Morgunblaðið - 20.01.1983, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
Birgir Isl. Gunnarsson:
„Rofinn fridur um
störf þessa þings“
Formaður þingflokks sjálfstæðismanna, Ólafur G. Einars-
son, fór fram á þaö, f.h. þingflokks sjálfstæðismanna, að
fyrstu umræðu um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar í neðri
deild yrði frestað fram á mánudag nk. Forsetar þingsins og
formenn allra þingflokka féllust á þessa beiðni en forsætis-
ráðherra, Gunnar Thoroddsen, neitaði. Af þessu tilefni fór
fram hörð umræða um þingsköp í neðri deild, sem stóð
langleiðina í þann tíma, er fundir þingflokka hófust, þ.e.
klukkan fjögur síðdegis.
Formenn þingnefndar
fjarverandi
Olafur G. Einarsson (S) færði eft-
irfarandi efnisrök fyrir beiðni
þingflokks sjálfstæðismanna:,
1) Formaður viðkomandi þing-
nefndar (Halldór Ásgrímsson),
sem málið gengur til, er erlendis í
erindum Alþingis. Varaformaður
nefndarinnar (Guðm. J. Guð-
mundsson) er og erlendis. Æski-
legt er að þessir menn, sem eiga að
leiða málið í nefnd, hlusti á
athugasemdir þingmanna í fyrstu
Vill tefja málið af
sérstökum ástæöum
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, taldi mál þetta hafa
fengið ærna umfjöllun í þinginu.
Fjárhags- og viðskiptanefnd gæti
þingað í vikunni, enda formaður
nefndarinnar rétt ókominn heim.
Frestun málsins væri því aldeilis
óþörf. I efnisumræðu mun ég og
sjávarútvegsráðherra svara fyrir-
spurnum sem fram koma. Rök
formanns þingflokks sjálfstæð-
ismanna fyrir frestun til mánu-
Sjálfstæðismenn
sem deila
Árni Gunnarsson (A) vakti at-
hygli á, að hér deildu fyrst og
fremst þingmenn Sjálfstæðis-
flokks. Þeir léku þann skollaleik
að ná atkvæðum bæði út á stjórn-
araðild og stjórnarandstöðu. Þetta
er geðklofi, sagði Árni.
Guömundur J. og
láglaunabæturnar
Friðrik Sophusson (S) sagði m.a.,
að þetta mál hefði fengið þinglega
meðferð í efri deild með sam-
komulagi þingflokka. Sjálfstæð-
ismenn hefðu lagt sitt lóð á þá
vogarskál, að málið fengi eðlilegan
framgang í þeirri þingdeild í gær.
Þeír væru og reiðubúnir að koma
málinu til nefndar í neðri deild á
mánudag. Það er því óskiljanlegt
að ekki er orðið við rökstuddri
beiðni um frestun, vegna fjarveru
Framsókn um þetta stóra efnis-
atriði? Er ekki eðlilegt að Guð-
mundur J. Guðmundsson fái að
koma sjónarmiðum umbjóðenda
sinna um láglaunabætur á fram-
færi í þingnefndinni?
Reiöubúinn til svara
Steingrímur Hermannsson, sjáv-
arútvegsrádherra, kvaðst reiðubú-
inn til að ræða væntanlegar breyt-
ingar á ráðstöfun gengishagnaðar
þegar málið kæmi til fyrstu um-
ræðu í deildinni.
Forsetar og þingsköp
Albert Guömundsson (S) sagði
innlegg sjávarútvegsráðherra
hafa verið lítt upplýsandi. Hann
vitnaði síðan til 44. gr. þingskapa,
sem kvæði á um, að það væri á
valdi forseta þingsins að verða við
beiðni sem þeirri, er hér væri
fram komin. Þar á enginn annar
aðili að koma til.
