Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
5
542 dómar
í Sakadómi
áriö 1982
ÁRIÐ 1982 hlutu afgreiðslu við
Sakadóm Reykjavikur alls 2671 mál.
Eru þar af dómar 542, dómssáttir
1700, gæzluvaröhaldsbeiðnir 68,
beiðnir um húsleit 14 en aðrar úr-
skurðarbeiðnir 25. Meðlagsúrskurð-
ir voru 162 og réttarbeiðnir frá öðr-
um embættum og erlendis frá 61.
Lögræðissviptingabeiðnir sem
bárust dóminum árið 1982 voru 59.
Þorrablót á Eskifirdi:
Kona blótgoði
í fyrsta sinn
EHkifirAi, 19. janúar.
ÞORRABIÓT Eskfirðinga, hið 25. sem
haldið er, verður i félagsheimilinu
Valhöll næstkomandi laugardag, 22.
janúar. Þorrablótið sem ávallt er hin
mesta skemmtun, sem haldin er hér
árlega, verður fjölsótt að vanda enda
mikið á sig lagt og vandað til veislunn-
ar. Segja má að öll þessi vika fari í
undirbúning blótsins hjá því fólki sem
valið er til þess hverju sinni.
Það eru 10 hjón og 2 einstaklingar.
í fyrsta sinn er kona blótgoði og er
það Elínborg Þorsteinsdóttir og hef-
ur hún mann sinn, Aðalstein Valdi-
marsson sér til fulltingis, fyrir utan
aðra nefndarmenn. Blótið hefst
klukkan 22.
Ævar
Frá jólatrésskemmtuninni í Birkimel.
Barðaströnd:
Bátur keyptur og
garðyrkjubýli stofnað
Barðaströnd, 3. janúar.
HREPPSNEFND Barðastrand-
arhrepps hélt ekki að sér höndum
um hátíðarnar, heldur hélt þrjá
fundi og. á þeim síðasta, sem var í
gær, seldi hún fjóra hektara af
landi sínu undir garðyrkjubýli.
Kaupendur eru hjónin Gunnar Þór
Böðvarsson og Ragnheiður Jón-
asdóttir og munu þau hefja fram-
kvæmdir á landinu í vor.
Nokkrir bændur hér eru
ásamt Flóka hf. að kaupa 70
tonna bát, sem fyrst og fremst á
að nota til skelfiskveiða.
Jólahald fór hér fram með
hefðbundnum hætti. Á milli há-
tíða var haldin jólatrésskemmt-
un og einnig voru jóla- og ára-
mótadiskótek í Birkimel.
Snjór er orðinn mikill svo
erfitt er að komast um á bílum.
SJ.Þ.
Qxarfjörður:
Kirkjugestir sluppu en
prestur varð veðurtepptur
Þíðukafla gerði um miðjan des-
Skinnastaö, 9. janúar.
VEÐRÁTTA var umhleypingasöm
um hátíðarnar í byggðunum við Öx-
arfjörð. Hrepptu sumir jólagestir
ekki gott ferðaveður.
Menntamáalaráðherra hefur sett
Helgu Hjörvar skólastjóra Leiklist-
arskóla íslands til næstu fjögurra ára,
frá I. júní nk. að telja, að því er fram
Núll féll niður
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær, bls.
16, þar sem sagt var frá horfum á út-
flutningi fersks fisks á vegum Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
('oldwatcr, sölufyrirtækis SH í Banda-
ríkjunum, hefur prentvillupúkinn fellt
niður eitt núll. Rétt er málsgreinin
svona:
„Frá því er þessir flutningar til
Bandaríkjanna hófust um mánaða-
mótin september-október 1981 hafa
farið um 2.000 lestir af ferskum flök-
um til Bandaríkjanna. Verði af
aukningu flutninganna munu um
1.000 lestir verða fluttar til Banda-
ríkjanna á tveggja mánaða tíma-
bili.“
ember, sem kom sér vel til lengri
kaupstaðarferða, auk þess sem tvö
fjölsótt aðventukvöld voru þá
haldin í kirkjunum.
kemur í fréttatilkynningu frá Mennta-
málaráðuneytinu. Tvær umsóknir bár-
ust um stöðuna.
