Morgunblaðið - 05.02.1983, Side 15

Morgunblaðið - 05.02.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983 15 stæðisflokksins hefur orðið fyrir miklum hnekki. I ólgu vonbrigða og reiði fjölmargra stuðnings- manna flokksins hefur krafan um kröftug mótmæli orðið mjög sterk. M.a. kom þetta fram á fjölmenn- um fundi sjálfstæðismanna á ísa- firði þann 27. janúar sl. Þar voru hugmyndir m.a. um hefðbundin mótmæli í formi ályktunar, og líka krafa um harð- ari mótmæli þar á meðal sérfram- boð undir merki flokksins. Mót- mæli þessa fundar hafa verið send kjördæmisráði, en fundarboðend- um var falið að athuga nánar með sérframboð og framkvæmd próf- kjörs ef til kæmi. Á fundinum lýstu margir ágæt- ir stuðningsmenn flokksins óánægju sinni með ákvörðun kjör- dæmisráðs, og töldu fullljóst að óánægðir kjósendur myndu ekki vinna fyrir þetta framboð sem nú hefur verið ákveðið. Þessi akvörðun kjördæmisráðs kemur því til með að bitna á heild- arfylgi flokksins en ekki þeim sem henni var stefnt gegn. Sérframboð Margir hvetja til sérframboðs, og víst er um það að stuðnings- menn þess eru nægjanlega margir til að auðvelt væri að koma því fram. Áberandi er þegar um þetta er rætt hversu margir telja þetta auðvelda og áhrifamikla aðferð til sem öflugustra mótmæla við röng- um ákvörðunum kjördæmisráðs- ins og framsetningu listans. Víst er um það að sumum þeim sem boðið hafa fram sérframboð vegna ósættis við ákvarðanir flokksins hefur vegnað vel. Ýmsar spurningar vakna þegar þessi leið er rædd. Ég efast ekki um að mikill hluti óánægðra kjósenda á Vestfjörðum eru hinir ágætustu flokksmenn, og hver um sig vill án efa stuðla að því að flokkurinn komi sem heil- steypt og leiðandi afl fram í stjórnmálum landsins. Þetta er vilji sjálfstæðismanna. En hver er staða flokksins þegar klofningur og ósætti forustumanna hans hef- ur staðið um nokkurt árabil. Flokkurinn er bæði í stjórn og þeim árum, áttu síður en svo upp- hefð í vændum." Eitt hið fyrsta verk félagsins, er það hafði verið stofnað, var að kjósa nefnd til samninga við bak- arameistara. Ekki gekk það snuðrulaust að fá bakarameistarana til að viður- kenna hið nýja félag, sem samn- ingsaðila. Vildu þeir að sjálfsögðu halda fornum hætti, að semja við einstaklinga um þau kjör er þeim þóknaðist að bjóða. En samtök bakarasveina reyndust furðu traust í hinni fyrstu lotu. Kom þar, að samkomulag náðist og var hinn fyrsti samningur sveinafé- lagsins við meistara gerður vorið 1908. Til gamans má geta þess að kaup það er samið var um, var 18 kr. á viku fyrir 11 stunda vinnu- dag. Það hefur yfirleitt ríkt friður milli sveina og meistara. En þess má geta að sumarið 1967, háðu bakarar lengsta verkfall sem háð hefur verið á íslandi, eða í 101 dag. Verkfallið varð bakarasvein- um og félagi þeirra að sjálfsögðu mjög erfitt og kostnaðarsamt. Fyrsta stjórn félagsins var skip- uð eftirtaldir menn, Sigurður Á. Gunnlaugsson, formaður, Kristján P.A. Hall ritari, og Kristinn Þ. Guðmundsson gjaldkeri. Núver- andi stjórn sveinafélagsins er skipuð: Hermann Arnviðarson, formaður, Sturla Birgisson, vara- formaður, Sigurður Sigurjónsson, gjaldkeri, Styrmir Bragason, rit- ari, Guðmundur P. Jónsson, með- stjórnandi. í tilefni af þessum tímamótum heldur BSFÍ hátíð að Hótel Loft- leiðum í kvöld, 5. febrúar. (Frá l{akaras\rinaf< lai;inu.) stjórnarandstöðu og sérframboð hafa gengið yfir og innbyrðis ágreiningur er mikill. Er á þetta bætandi? Eiga minnihlutahópar innan flokksins að stilla upp hver fyrir sig, á aldrei neinna sætta að leita? Get- ur flokkurinn í þessari stöðu verið sú kjölfesta íslenskra stjórnmála sem stuðningsfólk hans gerir kröfu um? Vestfirskir sjálfstæðismenn ana ekki hugsunarlaust útí sérfram- boð, á móti sínum eigin flokki. Við gerum okkur ljósa grein fyrir stöðu þessara mála, og viljum tak- ast á innan flokksins og síðan með flokknum til þess að koma stefnu- miðum okkar fram. Við þurfum að standa vörð um áhrif okkar á al- þingi og til þess að okkur takist það vel verðum við að starfa sa- man. Brýn byggðamál kalla einnig á sameinaða krafta okkar allra. Um þetta þurfa allir að hugsa sem leiða hugann að sér framboð. Er ósætti um framkvæmd uppstill- ingar nægileg ástæða til sérfram- boðs, þó vitað sé að mikið og öflugt fylgi er gegn þröngsýni fámennrar flokksforustu í héraði? Hvernig verður sáttum náð á ný ef nú er gengið til sérframboðs, koma fylgjendur þess til fylgis við flokkinn að nýju ef prófkjör fer fram? Þessar og þvílikar spurningar ganga nú milli sjálfstæðismanna á Vestfjörðum. Á meðan þefta er rætt hér í hér- aði, getur flokksforustan bæði hér heima og í höfuðstöðvunum fyrir sunnan látið sem ekkert sé. Af- greiðslu framboðslistans er lokið, og slíkar spurningar hafa víst ekki þvælst fyrir þeim ágætu mönnum hvorki í kjördæmisráði netmið- stjórn. Vangaveltur um fylgi flokksins og með hvaða ráðum, hægt er að treysta það sem best virðist ekki hin sterka hlið flokksforustunnar, frekar en viðleitnin til sátta og samlyndis innan hans. Flokksforustan, hvort sem er í stjórn eða stjórnarandstöðu verð- ur að fara að átta sig á því að krafa hins almenna kjósenda er sú að Sjálfstæðisflokkurinn komi fram sem heilsteyptur lýðræðis- legur flokkur, og að öll þröngsýni á borð við ákvörðun kjördæmis- ráðs á Vestfjörðum á engan rétt á sér innan vébanda hans. Ég vona að sjálfstæðismenn á Vestfjörðum beri gæfu til þess að standa fast saman um stefnumið Sjálfstæðisflokksins, um leið og þeir þó haldi fullu sjálfstæði sínu sem hugsandi menn. Guðm. H. Ingólfsson, Hnífsdal ^potta^ar 100 nú 65 vCeratt"Kp ctaerr'Kr' oo nú 52 Speonan''"^e,a'i. 4* *aUP'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.