Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983 25 - * Guðmundur Olafsson frá Dröngum — 75 ára Ég hef það fyrir satt að minn gamli vinur og eitt sinn húsbóndi, Guðmundur Ólafsson fyrrum bóndi og póstur að Dröngum á Skógarströnd, hafi orðið sjötíu og fimm ára þann 15. desember sl. Já, hratt flýgur stund þegar ald- ur færist yfir mann. Mér finnst raunar stutt síðan Guðmundur var búandi á Dröngum, geislandi af eldmóði og framsýni hins áhugasama bónda, en á komandi vori mun þó vera hálfur annar áratugur síðan hann flutti þaðan. Ég á margar góðar minningar frá kynnum okkar Guðmundar. Hann var jafnan fljótur að sjá bestu lausnina á erfiðum við- fangsefnum. Það var bæði gott og þroskandi fyrir unga menn að vera og vinna með honum. Mér er vel í minni er ég kom fyrst að Dröngum og sá Guðmund í fyrsta sinn. Það var á blíðum maídegi 1936. Foreldrar mínir ásamt fjölskyldu höfðu flutt þetta vor í hreppinn. Ég hafði farið þennan dag í svartbaksleit ásamt fleirum, inní eyjar norður af Brok- ey, á heimleiðinni var ákveðið að koma við á Dröngum, erindið man ég ekki. Það er fallegt í góðu veðri, að sjá af sjó heim að Dröngum. Tún- inu hallar til suðvesturs niður að sjónum,. og þar við túnjaðarinn myndast vinaleg vík sem er allgott bátalægi í flestum veðrum. Nú var vor í lofti og túnið orðið grænt og myndaði því falleg litaskipti við lognhvítan sjóinn, sem báturinn rann eftir upp víkina, með þetta hlýlega býli fyrir stafni. Við lent- um í víkinni og gengum upp túnið, á leið okkar urðu fjárhúsin, það var búið að stinga út taðið, og dreifa því fram af húsunum, og þar var Guðmundur með hest að herfa taðið. Það þarf varla að taka það fram, að þetta var í fyrsta sinn sem ég sá herfi og svona farið með taðið, ég þekkti aðeins tað- kvörnina til svona verka. Guðmundur hafði lokið bú- fræðinámi frá Hvanneyri, og not- aði því hagkvæmari vinnuaðferðir við þetta verk. Eftir að hafa heils- ast var gengið til bæjar og drukkið kaffi. A leiðinni heim túnið hitt- um við unga konu í hvítum slopp að skola þvott, mér fannst þá að ég hefði aldrei séð svona fallega konu. Ég fékk fljótlega að vita að þetta var kona Guðmundar, Val- borg V. Emilsdóttir, sem þá mun hafa verið búin að ljúka ljósmóð- urnámi. Þetta var fyrsta koma mín að Dröngum, og hefur orðið mér minnisstæð. Hún verkaði framandi á mig úteyjabarnið sem lítil kynni hafði haft af fastaland- inu. Þetta sama kvöld var bóndi á næsta bæ við Dranga að flytja fé sitt á opnum bátum yfir þveran Breiðafjörð vestur að Brjánslæk á Barðaströnd. Þau Guðmundur og Valborg munu hafa hafið búskap á Dröng- um þetta ár, 1936. Það kom fljót- lega í ljós, að Gumundur var mik- ill bóndi. Það hefur stundum verið sagt um búfræðinga að þeir byggju ekki betur en aðrir, en það sannaðist ekki á Guðmundi. Þrátt fyrir erfiða tíma til búskapar átti hann fljótt gott bú. Hann var mik- ill ræktunarmaður, enda stækkaði og batnaði Drangatúnið fljótlega. Þar sá ég fyrst ræktað grænfóð- ur og fyrstu hestasláttuvélina, Guðmundur var laginn hestamað- ur og notaði þá mikið, hann átti marga góða hesta í sinni búskap- artíð, og þurfti oft mikið á þá að reyna, því hann var jafnan póstur. Hann fór vel með hesta og hafði mikla ánægju af að umgangast þá og hirða. En þótt Guðmundur notaði alla þá tækni sem þá var fáanleg við heyskap, sem sannanlega var ekki mikil, varð hann samt að nota hin gömlu tæki. Orfið, hrifuna og reip- ið. Þannig var að Guðmundur var einnig eyjabóndi, bjó á eyjabýlinu Gjarðey sem þá var nýlega komið i eyði. Þar voru góðar slægnaeyjar sem Guðmundur nýtti vel, enda mun eyjataðan oft hafa orðið hon- um notadrjúg, ekki síst meðan ræktunin var lítil á Dröngum. Eyjaheyskapur er dýr og erfið- ur, þar verður vélum lítt við kom- ið. Éyjabóndi þurfti að eiga trillu- bát og flutningaskip, svo og áhöld til hiunnindahirðinga, selveiða og æðarvarps. Allt þetta varð fljót- lega til hjá Guðmundi. Undir- ritaður var eitt sinn með Guð- mundi í eyjaheyskap: Þar fór sam- an kapp og forsjá, hann var fljótur að skafa af hverri þúfu á tangan- um á henni Stafey, einni bestu heyskapareyjunni í Gjarðeyjar- löndum. En flutningarnir voru þó erfiðastir, allt varð að bera á