Morgunblaðið - 05.02.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983
13
Sextugur:
Friðjón Þórðarson
dómsmálaráðherra
Friðjón Þórðarson dóms- og
kirkjumálaráðherra er sextugur í
dag.
Fæddur er hann 5. febrúar 1923
að Breiðabólstað á Fellsströnd í
Dalasýslu, sonur Þórðar Krist-
jánssonar hreppstjóra og konu
hans, Steinunnar Þorgilsdóttur.
Friðión lauk lagaprófi við Há-
skóla Islands árið 1967. Hann var
fulltrúi lögreglustjórans í Reykja-
vík í átta ár, síðan í tíu ár sýslu-
maður Dalamanna og annan ára-
tug sýslumaður Snæfellinga.
Öllum þessum störfum gegndi
hann af dugnaði, samviskusemi og
réttsýni og naut hvarvetna mikilla
vinsælda.
Hugur Friðjóns hneigðist
snemma að stjórnmálum, og skip-
aði hann sér undir merki sjálf-
stæðisstefnunnar. Hann var í
framboði til alþingis í Dalasýslu
og síðar í Vesturlandskjördæmi,
alþingismaður 1956—’59 og frá
1967. Hann hefur setið á tuttugu
og þrem þingum.
8. febrúar 1980 tók Friðjón sæti
í núverandi ríkisstjórn sem dóms-
og kirkjumálaráðherra. Hann hef-
ur verið athafnasamur í embætti
og beitt sér fyrir mörgum umbóta-
málum á sviði dómsmála og
kirkjumála. Mun það álit forystu-
manna í kirkjumálum, að vart
hafi áður skipað sæti kirkjumála-
ráðherra maður jafn áhugasamur
og skilningsríkur um þau mál.
Það sýndi pólitískan þroska og
þrek, þegar þeir Friðjón Þórðar-
son og Pálmi Jónsson ákváðu að
styðja myndun ríkisstjórnarinnar
og taka sæti í henni. í kjördæmi
þeirra hefur hörð hríð verið að
þeim gerð, svo að stundum hefur
nálgast gerningaveður. En allt
hafa þeir staðið af sér með
manndómi, kjarki og vitsmunum.
Kjósendur þeirra hafa vottað
þeim slíkt yfirburðatraust í und-
angengnum prófkjörum, að aðrir
stjórnmálamenn mættu mæna
þangað öfundaraugum, og gera
það eflaust ýmsir — í leynum.
Slíkur menningar- og mannúð-
armaður, sem Friðjón er, á sér
mörg hugðare(ni og áhugasviðið
er vítt. Atthagatryggðin er með
þeim hætti, sem Örn Arnarson
lýsir:
Það tekur tryggðinni’í skóvarp,
sem tröllum er ekki vætt.
Sagnfræði, byggðasaga, þjóðleg
fræði, eru honum hugleikin. í sögu
Dalamanna og í Sturlungu standa
honum fáir á sporði.
Tónlistin er hugstæð Friðjóni og
hans fólki og söngurinn líf hans og
yndi. Sjaldan mun fólk saman
komið á Breiðabólstað án þess að
tekið sé lagið. Sjálfur er Friðjón
söngmaður mikill og var einn fjór-
menninganna í söngflokknum
„Leikbræðrum", sem í fullan ára-
tug auðgaði tónlistarlíf lands-
manna og vakti víða gleði og að-
dáun. Friðjón var foringi Leik-
bræðra á öllum þeirra söngferli.
Friðjón hefur verið sá lánsmað-
ur í lífinu að eignast að lífsföru-
naut slíka afbragðskonu sem
Kristín er Sigurðardóttir. Þau
eiga fimm mannvænleg myndar-
börn.
Innilegar árnaðaróskir til Frið-
jóns og fjölskyldu hans frá okkur
Völu.
Gunnar Thoroddsen
(oWtágeng^. einn>9 Pa a emu s.m-
téttingunv^|ar þér nenwr
u"artOriðje>^
tali. ---
QaQnarssöt' h »<077
Krist«nn Bag ^ sírnl 4107
Kársnesbra
Kópav°9'-
pmiajk
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN
MYNDAMOT HF.
Til sölu
Playmouth Duster árg.
Verö 20 þús.
Uppl. í síma 92-3608.
1973 í daglegri notkun.
OMRON búöarkassar fyrir minni og
stærri fyrirtæki fyrirliggjandi.
A
%
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
___ r<5’ Hverfisgötu 33
Simi 20560
Handriðin frá
G.T. eru líka
húsgögn.
GT HÚSGÖGN H.F.
Smiðjuvegi 6, Kópavogi
sími 74666.
Opiö laugardag
frá 10—18
Opið sunnudag frá 14—16
OMRON