Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 11 Himmel og helvede , eftir Kirsten Thorup 91,7% gjalda inn- heimtust á Akureyri Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Himmel og helvede, eftir Kirst- en Thorup, tveggja binda skáld- verk sem kom út í Danmörku skömmu fyrir síðustu jól, hefur verið þar mjög umrætt, mikið les- ið og gagnrýnendur hafa lokið á verkið lofsorði og talið þetta meiri háttar bókmenntaviðburð. Það er sjáifsagt vel hægt að fallast á margt gott um þetta verk, þó svo að uppbygging sögunnar sé alllos- araleg á stundum og höfundur víki einnig allskringilega frá sögu- þræðinum langtímum saman, þeg- ar honum dettur í hug að gera skil persónum, sem fyrir tilviljun skjóta upp kollinum. Engu að síður heldur þessi langa saga athygli manns frá upp- hafi til enda. Það er ærið afrek út af fyrir sig. Og hún er áleitin, skemmtileg og vitsmunaleg. Kalla mætti hana meðvitaða, ef það væri ekki ofbrúkaður frasi. Erfitt er að rekja söguþráðinn, svo að gagn sé að. En kannski mætti byrja á að segja frá fröken Agnete Andersen, enda hefst sag- an á henni og til að byrja með lítur út fyrir, að hún verði burðar- ás bókarinnar. Frk. Andersen hef- ur starfað á læknastofu, en nú verður hún að hætta sakir þess að læknirinn er orðinn aldurhniginn og hættir störfum. Það kippir stoðum undan tilveru hennar, en hún kemst þá í kynni við útlend hjón, Jasmin, sem er rugluð eða gædd spádómshæfileikum, nema hvort tveggja sé, svo og Bols, mað- ur hennar, hvimleiður maður með afbrigðum. Þau skjóta yfir hana skjólshúsi um hríð og verður sam- band hennar við þau afdrifaríkt þeim öllum. Síðan fer eins og í ævintýrunum, frk. Andersen erfir stóreignir eftir lækninn. Er hún nú úr sögunni í bili — og reyndar býsna lengi. Er þá tekið til við hjónin Bols og Jasmin en síðan Maria dóttir þeirra í sviðsljósinu og það er hún sem er höfuðper- sóna bókarinnar og sú sem öllu máli skiptir. Hún hefur verið neydd til að hefja nám í fiðluleik, barn að aldri, og líklega aldrei átt neina æsku. Hún gerir síðan upp- reisn gegn umhverfi sínu með því að flytja til Jonnis, hann er þjónn að atvinnu og hneigist til karla, en hefur þörf fyrir að vera með kon- um og sýna getu sína þar líka. Upphefst þá samband þeirra, sem er fjölskrúðugt og inn á milli öld- ungis frábærar lýsingar hvað stemningu og persónur snertir. Maria hættir fiðlunáminu, lifir fyrir Jonni, en vitanlega fær það ekki staðizt. Sambandið fyllir hana æ meiri örvæntingu, loks flýr hún til vinkonu sinnar í Wal- es, lendir þar á LSD-trippi, og munar engu að hún bíði af því var- aniegt tjón. Fer heim og hefur þá fyrir skömmu aftur komið til sög- unnar frk. Andersen, sem hefur varið auðæfum sínum í að kaupa hús á Vesterbro og rekur þar hóruhús af hinum mesta skör- ungsskap. Þegar Maria er komin heim hefur hún áttað sig á því að lífið er að renna henni úr greipum og hún er komin að krossgötum í lífu sínu. Hún ákveður að fara aft- Kirsten Thorup ur í tónlistarnám, giftist leigubíl- stjóranum John og það virðist ætla að lánast bara þokkalega. Margs mætti spyrja að loknum lestri þessarar sögu. Mér skilst t.d. að Kirsten Thorup hafi áður skrif- að sams konar verk um stúlkuna Jonnu og hún sé sögumaður þess- arar bókar og John bróðir