Morgunblaðið - 05.02.1983, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983
spurt og svarad
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Um áfengismál og önnur vímuefni
Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu, mun blaðið á næstunni birta spurningar og svör um
áfengisvaldamálið og önnur vímuefni. Lesendum Morgunblaðsins er gefinn kostur á því að hringja
inn spurningar um hvað eina, sem snertir þessi málefni og mun SÁA hafa milligöngu um að afla
svara sérfróðra aðila til þessum spurningum. Þeir, sem hafa áhuga, eru beðnir að hringja í síma
10100 frá kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og verða þá spurningar teknar niður. Spurningar og
svör birtast síðan í Morgunblaðinu nokkrum dögum síðar. Hér fara á eftir spurningar og svör:
Hringið í síma 10100 frá mánudegi til fóstudags
Alkóhólismi og sjúk-
leg fíkn í önnur efni
eru geðrænir kvillar
Einn af lesendum blaðsins hefur
boriö fram eftirfarandi 3 spurn-
ingar:
1. Hvernig er háttað samvinnu-
meðferðarstofnana varðandi
áfengi og ávanalyf annarsvegar
og meðferðastofnanna fyrir geð-
sjúka hinsvegar?
Nú veit ég dæmi þess að fólk
felur sig á bak við það, að þaö sé
alkóhólistar þótt það eigi kannske
við geðræn vandamál að stríða
fyrst og fremst. I>að á auðveldara
með að viðurkenna að þaö sé alkó-
hólistar.
2. Getur það verið, að málefni
alkóhólista hafi ýtt málefnum
geðsjúklinga til hliðar frekar en
kannski var fyrir?
Ef svo er, er þetta þá heillavæn-
leg þróun?
3. Sá háttur, sem alkóhólistar hafa
á að meðferð lokinni, að hittast
og ræða sín mál, mætti segja
mér að væri mjög hentugur
einnig fyrir þá, sem eiga við geð-
ræn vandamál að stríða. Þeir
eiga þess þó ekki kost að fá
28611
Samtún
Hæð og ris um 125 fm samt.
ásamt bílskúr.
Silfurteigur
4ra herb. íb. á efri hæð í fjórbýl-
ishúsi. Góðar innréttingar. Mikil
sameign í kjallara og bílskúrum.
Laugarnesvegur
Járnvarið timburhús, kjallari,
hæð og ris ásamt bílskúr.
Endurnýjað að hluta.
Fálkagata
Steinhús, 4ra herb., ein hæð
með byggingarrétti. Eignarlóð.
Fellsmúli
4ra — 5 herb. um 130 fm íb. á
4. hæð í blokk. Góðar innrétt-
ingar. Bílskúrsréttur.
Kaplaskjólsvegur
4ra herb. um 100 fm íb. á 1.
hæð í blokk.
Álftahólar
4ra—5 herb. íb. á 5. hæð 117
fm. Ákv. sala.
Hraunbær
4ra herb. íb. á 1. hæð. Nýjar
eldhúsinnréttingar. S.svalir.
Ákv. sala.
Hraunbær
3ja herb. íb. á 3ju hæð ásamt
herb. í kj.
Jörfabakki
3ja herb. íb. á 1. hæð,
Maríubakki
3ja herb. íb. á 1. hæð.
Bjarnarstígur
5 herb. um 120 fm íb. á 1. hæó
i steinhúsi.
Brekkustígur
3ja herb. um 80 fm íb. á 1. hæð
í tvíbýlishúsi (steinhús).
Meistaravellir
Óvenjugóð ný 2ja herb. 65 fm
jaróhæð. Innréttingar i sér-
flokki.
Víöimelur
2ja herb. 60 fm íb. í kj. Laus 1.
apríl.
Hús og Eigrtir,
Bankastræti 6
Lúðvík Gizurarson hrl.,
.völdsími 17677.
ókeypis húsnæði eða aðra fyrir-
greiðslu vegna slíkra starfsemi.
