Morgunblaðið - 20.01.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.01.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983 í grennd við hafsaugað eftir Björn Bjarnaaon Fátt vakti meiri óhug hjá norrænum mönnum fyrr á öld- um en það sem var fyrir norðan og austan Knöskanes, nyrsta odda Noregs. Að vísu þóttust menn næsta óhultir meðan þeir sigldu austur með Noregi og Kólaskaga, en um leið og sveigt var suður með honum um Hvíta haf til Gandvíkur og Bjarma- lands syrti í álinn, þótt þar sé „hafið hvítt sem mjólk, og er í fyrstu mjög undarlegt að líta, meðan maður því ei til lengdar vanist hefur", að sögn Jóns Indíafara. Nafnið Gandvík bend- ir á þá trú fornmanna að tröll og óvættir og alls konar töfralýður ætti heima á Bjarmalandi, enda eru til margar fornaldarsögur um viðureign Norðmanna við hrímþursa og annað galdrahyski í þessum löndum. Að því er sög- ur herma, sigldi Óttarr hinn há- leyski fyrstur manna norður fyrir Knöskanes (Nordkapp) og með strönd Kólaskaga lengst inn í Gandvík, en hann var uppi á dögum Haralds hárfagra og kannaði því hinar ókunnu slóðir í austri á sama tíma og Island fannst í vestri. Og af frásögn Adams frá Brimum draga menn þá ályktun að Haraldur harðráði hafi viljað kanna íshafið og komist nær því á heimsenda, en það hafði legið við, að hann ræk- ist út í voðalegan hyldýpissvelg, sem sumir menn hafa haldið að væri sjálft hafsaugað, svo að vitnað sé í Jón Jónsson að Stafa- felli, sem þýddi frásögn um landaleitir fornmanna í Norður- höfum eftir Alexander Bugge og birti í Tímariti Hins íslenska bókmenntafélags 1902. Eftir för Óttarrs eignuðu Nor- egskonungar sér land allt til Gandvíkur og var þá allur Kóla- skaginn talinn til Noregsveldis. Finnmörk er nyrsta fylki Noregs og hið stærsta af fylkjunum 20. Þar til þau landamæri voru dregin sem nú eru á þessum slóðum, var Finnmörk átta sinn- um stærri en nú og náði yfir Kólaskagann og Norður-Finn- land. Austurhluti Finnmerkur var viðurkennt sem norsk-rússn- eskt skattland frá 1326 til 1826, þegar landinu var skipt eftir þeim merkjum sem enn eru virt. Rússar fengu Kólaskagann en létu 1920 Finnum eftir land- ræmu að Barentshafi, þar sem hafnarborgin Petsamo er, en þaðan komust Islendingar í frægri ferð með Esju í septem- ber 1940. Petsamo eða Petsjenga, eins og bærinn heitir á rússn- esku, tóku Rússar aftur 1944, en hann er á milli norsku landa- mæranna og Murmansk, sem er stærsta borgin á Kólaskaga. Skammt fyrir vestan Kóla- skaga gengur Varangerfjörður inn í Finnmörk úr Barentshafi og halda hlýir sjávarstraumar honum opnum. Austur af Var- angerfirði er Kirkenes, höfuð- staður í Suður-Varangerhéraði, sem er austasta hérað Noregs, á sama lengdarbaugi og Lenín- grad, Istanbul og nær jafnvel eins austarlega og Kairó í Eg- yptalandi. 30 km breitt belti tengir Suður-Varangur við næsta hérað í Noregi, landa- mærin við Finnland eru 110 km löng og 196 km löng við Sovétrík- in. í síðari heimsstyrjöldinni voru gerðar fleiri loftárásir á Kirkenes en nokkurn annan bæ og þegar Þjóðverjar hörfuðu þaðan undan Rússum, brenndu þeir stóran hluta af bænum, sem síðan var reistur úr rústum og þar búa nú um 8.000 manns. Menn hafa einkum atvinnu af járnvinnslu, en skammt frá Kirkenes eru miklar járnnámur við Bjarnarvatn og hefur járn Norskir blaðamenn og einn íslenskur ásamt gestgjöfum og landamærahermönnum við vegvísinn til Sovétríkj- anna. Bannað er að taka Ijósmyndir fri Nor- egi austur yfir landamærin til Sov- étríkjanna. En eftir landamærunum endilöngum hafa Sovétmenn reist eftirlitsturna af þessari gerð og sjá menn glampa í sjón- auka þegar litið er til þeirra. r )'0 / Jr' / verið unnið þar siðan 1906. í Skírni 1902 má lesa eftirfar- andi lýsingu eftir Jón Ólafsson: „Aðfarir Rússa í Finnlandi hafa vakið mikla athygli bæði Svía, og þó einkum Norðmanna. Þykir það engum vafa bundið, að Rússar hafi hug á að seilast til að leggja undir sig Finnmörk, en það er nyrsti hluti Noregs. Árið, sem leið, þóttust menn verða varir við rússneska njósnarmenn hér og þar um allan Noreg; vóru það rússneskir liðsforingjar, dul- arbúnir