Morgunblaðið - 14.01.1983, Side 7

Morgunblaðið - 14.01.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 7 Fáksfélagar Áramótafagnaöur veröur í Félagsheimili Fáks í kvöld, föstudaginn 14. janúar. Hljómsveit Jakobs Jónssonar. Húsiö opnaö kl. 21.30. Miöasala á skrifstofunni í dag kl. 16—18. Aldurstakmark 18 ára. Skemmtinefndin. Skaflaskeifur til sölu á 200 kr. gangur- inn. Vinninoar í han ndrætti ■ IIIIIIIIUUI 1 111111 knattspyrnud. MUI IUIII Breiða- bliks Þessi númer hlutu vinning: 1. vinningur, nr. 369. 2. vinningur, nr. 2559. 3. vinningur, nr. 2558. 4. vinningur, nr. 2518. 5. vinningur, nr. 1333. 6. vinningur, nr. 1313. 7. vinningur, nr. 2991. 8. vinningur, nr. 2419. 9. vinningur, nr. 262. 10. vinningur, nr. 3951. Aukavinningar: nr. 368 og 370. TS>íframalka()iilin.n 12 - 1S Subaru 4x4 1981 Rauður, eklnn 18 þús. Útvarp. Verö 185 þús. Saab 900 G.L.S. 1981 Oran* ekinn 22 þús. Útvarp, segulband, snjó- og sumar- dekk. Verð 220 þús. Toyota Cressida 1978 Grænn, ekinn 86 þús. Sjálf- skiptur, útvarp. Verö 120 þús. Peugeot 505 G.R. 1980 Ljósgrænn, ekinn 28 þús. Út- varp, segulband, snjó- og sumardekk. Veró 190 þús. V.W. Golf L. 1981 Grár, ekinn 26 þús. Útvarp, segulband, snjó- og sumar- dekk. Verð 165 þús. Votvo 244 G.L. 1979 Brúnn, ekinn 42 þús. Útvarp. Verö 165 þús. Honda Civic 1981 Grásanz, ekinn 27 þús. 5 gíra, útvarp. Verö 165 þús. Toyota Hilux 1980 Ljósdrapp, ekinn 40 þús. Snjó- dekk. Verö 240 þús. Toyota Corolla 1980 Blár, ekinn 64 þús. Útvarp, snjó- og sumardekk. Verö 100 þús. Hörður Steinunn Þröstur Jónas Skotinn á miöjunni Jónas Guðmundsson, sem skrifað hefur um menningarmál í Tímann, hefur fengið pokann sinn. Um ástæður þessa segir hann: „Ja, vafalaust hafa þær nú verið margar, en líklega hefur það vegiö einna þyngst, að núna er verið aö endur- skoða sálmabók flokksins, eða pólitíkina í blaðinu. Og ég hafði hætt mér inn á miðjuna og var skotinn þar, en eins og allir vita þá er Framsóknarflokkurinn miðjuflokkur, eða var það ... Nú ég þekki orðið vinnuþrögðin og þegar mér varð á að segja eitthvað um sauðkindina og aðra helgigripi flokksins, aö ekki sé nú talað um undanrennumusterið, sem verið er að reisa í Reykjavík, og um sláturkostnaðinn ... Skoðanakúgun? Ekki vil ég nú meina það. En þaö er athygl- isvert að í blaðstjórn sátu að þessu uppsagnarbréfi fjórir starfsmenn Sambandsins og framkvæmdastjóri Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins.“ Konur og framsóknar- framboð „Nú hefur fulltrúaráðið (framsóknarfélaganna í Reykjavík) sýnt, að það hefur annað sjónarmið (um þátttöku kvenna í stjórn- málum) en forráðamenn- irnir, sem við mig töluðu, og valið sem raun ber vitni. l>ess vegna er í raun fallin sú forsenda sem mín þátt- taka stóð fyrir,“ segir Steinunn Finnborgadóttir í samtali við Timann í vik- unni. Hvað ert þú að boða?, spyr blaðamaður Tímans. ,Ja“, sagði Stein- unn, „hvað boðar nýárs blessuð sól?“ Asta R. Jó- hannesdóttir segir í sömu Tímafrásögn: „Á tímum jafnréttis og kvenna- framboða skýtur skökku við að ekki skuli vera kona í cinu af þremur efstu sæt- unum ...“ Eimskip: án breytinga eng- in framþróun Hörður Sigurgestsson, forstjóri, segir m.a. í ný- legu fréttabréfi Kimskips: „í byrjun árs 1983 eru fleiri blikur á lofti en oftast áður. Áframhaldandi sam- dráttur virðist óumflýjan- leg staðreynd, bæði hér heima og erlendis. Það er mikil andstæða við nær samfellt hagvaxtartímabil frá lokum síðari heims- styrjaldarinnar. Við bætist mikil stjórnmálaleg óvissa hér á landi, sem enn sér ekki fyrir endann á og ger- ir ástandið alvarlegra. Við verðum að mæta þessum aukna efnahags- vanda og standa hann af okkur. Það reynir meira á okkur en fyrr. Þrátt fyrir alvarlegan efnahagssam- drátt og stjórnmálalega óvissu verðum við að halda áfram að byggja upp og endurnýja. Varfærni í rekstri og fjárfestingum hefur sjaldan verið mikil- vægari en nú. En við meg- um ekki stöðva uppbygg- inguna, þótt á móti blási. Við verðum að viðhalda því, sem áunnizt hefur og bæta við. Lifandi fyrirtæki tekur sífclldum breyting- um. Án breytinga verður engin framþróun.