hennar. Sögumaður og hlutverk hans er gersamlega út í bláinn í þessu verki og skiptir ekki minnsta máli. Spyrja mætti á hvaða bókmennta- hefð Kirsten Thorup byggi. Við því er kannski ekkert svar og kannski mörg. Melódrama eins og hjá Bronté-systrum, hörkulegar lýsingar á pólitísku ofbeldi og valdbeitingu lögreglunnar, und- arlegar uppákomur í anda Balzac, langanir og draumar eins og í af- þreyingabókum. Svona mætti lengi telja. Höf- undur brýtur eiginlega öll lögmál skáldsögunnar. Og stendur þó eft- ir með pálmann í höndum. Það er einhver sérstæður galdur sem Kirsten Thorup hefur á valdi sínu og er ekki allra. Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar 6. janúar sl. gerði bæjarritari grein fyrir innheimtu bæjar- gjalda á árinu 1982. Samtals voru t,'l innheimtu að meðtöld- um dráttarvöxtum kr. YKIRNEFND Verölagsráðs sjávarút- vegsins ákvaö á fundi sl. miðvikudag eftirfarandi lágmarksverð á rækju frá I. janúar til 28. febrúar 1983. Kækja, nskelflett í vinnsluhæfu ástandi: a) 160 stk. í kg eða færri í kg, hvert kg .................. kr. 13,44 b) 161 til 180 stk. í kg, hvert kg .................. kr. 11,71 c) 181 til 200 stk. í kg, hvert kg ................. kr. 10,84 d) 201 til 220 stk í kg, hvert kg .................. kr. 10,46 e) 221 til 240 stk. í kg, hvert kg .................. kr. 9,38 f) 241 til 260 stk. í kg, hvert kg .................. kr. 8,54 g) 261 til 350 stk. í kg, hvertkg .................... kr. ,71 h) 351 stk og fleiri í kg, hvert kg.....'............. kr. 4,20 Afhendingarskilmálar eru óbreytt- ir. Hækkunin nemur að meðaltali 28,1% miðað við aflasamsetningu janúar—apríl 1982. Verðið var ákveðið af oddamanni og fulltrúum seljenda í nefndinni gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. I yfirnefndinni áttu sæti: Bolli Þór Bollason, oddamaður, Ágúst Einars- 146.957.612.-, þar af innheimt- ust kr. 134.772.153.- eða 91,7%. Af útsvörum og aðstöðugjöld- um innheimtust 92,2% af fast- eignagjöldum 96,3% og af dráttarvöxtum 63,5%. son og Ingólfur Stefánsson voru full- trúar seljenda, Árni Benediktsson og Marías Þ. Guðmundsson fulltrúar kaupenda. Skýring- ar gefnar út við Tarot- spilin KOMINN er út skýringabæklingur „Tarot á Vatnsberaöld", sem Edda Geirsdóttir hefur tekið saman. Þar er að finna hagnýtar upplýsingar um lagnir og lestur Tarot-spilanna, þar sem skýrt er með máli og myndum, hvernig á að leggja Tarot-spilin og túlka síðan, þau sem upp koma. Er hvert spil útskýrt fyrir sig og síðan hvernig lesa megi úr hverri „lögn“ fyrir sig. Tarot-spilin eru 78 og þau eru skreytt með myndum og táknum. Spilunum er skipt í tvo hluta, Major og Minor Arcana. Fyrstu 22 spilin í Tarot eru kölluð Major Arcana og bera þau táknrænar myndir af þjóð- og goðsagna- persónum, en nöfnin eru oft tengd trúarbrögðum og dulvísindum. Næstu 56 spil, Minor Arcana, skiptast svo í fjórar mismunandi gerðir. Eitt Tarot-spil er ónúmer- að, Fíflið, og er það haft með í nútímaspilastokknum. Útgefandi „Tarot á Vatnsbera- öld“ er Kiljuforlagið. Kammertónleikar Tónlist Egill Friöleifsson Bústaðakirkja 12. janúar 1983. Flytjendur: Guðný Guðmundsdótt- ir, Mark Reedman ásamt 6 nem- endum úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Verkefni eftir