Morgunblaðið - 20.01.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
25
- *
Guðmundur Olafsson
frá Dröngum — 75 ára
Ég hef það fyrir satt að minn
gamli vinur og eitt sinn húsbóndi,
Guðmundur Ólafsson fyrrum
bóndi og póstur að Dröngum á
Skógarströnd, hafi orðið sjötíu og
fimm ára þann 15. desember sl.
Já, hratt flýgur stund þegar ald-
ur færist yfir mann. Mér finnst
raunar stutt síðan Guðmundur
var búandi á Dröngum, geislandi
af eldmóði og framsýni hins
áhugasama bónda, en á komandi
vori mun þó vera hálfur annar
áratugur síðan hann flutti þaðan.
Ég á margar góðar minningar
frá kynnum okkar Guðmundar.
Hann var jafnan fljótur að sjá
bestu lausnina á erfiðum við-
fangsefnum. Það var bæði gott og
þroskandi fyrir unga menn að
vera og vinna með honum.
Mér er vel í minni er ég kom
fyrst að Dröngum og sá Guðmund
í fyrsta sinn. Það var á blíðum
maídegi 1936. Foreldrar mínir
ásamt fjölskyldu höfðu flutt þetta
vor í hreppinn. Ég hafði farið
þennan dag í svartbaksleit ásamt
fleirum, inní eyjar norður af Brok-
ey, á heimleiðinni var ákveðið að
koma við á Dröngum, erindið man
ég ekki.
Það er fallegt í góðu veðri, að
sjá af sjó heim að Dröngum. Tún-
inu hallar til suðvesturs niður að
sjónum,. og þar við túnjaðarinn
myndast vinaleg vík sem er allgott
bátalægi í flestum veðrum. Nú var
vor í lofti og túnið orðið grænt og
myndaði því falleg litaskipti við
lognhvítan sjóinn, sem báturinn
rann eftir upp víkina, með þetta
hlýlega býli fyrir stafni. Við lent-
um í víkinni og gengum upp túnið,
á leið okkar urðu fjárhúsin, það
var búið að stinga út taðið, og
dreifa því fram af húsunum, og
þar var Guðmundur með hest að
herfa taðið. Það þarf varla að taka
það fram, að þetta var í fyrsta
sinn sem ég sá herfi og svona farið
með taðið, ég þekkti aðeins tað-
kvörnina til svona verka.
Guðmundur hafði lokið bú-
fræðinámi frá Hvanneyri, og not-
aði því hagkvæmari vinnuaðferðir
við þetta verk. Eftir að hafa heils-
ast var gengið til bæjar og drukkið
kaffi. A leiðinni heim túnið hitt-
um við unga konu í hvítum slopp
að skola þvott, mér fannst þá að
ég hefði aldrei séð svona fallega
konu. Ég fékk fljótlega að vita að
þetta var kona Guðmundar, Val-
borg V. Emilsdóttir, sem þá mun
hafa verið búin að ljúka ljósmóð-
urnámi. Þetta var fyrsta koma
mín að Dröngum, og hefur orðið
mér minnisstæð. Hún verkaði
framandi á mig úteyjabarnið sem
lítil kynni hafði haft af fastaland-
inu. Þetta sama kvöld var bóndi á
næsta bæ við Dranga að flytja fé
sitt á opnum bátum yfir þveran
Breiðafjörð vestur að Brjánslæk á
Barðaströnd.
Þau Guðmundur og Valborg
munu hafa hafið búskap á Dröng-
um þetta ár, 1936. Það kom fljót-
lega í ljós, að Gumundur var mik-
ill bóndi. Það hefur stundum verið
sagt um búfræðinga að þeir
byggju ekki betur en aðrir, en það
sannaðist ekki á Guðmundi. Þrátt
fyrir erfiða tíma til búskapar átti
hann fljótt gott bú. Hann var mik-
ill ræktunarmaður, enda stækkaði
og batnaði Drangatúnið fljótlega.
Þar sá ég fyrst ræktað grænfóð-
ur og fyrstu hestasláttuvélina,
Guðmundur var laginn hestamað-
ur og notaði þá mikið, hann átti
marga góða hesta í sinni búskap-
artíð, og þurfti oft mikið á þá að
reyna, því hann var jafnan póstur.
Hann fór vel með hesta og hafði
mikla ánægju af að umgangast þá
og hirða.
En þótt Guðmundur notaði alla
þá tækni sem þá var fáanleg við
heyskap, sem sannanlega var ekki
mikil, varð hann samt að nota hin
gömlu tæki. Orfið, hrifuna og reip-
ið. Þannig var að Guðmundur var
einnig eyjabóndi, bjó á eyjabýlinu
Gjarðey sem þá var nýlega komið
i eyði. Þar voru góðar slægnaeyjar
sem Guðmundur nýtti vel, enda
mun eyjataðan oft hafa orðið hon-
um notadrjúg, ekki síst meðan
ræktunin var lítil á Dröngum.
Eyjaheyskapur er dýr og erfið-
ur, þar verður vélum lítt við kom-
ið. Éyjabóndi þurfti að eiga trillu-
bát og flutningaskip, svo og áhöld
til hiunnindahirðinga, selveiða og
æðarvarps. Allt þetta varð fljót-
lega til hjá Guðmundi. Undir-
ritaður var eitt sinn með Guð-
mundi í eyjaheyskap: Þar fór sam-
an kapp og forsjá, hann var fljótur
að skafa af hverri þúfu á tangan-
um á henni Stafey, einni bestu
heyskapareyjunni í Gjarðeyjar-
löndum. En flutningarnir voru þó
erfiðastir, allt varð að bera á bak-
inu til skips og það var langt í
stærri eyjunum, og koma síðan
fyrir á skipi. Kannski tvær eða
þrjár raðir uppaf borðstokknum.
