Morgunblaðið - 05.02.1983, Page 20

Morgunblaðið - 05.02.1983, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983 r Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti.6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakið. Stjórn- og stefnuleysi Eins og fram kemur í bak- síðufrétt Morgunblaðsins í gær hefur ríkisstjórnin hafnað kröfu Hjörleifs Guttormssonar, iðnaðarráðherra, um einhliða hækkun raforku til álversins. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, fylgir þessari afstöðu eftir með því að bera fram í ríkisstjórn- inni tillögur, sem ganga þvert á sjónarmið og hugmyndir iðnað- arráðherrans. I stuttu máli ganga tillögur Steingríms út á það að bókhalds og skattaleg deilumál verði sett í gerð; sezt þegar í stað við samningaborð um hækkað orkuverð, hugsan- legar breytingar á skattreglum, stækkun áiversins og fleiri eign- araðila; ný álviðræðunefnd verði sett á laggirnar með þáttöku allra stjórnmálaflokka; og ál- verið hækki hugsanlega fyrir- fram orkuverð eitthvað, til að árétta samningsvilja af sinni hálfu. Þau gagnstæðu sjónarmið, sem fram koma í afstöðu Steingríms Hermannssonar og Hjörleifs Guttormssonar í ál- málinu, eru dæmigerð fyrir það ósamkomulag sem hefur verið og er innan rikisstjórnarinnar um öll meiriháttar mál og við- fangsefni. Minna má á stór orð fram- sóknarmanna um nauðsyn þess að taka upp nýjan viðmiðunar- eða vísitölugrundvöll, fyrst sam- hliða breytingu á orlofslögum, síðar samhliða bráðabirgðalög- um um „efnahagsaðgerðir“, sem koðnað hafa niður í andstöðu Alþýðubandalagsins. Lánsfjáráætlun fyrir líðandi ár, sem lögum samkvæmt á að fylgja fjárlagaafgreiðslu, og hefur grundvallarþýðingu nú vegna skuldastöðu þjóðarbúsins út á við, er feimnismál í stjórn- arherbúðunum, vegna innbyrðis sundrungar. Enginn getur sagt fyrir um, hvenær frumvarp að lánsfjárlögum verður lagt fram á Alþingi. Kjördæmamálið, sem er stórt réttlætismál, hefur nú flutzt frá ríkisstjórn til þing- flokka, sem freista þess að leysa það mál framhjá ríkisstjórn- Þrátt fyrir rekstrarstöðu at- vinnuvega, verðbólguhorfur, viðskiptahalla, samdrátt í pen- ingasparnaði sem nálgast hrun, atvinnusamdrátt og rýrnandi þjóðartekjur bólar síður en svo á marktækum efnahagsaðgerð- um af hálfu ríkisstjórnarinnar, enda hefur hún ekki náð saman í neinu umtalsverðu máli sl. sex mánuði. Raunar má segja að þriggja ára ferill hennar hafi verið stanslausar stjórnarmynd- unarviðræður, sem séu nú seint og um síðir að renna endanlega út í sandinn. Þegar svo er komið að ríkis- stjórn ræður ekki við þau verk- efni, sem hún hefur tekið að sér að leysa, vegna innbyrðis sundr- ungar í öllum meginmálum og vegna þess að hún hefur glatað starfhæfum meirihluta á Al- þingi, þá á hún að víkja. Þegar vandamál hrannast upp í þjóð- arbúskapnum þá er ekki verj- andi að óstarfhæf ríkisstjórn velti þeim á undan sér óleystum, en haldi hjólum atvinnulífsins í hægagangi með vaxandi erl- endri skuldasöfnun. Slík þráset- ustjórn skapar fleiri og stærri vandamál en hún leysir. Það er tímabært að þjóðin stokki upp sín stjórnmálaspil í nýjum kosningum. Því fyrr, því betra. Vörugjalds- hækkun og lág- launabætur Matthías Á. Mathiesen, sem mælti fyrir nefndaráliti sjálfstæðismanna í neðri deild Alþingis um bráðabirgðalög rík- isstjórnarinnar, vakti m.a. at- hygli á því, að ríkisstjórnin hefði hækkað vörugjald, og þar með útgjöld heimila í landinu, um tvöfalda þá fjárhæð, sem ráðgert væri að verja í láglauna- bætur 1982 og 1983. Helmingslækkun verðbóta á laun átti að þjóna þeim tilgangi að hægja á verðbólguhraðanum. Hækkun vörugjaldsins, sem þýðir hækkun verðs á neyzluvör- um, eykur verðbólguhraðann. Með því að sækja þannig í vasa almennings tvöfalda