Morgunblaðið - 05.02.1983, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 05.02.1983, Qupperneq 40
■ l I'' I I I _______________.__________________ ; .^^skriftar- síminn er 830 33 ^Auglýsinga- síminn er 2 24 80 LAUGARDAGUR 5. FEBRUAR 1983 Forinenn stjórnmálaflokkanna á stööugum fundum: Stefnir í samkomu- lag í kjördæma- málinu um helgina? FOKMENN Ktjórnmálaflokkanna og þingflokkanna hafa setið marga fundi um kjördæmamálið síðustu vikur og í lok fundar þeirra í gær, sem stóð frá kl. 14 til 19, virtist stefna í, aö samkomulag náist um sameiginlegar tillögur. Formennirnir koma saman á ný á sunnudag og var í gær reiknað með frágangi tillagna á þeim fundi, sem síðan yrðu lagðar fyrir þingflokkana til endanlegrar afgreiðslu á mánudag. Tillögurnar sem samkomulagið byggir á, eru í svipuðum dúr og Mbl. hefur skýrt frá, þ.e. fjölgun þingmanna í 63 og breyttar út- Alverð hækkandi á heimsmarkaði ÁL HEFUR hækkað nokkuð í verði á heimsmarkaði á síðustu vikum, samkvæmt upplýsingum í tímaritinu „Metal Bulletin“, en eins og kunn- ugt er, hefur verð á áli farið lækk- andi síðustu misserin og valdið ál- framleiðslufyrirtækjum miklum erf- iðleikum. Við skráningu 26. janúar sl. var hvert tonn á 1.125 dollara, en við skráningu 31. janúar var verðið komið í um 1.200 dollara, eða hafði hækkað um 6,67%. Verðið er það laegsta síðan í ágúst 1980. Frjósemi á Eskifirði Kskinröi, 4. febrúar. SÍÐASTA ár voru Eskfirðingar óvenju frjósamir og ekki færri en 52 börn litu dagsins Ijós á árinu. Er þetta mesti fjöldi fæð- inga á Eskifirði á einu ári. Ekkert lát virðist á, því það sem af er þessu nýja ári hafa sjö nýir Eskfirðingar komið í þennan heim. — Ævar reikningsreglur. Nokkrar breyt- ingar hafa orðið frá upphaflegu hugmyndunum um skiptingu þingmanna milli kjördæma, en samkvæmt heimildum Mbl. virðist vera að nást breið samstaða innan og milli þingflokkanna um hug- myndirnar eins og þær liggja nú fyrir. Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins hélt fund um málið síðari hluta dags í gær, þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kemur saman kl. 10 árdegis. Ef samkomulag næst á mánu- dag munu flokkarnir leggja fram sameiginlega tillögur sínar á Al- þingi og í kjölfar þess er reiknað með ákvörðun um dagsetningu þingrofs og nýrra kosninga. Mesta aukning sov- ézkra herflugvéla síðastliðin 5 ár STÖÐUG stígandi hefur verið í ferðum sovézkra herflugvéla yfir ísland og hefur aukningin frá ár- inu 1977, þ.e.a.s. síðastliðin 5 ár veriö um 128%. Á síðastliðnu ári 1982 komu sovézkar herflugvélar 137 sinnum til fslands, en á árinu 1977 var tala þeirra 60. Aukning á tíðni ferða sovézkra herflugvéla við ísland milli ár- anna 1981 og 1982 var 10,48% og er það mesta aukning, sem orðið hefur á flugferðunum frá árinu 1978, er þær jukust milli ára, frá árinu 1977, um 100%. milli ár- anna 1980 og 1981 varð aukning á tíðni flugferða sovézkra her- flugvéla 4,20% og milli áranna 1978 og 1979 vrð aukningin 1,67%. Tvisvar sinnum hefur tíð- ni ferða minnkað, milli áranna 1976 og 1977 um 3,3% og eins á milli áranna 1979 og 1980, en þá varð einnig vart sovézkra her- flugvéla sjaldnar en á árinu áð- ur. Minnkunin þá nam 2,52%. Hjörleifur í skeyti til Alusuisse: Einhliða aðgerðir á næstu dögum HJÖRLEIFUR Guttormsson iðn- aðarráðherra sendi Alusuisse skeyti í gær, þar sem hann tilkynnir að iðnað- arráðuneytið undirbúi nú einhliða að- gerðir gagnvart Alusuisse í samræmi við fyrri yfirlýsingar og muni þær líta dagins Ijós á næstu dögum. Hjörleifur segir einnig, að í tilefni af tillögu Alusuisse í síðasta skeyti um að sérfræðingar aðilja hittist til samningaviðræðna um hækkun raf- orkuverðs, að hann telji heppilegra, eins og mál standa nú, að skoðana- skipti fari fram bréflega. Spáð góðviðri SAMKVÆMT upplýsingum Veðurstof- unnar er í dag, laugardag, búist viö norðan- og norðaustanátt um allt land, með strekkingsvind og frosti. Elja- gangur verður á öllu norðanverðu land- inu, frá Vestfjörðum til Austfjarða, en á sunnanverðu landinu öllu og við Faxaflóann verður úrkomulaust og víða léttskýjað. Á morgun, sunnudag, er hins veg- ar spáð víðast hvar góðu veðri, hægri breytilegri átt eða vestan golu um land allt. Vöruskiptajöfnuður neikvæð- ur um 3.168 milljónir króna VÍÍRUSKII’TAJÖFNUÐUR landsmanna var óhagstæður um