Er ekki tími til kominn að einn-
ig sé litið til þeirra hvað þetta
snertir?
Ég vil helst, ef mögulegt er, fá
skoðanir þeirra, sem eru í fyrir-
svari fyrir geösjúka, og þeirra sem
einbeita sér að áfengismálum.
Ég hef verið beðinn um að
svara framangreindum spurn-
ingum eftir bestu getu, en fengið
full stuttan fyrirvara.
Alkóhólismi og sjúkleg fíkn í
önnur vímuefni eru geðrænir
kvillar, flokkaðir sem slíkir í
hinni alþjóðlegu skrá yfir sjúk-
dóma, sem gefin er út af alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni í
Genf (ICD-9 WHO).
Einnig er fjallað um alkóhól-
isma og fíkn í önnur vímuefni í
öllum helstu kennslubókum í
geðsjúkdómafræði.
Spyrjandi setur mig í nokkurn
vanda þegar hann orðar spurn-
ingar sínar á þann veg, að svo
virðist sem hann líti ekki á alkó-
hólisma eða sjúklega fíkn í önn-
ur vímuefni sömu augum og al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin,
höfundar helstu kennslubóka í
geðsjúkdómafræði og undirrit-
aður.
Það er freistandi að fjalla hér
nokkru nánar um þessi atriði, en
ég tel að það yrði of langt mál.
Ég vík því að fyrstu spurning-
unni:
Hér á landi reka nokkrir aðil-
ar stofnanir, er fást við meðferð,
endurhæfingu og geymslu alkó-
hólista eða misnotenda annara
vímuefna.
Sumpart er um að ræða sjálfs-
eignarstofnanir reknar af ýms-
um félögum eða samtökum og
sumpart deildir eða stofnanir
reknar af hinu opinbera.
Islenska ríkið reynir eftir
föngum að veita þegnum sínum
alhliða heilbrigðisþjónustu og
spannar hún bæði yfir líkamlega
og geðræna kvilla.
Hluti af geðdeild ríkisspítal-
anna bæði á Kleppi og geðdeild
Landspítalans er ætlaður þeim
sjúklingum, er þjást vegna mis-
notkunar áfengis og annarra
vímuefna.
Þessar deildir starfa saman
undir stjórn sérstaks yfirlæknis,
en í góðum tengslum við hinar
geðdeildirnar.
Sérmenntað og sérþjálfað
starfslið þeirra svarar að mestu
leyti til þess, sem gerist á öðrum
deildum er annast meðferð
sjúklinga með geðræna sjúk-
dóma. Þannig er leitast við að
tryggja að bæði þeir geðrænu
kvillar, sem kunna að liggja til
grundvallar ofneyslu áfengis og
annarra vímuefna, svo og alkó-
hólisminn, eða aðrir geðrænir
kvillar er af ofneyslunni kunna
að leiða, fái nægilega athygli og
viðhlitandi meðferð. Hrökkvi að-
staðan á meðferðardeildum
áfengissjúklinga ekki til hlaupa
hinar geðdeildirnar yfirleitt fús-
lega undir bagga.
Hæli eða meðferðarstofnanir
er félagasamtök reka hafa mis-
jafnlega mikið samstarf við
meðferðarstofnanir ríkisins. Þar
um finnast engar reglugerðir
eða fastákveðnar reglur og hlýt-
ur það að teljast óheppilegt.
Reyndar má telja það til vansa
hve lítið opinberir aðilar yfir-
leitt nota sér til ráðuneytis þann
umtalsverða hóp sérfróðra
starfskrafta, er meðferðardeildir
ríkisins fyrir drykkjusjúka hafa
á að skipa og hve lítið þeir nýta
reynslu hans og þekkingu.
Sný ég nú að annarri spurning-
unni:
Hérlendis og erlendis hafa
lengi ríkt fordómar gagnvart
þeim, sem þjást af geðrænum
kvillum af ýmsu tagi. Alkóhól-
istar fóru ekki varhluta af þess-
um fordómum framan af þótt nú
sé eitthvað að rofa þar til. Aukn-
um skilningi hefur fylgt betri
aðstaða til að liðsinna drykkju-
sjúklingum og ber að fagna því.