þá fjár- hæð, sem gengur til láglauna- bóta, er enn einu sinni verið að afla fjár á röngum forsendum. Vörugjaldshækkunin gengur að helftinni til aukinna ríkisum- svifa. Framkvæmd láglaunabót- anna er síðan sérkapítuli um pólitískt vinnuvit. Og hver er árangurinn af framkvæmd bráðabirgðalag- anna, spurði Matthías Á. Mathiesen. Við blasir 70% verð- bólga og erlendar skuldir, sem nema munu rúmlega 50% af þjóðarframleiðslu h'ðandi árs. Ávextir stjórnarstefnunnar eru fjórþættir: launaskerðing, skattahækkanir, auknar erlend- ar skuldir og aukin ríkisumsvif. Það fegrar ekki myndina, að at- vinnuleysisvofan er komin með annan fótinn inn fyrir þrep- skjöld þjóðarbúsins. Karl Olsen. j Ólafur Bertelsson. Hálfdán Jónsson. Eysteinn Gústafsson. Þórður Guðlaugsso Bergljót Snorradóttir. Kristín Lárusdóttir. Anna Agústsdóttir. Þórður Sverrisson. Hjördís Magnúsdó Bjarni Thoroddsen. Magnús Einarsson. Hvalveiöibanniö: Jón Bragi Bjarnason. Hafsteinn Ólafsson. Skoðanir almenni Oft hefur hvalurinn verið mikið á milli tannanna á ísiendingum, en aldrei eins og nú þessa dagana. Morgunblaðið hafði í gærmorgun samband við fólk í Reykja- vík og innti það eftir áliti þess á þeirri ákvörðun Alþingis að mótmæla ekki hvalveiðibanni Alþjóðahvalveiðiráðsins. Sýndist sitt hverjum, og svo virðist sem atkvæðagreiðslan á Alþingi (29 gegn 28) spegli nokkuð réttilega afstöðu Keykvík- inga a.m.k. til þessa máls. Sumir eru fjúkandi illir út í þingmenn fyrir að „selja sannfæringu sína fyrir nokkrar fisk- blokkir", eins og einhver orðaði það. Aðr- ir telja skynsamlegt að tefla ekki fisk- mörkuðum okkar í Bandaríkjunum í tví- sýnu með mótmælum, og enn aðrir telja hættu á ofveiði hvala raunverulega og standa gegn mótmælunum á þeirri for- sendu. starfsmaður við löndun í Reykjavík- urhöfn. „Hins vegar liggur það ekki á borðinu að við mundum raunverulega tefla fiskmörkuðum okkar í Bandaríkj- unum í hættu með því að mótmæla banninu. Það er erfitt fyrir leikmann að dæma um það hver viðbrögð Banda- ríkjamanna yrðu þegar á reyndi. Hitt finnst mér þó alger óþarfi og fásinna, að láta Alþingi taka ákvörðun um þetta mál, það er ríkisstjórnarinnar að gera það, enda hefur hún það hlutverk að stjórna landinu, ekki satt.“ hvalurinn sé í hættu. Jafnvel þótt ran- nsóknir séu ekki fullnægjandi er sjálfsagt öryggisatriði að hætta hvalv- eiðum um sinn, eða þar til ljóst er hvað hvalastofninn þolir mikla veiði.“ Erutn engir sérstakir verndunarsinnar „Mér líst vel á þessa niðurstöðu Al- þingis," sagði Hálfdán Jónsson vél- virki. „Það hefur sýnt sig að við erum engir sérstakir verndunarsinnar og því tími til kominn að við förum að sýna einhvern lit í því efni. Og ég sé ekki nokkra minnstu ástæðu til að vera með einhvern hundshaus út af þessu. Bann- ið kemur ekki til framkvæmda fyrr en 1986 svo menn hafa nægan tíma til að aðlaga sig breyttum aðstæðum." Hvalveiðibannið fyrst og fremst tilfinningamál „Ég hefði viljað láta mótmæla bann- inu,“ sagði Eysteinn Gústafsson, vél- stjóri á Ottó N. Þorlákssyni. „Við eig- um alls ekki að láta tilfinningasamt fólk úti í heimi ráða gerðum okkar. Hvalveiðibannið er afsprengi af bar- áttu sjálfskipaðra dýravina, sem ein- hverra hluta vegna hafa tekið ástfóstri við hvali öðrum dýrum fremur. Þetta mál er allt saman byggt á óraunsærri tilfinningasemi, en ekki vísindalegum niðurstöðum. Hvalurinn á okkar slóð- um er örugglega ekki í neinni verulegri hættu, og því lít ég á það sem klaufa- skap hjá Alþingi að mótmæla banninu ekki.