W.A. Mozart, A. Dvorák, R. Strauss og G.F. Hánd- el. Aðrir tónleikar Kammermús- íkklúbbsins á þessu starfsári fóru fram í Bústaðakirkju sl. miðvikudagskvöld. Flytjendur voru Guðný Guðmundsdóttir, Mark Reedman ásamt 6 nemend- um Tónlistarskólans í Reykja- vík, en þeir voru fiðluleikararnir Auður Hafsteinsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigurlaug Eð- valdsdóttir, Guðrún Þórarins- dóttir er lék á víólu og sellóleik- ararnir Bryndís Halla Gylfa- dóttir og Bryndís Björgvinsdótt- ir. Þau Guðný og Mark hafa unn- ið frábært starf sem uppalendur fiðlunga við Tónlistarskólann í Reykjavík á undanförnum árum. Strengjasveit skólans leikur nú með áður óþekktum ágætum, þegar talað er um nemenda- hljómsveit, og ber kennurum sínum fagurt vitni. Tónleikarnir hófust á Dúói fyrir fiðlu og víólu k. 423 eftir Mozart er þau Guðný og Mark léku. Þetta er fallegt verk og fínlegt. Því færri sem raddirnar eru, því gegnsærra er verkið og viðkvæmara fyrir minnstu hnökrum. Þau Guðný og Mark léku verkið með öryggi atvinnu- mannsins, en tæpast af þeim léttleika og mýkt, sem fer Moz- art svo vel. Áreiðanlega er ekki auðvelt að hefja tónleika með jafn krefjandi tónsmíð, a.m.k. tókst þeim mun betur upp í verkinu er var síðast á efnis- skránni og var einnig eftir Moz- art, nefnilega Strengjakvintett í g-moll k. 516. Antonin Dvorák var næstur í röðinni með Terzetto fyrir tvær fiðlur og víólu í C-dúr op. 74. Til liðs við þau Guðnýju og Mark kom nú Garðbæingurinn snjalli Sigrún Eðvaldsdóttir og lék á 1. púlti. Sigrún hefur hlotið mikið og verðskuldað lof fyrir leik sinn að undanförnu og mikið ansi lék hún vel í þessu rómantíska verki. Tónn hennar er óvenju fagur, tækni góð og túlkun ótrúlega innihaldsrík, þegar haft er í huga hve ung hún er. Sigrún er vissulega ein þeirra, sem guðirn- ir elska. Vonandi tekst henni sem best að þroska þá hæfileika, sem forsjónin hefur gætt hana í óvenju ríkum mæli. Næst mátti heyra strengja- sextett, forleikinn að óperunni „Capriccio" eftir R. Strauss, vel skrifað verk og áheyrilegt. Nem- endurnir nutu sín vel við hlið meistara sinna, þó nokkuð hall- aði á sellóin á stundum, sem hefðu mátt svara ákefð fiðiung- anna með meiri snerpu. Að hléi loknu léku þau Guðný og Mark Passacagliu í g-moll eftir G.F. Hándel, sem sótt er í svítu nr. 7 fyrir sembal, en um- rituð fyrir fiðlu og víólu af Jo- han Halvorsen. Ekki er ég sannfærður um að þessi um- breyting Passacagliunnar sé til bóta nema síður sé. Þó er for- vitnilegt að heyra þennan vel þekkta þátt í öðrum klæðum. Tónleikunum lauk svo sem fyrr segir með Strengjakvintett K.. 516 eftir Mozart og var þar margt vel gert, ekki síst þriðji kaflinn er ber yfirskriftina Adagio ma non troppo. Nemend- urnir stóðu sig allir vel á þessum konsert. Það eykur bjartsýni og trú á tónmenntir framtíðarinnar að heyra ungt hæfileikafólk leika af jafn mikilli reisn. Von- andi eiga þessar dugnaðarstelp- ur eftir að fara út á akurinn og breiða út' meðal landa vorra leyndardóma listarinnar. Kannske rætist gamla óskin er Hallgrímur Helgason setti einu sinni fram að mig minnir, nefni- lega „fiðla í hvern fjörð“. Lágmarksverð á rækju hækkar að meðaltali um 28% færð þú allt sem allt annað sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.