Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
8TH.L-LONGS
ULLARNÆRFÖT
Ný uppfinning
Telur saman
hitaeiningar
í fæðunni
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORÐNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
ULL ARLEIST AR
GÚMMÍSTÍGVÉL
STORZ-
SLÖNGUTENGI
STORZ-
SLÖNGUSTÚTAR
BRUNASLÖNGUR
•
SNJÓÝTUR
SNJÓSKÓFLUR
KLAKASKÖFUR
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
SPISSSKÓFLUR
MARLIN-TÓG
LÍNUEFNI
BLÝ-TEINATÓG
FLOTTEINN
KRAFTTÓG
NÆLON-TÓG
LANDFESTAR
BAUJUSTENGUR
PLAST, BANBUS
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
ENDURSKINSBORDAR
LÍNUBELGIR
NETABLEGIR
NÓTABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
MÖRE-
NETAHRINGIR
LÓÐADREKAR
NETADREKAR
NETAKEDJA
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
BAUJUFLÖGG
NETAFLÖGG
PLASTKÖRFUR
VÍRKÖRFUR
FISKOGGAR
FISKSTINGIR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
KÚLUHNÍFAR
SVEÐJUR
STÁLBRÝNI
VÍR- OG
BOLTAKLIPPUR
PLÖTUBLÝ 1—11/2 M/M
HESSIANSTRIGI
V)
>
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
Opid laugardaga 9—12.
('hicago, I8. janúar. AP.
HARRY Friedman hefur fundið upp
og þróað tölvukerfi nokkurt sem tel-
ur hitaeiningar, fitu, kólesteról og
salt fyrir þá sem stöðugt eru að
reyna að grenna sig en ckkert verð-
ur ágengt.
Uppfinningin hefur sömu eigin-
leika og peningakassi kaupmanns-
ins, og vog þ.e. hún reiknar og
leggur saman hitaeiningagildi
fyrir meira en 700 fæðutegundir.
Friedman kynnti þessa uppfinn-
ingu sína á vörusýningu um síð-
astliðna helgi og sagðist hafa
fengið hugmyndina að henni þeg-
ar hann fyrir þremur árum átti í
erfiðleikum með þyngd sína og tók
að skrá hjá sér allt sem hann
borðaði. Hann er einnig formaður
tölvufyrirtækis nokkurs í Kali-
forníu, þannig að heimatökin voru
hæg.
Hann sagði einnig að nýlegar
rannsóknir hefðu leitt í ljós að
u.þ.b. 120 milljónir Bandarikja-
manna væru þyngri en þeir ættu
að vera og einn þriðji hluti þess
fjölda væri stöðugt í baráttu við
kílóin.
/ponix
HÁTUNI 6A • SÍMI 24420 |
piórgw-
Mnfrtfii
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
AJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
^^^skriftar-
síminn er 83033
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Háskólinn i Aþenu. Papandreu
Fróðlegt verður að fylgjast
með hversu langt efnahags-
ráðstafanir Papandreus duga
ANDREAS Papandreu, forsætisráðherra Grikklands, hefur nú eftir
fimmtán mánaða setu á valdastóli, ákveðið að breyta um efnahagsstefnu,
en þennan tima sem liðinn er frá kosningum hafa efnahagsmálin meira
og minna verið látin reka á reiðanura. Hann hefur lækkað gengi drökm-
unnar, sett á innflutningskvóta og bundið launahækkanir. Amóta erfiðar
ákvarðanir í utanríkismálum gætu svo verið á næsta leiti. Samningavið-
ræður um framtíðarskipan bandarískra herstöðva á grísku landi hófust
að nýju í síðustu viku, og vitað er að innanlands er mjög lagt að
Papandreu af stuðningsmönnum hans að sýna þar hörku. Þá má geta
þess að samtímis þessu eru Grikkir að búa sig undir að taka á móti
Andropov, forsætisráðherra Sovétríkjanna. Það verður fyrsta heimsókn
sovézks forsætisráðherra til Grikklands.
Gjaldmiðill Grikkja hefur nú
með þessum ráðstöfunum í
efnahagsmálum lækkað gagn-
vart Bandaríkjadollar um 15,5
prósent. Þessar ráðstafanir eru
gerðar til að létta undir með út-
flutningsatvinnuvegunum og
auka framleiðsluna innanlands
sem hefur dregizt saman, bæði
landbúnaðarvöruframleiðsla og
iðnaðarvörur.
Vestrænir sérfræðingar segja,
að víst hafi það tekið Papandreu
undralangan tíma að móta efna-
hagsstefnu sína — og sé þó ekki
allt komið í ljós enn. I kosn-
ingabaráttunni hamraði Pap-
andreu mjög á nauðsyn breyttr-
ar efnahagspólitíkur og Grikkir
hafa sýnt honum mikið lang-
lundargeð hvað þetta varðar.
