Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.01.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 13 Hann er bara ekki fyrir hendi hjá valdhöfunum við Austurvöll. „Á sjálfan þig er hrís“ Einkennilegt fólk þessir íslend- ingar. Þeir virðast vilja láta berja sig og kúga. Ef að þeir hafa ekki Dani til þess, þá gera þeir það sjálfir. Nú er fiskurinn á undan- haldi og með honum öll verðmæta- sköpun, en rándýrum aflaskipum fjölgar ört í veiðileysunni. Fall- vötnin renna óbeizluð til sjávar vegna hins stjórnmálalega glundroða. Stórkostlegar vatns- orkuvirkjanir rísa nú í 3. heimin- um og laða til sín erlenda sam- starfsaðila, meðan tiltrú heimsins á okkur þverr vegna kotamennsku okkar, sem birtist hvað dæmigerð- ust í hegðun Hjörleifs gagnvart Alusuisse og hefur kostað okkur mörg mill. Kannske erum við að missa af vagninum í stóriðju- málum fyrir alla vitleysuna. Svar okkar við versnandi lífs- kjörum er dæmigert: Við lækkum fyrst kaupið, fjölgum svo frídög- um, greiðum þar næst út lág- launabætur og setjum um leið sem flest okkar fyrirtæki í þrot með rangri verðlagningu í „félagsleg- um tilgangi". Svo þegar dæmið gengur ekki lengur upp, þá bjarga snillingarnir í Arnarhvoli í horn með því að hækka fiskverð og stöðva gengisskráninguna með ábúðarmiklu fasi og kliðmjúkum ræðum. Allir vita hvað það þýðir núorðið: þrengingar fyrir mig og þig- Það er eins og við vitum ekkert unaðslegra en að velta okkur upp úr skorti og kreppu, „baráttu gegn verðbólgu", byggðastefnu, ríkis- rekstri og hverskyns mismunun. Hvaða máttarvöld skyldu til dæm- is ákveða að í ríkismötuneytunum til dæmis éta menn án söluskatts (auk þess niðurgreitt), meðan þeir sem kaupa tilbúinn mat greiða söluskatt? Eru þeir sem sölu- skattslögunum framfylgja að túlka þau í þessu tilfelli á þennan hátt, af því að það kemur þeim sjálfum til góða? Já, rífðu hrís á sjálfan þig íslendingur og þú munt verða sæll. Hvar eru nú prófkjörsskríbent- ar Sjálfstæðisflokksins sem hæst létu nýverið? Ætli þeir séu bæði búnir með blekið og andagiftina þegar sætin liggja fyrir? Persónu- legir möguleikar á kjöri þýð- ingarmeiri en málefnin? Er kannske gjaldþrot félagshyggju-, niðurtalningar- og fastgengis- stjórnarinnar nú á þessum ára- mótum ekki tilefni til umhugsun- ar? Eða erum við bara öll blind? Og meira að segja sama? 4.1. 1983. Vottum þingmönn- um okkar traust - eftir Gísla Jónsson, menntaskólakennara Hvort sem okkur líkar betur eða verr, stöndum við, Sjálfstæðis- menn í Norðurlandskjördæmi eystra, í fyrsta sinni frammi fyrir þeim vanda að velja okkur fram- bjóðendur til alþingis í prófkjöri. Um kosti og galla fyrirbærisins prófkjör ætla ég ekki að ræða hér að ráði, en augljóst er að prófkjör eru nú orðin svo mikilvægt stjórn- tæki, að ekki væri óeðlilegt að lagasetning kæmi til um fram- kvæmd þeirra. Mjög verulegur hluti þeirra alþingismanna, er nú sitja, var í raun valinn fyrirfram við prófkjör, áður en til síðustu alþing- iskosninga kom. Æskilegast væri, að mínum dómi, að prófkjör færu fram samtímis hjá öllum aðilum á sama prófkjörssvæði, þannig að þau yrðu alveg leynileg eins og að- alkosningar og hver