“ Siöiaust af Bandaríkjunum aö bjóða mútur Kristín Lárusdóttir húsmóðir var hneyksluð á tilboði Bandaríkjastjórnar að bjóða upp á veiðar í bandarískri lögsögu gegn því að íslendingar mót- mæltu ekki banninu. „Við eigum ekki að láta fara svona með okkur," sagði Kristín. „Og eingöngu vegna þessa til- boðs hefðum við átt að mótmæla. Við hefðum átt að sýna það að við erum frjáls þjóð sem ekki lætur segja sér ' fyrir verkum." Hart aö fá ekki súran hval, en það verður að vernda stofninn „Ég er sammála ákvörðun Alþingis. Ef stofninn er í hættu verður að vernda hann með því að hafa hemil á veiðum," sagði Ólafur Bertelsson, sem ekur bensínbíl hjá Shell. „Þó finnst mér að rannsóknir mættu vera meiri áður en svo örlagarík ákvörðun er tek- in. í sambandi við þrýstinginn frá Bandaríkjamönnum þá er ég fyllilega sáttur við það að Alþingi skuli hafa látið undan honum. Það er ekki annað en raunsæi að sætta sig við að missa hvalinn, sem er ekki nema lítið brot af útflutningi okkar, frekar en að taka áhættuna að missa sölumöguleika í Bandaríkjunum. Hins vegar skal ég játa að mér þykir súrt í broti að fá ekki lengur súran hval, því það er herra- mannsmatur." Altnenningur í Banda- ríkjunum hefði getað gert okkur lífið leitt „Ég er feginn því að þessi niðurstaða varð í málinu. Það er djöfullegt að þurfa að hætta þessum veiðum, en þó skárra en að missa markað í Banda- ríkjunum,“ sagði Þórður Guðlaugsson vélstjóri á Ottó. „Persónulega efast ég um að Bandaríkjastjórn hefði fram- fylgt hótunum sínum, en ég er hrædd- ur við almenningsálitið í Bandaríkjun- um. Þessir friðunarsinnar hefðu getað gert okkur lífið leitt ef við hefðum mótmælt banninu. Þeir hefðu getað breitt út óhróður um okkur íslendinga, komið því inn hjá fólki að við værum tilfinningalausar skepnur sem hugsi ekki um annað en eigin hagsmuni. Og það hefði örugglega haft neikvæð áhrif á viðskipti okkar viö Bandaríkin." Hvalnum stafar engin hætta af veiðum íslendinga Hjónin Jón Gústafsson og Sigrún Sighvatsdóttir voru bæði á því að ís- land hefði átt að mótmæla hvalveiði- banninu. „Ég er óhress með niðurstöðu Alþingis," sagði Jón. „Fyrst og fremst vegna þess að ég álít að utanaðkom- andi þrýstingur hafi ráðið mestu um þetta „val“ Alþingis. í öðru lagi tel ég að miðað við þann kvóta sem við notum sé hvalnum engin hætta búin af okkar hálfu." Sigrún tók í sama streng: „Við eigum að taka okkar ákvarðanir sjálf, og ég treysti íslenskum vísinda- mönnum fullkomlega til að gera við- eigandi rannsóknir til að skera úr um það hvort hætta sé á ofveiði hvals eða ekki.“ Vil ekki láta drepa hvalinn Anna Ágústsdóttir, sem vinnur á símanum í Landakotsspítala, sagðist ekki geta sætt sig við að hvalurinn væri drepinn. „Ég lít á þetta sem dráp, ekki veiðar. Mér er það ógleymanlegt hvernig farið var með grindina á sín- um tíma. Það voru ómannúðlegar að- farir. Mér er sagt að þetta sé skárra núna, en þó kemur það fyrir að hvalur- inn heyi langt og sársaukafullt dauða- stríð. Ég veit að hvaladrápin veita fjölda manns atvinnu, en af mannúðar- ástæðum vil ég ekki láta drepa hval- inn.“ l>að er ríkisstjórnarinnar að taka afstöðu í málinu „Ef við höfum um það að velja að fórna litlum markaði eða stórum, þá hljótum við að fórna þeim smærri. Svo einfalt er það,“ sagði Karl Olsen, Sjálfsagt öryggisatriði að hætta hvalveiðum um sinn „Ég er fylgjandi banninu," sagði Bergljót Snorradóttir afgreiðsludama hjá Jóni Loftssyni. „Það er fyrst og fremst verndunarsjónarmið sem ræður þessari afstöðu minni. Mér finnst rétt að taka tillit til þess sem sagt er að Skynsamlegt að mótmæla ekki „Ég held að það sé mjög skynsamleg afstaða að mótmæla ekki banninu," sagði Þórður Sverrisson læknir á Landakoti. „Rök mín fyrir þessari skoðun eru þau númer eitt, tvö og þrjú, að ef við hefðum mótmælt, gæti banda- riski neytendamarkaðurinn gert okkur Ijótan grikk. Það er ekki bandarísk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.