúar. AP. VAGN með bændum og upp- skeru innanborðs rann út af fjallvegi i mikilli rigningu í gær með þeim afleiðingum að fimm- tíu bændur af fimmtiu og sjö í béraðinu Epizana létu lífið, sam- kvæmt upplýsingum lögreglunn- ar í dag. Lögreglan vissi ekkert um slysið fyrr en u.þ.b. fjórum klukkustundum eftir að það átti sér stað, en þá keyrðu ferðamenn fram á þá sjö bændur sem komust lífs af úr slysinu. Unnið er að rannsókn slyss- ins. Mozambique: Hörmungar vegna langvarandi þurrka Mapuio, Mozambique, 13. janúar. AP. GÍFURLEGIR þurrkar í Mið- og Suður-Mozambique ógna nú líf- um meira en fjögurra milljóna manna og aðeins alþjóðleg hjálp svo fljótt sem auðið er getur komið i veg fyrir þessar miklu hörmungar, segir í tilkynningu innanríkisráðherra landsins í dag. Hann sagði á fundi með stjórnarerindrekum í dag, að búfénaður væri þegar farinn að falla vegna þurrkanna og sagði ástandið fara hríðversn- andi. Einnig mun þurrkurinn hafa eyðilagt meira en 100.000 tonn af korni. Eftirmaður Rostons: Sammála Reagan um að möguleik- ar séu á árangursríkum viðræðum Washinglon, SI», Moskvu, 13. janúar. AP. KENNETH Adelman sem Regan Bandaríkjaforseti hefur skipað aðalsamn- ingamann Bandaríkjanna í afvopnunarviðræðunum í Genf sagði í dag að hann væri sammála forseta sinum í þvi að nú væru fyrir hendi möguleikar á árangursríkum samningaviðræðum við fulltrúa Sovétríkjanna. Adelman kvaðst stoltur yfir því trausti sem sér væri með þessu sýnt. Staðfesting öldungardeildarinnar á útnefningu hans liggur enn ekki fyrir. Adelman er sagður hörkutól hið mesta og hafa mjög neikvæða afstöðu til Sovétríkjanna. Voru skiptar skoðanir um útnefningu hans vegna þessa. Eugene Roston hefur gengt þessum starfa sl. 20 mánuði. Gabb sagði af sér starfi í gær, miðviku- dag. Hann er 69 ára að aldri og mun nú snúa sér aftur að kennslu við Yaleháskóla. Roston hefur sætt gagnrýni íhaldssinnaðra öld- ungardeildarþingmanna repúblik- ana og einn helzti aðstoðarmaður hans, Robert Grey, var látinn víkja úr starfi nýlega. Roston brást þá hinn versti við og sakaði þingmennina um óviðfelldin af- skipti af störfum sendinefndar- innar og sakaði þá um vanþekk- ingu og fordóma. I bréfi Rostons þar sem hann tilkynnir afsögn sína, og birt var í gær, segir, að hann hafi verið svo lánsamur að hafa verið í fyrir- svari Bandaríkjanna í þessum við- ræðum síðustu 20 mánuði. Síðustu daga hafi það orðið ljóst, að Reag- an forseti hafi óskað eftir breyt- ingum, og sem svar við því hafi hann afhent afsagnarbreiðni sína. Eftir að Robert Grey var látinn víkja á dögunum, neitaði Roston því að hann myndi fylgja í fótspor hans. Hann sagðist hafa áhyggjur af því, að deila um skipan sendi- nefndarinnar myndi skaða samn- ingaviðræður Bandaríkjamanna og Sovétmanna sem eiga að hefj- ast í Genf í febrúar. Roston lét sér fátt um finnast þegar Sovétmenn lögðu fram tillögu skömmu fyrir jól um að bæði Bandaríkin og Sov- Úrskurðar dómstóls beðið Réttarhöld yfir 740 Tyrkjum, sem sakaðir eru um að vera meðlimir í mamskum hryðjuverkasamtökum hófust í Istanbul á miðvikudag. Dauðadóms hefur verið krafist yfir 260 þeirra. Myndin sýnir hópinn vð réttarhöldin. Fjöldaréttarhöld yfir tyrkneskum kommúnistum Ankara, 13. janúar. AP. RETTARHÖLD hófust yfir rösk- lega sjö hundruð mönnum, sem eru grunaðir um að hafa verið fé- lagar í marxiskum hryðjuverka- hópi og hefur saksóknari krafizt dauðadóms yfir 260 þessara manna. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa haft á prjónunum valdarán, morð á a.m.k. 90 pólitískum and- stæðingum, ótal morðtilræði, sprengjuatlögur, mannrán o.fl. Forystumenn hins meinta áform- aða samsæris eru sagðir vera Fikri Nonmez og Dev Yol. Farið er fram á að þeir veröi báðir dæmdir til lífláts. Krafizt er fangelsisdóma frá fimm árum til lífstíðarvistar yf- ir um 480 sakborninga. Talið er að réttarhöld þessi geti staðið yfir í rúmlega ár. Tengsl milli brottvísunar Chernovs og stroks KGB- mannsins til Bretlands? I>ondon, 13. janúar. AP. BREZKA BLAÐIÐ Guardian segir frá því í dag að brottvísun Vladimir Chernovs, sovésks starfsmanns alþjóða hveitiráðsins, kunni að vera í tengsl- um við flótta Vladimir Kuzichkins til Bretlands. Kuzichkin var háttsettur KGB-maður, eins og fram hefur komið í fréttum og leiðir Guard- ian getum að því að hann hafi gef- ið íhygliverðar upplýsingar um ýmsa sovézka starfsmenn í Bret- landi. Guardian minnir á að brezka leyniþjónustan álíti að strok Kuzichkins, sem kom til London frá Teheran í október, sé einhver mesti „hvalreki" á fjörur brezku leyniþjónustunnar fyrr og étríkin drægju úr vopnabúnaði sem þau réðu yfir í Evrópu. Sagði hann að tillagan hefði valdið sér miklum vonbrigðum. Þó svo að Roston hafi þótt skeleggur mál- síðar. Kuzichkin var aðstoðarræð- ismaður við sovézka sendiráðið í Teheran. Það hefur vakið tals- verða athygli að eftir komu hans til Bretlands, hefur fjölmörgum Sovétmönnum verið vísað úr landi vegna starfa sem samræmast ekki stöðu þeirra, og er þar jafnan átt við að viðkomandi hafi stundað njósnir eða undirróðursstarfsemi. svari Bandaríkjamanna á viðræðufundunum hefur hann alltaf öðru hverju sætt gagnrýni. Einkum hefur hún komið frá þekktum íhaldsmönnum. TASS-fréttastofan sagði frá af- sögn Rostons í morgun og sagði að hún gæfi vísbendingu um „alvar- legan skoðanaágreining" innan Reagan-stjórnarinnar og hefðu erkiíhaldsöfl í Bandaríkjunum sem gætu ekki hugsað sér neina samninga við Sovétríkin, hvorki í bráð né lengd, þrýst svo að Rost- ön, að hann hefði orðið að segja af sér. írland: Ellefu franskra sjómanna saknað Wexford, írlandi, 13. janúar. AP. ÍRSKAR óg breskar flugvélar gerðu í dag áframhaldandi leit að ellefu manna áhöfn fransks togara, sem sökk undan ströndum Suðaustur- írlands í gær i miklu óveðri sem þar geisaði. Leitað var við slæm skilyrði í gær og nótt og talsmaður leitar- sveitanna sagði í dag „vonlítið“ að finna nokkurn á lífi. ERLENT Veður víöa um heim Akureyri -1 % I Amsterdam 6 skýjaó Aþena 14 heióskirt Barcelona 13 Skýjaó Berlín 6 skýjaö BrUssel 6 skýjaó Chicago 0 skýjað Dublin 8 rigning Feneyjar -0 hrímþoka Franklurt 3 skýjaó Færeyjar -0 snjóél Genf 1 heiðskírt Helsinki 5 skýjaó Hong Kong 14 skýjað Jerúsalem 12 heióskirt Jóhannesarborg 33 skýjaó Kaupmannahöfn 7 skýjaó Kairó 16 skýjað Las Palmas 19 mistur Líssabon 12 heióskírt London 6 skýjaó Los Angeles 28 heiöskirt Madrid 8 heióskírt Mallorca 14 skýjað Malaga 11 hálfskýjaó Miami 23 heióskirt Moskva 0 skýjaó Nýja Delhí 18 heióskírt New York 6 heiðskirt Ósló 6 rigning París 8 rigning Peking 2 heióskírt Perth 30 heióskírt Reykjavík 1 slydda Rio de Janeiro 36 skýjað Róm 7 heióskírt San Francísco 11 heióskírt Stokkhólmur 4 skýjaó Sydney 23 heiöskírt Tókýó 11 heiöskírt Vancouver 9 skýjaó Vín llrigning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.