maður gæti aðeins tekið þátt í prófkjöri eins framboðsaðila. En hverfum frá þessum hugleið- ingum og að því sem framundan er. Kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins á Norðurlandi eystra hefur með drjúgum meirihluta ákveðið að prófkjörið skuli fara fram. Það hefur ákveðið að öllum, sem telja sig stuðningsmenn flokksins, sé gefið tækifæri til þess að vera með. Ef menn eru ekki þegar í einhverju flokksfé- lagi, geta þeir gengið í það til loka kjördags, og ef þeir vilja það ekki, þá látið skrá sig á prófkjörsskrá til 19. þessa mánaðar, og undirrit- að þar með yfirlýsingu um stuðn- ing við flokkinn. Vonandi er að sem flestir stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins sæki prófkjörið, svo að mark verði á úrslitunum takandi. Ef þátttak- an verður góð og úrslit ótvíræð, eru þau reyndar bindandi fyrir kjörnefnd og verður ekki haggað af kjördæmisráði, nema þá með samkomulagi þeirra sem boðið hafa sig fram. Það er fagnaðarefni, að sjö manndómsmenn á góðum aldri hafa gefið kost á sér í prófkjörinu. Hitt er minna fagnaðarefni, að þeir eru allir karlkyns. Er hér Bridge Arnór Ragnarsson Bridgefélag Akureyrar Sl. þriðjudag var spiluð næst- síðasta umferðin í Akureyrar- mótinu í sveitakeppni og fóru leikar sem hér segir í A-riðli: Stefán Ragnarsson — Júlíus Thorarensen 12-8 Páll Pálsson — Jón Stefánsson 12-8 Hörður Steinbergsson — Ferðaskrifstofa Akureyrarl3—7 Staðan í A-riðli: Júlíus Thorarensen 51 Stefán Ragnarsson 48 Páll Pálsson 46 Jón Stefánsson 46 Hörður Steinbergsson 36 Ferðaskrifstofa Akureyrar 13 I síðustu umferð spila saman: Stefán gegn Herði, Július gegn Jóni og Páll gegn Ferðaskrifstof- unni. Staðan í B-riðli: Halldór Gestsson 55 Anton Haraldsson 53 Stefán Vilhjálmsson 46 Staðan í Oriðli: Kári Gíslason 67 Eiríkur Jónsson 57 Una Sveinsdóttir 37 nk. þriðjudag 18. janúar í Fé- lagsborg og hefst kl. 20. Bridgefélag Breiðholts Sl. miðvikudag var spilaður eins kvölds tvímenningur og var spilað í einum 8 para riðli. Urslit: Leifur Karlsson — Axel Lárusson 78 Kjartan Kristófersson — Helgi Skúlason 69 Baldur Bjartmarsson — Bjarni Ásmundsson 68 Guðmundur Grétarsson — Stefán Jónsson 68 Á þriðjudag hefst aðalsveita- keppni félagsins og eru félagar beðnir að mæta tímanlega til skráningar. Spilað er í húsi Kjöts og fisks í Seljahverfi. Keppnisstjóri er Hermann Lárusson. Urslitaumferðin verður spiluð „Mér er efst í huga að ráða öllum stuðningsmönnum flokksins til þátttöku og hvetja þá til þess að skipa þeim, sem í fylkingarbrjósti hafa verið, til forystu á ný. Þingmenn okkar hafa sýnt það með störfum sínum á al- þingi, með störfum sínum fyrir okkur hvert og eitt og með persónulegri viðkynn- ingu, að þeir eru traustsins verðir.