sem skærabrýnarar og farandmenn, er gerðu við smá- hluti fyrir fólk. Þá fór að vakna meðvitund Norðmanna um það, enda hafa ýmsir ferðamenn á það bent, að það er nokkuð einkennilegt, að Noregsmegin fram með öllum landamærum Noregs og Svíþjóð- ar er allt landið ramm-víggirt, fullt af varnarvirkjum, vígjum og fallbyssum hvarvetna þar, sem fært er með herlið frá Svía- ríki; en norður frá á landamær- um Noregs og Rússlands eru landamærin öll opin og varnar- laus. Þetta er eðlileg afleiðing þess, að samlyndi bræðraríkjanna Noregs og Svíþjóðar hefir verið slíkt, að Norðmenn hafa hin síð- ari árin jafnan átt sér ófriðar von af Svíum. Því að Norðmenn hafa haldið fast fram sjálfstæð- is-kröfum sínum og jafnrétti, sem þeir eiga óefað lagalegan rétt á; hafa, ef til vill, farið óþjálla í málið, en þörf var á, gert sér meira far um að sann- færa sjálfa sig, en alþýðu Svía, um rétt sinn. En Svíar hafa jafn- an viljað sýna Norðmönnum yf- irgang og eigi viijað kannast við jafnrétti ríkjanna. En nú hafa báðar þjóðirnar farið að sjá, að sundurlyndi þeirra jók þeim báðum háska úr annarri hátt, og að nær stóð að hugsa um sinn um að verjast ófriði af Rússa hendi, en að eyða kröftum sínum í viðbúnað við að berast á bana- spjótum sjálfir. Sjá þeir nú, að ófriður milli Noregs og Svíþjóð- ar, mundi verða til þess eins, að Rússar skærust í leikinn og legðu meira eða minna undir sig af báðum löndum." Þegar þessi fróðlega lýsing var rituð fyrir 80 árum, voru Svíar og Norðmenn í konungssam- bandi sem slitið var 1905. Nú eru ekki lengur víggirðingar á landa- mærum Noregs og Svíþjóðar vegna ótta við innrás Svía í Nor- eg og þjóðir beggja landa gera sér grein fyrir því, þótt þær séu ekki saman í varnarbandalagi, að nú, eins og áður, eru það Rússar sem sækjast til áhrifa inn í Finnmörk. Á Kólaskaga er nú mesta víghreiður veraldar. Þar hafa 400 herskip og 200 kafbátar bækistöðvar í íslausum höfnum á svæðinu frá Petsjenga austur fyrir Murmansk. Á skag- anum eru 16—17 herflugvellir og 700 flugvélar, skotpallar fyrir langdrægar og meðallangdrægar kjarnorkueldflaugar og búðir með um 300 þúsund hermönnum. Það eru því enn „tröll og óvættir og alls konar töfralýður" á þess- um slóðum sem norrænum mönnum stendur stuggur af, lík- lega er þó meiri ástæða til að óttast þessar forynjur en hinar sem menn ímynduðu sér til forna þótt jafn erfitt sé nú og þá að átta sig á því sem er að gerast á þessum útskaga veraldar. Viðbúnaður Norðmanna við sovésku landamærin er ekki mikill. í Suður-Varanger eru 500 norskir hermenn og er um þriðj- ungur þeirra bundinn við landa- mæravörslu. Þegar Rússar hurfu orðalaust frá Suður-Varanger 1945, skuldbatt norska ríkis- stjórnin sig til að sýna þeim nokkra tillitssemi við landa- mærin. Hún felst meðal annars í því, að aldrei fara fram sameig- inlegar heræfingar á vegum Atl- antshafsbandalagsins í nágrenni við landamærin og aðeins eru norskir hermenn við störf í þeim sjö eftirlitsstöðvum sem reistar hafa verið við þau. Nyrsta stöðin er í Grense Jak- obselv sem er um 50 km fyrir norðaustan Kirkenes. Þegar sá, sem þetta ritar, stóð fyrir neðan stöðina við grátt Barentshafið í nóvember fyrir ári, þótti honum sem hann væri kominn næst heimsenda á ferð sinni til þessa og hafði þó ekki í huga þær lýs- ingar, sem rifjaðar hafa verið upp hér að framan. Frá þessari stöð mun vera unnt að fylgjast með skipum sem fara frá Petsj- enga þar rétt fyrir austan. Og handan við Jakobselv sem renn- ur þarna á landamærunum um 8 km langan dal, mátti sjá eftir- litsturna Sovétmanna, en það er öryggis- og ógnarlögreglan KGB sem annast gæslu landamæra Sovétríkjanna. Mér datt í hug, þegar ég leit upp í fjallshlíðina til norsku eftirlitsstöðvarinnar, að líklega bærust oft þaðan fyrstu boð um ferðir sovéskra skipa sem síðan er fylgst með héðan frá íslandi, því að þetta framvarnarkerfi Norðmanna er að sjálfsögðu tengt við hið sam- eiginlega öryggiskerfi Atlants- hafsbandalagsríkjanna allra. Hagsmunir okkar allra hinna frjálstt ríkja á norðurslóðum eru hinir sömu þegar litið er til hins gífurlega herbúnaðar sem