Morgunblaðið - 20.01.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
21
í atvinnuleit
Hér má sjá nokkra híla þeirra 15.000—20.000 manna, sem brugdust við
auglýsingu verksmiðju einnar í Millwaukee i Bandaríkjunum, að þörf væri á
200 nýjum starfsmönnum. Hinir atvinnulausu stóðu þúsundum saman í
biðröðum þrátt fyrir talsvert frost og þrátt fyrir það, að þeim væri sagt af
hálfu forsvarsmanna verksmiðjunnar, að líkur þeirra á því að fá atvinnu
væru hvcrfandi litlar.
Raunir bakarísins:
Ekki réttur litur
á kirsuberjunum
\N ashintMon. 19. ianúar. AP.
Wa.shington, 19. janúar. Al\
BANDARÍSKT bakari stendur í
ströngu þessa dagana. Hér er um vel-
megandi bakarí art ræða, fyrirtæki
sem selur vöru sína um heim allan.
Fyrir nokkru afgreiddi bakaríið pönt-
un til Japan og sendi, eins og um var
samið, 500 ávaxtakökur til Yoko-
hama. l>ar fór gamanið að kárna, því
tollverðirnir á staðnum neituðu að
heimila útleysingu vörunnar á þeirri
forsendu að litur kirsuberjanna í
kökunum samrýmdist ekki japönsk-
um rcglum eða venjum.
Talsmaður bakarísins, maður að
nafni McNutt, sagði ástandið
dæmigert fyrir japanskar verndar-
aðgerðir til handa innlendri fram-
leiðslu, „engu að síður hef ég sjald-
an heyrt aðra eins vitleysu á
ævinni. Ég held bara að við send-
um Nakasone ávaxtatertu," sagði
McNutt og átti við forsætisráð-
herra Japana sem er í opinberri
heimsókn í Bandaríkjunum um
þessar mundir. Kökurnar hafa nú
verið í gámi í Yokohama í rúmlega
mánuð og er víst farið að slá í þær.
Sendiráðsmenn hafa sagst lítið eða
ekkert vita um málið og vísað
hagsmunaaðilum í allar áttir.
London:
Tveir lögreglumenn
ákærðir fyrir árás
London, 19. janúar. Al\
TVEIR lögreglumenn i Lundúna-
lögreglunni voru í dag ákærðir fyrir
að hafa skotið á saklausan mann,
sem þeir töldu að væri eftirlýstur
glæpamaður. Þetta mál hefur valdið
mikilli ólgu og óánægju á Bretlands-
eyjum enda hafa enskir lögreglu-
menn ekki verið þekktir fyrir það
hingað til að skjóta fyrst en spyrja
svo.
Lögreglumennirnir John Jard-
ine og Peter Finch, sem báðir eru
37 ára gamlir og starfsmenn
Scotland Yard, voru leiddir fyrir
dómara í dag en síðan látnir lausir
gegn óskilyrtri tryggingu, sem
segir, að þeir þurftu ekki að reiða
fé af höndum. Mál þeirra verður
aftur tekið fyrir 17. mars nk.
Maðurinn, sem lögreglumenn-
irnir skutu á, Stephen Waldorf, 26
ára gamall sjónvarpsfréttastjóri,
er enn illa haldinn en að sögn
lækna er hann „ekki í yfirvofandi
hættu". Hann fékk skot í höfuð,
lungu, lifur og handlegg og er haft
eftir vitnum, að lögreglumennirn-
ir hafi hafið skothríð á bíl hans án
nokkurrar aðvörunar og að síðan
hefði annár þeirra skotið á Wal-
dorf þar sem hann lá í blóðpollin-
um.
1 Bretlandi bera fáir lögreglu-
menn byssur og það er ætlast til
að þeir noti þær því aðeins að um
líf eða dauða sé að tefla fyrir þá.
12 menn handteknir
vegna kókaínfundar
Brusst l, 1H. janúar. AP.