Flestum ber saman um að geng-
islækkun drökmunnar hafi verið
nauðsynleg. En það eigi náttúr-
lega eftir að koma í ljós, hvort
hún ber þann árangur, sem til er
ætlast. Meðal þorra manna hef-
ur það valdið kvíða að verðbólg-
an mun augljóslega, svo og al-
mennar verðhækkanir verða
mun meiri en kauphækkanir og
því óttast margir að enn þreng-
ist hagur þeirra sem minna
mega sín. Gerasmimos Arsenis,
efnahagsmálaráðherra, sem er í
fyrirsvari hóps sem vinnur að
breyttu efnahagskerfi, tilkynnti
einnig á dögunum, að innflutn-
ingshöft yrðu sett á fjölda marg-
ar vörutegundir, allt frá land-
búnaðartækjum til barnaleik-
fanga. Hann vitnaði í grein í
EBE-samningnum, þar sem leyft
er að ríki setji innflutningskvóta
á um takmarkaðan tíma, þegar
alvarleg efnahagskreppa er í
landinu. Síðan Grikkir gengu í
Efnahagsbandalagið sem full-
gildur aðili, hafa þeir flutt inn
ótæpilega frá EBE-löndum og
mun því ýmsum bregða í brún
nú. Þeir hafa verið sólgnir í
nautakjöt frá Frakklandi, vestur
þýzkan ávaxtasafa, dýrindis
baðsett frá Ítalíu að ekki sé nú
talað um gallabuxur frá Bret-
landi. Grískar vörur af þessu
tagi eru ekki samkeppnisfærar,
hvorki hvað varðar verð né gæði.
Kaupmaður einn sagði við
fréttamann AP, að það væri í
raun fráleitt að hann seldi góðan
grískan ost á 600 drökmur kílóið,
en hins vegar kostaði innfluttur
ítalskur gorgonzola 550 drökm-
ur.
Viðskiptahalli Grikkja fyrstu
tíu mánuði ársins 1982 var
hvorki meira né minna en 4,9
milljarðar dollara. Papandreu og
ráðgjafar hans eru sannfærðir
um, að með innflutningskvóta
megi beina Grikkjum á þá braut
að kaupa eigin framleiðslu og
þetta kunni einnig að verða til að
ýta undir og örva fjölbreytni og
gæði á grískum vörum.
Atvinnuleysi í Grikklandi
jókst enn á sl. ári, er nú um átta
prósent. Stjórn Papandreus tel-
ur að með þeim ráðstöfunum
sem eru hafnar nú muni takast
að draga a.m.k. úr því sem nem-
ur 2,5 prósentum á þessu ári.
Auk þess sé fyrirsjáanlegt að
framleiðslan hljóti að aukast og
allt verði þetta Grikkjum til
hagsældar.
Efnahagsmálaráðgjafi forsæt-
isráðherrans Yannis Papani-
colau sagði nýlega, að víst væri
erfiðleikum bundið að gera ná-
kvæmar efnahagsspár, m.a. með
tilliti til hins almenna kreppu-
ástands í heiminum. En það
skyldi einnig haft í huga, að þar
eð gríska stjórnin ynni að því að
breyta efnahagskerfi Grikklands
í grundvallaratriðum, hlyti það
að taka sinn tíma og útheimta
töluverðan aðlögunarvilja meðal
almennings.
Það er þó fjarri því, að öllum
finnist Papandreu sjálfum sér
samkvæmur þegar hann fjallar
um efnahagsmálin. Innan raða
stjórnarandstöðunnar — sem að
vísu er ekki beinlínis upp á
marga fiska — heyrast raddir
um að forsætisráðherran tali
eins og marxisti einn daginn, en
eins og svæsnasti auðvaldssinni
hinn næsta. Vegna óstöðugleika
í Grikklandi á fjármálasviðinu
síðasta árið, hefur dregið úr er-
lendri fjárfestingu í Grikklandi
og vegna verðbólgunnar hefur
ferðamönnum þar fækkað og
hvort tveggja færði áður Grikkj-
um mikið í aðra hönd.
En hvað sem líður gagnrýni á
Papandreu hefur allur þorri
manna á honum hið sama dálæti
og þegar honum var lyft til valda
fyrir hálfu öðru ári. Papandreu
er gæddur persónutöfrum og
mælskusnilld svo að með ólík-
indum er, hvað það snertir á
hann sjálfsagt varla sinn jafn-
ingja á valdastóli nú. Það er gott
og gilt svo langt sem það nær og
svo virðist sem það muni ná
lengra en andstæðingar hans
hugðu. Innan Nýdemókrata-
flokksins trúðu menn því statt
og stöðugt að af Papandreu
rynni mesti glansinn, þegar
hann hefði tekið við og gert sér
grein fyrir því, að jafnvel hug-
sjónamaður verður að horfast í
augu við veruleika.
(Heimildir AP)