Morgunblaðið - 14.01.1983, Síða 32

Morgunblaðið - 14.01.1983, Síða 32
^/Vskriftar- síminn er 830 33 ^Ayiglýsinga- síminn er 2 24 80 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 Steingrím- ur og Hjör- leifur deila um álmálið Atvinnuleysi á Suðvesturlandi: 1.500 manns á atvinnu- leysisskrá á 13 stöðum Á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun var álmálið til umfjöll- unar. í umræðunum kom fram, samkvæmt heimildum Mbl., mikill ágreiningur milli iðnað- arráðherra, Hjörleifs Gutt- ormssonar, og sjávarút- vegsráðherra, Steingríms Her- mannssonar. Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti frá því fyrir jól sem álmálið er tekið til umræðu í ríkisstjórninni. Síð- asta skeyti iðnaðarráðherra til Alusuisse var sent án þess að ríkisstjórnin hefði samþykkt það. Hjörleifur Guttormsson lýsti því yfir í skeytinu til Alusuisse, að ef ekki yrði gengið að settum kröf- um hans um umræðugrundvöll samningaviðræðna sæi ríkisstjórn íslands sig knúna til að grípa til einhliða aðgerða. Alusuisse hefur farið fram á að í samningaviðræð- unum verði stækkun verksmiðj- unnar í Straumsvík og hugsanlega að fleiri eignaraðilar verði að henni tekin til athugunar. Iðnað- arráðherra hefur ekki viljað fall- ast á það, en Steingrímur Her- mannsson lýsti því yfir á ríkis- stjórnarfundi í gærmorgun, að honum fyndist ekkert því til fyrir- stöðu að gefa einhver vilyrði fyrir stækkun og fleiri eignaraðilum. Málið varð ekki útrætt á fundin- um og engar samþykktir gerðar. Ráðherranefnd Steingríms Her- mannssonar, Gunnars Thoroddsen og Hjörleifs Guttormssonar mun einnig hafa málið til meðferðar. Nefbraut 12 ára dreng LIÐLEGA þrítugur maður nefbraut 12 ára gamlan dreng í Breiðholti í gær. Maðurinn ber, að þrír drengir hefðu verið að kasta snjó í glugga hjá sér. Hann kvaðst hafa gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá drengina til þess að hætta en án árangurs. Hann hefði reiðst og náð einum drengjanna og slegið til hans með fyrrgreindum afleiðingum. Drengurinn var fluttur í slysadeild. TVEIR menn voru handteknir um síð- ustu helgi eftir að hafa reynt að smygla l'/z kílói af hassi til landsins. Andvirði hassins á svörtum markaði hér á landi er um 375 þúsund krónur. Mennirnir, annar þeirra er þrítugur að aldri, hinn tæplega fertugur, fóru til Kaupmannahafnar og siðar Amst- erdam í Hollandi i innkaupaleiðang- ur. Grunur lék á, að fíkniefni væru tengd þeirra ferðalagi og var fylgst náið með ferðum þeirra. Þeir komu síðan til landsins án þess að hafa nokkur fíkniefni með sér. I þess stað höfðu þeir pakkað hassinu vandlega inn og farið með á skrif- MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við nokkra staði á suðvesturhorni lands- ins og spurðist fyrir um fjölda atvinnulausra á skrá þaö sem af er janúar. í Reykjavík var fjöldi atvinnu- lausra á skrá þann 12.1. 415, þar af 325 karlar og 90 kon- ur. Stærsti hópurinn eru verkamenn, samtals 104, síð- an vörubílstjórar 56, múrarar 29, sjómenn og karlar í versl- unarstétt 25 hvor hópurinn stofur íslenzks skipafélags í Amst- erdam og beðið um flutning á pakk- anum til Islands. Það var gert — pakkinn var flutt- ur án þess að skipverjar hefðu hugmynd um innihald hans, en við komuna til Reykjavíkur var hass- hundur látinn yfirfara pakkana vandlega og kom þá í Ijós að hass var í hinum umrædda pakka. Menn- irnir voru handteknir og játaði hinn eldri greiðlega, en hinn yngri var úrskurðaður í gæzluvarðhald