BELGÍSK lögregluyfirvöld flugvellinum í Brussel í síð-
tilkynntu í dag að þau hefðu astliðinni viku.
fundið 6,5 kíló af kókaíni á Hefðu tólf manns frá Kól-
ombíu verið handteknir í tengsl-
um við málið.
Talið er að andvirði kókaíns-
ins sé um 1,5 milljónir dollara
komið til neytenda.
Jarðskjálfti
í Grikklandi
Aþena, 19. janúar. AP.
STERKUR jarðskjálftakippur skók
vestustu eyjar Grikklands í gær.
Manntjón varð ekkert og eignatjón
lítið þrátt fyrir að um 6 stiga kipp
var að ræða. Tveir ögn vægari
fylgdu í kjölfarið. Upptök skjálft-
anna voru á sama stað og skjálftar
mánudagsins.
Sem fyrr segir, var manntjón
ekkert, en íbúar eyjanna þar sem
skjálftarnir voru sterkastir, áttu
ekki svefnsama nótt, þeir fjöl-
menntu út í bíla sína, eða skriðu
saman undir teppi á torgum úti.
Talsverð hræðsla greip um sig og
sprungur mynduðust í húsveggj-
um.
ERLENT
18 drukknuðu
Nýju Dheli, 19. janúar. AP.
HARMLEIKUR varð á árlegri
uppskeruhátíð við Bengal-flóa um
helgina. Múgur og margmenni
kom þar saman sem endranær og
fjöldi fólks stakk sér til sunds í
flóann. Ekki tókst betur til en svo,
að 18 manns drukknuðu og eru
ástæðurnar ókunnar. Þremur lík-
um skolaði á land á mánudaginn,
en á þriðjudaginn fundust svo 15
lík í viðbót.
víða um heim
Akureyri -3 skýjaö
Amsterdam 5 skýjaö
Aþena 18 heiöskírt
Beirut 8 heiðskírt
Bertín 22 heiðskirt
BrUssel 8 rigning
Buenos Aireo 23 rigning
Cario 18 skýjað
Dublin 6 bjart
Feneyjar 0 þokn
Frankfurt C skýjað
Genf 13 heiöskírt
Heisinki 3 snjókoma
Hong Kong 13 skýjaó
Johannesarborg 19 bjartviðri
Kaupmannahöfn 5 akýjað
Las Palmao 19 heiðakírt
Lissabon 14 heiðskírt
London 6 heiðskírt
Los Angeles 19rigning
Madrid 14 heiðskírt
Malaga 19 heiöskirt
Mallorca 13 hélfskýjað
Mexíkóborg 18 haiðskírt
Miami 20 skýjaö
Moskva +2 snjókoma
Nýja Deihi 19 heiðskírt
Nikósia 13 heiðskfrt
Ósló +3 heiöskírt
Paris 9 skýjað
Peking +2 skýjað
Róm 11 skýjað
Stokkhólmur +3 snjókoma
Tokyo 9 heiðskírt
Toronto -t-12 heiðskírt
Vancouver 11 rigning
Vín 13 heíðskírt
Þórshötn Oskýjað
Reykjavík 0 snjókoma
Edward Rowny, formaður bandarísku nefndarinnar um fækkun kjarnorku-
vopna, sýnir hér líkön af sovézkum og bandarískum eldflaugum. Rowny kom
fram í sjónvarpsþætti hjá ABC-sjónvarpsstöðinni þar sem hann útskýrði
síðan eldflaugagerðir og eiginleika.
Arfell býður yður
handrið í stiga og stigapalla
SÉRHAHHIVÐ
FYRIR vður
• FÖST VERÐTILBOÐ
MEÐ UPPSETNINGUM
• Margra ára reynsla, og
greiöslufrestur 4—5 vikur.
• Lituó eik eóa Ijós fura.
• Greiðslufrestur allt
að 7 mánuðir.
HRINGIÐ OG VIÐ KÖNNUM OG HÖNNUM.
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 9—4.
Armúla 20,
sími 84630 og 84635.