“ augljós einn af annmörkum prófkjörs, en hann er sá, hversu hlutur kvenna vill verða rýr, þegar framboðslistar eru settir saman á grundvelli þess. En hvað um það. Mestu skiptir auðvitað að maður- inn sé gott þingmannsefni, hvort sem hann er karl eða kona. Ánægjulegt er það hverjum stjórnmálaflokki, þegar vaskir menn og vel menntir sækjast eftir að gera þjóðinni gagn í anda hans og innan hans vébanda. Því má Sjálfstæðisflokkurinn í Norður- landskjördæmi eystra fagna framboðum sjömenninganna sem allir eru hæfir og kunnir af góðum verkum sínum og mannkostum. Við eigum því kost þess að búa til sterkan og sigurstranglegan lista. Mér er efst í huga að ráða öllum stuðningsmönnum flokksins til þátttöku og hvetja þá til þess að skipa þeim, sem í fylkingarbrjósti hafa verið, til forystu á ný. Þing- menn okkar hafa sýnt það með störfum sínum á alþingi, með störfum sínum fyrir okkur hvert og eitt og með persónulegri við- kynningu, að þeir eru traustsins verðir. Ljóst er af skrifum andstæð- inganna um prófkjörið að þeir óttast mjög framgang flokks okkar, ef þeir Lárus og Halldór verða áfram efstir á lista. Það er líka rétt mat. Við skulum því votta þingmönnum okkar traust og þakkir fyrir hið fjölmarga sem þeir hafa gott gert, því um leið leggjum við okkar lóð á vog til þess að setja saman sigurvænleg- an flokkslista. Ástandið í þjóðfélaginu er orðið svo uggvænlegt, að stórsigur Sjálfstæðisflokksins þarf til að koma, svo að eygja megi þá von, að úr verði bætt að gagni. í því endurreisnarstarfi, sem framund- an hlýtur að vera, fyrir kjördæmi okkar og allt landið, ætlum við Lárusi Jónssyni og Halldóri Blöndal forystuhlutverk. 7.1. 1983, Gísli Jónsson. I kvöld - mælum við með Forréttur: Rækjur í kryddsósu framreiddar í smjördeigs- botnum meö sítrónu — O — Adalréttur: Hvítlaukskryddaö lambalæri meö gljáðum gulrótum, rósenkáli, kartöflu og piparsósu Verð kr. 490,00 eöa Heilsteiktur nautavöðvi meö grill-tómat, spergilkáli, bakaðri kartöflu og piparsósu Verö kr. 515,00 — O — Eftirréttur: Blandaöir ávextir í grand marnier líkjör meö vanillu ís og þeyttum rjóma Borðapantanir í síma 17759. ÍSLANDS Lestun í erlendum höfnum AMERÍKA PORTSMOUTH/ NORFOLK Mare Garant 19. jan. City of Hartlepool 28. jan. Mare Garant 7. feb. City of Hartlepool 16. feb. NEW YORK Mare Garant 18. jan. City of Hartlepool 27. jan. Mare Garant 4. feb. City of Hartlepool 15. feb. HALIFAX Stuölafoss 28. jan. Hofsjökull 7. feb. BRETLAND/ MEGINLAND FELIXSTOWE Eyrarfoss 17. jan. Alafoss 24. jan. Eyrarfoss 31. jan Alafoss 7. feb. ANTWERPEN Eyrarfoss 18. jan. Alafoss 25. jan. Eyrarfoss 1. feb. Alafoss 8. feb. ROTTERDAM Eyrarfoss 19. jan. Alafoss 26. jan. Eyrarfoss 2. feb. Alafoss 9. feb. HAMBORG Eyrarfoss 20. jan. Alafoss 27. jan. Eyrarfoss 3. feb. Alafoss 10. feb. WESTON POINT Helgey 18. jan. Helgey 1. feb. NORÐURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Mánafoss 14. jan. Dettifoss 21. jan. KRISTIANSAND Manafoss 17. jan. Dettifoss 24. jan. MOSS Mánafoss 14. jan. Dettifoss 21. jan. HORSENS Mánafoss 2. febr. Mánafoss 2. jan. GAUTABORG Mánafoss 19. jan. Dettifoss 26. jan KAUPMANNAHÖFN Mánafoss 20. jan. Dettifoss 27. jan. HELSINGBORG Mánafoss 21. jan. Dettifoss 28. jan. HELSINKI Vessel 26. jan. GDYNIA Grundarfoss 17. jan. Vessel 28. jan. THORSHAVN Dettifoss 20. jan VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -framog til baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ISAFIRDI alla þriöjudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP SlMI 27100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.