Sov- étmenn hafa nú á Kólaskaga og vígdrekarnir þar koma Sovét- mönnum ekki að fullum notum nema þeir geti brotið sér leið suður á Atlantshaf og helst suð; ur fyrir ísland á ófriðartímum. í síðari heimsstyrjöldinni notuðu þýsku herskipin sem ógnuðu siglingalestunum frá íslandi til Murmansk firðina á Finnmörk sem skjól og enn eru Noregur og ísland lykillönd fyrir hvern þann sem vill hindra siglingar eða halda uppi siglingum frá hinum miklu sovésku höfnum á Kólaskaganum. Og í sömu andrá má geta þess, að nú er haldið uppi reglulegum ferðum milli Is- lands og Finnmerkur, því að þar er Tanafjörður og þangað sækja skip kvars fyrir járnblendiverk- smiðjuna á Grundartanga. Anncmarie Lorentzen hefur verið sendiherra Noregs á íslandi í tæp fimm ár. Áður var hún virk í stjórnmálalífi lands síns og helgaði sig ekki síst málefnum heimabyggðar sinnar, Finnmerkur, sem er stærsta fylki Noregs og næst Sovétríkjunum. I samtali við Morgunblað- ið lýsir sendiherrann nábýlinu við Sovétríkin og stöðu Finnmerkur. Norður við ystu endimörk hins frjálsa heims þar sem áin Jakobselv rennur um fallegan dal norður í Barentshaf og dýpstu hyljir hennar skilja á milli Noregs og Sovétríkj- anna búa nú ekki nema sex mann- eskjur allar á sjötugsaldri. Þar er jafnan fámennur hópur ungra, norskra hermanna sem hefur því hiutverki að gegna að gæta landa- mæranna og létta undir með gamla fólkinu sem enn heldur tryggð við dalinn sinn, og heitir byggðarlagið Grense Jakobselv. Annemarie Lor- entzen sem verið hefur sendiherra Noregs á íslandi í tæp fimm ár er fædd í Grense Jakobselv auk þess sem hún hefur helgað málefnum Finnmerkur krafta sína sem þing- maður fyrir Verkamannaflokkinn. Annemarie Lorentzen var sam- gönguráðherra í síðasta ráðuneyti Tryggve Bratteli 1973 til 1975 og síðan neytenda- og verðlagsmála- ráðherra í ráðuneyti Odvar Nordlis til 1978 er hún varð sendiherra hér. Hún varð góðfúslega við þeirri ósk að fræða lesendur Morgunblaðsins um lífið við landamærin og á Finnmörk. „Faðir minn var kennari í Grense Jakobselv þegar ég fæddist og mín fyrstu tvö ár en þá varð hann kenn- ari annars staðar. Hann hreifst svo mjög af dalnum og fólkinu þar, að við fórum þangað á hverju sumri á meðan ég var í foreldrahúsum. Fyrstu minningar mínar eru því mjög bundnar við þennan vinalega dal,“ sagði sendiherrann. „Á þessum árum eða nánar til- greint frá 1921 til 1940 réðu Finnar yfir landræmu norður í Barentshaf og höfðu yfirráð yfir Petsamo eða Petsjenga eins og Rússar kalla þessa hafnarborg. Landamæri Finnlands og Noregs voru opin og við krakkarnir óðum Jakobselv yfir til fólksins hinum megin. Þar bjuggu rússneskir smábændur sem eins og Norðmennirnir lifðu á því sem jörðin gaf af sér og reru til fiskjar út á Barentshaf. Samar bjuggu á þessum slóðum áður fyrr við bág kjör og skattheimtu bæði frá norskum og rússneskum yfir- völdum. Það var árið 1851 sem fólk fluttist úr Guðbrandsdalnum þarna norður, um svipað leyti og land- flóttinn var sem mestur frá Noregi til Vesturheims. Ekki veit ég hve- nær fyrstu Rússarnir settust að austan við landamærin, en þegar ég hugsa um það nú síðar, undrast ég, að aldrei minnist ég þess að hafa hitt Finna þarna. Við sóttum allt okkar til Kirke- nes og fórum þangað á bát, því að vegur var ekki lagður fyrr en í síð- ari heimsstyrjöldinni. Einu sinni fékk ég að fara til Petsamo og er mér sérstaklega minnisstætt klaustrið mikla sem þar var og hlýtur enn að standa, Petsjenga- klaustrið, og sátu munkar úr rússn- esku rétttrúnaðarkirkjunni í því, þótt Finnar réðu bænum. Það var búsældarlegt í Grense Jakobselv og íbúafjöldann á þessum árum má marka af því, að þá voru þar 14 nemendur í skólanum og voru allir í sama bekk en hinir sem lengra voru komnir sóttu heima- vistarskóla í nágrenninu. Landamærunum var lokað strax og Noregur var hernuminn af Þjóð- verjum, 2. maí 1940. Þjóðverjar sóttu hratt norður á bóginn en við Narvík töfðust þeir vegna andstöðu Norðmanna og sat þá norska ríkis- stjórnin í Tromsö en þaðan flúði hún til London eftir að nasistar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.