Þá hefur Pétri Einarssyni verið
veitt lausn frá störfum skólastjóra
við skólann frá sama tíma, en Pétur
hefur verið skólastjóri Leiklistar-
skólans um átta ára skeið. Sam-
kvæmt lögum og reglugerð um Leik-
listarskólann getur sami maður ekki
verið skólastjóri lengur en átta ár
samfleytt.
Helga Hjörvar er 37 ára gömul og
menntuð í leiklist bæði hér og er-
lendis, en hún stundaði framhalds-
nám í Teater Videnskab við Kaup-
mannahafnarháskóla. Hún hefur
nokkur undanfarin ár verið fram-
kvæmdastjóri Bandalags leikfélaga
og hefur kennt við Leiklistarskólann
frá stofnun hans. Helga er dóttir
Marsibil Bernharðsdóttur og Helga
Vigfússonar fyrrum kaupfélags-
stjóra. Helga Hjörvar er gift Ulfi
Hjörvar rithöfundi.
Hríðarveður gerði síðan um há-
tíðina. Á jóladag sluppu kirkju-
gestir í Garðskirkju í Kelduhverfi
nauðulega heim undan iðulausum
norðvestanhvelli, en prestur sem
tafðist á kirkjustað varð veður-
tepptur í nokkra klukkutíma. Ekki
var messufært á Kópaskeri annan
jóladag, en slapp til með síðdeg-
ismessu í Skinnastaðakirkju. Jóla-
messa var á Kópaskeri að kvöldi
29. desember.
Færð á vegum hefur annars
oftast verið þokkaleg það sem af
er vetri.
Bændur eru yfirleitt heybirgir,
en sumir fækkuðu nokkuð sauðfé í
haust að tilmælum yfirvalda. Sjó-
sókn er engin á Kópaskeri um
þessar mundir. Nú líta menn held-
ur vonglaðir .fram til hækkandi
sólar, auk þorrablóta og hjóna-
balla. Veðurglöggum mönnum og
draumspökum ber ekki saman um
hvernig tíðarfar verði á útmánuð-
um. Sigurvin
Vitni óskast
ÞANN 12. janúar síðastliðinn klukk-
an 19.45 varó árekstur á mótum Arn-
arbakka og Eyjabakka. Skoda-bif-
reió var ekið út úr innkeyrslu og
Toyota-bifreið eftir Arnarbakka.
Varð af árekstur og var stúlka flutt i
slysadeild.
Þeir sem kunna að hafa orðið
vitni að umræddum árekstri eru
vinsamlega beðnir að gefa sig
fram við lögregluna í Reykjavík.
Leiklistarskóli íslands:
Helga Hjörvar
sett skólastjóri
Flokksstjórn Alþýðuflokksins:
Geir A. Gunnlaugsson
kjörinn gjaldkeri
GEIR A. Gunnlaugsson, prófessor,
var kjörinn gjaldkeri Alþýðuflokks-
ins á fundi flokksstjórnar á mánu-
dag, en framkvæmdastjórn flokks-
ins setti hann sem gjaldkera á þeim
sama fundi og Ágúst Einarsson
fyrrverandi gjaldkeri sagði sig úr
framkvæmdastjórn. Á þeim sama
framkvæmdastjórnarfundi sagði
Garðar Sveinn Árnason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, sig úr fram-
kvæmdastjórninni.
I stað þeirra Ágústs og Garðars
Sveins voru Guðríður Þorsteins-
dóttir, framkvæmdastjóri Banda-
lags Háskólamanna, og Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson, hagræðing-
ur, kjörin í miðstjórn, en hana
skipa 11 manns.
Flokksstjórnin kaus einnig á
fundinum á mánudag nefnd til að
endurskoða stefnuskrá Alþýðu-
flokksins.
JNNLEN1T
Okkur er mikil
ánægja aö geta boðið
nokkrar gerðir af FISCHER göngu og
svigskíðum á sérstöku kynningar-
verði sem gildir einungis meðan nú-
verandi birgðir endast.
■■■■■■■iSvigskídi
SUPERLITE áöur 4.857
nú 3.200
FUTURA S áöur 2.704
_________nú 2.060
Gönguskíöi
RACING SL áöur 2.435
nú 1.860
GLASS áöur 1.106
nú 995
FALKINN
SU0URLAN0SBRAIJT 8