Morgunblaðið - 20.01.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
3
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins
i Reykjaneskjördæmi:
*
Akvörðun tekin í
kvöld um prófkjör
26 fulltrúar Kópavogs leggja til aö ekki veröi prófkjör
í KVÖLI) verður tekin ákvörðun um hvort sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi
viðhafa prófkjör til uppstillingar framhoðslista flokksins fvrir komandi Alþingis-
kosningar. Ákvörðunina tekur kjördæmisráð flokksins. en skiptar skoðanir eru
innan þess um hvort halda skuli prófkjör eða ekki, cn fundur þess verður haldinn
í húsnæði Sjálfstæðisflokksins að Hamrahorg 1, Kópavogi, og hefst hann kl. 20.15.
Þá verður kosningaundirbúningur einnig til umræðu.
Á fundi kjördæmisráðsins, sem
haldinn var í desembermánuði sl.
var rætt um hvort viðhafa skyldi
prófkjör eða ekki. Á þeim fundi
komu fram þrjár tillögur. Ein frá 26
Kópavogsbúum um að ekki skuli
fara fram prófkjör, heldur verði
uppstilling listans í höndum þar til
kjörinnar nefndar. Haraldur Krist-
jánsson sem er 27. Kópavogsbúinn í
kjördæmisráðinu flutti tillögu um að
prófkjör skyldi haldið, en það haft
lokað. Þriðja tillagan kom frá for-
manni kjördæmisráðs, Gísla Ólafs-
syni, um opið prófkjör. Þessar tillög-
ur urðu ekki afgreiddar á fundinum í
desember og liggja því fyrir til
áframhaldandi umfjöllunar í kvöld.
Reiknað er með að stjórn kjör-
dæmisráðsins leggi til í upphafi
fundarins að fram verði látin fara
skoöanakönnun meðal kjördæmis-
ráðsfulltrúanna, sem eru um 120
talsins, um hvort vilji er fyrir próf-
kjöri eða ekki, en tillaga stjórnar er
sú að haldið verði opið prófkjör. Að
fenginni niðurstöðu í skoðanakönn-
uninni afgreiðast framkomnar til-
lögur.
Fyrirlestur upplýsingastjóra hjá NATO:
Hernaðarjafnvægið og
ný skipan heimsmála
GILBERT M. Sauvage, prófessor í Par-
ís og aðstoðarforstjóri Upplýsingadeild-
ar NATO er staddur hér á landi um
þessar mundir.
G.M. Sauvage lauk háskólanámi í
París (lögfræði) og Oxford (stjórn-
málafræði, en hefur síðan 1949
starfað og kennt við margar alþjóða-
stofnanir, svo sem Alþjóðadómstól-
inn í Haag, Alþjóðavinnumálastofn-
unina í Genf (ILO), Stjórnmála-
fræðastofnunina í París, Evrópsku
stjórnunarfræðastofnunina í Fon-
tainebleau (INSEAD), Stanford Uni-
versity í Bandaríkjunum og Atl-
antshafsbandalagið.
Laugardaginn 22. janúar verður
hann gestur á fundi, sem áhuga-
mannafélögin tvö, SVS (Samtök um
vestræna samvinnu) og Varðberg,
halda í sameiningu í Átthagasal
Hótel Sögu. Fundarsalur verður
opnaður kl. tólf og fundur settur
skömmu síðar.
Sauvage, prófessor, flytur fram-
sögu um efnið:
Breytingar á hernaðarjafnvægi í
heiminum um miðbik þessa áratug-
ar. Kaflaheiti í fyrirlestri hans eru:
1. Röskun á valdajafnvægi og ný
skipun heimsmála.
2. Kreppa og örðugleikar í Sovét-
blökkinni.
3. Öryggi Vesturlanda á níunda ára-
tugnum.
4. Almenningsálit og varnarmál í
Evrópu og Bandaríkjunum á ný-
höfnu ári.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku, og ræðumaður svarar fyrir-
spurnum á eftir.
Fundarstjóri verður Sveinn Grét-
ar Jónsson. Þessi fundur er eingöngu
ætlaður félagsmönnum og gestum
þeirra.
(l'rélUlilkynninj!)
KONA var flutt á slvsadeild eftir harðan árekstur tveggja bíla á Nýbýlavegi í Kópavogi í fyrradag. Stórskemmd-
ust eða eyðilögðust báðir bílarnir, en sá þriðji, sem var kyrrstæður, skemmdist minna, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá lögreglunni í Kópavogi.
Árekstur þessi er dæmigerður fyrir árekstra, sem verða í ófærðinni um þessar mundir. Atvik voru með þeim
hætti, að bill af Skoda-gerð, sem ók austur Nýbýlaveg ætlaði að sveigja fram hjá kyrrstæðri bifreið sem stóð í
vegarkantinum, en lenti við það i árekstri við Lada-bíl sem kom á móti vestur Nýbýlaveginn. Varð þar af
allharður árekstur og lenti siðan annar bíllinn á kyrrstæðu bifreiðinni, sem er af gerðinni Chevrolet Nova.