Albert: Forseti skeri úr
Gunnar: Vilja tefja málið
Steingrímur: Svör koma á
sínum tíma
Sighvatur: Þingflokka-
formenn sammála
Birgir: Verkstjórn gjör-
samlega brugðizt
Friðrik: Upplýsingar
skortir
Geir: Öll efnisatriði þegar
komin til framkvæmda
Árni: Vanvirða og
skrípaleikur
Vanvirða
að taka
þátt
í þessum
skrípaleik
sagði Árni
Gunnarsson
umræðu. Fjarvera þeirra leiðir og
það af sér að meðferð málsins
tefst ekki, þó umræðu verði frest-
að til mánudags, þar eð þing-
nefndin fjallar hvort eð er ekki um
málið fyrr en í næstu viku.
2) Öll efnisatriði frumvarpsins
eru komin til framkvæmda, svo
frestunin hefur ekki áhrif á þau.
Ég spyr: hvert er það efnisatriði,
sem ekki er komið til fram-
kvæmda? Ér von á einhverri efn-
isbreytingu, sem kallar á tafar-
lausa umfjöllun málsins í dag?
Auk þess, sagði Ólafur, er nauð-
synlegt, að fá vitneskju um efn-
isatriði breytingartillögu, sem
sjávarútvegsráðherra hefur boðað
í sjónvarpi, áður en umræða fer
fram, sem og skýringu á fram-
kvæmdaþætti láglaunabóta, skv.
frumvarpinu, sem mjög hefur ver-
ið gagnrýndur.
Er máske hérvera eða fjarvera
einhvers ástæða þess kapps sem
forsætisráðherra leggur allt í einu
á afgreiðslu þessa máls, sem svo
lengi hefur velkzt óafgreitt í þing-
inu?
dags eru því út í hött. Hann er
aðeins að reyna að „tefja málið af
sérstökum ástæðum sem öllum
eru kunnar".
Samkomulag um þing-
störf nauðsynlegt
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins,
sagði mikilvægt, við ríkjandi að-
stæður, að ná samkomulagi um
meðferð þingmála. Formenn þing-
flokka og forsetar þingsins hefðu
talið rétt og eðlilegt að verða við
beiðni um frestun málsins fram á
mánudag. Það er forsætisráðherra
einn sem málið strandar á, en
hann hefur ekki sinnt því sátta-
starfi um meðferð þingmála, sem
nauðsynlegt er, eftir að ríkisstjórn
hans missti meirihluta sinn á Al-
þingi. í þessu efni á ég ekkert sök-
ótt við formenn þingflokka stjórn-
arliðsins né forseta þingsins. Það
er forsætisráðherra, er sættir
stranda á.
formanns og varaformanns þing-
nefndar og vöntunar á upplýsing-
um um efnisatriði, bæði varðandi
breytta ráðstöfun gengismunar og
umdeilda framkvæmd láglauna-
bóta. Raunar skorti upplýsingar
um önnur efnisatriði tengd þessu
máli, eins og hvað liði nýjum við-
miðunargrundvelli (vísitölu). Á
hvaða vegi er það mál? Hefur Al-
þýðubandalagið þaggað niður í
Hversvegna þessi
skyndilegi hraði?
Ólafur G. Einarsson (S) áréttaði
að öll efnisatriði frumvarpsins
væru þegar framkvæmd. Rök-
studd frestun fram á mánudag
breytti engu um þau. Hversvegna
þá þessi skyndilegi hraði í máli
sem haft hefur hægagang allar
götur frá í ágúst, er bráðabirgða-
lögin voru sett? Er forsætisráð-
herra að sýna hver hefur valdið?
Ég ítreka, sagði Ólafur, við er-
um reiðubúnir til að greiða götu
þess að frumvarpið geti gengið til
nefndar á mánudag. Ég fer enn
fram á, að beiðni okkar verði
sinnt.
Of langt í sáttaátt
Birgir ísl. Gunnarsson (S) sagði
þetta þinghald um margt sérstætt:
ringulreið í meðferð mála og verk-
stjórn ábótavatn, er að ríkis-
stjórninni sneri. Verkstjórn ríkis-
stjórnarinnar hefði raunar með
öllu brugðizt.