liðlega 3.168 milljónir króna á síðasta ári, en verðmæti innflutnings var tæplega 11.647 milljónir króna. Verðmæti útflutnings var hins vegar tæplega 8.479 milljónir króna. Til samanburðar var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 948,5 milljónir króna á árinu 1981, en þá var verðmæti innflutnings tæplega 7.485 milljónir króna, en verðmæti útflutnings hins vegar liðlega 6.636 milljónir króna. I desembermánuði brá hins veg- ar svo við, að vöruskiptajöfnuður landsmanna var hagstæður um tæplega 93,2 milljónir króna, en þá var verðmæti innflutnings tæplega 1.139 milljónir króna, en verðmæti útflutnings var hins vegar tæplega 1.232 milljónir króna. í útflutningi vegur þyngst út- flutningur á áli og álmelmi, en verðmæti þess á síðasta ári var liðlega 852 milljónir króna. Til samanburðar var það að verðmæti liðlega 634 milljónir króna á árinu 1981. Þá var verðmæti kísiljárns- útflutnings liðlega 243,2 milljónir króna á síðasta ári, borið saman við liðlega 123,4 milljónir króna. í innflutningi vegur þyngst inn- flutningur fyrir íslenzka álfélagið, en verðmæti hans var liðlega 674 milljónir króna á síðasta ári, borið saman við tæplega 529,3 milljónir króna á árinu 1981. Verðmæti inn- flutnings fyrir íslenzka járn- blendifélagið var að verðmæti um 128,2 milljónir króna á síðasta ári, en var til samanburðar liðlega 94 milljónir króna á árinu 1981. Við samanburð við utanríkis- verzlunartölur 1981 verður að hafa í huga, að meðalgengi erlends gjaldeyris í janúar-desember 1982 er talið vera 61,0% hærra en það var í sömu mánuðum 1981. Réðst á mann með hníf að vopni: „Dauðhræddur um að hann mundi skaða mig eða aöra“ — segir Viðar Guðjohnsen sem yfirbugaði árásarmanninn „ÉG VAR dauðhræddur um að hann mundi skaða mig eða aðra sem þarna voru, og þetta kom illa á mig. Atvikiö um áramótin flaug mér í hug, því þá var góðum vini mínum hanað með hnífi," sagði Viðar Guðjohnsen umsjónarmaður í gistihúsi í Keykjavík í samtali við Mbl. en hann varð í gær fyrir árás manns sem hafði hníf að vopni. Hann var búinn að vera hér hjá okkur í nokkra daga, en komið að því að reka hann út þar sem hann hefur verið með óspektir og ráðizt meðal annars á gestina. Hann átti að fara út í gær, en við sáum aumur á hon- um þá vegna veðursins. Þegar við ætluðum að vísa honum út um hádegisbilið upp- hófust stympingar, en ég kom honum fljótt undir og hélt hon- um. Þá lofaði hann að fara út Viðar Guðjohnsen með góðu og ég sleppti honum. En við vorum vart staðnir upp þegar hann dró fram stóran hníf, sem hann var með innan á sér, og mundaði hann. Það var þarna slangur af fólki og hætta á ferðum, og til að vernda gestina var ekki um annað að ræða en stökkva í hann. Þetta var hraustur strákur og erfiður viðureignar, skilst hann hafi verið í lyftingum áður fyrr. Hann veitti mikla mótspyrnu en mér tókst að þröngva honum niður í horn og halda honum þar til lögreglan kom. Júdó-kunnátta mín kom þarna að engu gagni, þetta voru venjuleg slagsmál og tekizt á af hörku. Mér leið illa í átökunum því hann var alltaf með hnífinn í hendi. Árásarmaðurinn er á þrítugs- aldri og góðkunningi lögreglunn- ar, að því mér er tjáð, er meðal annars að taka út skilorðsbund- inn dóm,“ sagði Viðar. Hjaltalínshús fyrir miðju, íbúðarhús Sigurðar Ágústssonar til vinstri og pakkhúsið hægra megin. Þeim húsum tókst að bjarga. Stykkishólmur: Hjaltalínshús brann til kaldra kola í gærkvöldi Stykkishólmi, 4. fuhrúar. HJALTALÍNSHÚS, eitt elzta húsið hér í Hólminum, yfir 100 ára gamalt, brann til kaldra kola í kvöld. IJm tíma var óttast að eldur læsti sig í na>stu hús en slökkviliðið gekk vasklega fram og tókst að verja húsin. Það var klukkan rúmlega 21 að eldsins varð vart og var hann strax mjög magnaður. Ekki tókst að bjarga húsinu, sem er stórt, múrhúð- að timburhús, tvær hæðir, kjallari og loft. Hér var norðanátt og tals- vert hvasst. Tvö hús voru einnig í hættu, fbúðarhús Sig. Ágústssonar, sem stóð beint á móti við Skólastíg og pakkhús, sem stendur við Hafnar- götu. Þeim tókst að bjarga. í Hjaltalínshúsi verzlaði um langa hríð athafnamaðurinn Sæmundur Halldórsson, sem rak umfangsmikla verzlun og útgerð á fyrri hluta ald- arinnar. Ekki hefur verið búið í hús- inu um hríð, en það notað sem geymsla. — Árni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.