síðastliðinn sunnudag, en sleppt á miðvikudag er málið var að fullu upplýst. um jsig, og trésmiðir 19. Af atvinnulausum konum í Reykjavík eru flestar úr verslunarstétt, eða 34. í Kópavogi er 31 á atvinnu- leysisskrá og hefur orðið nokkur fækkun frá í desember. í Hafnarfirði hefur hins vegar orðið veruleg aukning atvinnu- lausra, og mun fjöldinn nú vera kominn yfir 300, en í desember voru 142 á skrá. Það lætur nærri að nú séu um 8% af vinnufæru fólki atvinnulaus í Hafnarfirði. Munar þar mestu um uppsagn- irnar hjá Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar. í fyrra var fjöldi at- vinnuleysisdaga í Hafnarfirði í janúar 3.752, en óttast er að dagafjöldinn núna fari upp í 7-8.000. Á Seltjarnarnesi eru 6 manns á atvinnuleysisskrá, en 17 í Garðabæ. í Keflavík eru 200 manns at- vinnulausir eins og kom fram í Mbl. í gær, og er búist við að sú tala fari hækkandi. í Grindavík er tala atvinnulausra 38. Þá eru 53 á skrá á Eyrar- bakka, sem er svipað og í desem- ber. A Stokkseyri hafa um 35 manns verið án atvinnu síðan skömmu fyrir jól, mest starfs- fólk hraðfrystihússins og sjó- menn, en talið er að rætist úr því í næstu viku. Á Selfossi eru 67 á skrá, 27 karlar og 40 konur og er það svipað og var í des- ember. Átta manns eru á skrá í Hveragerði. Þá hefur orðið mikil fjölgun á atvinnuleysisskrá á Ákranesi frá því í desember, en nú eru þar 302 atvinnulausir en voru 51 í desember. Langstærsti hópur: inn er fólk í frystihúsavinnu. í Borgarnesi eru 12 atvinnulausir, 11 konur og 1 karl. Sjá bls. 17 í blaðinu töflur yfir skráð atvinnuleysi á landinu í desembermánuði. Lán ByggðasjóÖs til frystihúsa á árabilinu 1973—1981: Um 47% til SH og 53% til SÍS Framleiðsluhlutfallið var hins veg- ar 75% hjá SH og 25% hjá SÍS SAMANBURÐUR á lánum Byggða- sjóðs til hraðfrystihúsa á árabilinu 1973—1981 sýnir, að frystihús inn- an Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, SH, fengu um 47% þeirra, en frystihús innan Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga, SÍS, um 53%. Þessar upplýsingar komu fram í erindi Arna Arnasonar, fram- kvæmdastjóra Verzlunarráös fs- lands, á ráðstefnu ráðsins um lána- markaðinn og þjónustu lánastofn- ana við atvinnulífiö i gærdag. Hins vegar ef litið er á fram- leiðsluhlutfall frystihúsanna, kemur í ljós, að framleiðsluhlut- fall húsanna innan Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna er um 75%, en 25% hjá frystihúsum Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga. Fjöldi lána til frystihúsanna innan Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna er 194, en 187 til húsa Sambands íslenzkra samvinnufé- laga, en fjárhæðir eru 37,4 millj- ónir króna hjá húsum Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, en 42,4 milljónir króna til húsa inn- an Sambands íslenzkra sam-' vinnufélaga. „Vel kann að vera að frysti- húsamenn innan SH hafi ekki verið eins duglegir að slá lán á þessu tímabili. Hins vegar þarf engum að koma á óvart vöxtur sjávarafurðadeildar SÍS síðustu árin,“ sagði Arni Árnason í erindi sínu. Teknir með Va kíló af hassi Beðið eftir hjálp Mynd Mbl. Fanney Gunnarsdóttir. Langferðabifreið með 20 farþegum innanborðs valt skammt frá Kiðafelli í Kjós í gærmorgun. Fjórir farþegar voru fluttir í slysadeild, en meiðsli þeirra reyndust ekki alvarleg. Fólkið þurfti að bíða í rútunni í VA klukkustund eftir hjálp. Sjá frásögn og myndir á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.