Kona sem var farþegi í Lada-bílnum var flutt á slysadeild.
Mikil fjölgun árekstra
ÁREKSTRAR hafa verið tíðir það
sem af er janúar — i Reykjavík
urðu 468 árekstrar fyrstu 18 daga
mánaðarins samanborið við 285
árekstra á sama tima í fyrra. f um-
dæmi lögreglunnar í Hafnarfirði
hafa orðið 70 árekstrar samanbor-
ið við 47 á sama tíma í fyrra.
Orsakanna mun fyrst og
fremst að leita í slæmri færð. En
það er athyglisvert að engin al-
varleg umferðarslys hafa orðið í
umferðinni það sem af er janúar.
Mikið hefur verið um „nudd“ —
bílar hafa rekist saman en litlar
skemmdir orðið í mörgum tilvik-
um. Orsakanna mun fyrst og
fremst að leita í slæmri færð.
Á sama tíma létust þrír í
banaslysum í fyrra — allir á
Reykjanesbraut og fernt var
flutt stórslasað í sjúkrahús. Þá
missti drengur meðvitund eftir
að hafa orðið fyrir bifreið á mót-
um Hafnarstrætis og Kalkofns-
vegar og stúlka stórslasaðist á
Vesturlandsvegi.
Ber mönnum saman um að
helsta orsök fyrir því, að slys
hafa engin reynst alvarleg í ár,
sé að vegna slæmrar færðar hafi
ökumenn ekki ekið eins hratt og
þeir eiga vanda til.
Mikið fundað um kjördæmamálið innan flokkanna:
Reiknað með lokaafgreiðslum
um og eftir næstu helgi
G.M. Savage.
MIKIfí hefur verið fundað síðustu vik-
ur um kjördæmamálið og virðist stefna
i að breið samstaða náist innan allra
þingflokkanna um tillöguflutning sem
felur í sér fjölgun þingmanna í 63 og
breyttar útreikningsreglur, sem jafna
núverandi mismun milli flokkanna og
kjördæma. Kftir fundahöld i þingflokk-
unum í gær voru þingmenn úr öllum
flokkum sem Mbl. ræddi við i gær-
kvöldi sammála um að niðurstöður
væru í sjónmáli, aðeins ætti eftir að
slípa nokkur minni atriði, eins og einn
viðmælenda blaðsins orðaði það, og
mætti búast við niðurstöðum um helg-
Formenn stjórnmálaflokkanna
hafa fundað svo til daglega að und-
anförnu. í dag kemur miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins saman og verða
hugmyndir flokkanna kynntar þar,
þá fjallar þingflokkurinn aftur um
málið á morgun. Þingflokkur og
framkvæmdastjórn Alþýðubanda-
lagsins komu á sameiginlegan fund á
mánudag og á ný í gær. Fundað
verður á ný hjá þeim aðilum eftir að
formenn flokkanna hafa komið sam-
an, sem reiknað var með í gærkvöldi
að yrði í dag.
Álþýðuflokkurinn hefur boðað til
flokksstjórnarfundar um helgina, en
þingflokkurinn fundar áfram um
málið fram að honum. Reiknað er
með að á flokksstjórnarfundinum á
sunnudag verði endanleg ákvörðun
tekin. Framsóknarmenn hafa boðað
til miðstjórnarfundar á sunnudag
þar. sem gerð verður grein fyrir
stöðu mála og væntanlega tekin
ákvörðun, en þingflokkurinn hefur
eins og hinir þingflokkarnir fjallað
um málið síðustu daga.
Þrír nýir
sýndir um helgina
Kærdi nauögun
ÁTJÁN ára gömul stúlka kærði tvo
menn fyrir nauðgun í fyrrinótt og er
málið nú til rannsóknar hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins. Atvik eru þau, að
lögreglunni barst tilkynning um að ölv-
aður ökumaður væri fyrir utan tiltekið
hús við Smiðjuveg i Kópavogi. Bifreið-
inni hafði verið lagt fyrir utan húsið,
þegar lögregluna bar að garði. Kom þá
stúlkan út úr húsinu og sagði farir sín-
ar ekki sléttar.
Að loknum dansleik hefði hún og
tveir menn, sem hún hefur kært
fyrir nauðgun, farið í samkvæmi í
Kópavoginn og þar hefði hún verið
neydd til samræðis af mönnunum.
Þegar lögreglumenn fóru inn í
húsið voru mennirnir farnir þaðan,
en voru síðar teknir, þá staddir í
húsi við Ármúla. Þeir voru yfir-
heyrðir hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins í gær og viðurkenndu mök
við stúlkuna, en þvertóku fyrir að
nokkur valdbeiting hefði átt sér
stað.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99