Reynt hefur verið að ná sam-
komulagi um þingstörf milli þing-
flokka. Ég tel að formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna, Ólafur
G. Einarsson, hafi jafnvel gengið
fulllangt í því að ganga til sam-
komulags við formenn þingflokka
stjórnarliða um málsmeðferð.
Hann hefur ósjaldan borið erindi
þeirra inn í þingflokk okkar og
verið kappsamur um að ná sam-
stöðu um meðferð mála, þó ágrein-
ingur hafi verið um efnisatriði
þeirra, til að sæmilegur friður
gæti ríkt á þessu annars dapur-
lega þingi.
Ég tel ekki ástæöu til að þing-
flokksformaður okkar sitji áfram
þessa verklagsfundi með formönn-
um þingflokka úr stjórnarliði, eft-
ir það sem hér hefur gerzt, og ég
mun ekki taka beiðnum um máls-
meðferð frá stjórnarliðum með
sama hætti hér eftir og hingað til.
Það hefur verið „rofinn friður um
störf þessa þings".
„Vanviröa að taka þátt
í þessum skrípaleik“
Árni Gunnarsson (A) sagði að
stjórn þessa þings væri „gjörsam-
lega fyrir neðan allar hellur".
Verði ekki setzt niður og sætzt á
þingstörf yrði Alþingi sér til ræki-
legrar skammar. Þetta þing hefur
nákvæmlega ekkert unnið, engu
komið frá sér, ef undan eru skilin
örfá brýnustu mál. Þetta verklag
er ekki þolanlegt. Þjóðfélagið er
að fara á hausinn utan þessara
veggja, en innan þeirra gerist ekk-
ert. Það er svo komið að mér
finnst að því nokkur vanvirða að
taka þátt í þessum skrípaleik sem
hér á sér stað.
Hver getur verið
ástæða synjunar?
Geir Hallgrímsson (S) minnti á
að bæði formenn þingflokka
stjórnarliða og forsetar þingsins
hefðu fallizt á frestunarbeiðni
fram á mánudag, enda skýr rök
fram borin. Forsætisráðherra
hefði hinsvegar ekki borið fram
haldbær rök fyrir synjun sinni.
Fyrir lægi að öll atriði frumvarps-
ins væru þegar framkvæmd og að
umbeðin frestun myndi í engu
seinka afgreiðslu málsins í þing-
deildinni. Ymis mikilvæg mál, er
þessu frumvarpi tengdust, beint
og óbeint, væru ýmist óskýrð eða
ekki nægjanlega: boðuð breyting á
ráðstöfun gengismunar, fram-
kvæmd láglaunabóta, stöðvun at-
vinnutækja víða um land, nýr við-
miðunargrundvöllur o.fl. Ég
ítreka í einlægni beiðni um frest
til mánudags.
Geir benti á að skv. nýrri spá
Þjóðhagsstofnunar, frá 17. þ.m.,
væri framreiknuð framfærsluvísi-
tala 1983 65—70% fyrri hluta árs-
ins, yfir 70% um mitt árið en lítið
eitt lægri seinni hlutann, en þó
aðeins ef ekkert það gerðist í
kaupgjalds- eða gengismálum,
sem hefði áhrif á framvindu mála.
Framsaga for-
sætisrádherra
Að lokinni umræðu um þing-
sköp flutti forsætisráðherra,
Gunriar Thoroddsen, stutta fram-
sögu fyrir bráðabirgðalögunum,
sem fjalla sem kunnugt er um
þessi efnisatriði: 1) verðbótaskerð-
ingu launa, 2) láglaunabætur, 3)
gengismun, 4) skerðingu verzlun-
arálagningar, 5) tímabundið vöru-
gjald og hækkun þess o.fl.
Umræðunni var frestað.