Slíkur farmur er erfiður ef eitt-
hvað er að veðri, og þá betra að
hafa gát á hlutunum. Ekki minn-
ist ég annars en að Guðmundi hafi
jafnan farnast vel í sínum sjóferð-
um. Hann nýtti líka eyjarnar til
beitar fyrir sauðfé og hesta að
vetrinum, og þeir flutningar gátu
líka orðið sullsamir stundum.
En Guðmundur hefur um sína
daga verið meira en góður bóndi
og póstur, hann hefur lagt gjörva
hönd á ýmislegt fleira, og nú síð-
ustu ár gerst góður bókbandsmað-
ur.
Hann hefur alla tíð verið mikill
félagsmálamaður, tók virkan þátt
í ungmennafélagshreyfingunni á
sínum tíma, og æfði íþróttir. Ég
minnist þess að hann var góður
glímumaður. Það var gaman að
sjá þá glíma saman, Gunnar heit-
inn bróður hans og hann, sem þeir
gerðu stundum á samkomum á
Dröngum. í félagsmálum bænda
heima fyrir vann hann mikið, ekki
síst í kynbótastarfsemi, enda náðu
Skógstrendingar þar góðum ár-
angri. Meðal annars þeim, að kýr
þaðan voru eftirsóttar í næstu
sveitum vegna afurðahæfni.
Þá var Guðmundur góður félagi
í kaupfélagi Stykkishólms og í
stjórn þess. Alltaf ákveðinn sam-
vinnumaður, þótt hann fylgdi
Sjálfstæðisflokknum í landsmál-
um. Meðal annars var hann úti-
bússtjóri, deildarstjóri og slátur-
hússtjóri og farnaðist vel.
Það verður ekki annað sagt en
að Guðmundur hafi verið mikill
framfaramaður í sínum búskap.
Efnahagurinn virðist oftast hafa
verið það rúmur, að hann gat stað-
ið í framkvæmdum. Engin jörð í
Skógarstrandarhreppi var bætt
jafn mikið og Drangar, í búskap-
artíð Guðmundar. Þeir breyttust
úr lélegri jörð í góða jörð, vegna
ræktunar og húsabóta. Sjálfsagt
hefur það hjálpað til að hann
hafði Gjarðey, svo og póstferðirn-
ar, þótt erfiðar væru og tímafrek-
ar.
Það væri ekki sanngjarnt að
eigna Guðmundi einum þann
árangur sem hann náði í sinum
búskap. Hans góða kona, Valborg,
átti þar stóran hlut. Mér fannst
stundum undravert hverju hún
gat afkastað.
Drangar voru þá miðstöð allra
samgangna í hreppnum. Sveitin
var vegalaus frá báðum endum.
Svo til allir aðdrættir og flutn-
ingar fóru fram á sjó og Drangar
voru aðal, lendingarstaðurinn. Þar
var samkomuhúsið, aðalfjárréttin
fyrst, síðar sláturhús, mikið sótt
kirkja á næsta bæ, og meðan búið
var í eyjunum, sem tilheyrðu
Skógarstrandarhreppi, fóru við-
skipti þeirra við land aðallega um'
Dranga.
Það lætur því að líkum að oft
hafi verið mannaferðir kringum
Dranga á þessum árum. Og fáir
held ég að hafi farið þar hjá garði
án þess að þiggja veitingar.
Undirritaður dvaldi þar stund-
um tíma og tíma og það verð ég að
segja, að þeir voru fáir dagarnir
sem gestir drukku þar ekki kaffi.
Hver viðbót þetta var við önnur
störf húsfreyjunnar geta aðrir
kannski betur dæmt, en ég veit
hún var ærin.
Þau Valborg og Guðmundur
eiga fimm myndarbörn sem öll
standa vel fyrir sínu í lífinu.
Guðmundur er búinn að stríða
við heilsuleysi mörg undanfarin ár
og fara oft undir hnífinn, vegna
aðgerða á mjöðmum. Ég gæti trú-
að að hann væri enn bóndi á
Dröngum hefði heilsan ekki brost-
ið, því ég hygg að þar hefði hann
helst viljað eiga ellidagana. En
þrátt fyrir langa vanheilsu er
Guðmundur andlega sterkur.
Hann hefur haslað sér völl við ný
viðfangsefni, sem hann hefur sætt
sig við þrátt fyrir breytt umhverfi,
og hefur starfað sem bókbindari
um árabil við Bókasafn Kópavogs.
Á þessum tímamótum á ævi
hans vil ég flytja honum bestu af-
mæliskveðjur frá mér og Sólveigu,
með ósk um að honum og hans
nánustu megi ávallt vegna sem
best.
Kristinn B. Gíslason
Geriö
svo
vel
að
líta
inn
Útsölu-
markaður
í Kjörgarði (kjallara)
Góðar vörur á lágu
verði
Utsölumarkaðurinn
í kjallara Kjörgarös
Sendum í póstkröfu sími 28640
Fatnaður fyrir alla
fjölskylduna
Barnaúlpur verö frá kr. 390.
Dömuúlpur verð frá kr. 490.
Herraúlpur verö frá kr. 490.
Flauelsbuxur verö frá kr. 195
stæröir 2—12.
Flauelsbuxur stæröir 26—40 kr. 295.
Barnapeysur frá kr. 90.
Fullorðinspeysur frá kr. 150.
Vynilstígvél verö frá kr. 295—395.
Sokkar — vetlingar — húfur
og margt margt fleira.
Skartgripir
í miklu úrvali