“ Verja þarf lýðræði og mannréttindi Magnús Bjarnfreðsson segir í nýlegri blaðagrein: l*egar herir nazista- l>ýzkalands flæddu yfir Evrópu í upphafi síðari heimsstyrjaldar, að lokinni velheppnaðri friðarbaráttu skósveinanna, mændu augu hrjáðra Evrópubúa í vesturátt í fyrri heims- styrjöldinni höfðu Banda- ríkjamenn komið til hjálp- ar. !>eir höfðu misst marga menn á vígvöllunum og vóru ýmsir ófúsir að endur- | taka þann leik. Þótt Roose- velt vildi koma til hjálpar vóru cinangrunarsinnar og friðarsinnar svo sterkir í Bandaríkjunum. að í raun veit enginn hvort hann heföi haft bolmagn til að skerast í leikinn áður en nazistar réðu allri Vestur- Evrópu, ef árásin á Pearl llarbour hefði ekki verið gerð. Enn sem fyrr er herveldi Bandaríkjanna það sem einræðisríkin óttast Vest- ur-Evrópa má sín einskis í viðureigninni við heri þeirra, eftir að búið er að stinga henni svefnþorn friðarbaráttu. I>essvegna er það frumskilyröi þess að kommúnistar geti ginið yfir Vestur-Evrópu, að það tak- izt að reka fleyg milli henn- ar og Bandaríkjanna. Allar tilraunir til þess hafa verið árangurslausar til þessa, en nú kann að vera breyt- ing í aðsigi." Tómlæti Alþýðubanda- lagsins Þröstur Haraldsson, biaðamaður, segir í grein í Þjóðviljanum í vikunni: „Alþýðubandalagið sýndi Áfganistan lengst af tómlæti. Það var fyrst núna í haust sem virkilega var fast að orði kveðiö um framferði Sovétríkjanna í samþykktum flokksins. Ekki hefur flokkurinn gert mikið af því að fylgja for- dæmingunni eftir, hann hefur þagað ... Aðrir hafa heldur ekki haft hátt. Maó- istar eru dauðir úr öllum artum og vinstri stúdentar lítið betur á sig komn- Farmanna- og fiskimannasamband íslands: Harma að olíugjald hafi ekki verið fellt niður „MEÐ VÍSAN til þess fískverðs sem ákveðið var um áramót og hliðar- ráðstöfunum því samfara, þá vill Farmanna- og fískimannasamband íslands benda á að árangurinn er tviþættur,“ segir í ályktun sem fram- kvæmdastjórn Farmanna- og físki- mannasambands íslands samþykkti á fundi sínum hinn 10. janúar síð- astliðinn og borizt hefur Morgun- blaðinu. Þar segir ennfremur: „Fagna ber því að nú fyrst kemst fiskverð nær því en í langan tíma áður að vera í svipuðu hlut- falli við laun landverkafólks eins og var árið 1977, þó hafa beri í huga þá miklu kjararýrnun sem sjómenn hafa orðið að þola vegna minni afla. Hinsvegar ber að harma að olíu- gjald skuli ekki hafa verið fellt niður og reynt á þann hátt að koma til móts við tekjumissi sjó- manna vegna aflabrestsins. Má í því sambandi minna á fyrri yfir- lýsingar sjávarútvegsráðherra um niðurfellingu olíugjaldsins. Einnig ber að harma að stofnað skuli til olíusjóðs til niðurgreiðslu olíu og tekna til hans aflað með útflutn- ingsgjaldi sem mun ekki gera ann- að en rýra fiskverð er fram í sæk- ir. Niðurgreiðsla olíu í gegnum olíusjóð er ekki leið til þess fallin að hvetja til aukins sparnaðar olíu sem ætti að vera meginmarkmið útgerðarinnar til lækkunar á út- gerðarkostnaði. Stöðug íhlutun hins opinbera í fiskverð hvetur sjómenn til að huga að því hvernig þeir geti með öðrum hætti sótt laun sín en í gegnum hlutaskipti. Hlýtur þar annað launafyrirkomulag, t.a.m. eins og tíðkast á stóru togurunum, að koma sterklega til greina. Rétt er að benda á, að þó svo sjómannasamtökin dragi fulltrúa sinn út úr Verðlagsráði sjávarút- vegsins, er það engin trygging fyrir bættum kjörum sjómönnum til handa. Á meðan ekki er bent á aðrar leiðir fyrir sjómenn til að tryggja kjör sín, er rétt fyrir þá að hafa hönd í bagga við verðlagn- ingu sjávarafurða. Sjómanna- samtökunum, svo og þjóðinni allri, er hins vegar nauðsynlegt að leita stöðugt nýrra leiða er tryggja há- marksverð fyrir veiddan afla og því tímabært að skoða tilverurétt Verðlagsráðs sjávarútvegsins, og láta kanha af fyllstu alvöru hvaða aðrar leiðir kunna að koma þar til greina.“ P facgttw Meim en þú geturímvndað þér!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.