bak- inu til skips og það var langt í stærri eyjunum, og koma síðan fyrir á skipi. Kannski tvær eða þrjár raðir uppaf borðstokknum. Slíkur farmur er erfiður ef eitt- hvað er að veðri, og þá betra að hafa gát á hlutunum. Ekki minn- ist ég annars en að Guðmundi hafi jafnan farnast vel í sínum sjóferð- um. Hann nýtti líka eyjarnar til beitar fyrir sauðfé og hesta að vetrinum, og þeir flutningar gátu líka orðið sullsamir stundum. En Guðmundur hefur um sína daga verið meira en góður bóndi og póstur, hann hefur lagt gjörva hönd á ýmislegt fleira, og nú síð- ustu ár gerst góður bókbandsmað- ur. Hann hefur alla tíð verið mikill félagsmálamaður, tók virkan þátt í ungmennafélagshreyfingunni á sínum tíma, og æfði íþróttir. Ég minnist þess að hann var góður glímumaður. Það var gaman að sjá þá glíma saman, Gunnar heit- inn bróður hans og hann, sem þeir gerðu stundum á samkomum á Dröngum. í félagsmálum bænda heima fyrir vann hann mikið, ekki síst í kynbótastarfsemi, enda náðu Skógstrendingar þar góðum ár- angri. Meðal annars þeim, að kýr þaðan voru eftirsóttar í næstu sveitum vegna afurðahæfni. Þá var Guðmundur góður félagi í kaupfélagi Stykkishólms og í stjórn þess. Alltaf ákveðinn sam- vinnumaður, þótt hann fylgdi Sjálfstæðisflokknum í landsmál- um. Meðal annars var hann úti- bússtjóri, deildarstjóri og slátur- hússtjóri og farnaðist vel. Það verður ekki annað sagt en að Guðmundur hafi verið mikill framfaramaður í sínum búskap. Efnahagurinn virðist oftast hafa verið það rúmur, að hann gat stað- ið í framkvæmdum. Engin jörð í Skógarstrandarhreppi var bætt jafn mikið og Drangar, í búskap- artíð Guðmundar. Þeir breyttust úr lélegri jörð í góða jörð, vegna ræktunar og húsabóta. Sjálfsagt hefur það hjálpað til að hann hafði Gjarðey, svo og póstferðirn- ar, þótt erfiðar væru og tímafrek- ar. Það væri ekki sanngjarnt að eigna Guðmundi einum þann árangur sem hann náði í sinum búskap. Hans góða kona, Valborg, átti þar stóran hlut. Mér fannst stundum undravert hverju hún gat afkastað. Drangar voru þá miðstöð allra samgangna í hreppnum. Sveitin var vegalaus frá báðum endum. Svo til allir aðdrættir og flutn- ingar fóru fram á sjó og Drangar voru aðal, lendingarstaðurinn. Þar var samkomuhúsið, aðalfjárréttin fyrst, síðar sláturhús, mikið sótt kirkja á næsta bæ, og meðan búið var í eyjunum, sem tilheyrðu Skógarstrandarhreppi, fóru við- skipti þeirra við land aðallega um' Dranga. Það lætur því að líkum að oft hafi verið mannaferðir kringum Dranga á þessum árum. Og fáir held ég að hafi farið þar hjá garði án þess að þiggja veitingar. Undirritaður dvaldi þar stund- um tíma og tíma og það verð ég að segja, að þeir voru fáir dagarnir sem gestir drukku þar ekki kaffi. Hver viðbót þetta var við önnur störf húsfreyjunnar geta aðrir kannski betur dæmt, en ég veit hún var ærin. Þau Valborg og Guðmundur eiga fimm myndarbörn sem öll standa vel fyrir sínu í lífinu. Guðmundur er búinn að stríða við heilsuleysi mörg undanfarin ár og fara oft undir hnífinn, vegna aðgerða á mjöðmum. Ég gæti trú- að að hann væri enn bóndi á Dröngum hefði heilsan ekki brost- ið, því ég hygg að þar hefði hann helst viljað eiga ellidagana. En þrátt fyrir langa vanheilsu er Guðmundur andlega sterkur. Hann hefur haslað sér völl við ný viðfangsefni, sem hann hefur sætt sig við þrátt fyrir breytt umhverfi, og hefur starfað sem bókbindari um árabil við Bókasafn Kópavogs. Á þessum tímamótum á ævi hans vil ég flytja honum bestu af- mæliskveðjur frá mér og Sólveigu, með ósk um að honum og hans nánustu megi ávallt vegna sem best. Kristinn B. Gíslason Geriö svo vel að líta inn Útsölu- markaður í Kjörgarði (kjallara) Góðar vörur á lágu verði Utsölumarkaðurinn í kjallara Kjörgarös Sendum í póstkröfu sími 28640 Fatnaður fyrir alla fjölskylduna Barnaúlpur verö frá kr. 390. Dömuúlpur verð frá kr. 490. Herraúlpur verö frá kr. 490. Flauelsbuxur verö frá kr. 195 stæröir 2—12. Flauelsbuxur stæröir 26—40 kr. 295. Barnapeysur frá kr. 90. Fullorðinspeysur frá kr. 150. Vynilstígvél verö frá kr. 295—395. Sokkar — vetlingar — húfur og margt margt fleira. Skartgripir í miklu úrvali

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.