Jafnframt er skylt að óska þess
að linni fordómum í garð þeirra,
er þjást af öðrum geðræðum
kvillum og að aðstaða þeirra
batni.
Óskirnar einar duga að vísu
skammt, því brautina ryður eng-
inn, sem æfina alla leitar óska-
steinsins, en sniðgengur björgin
sem loka leið.
Þá vík ég að þriðju og síðustu
spurningunni:
Ýmsum er þjást af öðrum geð-
rænum kvillum en drykkjusýki
getur gagnast af því að ræða við
aðra er þjást af samskonar
kvilla og svipuðum einkennum.
Það getur aukið þeim skilning á
eðli sjúkdómsins og þeim vanda,
er honum kann að vera samfara,
ekki síst ef umræðurnar fara
fram undir handleiðslu einhvers,
sem hefur sérþekkingu til að
leiðbeina þeim.
Ég dreg þó í efa að þar megi
yfirleitt vænta árangurs til jafns
við þann, er oft næst af þátttöku
alkóhólista í starfsemi AA-
samtakanna. Ég óttast jafnvel
að í sumum tilfellum geti afleið-
ingarnar orðið neikvæðar.
Geðhjálp og Geðverndarfélag
íslands hafa m.a. haft á stefnu-
skrá sinni að berjast fyrir aukn-
um skilningi á málefnum þeirra,
er þjást af allskonar geðrænum
kvillum og bæta aðstöðu þeirra.
Ég leyfi mér í lokin að vísa til
forsvarsmanna þessara samtaka
ijm frekari svör við framan-
greindum spurningum.
Jóhanns Bergsveinsson,
yfirlæknir sjúkradeilda
ríkisins fyrir drykkjusjúka.
Afengi viðurkennt
samkvæmislyf
Ingibjörg spyr:
1. Er munur á alkóhólisma og
alkóhólista og þá hver?
2. Að vera co-alkóhólisti eða stuðn-
ingsmaður, er hægt að fá skýr-
ingu á því?
3. Hvað hefur það að segja að
mæta á fundi eftir meðferð og
þurfa aðstandendur að gera það
einnig?
4. Er erfiðara fyrir fíkniefnaneyt-
anda að standast vímuna en
hina sem eingöngu hafa notað
vín?
5. Geta helgarpartý þróast til hins
verra fyrir fólkið sem hittist og
skemmtir sér saman?
Sigurður Gunnsteinsson dag-
skrárstjóri á Sogni svarar.
1. Þegar talað er um alkóhólisma
í daglegu tali er oftast átt við
sjúkdóminn Alcoholismus
chronicus. Alkóhólisti er aftur
einstaklingur með sjúkdóminn
alcoholismus chronicus.
2. Stuðningsmanneskja er oftast,
maki, foreldri, eða einstakl-
ingur sem er tilfinningalega
tengdur alkóhólistanum. Hans
„hlutverk" í sjúkdómnum er
að „axla ábyrgð", sem alkóhól-
istinn getur ekki gert á meðan
hann drekkur. Dæmi: fela, af-
neita, yfirhylma, ljúga og af-
saka ástand sem verður til
vegna drykkju.
3. Lítið hefur verið rannsakað
orsakir á bakföllum hjá alkó-
'hólistum, sem hafa gengist
undir meðferð. Þó má greina
eitt sameiginlegt sem flest all-
ir koma sér saman um en það
er minnkandi lítil eða engin
fundarsókn hjá AA-samtök-
unum, en þar fær alkóhólist-
inn oftast þann stuðning og
skilning, sem hann hefur þörf
fyrir. Sama mætti segja um
Al-Anon fyrir aðstandendur.
