Morgunblaðið - 14.01.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983
19
Nýr Honda
Prelude
kemur
á markaöinn
— Straumlínulagaðri
— Ný stærri vél
— Ný fjöðrun
— íburðarmeiri
HONDA Prelude kom fyrst á
markaðinn á árinu 1979 og naut
þegar mikilla vinsælda hjá þeim,
sem vildu sportlega og tiltölu-
lega kraftmikla bíla, en þó á
skaplegu verði. Fyrir nokkru
kynnti Honda nýjan endurhann-
aðan Prelude, sem kemur
hingað til lands í næsta mánuði.
Verulegar breytingar hafa verið
gerðar á bílnum, bæði innan og
utan, og ef marka má af mynd-
um eru þær til góðs. Auk þess
hafa verið gerðar fjölmargar
tæknilegar breytingar á bílnum.
Bíllinn verður boðinn í tveimur
mismunandi útfærslum, STD og
EX.
ÚTLIT
Nýi Prelude-bíllinn ber ákveð-
inn keim af forvera sínum, en er
eigi að síður mun sportlegri,
straumlínulagaðri og fyrir minn
smekk fallegri. Línurnar sam-
svara sér mjög vel. Bíllinn er
meira niður að framan en áður
og heldur meira upp að aftan,
sem gerir það að verkum, að
vindmótstaða hans er minni en
hjá þeim „gamla". Prelude hefur
fengið alveg nýtt andlit. Það
vekur athygli, að aðalljósin eru
felld inn í grillið og opnast lok
yfir þeim, þegar kveikt er á
þeim. Prelude er eftir sem áður
tvennra dyra og eru þær stórar,
þannig að mjög haganlegt er að
ganga um þær. Bíllinn kemur á
„standard“-felgum, en síðan er
hægt að fá hann með sérstökum
álfelgum, sem gera mikið fyrir
útlit bílsins. Hvað afturendann
varðar, eru ljósin nokkru stærri
en á þeim „gamla", sem er til
mikilla bóta. Stuðarar bílsins
eru mjög smekklegir og sömu
sögu er að segja af hliðar-
listunum.
INNRÉTTING
Innréttingin í Prelude er
nokkru íburðarmeiri en í for-
vera hans, sérstaklega hefur
mun meira verið lagt í sætin,
sem eru virkilega vönduð í þeim
nýja. Áherzla hefur verið lögð á
að auka þægindi sætanna, enda
er bæði hliðar- og bakstuðning-
ur framsætanna mun meiri en
var í eldri bílum og stillimögu-
leikum hefur verið fjölgað.
Sömu sögu er að segja af aftur-
sætum bílsins. Bólstrun þeirra
hefur verið aukin til frekari
þæginda fyrir farþega. Meira er
lagt upp úr klæðningu og bólstr-
un bilsins almennt. Hvað rými
varðar hefur það verið aukið,
bæði fyrir ökumann og farþega
frammi í og farþega aftur í.
Rými frammi í er því mjög gott.
Hins vegar er það af frekar
skornum skammti aftur í, eins
og reyndar í flestum sportbílum
svipaðrar gerðar.
MÆLABORÐ
Nýtt mælaborð hefur verið
hannað í bílinn, þótt það beri
ákveðið „Honda-yfirbragð".
Stjórntæki hafa verið færð nær
ökumanni til að auka á þægindi
hans, auk þess sem borðinu hef-
ur hreinlega verið þjappað betur
saman en áður. Borðið er annars
stílhreint og stýrishjólið hefur
sérstakt yfirbragð.
SKIPTING — PED-
ALAR — DRIF
Prelude er boðinn bæði fimm
gíra beinskiptur og 4ra gíra
sjálfskiptur með hinni svoköll-
uðu „Hondamatic“-skiptingu,
sem hefur reynzt mjög vel í
gegnum tíðina. Ýmsar breyt-
ingar hafa þó verið gerðar á
„Hondamatic“-skiptingunni,
sem eiga að draga enn frekar úr
benzíneyðslu bílsins, auk þess að
gera bílinn þægilegri í akstri.
Pedölum er vel fyrir komið,
þannig að lítil sem engin hætta
er á að stíga á tvo þeirra sam-
tímis. Prelude er eftir sem áður
framdrifinn.
VÉL
Hönnuð hefur verið ný vél í
Prelude-bílinn. Sú er 4 strokka,
1,8 lítra, 1.829 rúmsentimetra,
105 DIN-hestafla við 5.500 snún-
inga. Honda-fyrirtækið segir
vélina vera sérstaklega eyðslu-
granna og að bíllinn eyði að
meðaltali 10,4 lítrum á hverja
100 km í blandaðri keyrslu með
5 gíra beinskiptum kassa. Hins
vegar ef ekið er á jöfnum 120 km
Honda Prelude.
Bílar
Sighvatur Blöndahl
Honda
Gerð: Honda Prelude
Framleiðandi: Honda
Framieiðsluland: Japan
Innflytjandi: Honda-umboðið
Verð: 300.000—450.000,
eftir útfærslu
Þyngd: 975—1.005 kg
Lengd: 4.320 mm
Breidd: 1.690 mm
Hasð: 1.295 mm
Hjólhaf: 2.450 mm
Veghæö: 153 mm
Drif: Framdrifinn
Girskipting: 5 gira belnskipt-
ur/4ra gíra sjálfskiptur
Vél: 4 strokka, 1.829 m3, 105
DIN-hestafla, 1,8 litra
Hámarkshraöi: 170—183
km/klukkustund
Beygjuradíus: 10,2 metrar
Bremsur: lölvustýrt „Anti Lock
Brake“-kerfi
Fjöðrun: Sjálfstæð framan
og aftan
Hjólbaröar: 185/70 HR 13
Góðar línur eru í bílnum.
Hærri afturendi, stærri Ijós.
hraða á klukkustund eigi bíllinn
að eyða um 8,3 lítrum á 100 km.
Af þessum tölum má ráða, að
eyðslan er mun minni ef ekið er
á jöfnum 90 km hraða á klukku-
stund, þótt Honda-fyrirtækið
gefi það ekki upp.
AKSTURSEIG-
INLEIKAR
Um aksturseiginleika nýja
Prelude-bílsins er auðvitað ekk-
ert hægt að fullyrða á þessari
stundu, en þó er vert að hafa í
huga, að bíllinn er með sjálf-
stæða fjöðrun á hverju hjóli og
hefur verið hönnuð ný fjöðrun í
hann að framan, sem á að auka
enn á stöðugleika bílsins, sem
var þó ágætur fyrir. Ennfremur
hefur fjöðrunin á afturhjólun-
um, sem er af hipni svokölluðu
MackPherson-gerð, verið breytt
til að bæta stöðugleika bílsins
að aftan. Þá má geta þess, að
nýtt bremsukerfi hefur verið
hannað í Prelude. Það er svo-
kallað „Anti-Lock Brake" kerfi,
sem er tölvustýrt. Bremsun bíls-
ins verður mun fullkomnari og
jafnari fyrir vikið. Honda segir
Prelude fyrsta japanska bílinn
með þessu nýja bremsukerfi.