4. Varðandi þessa spurningu vís-
ast til svara Þórarins Tyrf-
ingssonar læknis í Mbl. 29.1’83
og 1.2.’83
5. Okkar reynsla er sú, að flestir
skjólstæðingar okkar hafa
byrjað á neyslu áfengis í sam-
kvæmum í einhverri mynd, en
áfengi er viðurkennt „sam-
kvæmislyf" á íslandi. Það er
notað til þess að; vera með,
losa hömlur, fá góð áhrif, til
að geta dansað, til að geta tjáð
sig, verða glaðari, líða betur í
hópnum o.s.frv. Ur þessum
„samkvæmismannadrykkju-
hóp“ koma alkóhólistar.
Ökuleyfissvipting
veröi aldrei meiri en
þrjú ár
Hver er afstaða SÁÁ við refs-
ingu vegna ölvunar við akstur?
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
framkvæmdastjóri SÁÁ svarar:
f dag er starfandi nefnd á veg-
um dómsmálaráðherra sem
vinnur að endurskoðun ákveð-
inna þátta umferðalaganna,
m.a. þeirra er fjalla um refs-
ingar vegna ölvunar við akst-
ur. Stjórn SÁÁ hefur sent
nefndinni tillögur sínar, sem
m.a. gera ráð fyrir því að öku-
leyfissvipting verði aldrei
meiri en 3 ár, en samkvæmt
gildandi lögum getur einstakl-
ingur verið sviptur ökuleyfi í 6
ár. Margt getur breyst í lífi
einstaklinga til batnaðar á svo
löngum tíma, eins og reynslan
sýnir. Samhliða þessu hefur
SÁÁ lagt til að sektir verði
hækkaðir verulega.
SÁÁ hefur einnig sett fram
tillögur um fræðslunámskeið
fyrir þá sem sviptir eru öku-
leyfi, sem nokkrar þjóðir hafa
tekið upp með góðum árangri.
Mætti þá e.t.v. hugsa sér að
þeir sem sæktu slíkt nám-
skeið, greiddu lægri sektar-
greiðslu en hinir sem ekki
teldu sig þurfa á neinu slíku
að halda.
29555 — 29558
4ra herb. íbúð óskast
Höfum verið beðnir að útvega fyrir fjársterkan kaup-
anda 4ra herb. íbúð á 1. eða 2. hæð, helst í vestur-
bæ.
Uppl. veittar á skrifstofunni.
Eignanaust skíphom 5.
Þorvaldur Lúöviksson hrl., Sími 29555 og 29558.
29555 — 29558
Gamli bærinn — Einbýli
Vorum aö fá til sölumeöferðar 3x70 fm einbýlishús í
hjarta Fteykjavíkur. Húsið er mikið endurnýjað og
skiptist í kjallara, sem er 3 svefnherb., en hægt að
hafa 2ja herb. sér íbúð. Á 1. hæð eru 2 stórar stofur,
hol, eldhús. í risi eru 3 svefnherb. Hugsanlegt aö taka
góöa ca. 120 fm sér íbúö og/ eða góða blokkaríbúö
uppí kaupverð.
Allar nánari uppl. veittar á skrifstofunni.
Eignanaust Skipholti5.
Þorvaidur Lúðvíksson hrl., Sími 29555 og 29558.
Vantar eignir
Vegna aukinnar eftirspurnar vantar okkurl
nauösynlega:
2ja herb. raðhús og
3ja herb. einbýlishús.
4ra—6 herb.
Seljendur hafið samband við okkur. Við
verðmetum, tökum eignir upp á video og
síðast og ekki sízt seljum við eignirnar á
hagstæðan hátt fyrir ykkur.
Gjörið svo vel og hafið sam-
band.
Upplýsingar gefnar um allar eignir á söluskrá.
Onjö 1_____3 Heimasímar: Bergur 74262,
Wr,W Eggert 45423.
Sími 2-92-77 — 4 línur.
'ignavaI
Laugavegi 18, 6. hæð. (Hús Máls og menningar.)